Hvers konar afritun, yfirfærsla, dreifing eða varðveisla á hluta skjals þessa eða skjalsins alls er óheimil
nema að fyrir fram fengnu skriflegu samþykki Nokia.
US Patent No 5818437 and other pending patents. T9 text input software Copyright (C)
1997-2004. Tegic Communications, Inc. All rights reserved.
Nokia, Nokia Connecting People og Navi eru vörumerki eða skrásett vörumerki Nokia Corporation. Önnur
vöruheiti eða heiti fyrirtækja sem nefnd eru hér geta verið vörumerki eða vöruheiti viðkomandi eigenda.
Nokia tune er vörumerki Nokia Corporation.
Nokia framfylgir stefnu sem felur í sér stöðuga þróun. Nokia áskilur sér rétt til að gera breytingar og
úrbætur á hvers konar vöru sem getið er í þessu skjali án undangenginnar tilkynningar.
Nokia ber undir engum kringumstæðum ábyrgð á tapi gagna eða tekjutapi og ekki á beinu eða óbeinu
tjóni, þar á meðal útlögðum kostnaði, tekjutapi eða missi ágóða, af hvaða orsökum sem tjón kann að vera.
Inntak þessa skjals er afhent „eins og það kemur fyrir“. Umfram það, er lög áskilja, er engin ábyrgð veitt,
hvorki berum orðum eða undirskilin, á nákvæmni, áreiðanleika eða inntaki þessa skjals, á það meðal
annars, en ekki eingöngu, við um söluhæfni eða ábyrgð á að varan hentl tiltekinni notkun. Nokia áskilur
sér rétt til að endurskoða skjalið eða draga það tilbaka hvenær sem er án undangenginnar tilkynningar.
Birgðir á tilteknum vörum geta verið breytilegar eftir svæðum. Vinsamlegast kannaðu málið hjá næsta
söluaðila Nokia.
Tæki þetta kann að innihalda vörur, tækni eða hugbúnað sem lýtur útflutningslögum og reglugerðum í
Bandaríkjunum og öðrum löndum. Breytingar á flutningsleiðum sem ekki samræmast lögum eru óheimilar.
Að hringja....................................................................................................................................................19
Símafundi komið á.................................................................................................................................19
Virkar aðgerðir meðan á símtali stendur............................................................................................20
Hlustað á talboð ........................................................................................................................................21
5. Upplýsingar um rafhlöðu............................................................................... 51
Hleðsla og afhleðsla .................................................................................................................................51
UMHIRÐA OG VIÐHALD..................................................................................... 53
Lesið þessar einföldu leiðbeiningar. Sé þeim ekki fylgt getur það verið hættulegt eða varðað
við lög. Lesa skal alla notendahandbókina til að fá nánari upplýsingar.
ÖRYGGI ÞEGAR KVEIKT ER Á TÆKINU
Ekki kveikja á símanum þar sem notkun þráðlausra síma er bönnuð eða þar sem
hún kann að valda truflunum eða hættu.
UMFERÐARÖRYGGI GENGUR FYRIR
Fara skal að öllum staðbundnum lögum. Ætíð skal hafa hendur frjálsar til að
stýra ökutækinu við akstur. Umferðaröryggi skal ganga fyrir í akstri.
TRUFLUN
Allir þráðlausir símar geta verið næmir fyrir truflunum, sem getur haft áhrif á
notagildi þeirra.
SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM Á SJÚKRASTOFNUNUM
Virða skal allar takmarkanir. Slökkva skal á símanum nálægt lækningabúnaði.
HAFA SKAL SLÖKKT Á SÍMANUM Í FLUGVÉLUM
Virða skal allar takmarkanir. Þráðlaus tæki geta valdið truflunum í flugvélum.
SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM ÁÐUR EN ELDSNEYTI ER TEKIÐ
Ekki nota símann nærri eldsneytisdælu. Notist ekki í námunda við eldsneyti eða
sterk efni.
SLÖKKVA SKAL Á SÍMANUM ÞAR SEM VERIÐ ER AÐ SPRENGJA
Virða skal allar takmarkanir. Ekki nota símann þar sem verið er að sprengja.
Notist aðeins í hefðbundinni stöðu eins og lýst er í leiðbeiningum með vörunni.
Forðast skal óþarfa snertingu við loftnetið.
VIÐURKENND ÞJÓNUSTA
Aðeins viðurkennt starfsfólk má setja upp eða gera við þessa vöru.
AUKAHLUTIR OG RAFHLÖÐUR
Aðeins má nota samþykkta aukahluti og rafhlöður. Ekki má tengja saman
ósamhæf tæki.
VATNSHELDNI
Síminn er ekki vatnsheldur. Halda skal því þurru.
TENGING VIÐ ÖNNUR TÆKI
Þegar tækið er tengt öðru tæki skal lesa notendahandbók með því vandlega,
einkum upplýsingar um öryggi. Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.
NEYÐARHRINGINGAR
Tryggja skal að kveikt sé á símanum og hann sé virkur. Styðja skal á eins oft
og þarf til að hreinsa skjáinn og hverfa aftur að upphafsskjánum. Neyðarnúmerið
er valið, síðan er stutt á . Gefa skal upp staðarákvörðun. Ekki má slíta
símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.
■ Um tækið
Þráðlausa tækið sem lýst er í handbókinni er samþykkt til notkunar í EGSM 900 og GSM
1800 símkerfunum. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar um netkerfi.
Hlíta skal öllum lögum og virða einkalíf og lögbundin réttindi annarra þegar þetta tæki er
notað.
Viðvörun: Við notkun allra aðgerða í þessu tæki, annarra en vekjara, þarf að vera
kveikt á tækinu. Ekki skal kveikja á tækinu þegar notkun þráðlausra tækja getur
valdið truflun eða hættu.
■ Sérþjónusta
Ef nota á símann verður áskrift að þjónustuveitu fyrir farsíma að vera fyrir hendi. Margar
aðgerðir í þessu tæki eru háðar því að aðgerðir í þráðlausa símkerfinu virki. Þessi sérþjónusta
er hugsanlega ekki fyrir hendi í öllum símkerfum eða þá að þörf getur verið á sérstökum
ráðstöfunum hjá þjónustuveitunni áður en hægt er að nota sérþjónustu. Þjónustuveitan
getur þurft að gefa viðbótarfyrirmæli um notkun og útskýra hvaða gjöld eiga við. Sum
netkerfi geta verið með takmörkunum sem hafa áhrif á hvernig hægt er að nota sérþjónustu.
Sum símkerfi styðja t.d. ekki alla séríslenska bókstafi og eða þjónustu.
Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að tilteknar aðgerðir væru hafðar óvirkar eða ekki
gerðar virkar í tækinu. Ef svo er birtast þær ekki í valmynd tækisins. Þjónustuveitan gefur
nánari upplýsingar.
■ Hleðslutæki og aukahlutir
Athuga ber tegundarnúmer hleðslutækja áður en þau eru notuð með þessu tæki. Þetta tæki
er ætlað til notkunar með hleðslutækjunum ACP-7, ACP-12 eða LCH-12 hleðslutækjum.
Viðvörun: Aðeins skal nota rafhlöður, hleðslutæki og aukahluti sem Nokia hefur
samþykkt til nota með þessari tilteknu tegund. Ef notaðar eru aðrar gerðir gæti öll
ábyrgð og samþykki fallið niður og slíkri notkun getur fylgt hætta.
Seljandi símans veitir upplýsingar um fáanlega aukahluti sem samþykktir eru til notkunar
með þessu tæki. Þegar aukahlutur er tekinn úr sambandi skal taka í klóna, ekki leiðsluna.
Í tækinu og aukahlutum þess geta verið litlir hlutir. Þá skal geyma þar sem lítil börn ná ekki
til.
Þeir skjávísar sem lýst er hér að neðan birtast þegar síminn er tilbúinn til notkunar
og engir stafir hafa verið slegnir inn. Þessi skjár merkir að síminn sé í biðham.
1. Sýnir hversu hár merkisstyrkur
farsímakerfisins er hverju sinni.
2. Sýnir hleðslu rafhlöðunnar.
3. Heiti farsímkerfisins sem síminn er skráður
inn á eða táknmynd símafyrirtækisins.
4. Virkni Navi
5. Navi-takki
Virkni Navi-takkans fer eftir þeim texta sem
birtist á skjánum fyrir ofan takkann.
6. Rofinn
Rofinn er notaður til að kveikja og slökkva á
símanum Ef stutt er á í stutta stund
þegar takkaborð símans er læst lýsist
skjárinn upp í u.þ.b. 15 sekúndur.
7. Hreinsa/hætta-takkinn
Þessi takki er notaður til að eyða stöfum af skjánum og hætta eða loka
mismunandi aðgerðum.
8. Skruntakkar
, , , og .
Gerir þér kleift að skruna í gegnum nöfn, símanúmer, valmyndir eða stillingar.
Meðan á símtali stendur getur þú stutt á til að auka hljóðstyrk heyrnartóls
og til að minnka hann. Styddu á eftirfarandi í biðham:
• til að sjá lista yfir þau númer sem síðast var hringt í
• til að sjá þau nöfn og símanúmer sem eru vistuð í Tengiliðir
• til að skrifa skilaboð
• til að komast í flýtivísanir valmyndarinnar. Upplýsingar um hvernig
flýtivísunum er breytt er að finna á bls. 44.
9.- eru notaðir til að slá inn tölur og bókstafi.
og þjóna mismunandi tilgangi, allt eftir virkninni hverju sinni.
Öll SIM-kort skal geyma þar sem lítil börn ná ekki til. Upplýsingar um framboð og
notkun SIM-korta má fá hjá seljanda SIM-kortsins. Þetta getur verið
þjónustuveitan, símafyrirtækið eða annar söluaðili.
1. Styddu á takkann sem opnar
bakhliðina (1 ), opnaðu
bakhliðina (2, 3) og fjarlægðu
hana.
2. Lyftu rafhlöðunni úr stöðu sinni
og fjarlægðu hana (4).
3. Lyftu SIM-kortsfestingunni varlega úr stöðu sinni
með því að nota fingurinn og opnaðu flipann (5).
1. Stingdu snúrunni úr hleðslutækinu í samband neðst
á símanum.
2. Stingdu hleðslutækinu í rafmagnsinnstungu.
Þá byrjar hleðsluvísirinn að hreyfast.
Ef textinn Hleður sig ekki birtist skaltu bíða í stutta
stund, aftengja hleðslutækið og stinga því aftur í
samband. Ef síminn byrjar ekki að hlaða sig í það
skiptið skaltu hafa samband við söluaðilann.
3. Þegar rafhlaðan er fullhlaðin hættir hleðsluvísirinn að hreyfast. Aftengdu þá
hleðslutækið við símann og innstunguna.
■ Hefðbundin notkunarstaða
Í tækinu er innbyggt loftnet.
Til athugunar: Forðast skal óþarfa snertingu við loftnetið
þegar kveikt er á tækinu eins og gildir um öll önnur tæki
sem senda frá sér útvarpsbylgjur. Snerting við loftnetið
hefur áhrif á móttökuskilyrði og getur valdið því að tækið
noti meiri sendiorku en nauðsynlegt er. Ef forðast er að
snerta loftnetssvæðið þegar tækið er notað bætir það virkni
loftnetsins og líftíma rafhlöðunnar.
Styddu á takkann og haltu honum inni í nokkrar sekúndur.
Aðvörun! Ekki má kveikja á símanum þar sem notkun þráðlausra síma er bönnuð
eða þar sem hún kann að valda truflunum eða hættu.
■ Skipt um fram- og bakhlið
Til athugunar: Áður en fram- og bakhlið er fjarlægð skal alltaf slökkva á tækinu
og aftengja hleðslutækið og önnur tæki. Forðast skal að snerta rafræna íhluti
þegar verið er að skipta um hulstur. Alltaf skal geyma og nota tækið með áföstum
fram- og bakhliðum.
1. Styddu á takkann sem opnar bakhliðina (1), opnaðu
bakhliðina og fjarlægðu hana (2).
1. Sláðu inn símanúmerið, ásamt svæðisnúmerinu ef nauðsynlegt er.
Ef þú vilt hringja til útlanda skaltu bæta við "+" með því að styðja tvisvar
sinnum á og bæta síðan við landsnúmeri (eða landshlutanúmeri) við
fyrir framan svæðisnúmerið (strokaðu út 0 í upphafi ef það er nauðsynlegt).
Styddu á til að eyða síðasta tölustaf sem þú slóst inn.
2. Styddu á Símtal til að hringja í númerið. Styddu á til að auka hljóðstyrk
heyrnar- eða höfuðtólsins og á til að minnka hann meðan á símtali stendur.
3. Styddu á Ljúka til að ljúka símtalinu (eða til að hætta við að hringja).
Símafundi komið á
Símafundur er símkerfisþjónusta sem gerir allt að fjórum einstaklingum kleift að
taka þátt í sama símtalinu.
1. Til að hringja í nýjan þátttakanda í símafundinum, styddu á og Valkostir,
og veldu síðan Nýtt símtal.
2. Þegar símtalinu hefur verið svarað skaltu bæta viðkomandi aðila við
símafundinn með því að styðja á Valkostir og velja Símafundur.
Til að hringja aftur í eitt af þeim tuttugu símanúmerum sem þú síðast hringdir í
(eða reyndir að hringja í), styddu einu sinni á í biðham, skrunaðu að því nafni
eða símanúmeri sem þú vilt velja og styddu á Símtal.
Hraðval
Gakktu úr skugga um að Hraðvalsnr. virkt í Tengiliðir valmyndinni. Styddu á
Valmynd, veldu Tengiliðir, Hraðvalsnr. og síðan Breyta. Veldu viðeigandi takka
(takki 2 til 9) og styddu á Velja. Veldu hvort þú vilt tengja takkann við símtal eða
SMS. Skrunaðu að nafninu sem þú vilt velja og styddu á Velja.
■ Símtali svarað
Styddu á Svara í biðham. Til að flytja eða hafna símtalinu án þess að svara því
skaltu styðja á .
■ Virkar aðgerðir meðan á símtali stendur
Meðan á símtali stendur getur þú stutt á og Valkostir fyrir sumar af
eftirfarandi aðgerðum. Margar þessara aðgerða flokkast undir símkerfisþjónustu.
Hljóð af eða Hljóð á, Í bið eða Úr bið, Nýtt símtal, Svara, Hafna, Ljúka öllum,
Tengiliðir, Senda DTMF, Víxla og Valmynd.
Þessi möguleiki er símkerfisþjónusta. Hafðu samband við þjónustuveituna til að fá
talhólfsnúmerið þitt. Hringt er í talhólfið með því að styðja á og halda
honum inni í biðham. Þú gætir þurft að slá inn númerið þegar þú hringir í talhólfið
þitt í fyrsta skipti. Upplýsingar um það hvernig á að breyta talhólfsnúmerinu er að
finna á bls. 35.
Upplýsingar um flutning símtala í talhólfsnúmer er að finna á bls. 40.
■ Takkaborðinu læst
Takkalásinn hindrar að stutt sé óvart á takkana.
Takkaborðinu læst eða það opnað: Styddu á Valmynd í biðham og svo á snöggt
á.
Takkalásinn virkjast sjálfkrafa ef Sjálfvirkur takkavari er stillt á Virkur í Stillingar
fyrir takkavara valmyndinni undir Stillingar.
Þegar takkalásinn er á getur samt verið hægt að hringja í opinbera neyðarnúmerið
sem er forritað í tækið. Neyðarnúmerið er valið og síðan er stutt á .
Þú getur slegið inn texta á tvo vegu: Með hefðbundinni textaritun , eða með
flýtiritun (innbyggðri orðabók) .
Hægt er að skipta fljótlega á milli textaritunaraðferðanna tveggja með því að
styðja tvisvar sinnum á þegar verið er að skrifa texta.
Hefðbundin textaritun notuð: Styddu endurtekið á takkann sem er merktur með
þeim staf sem þú vilt fá fram þar til stafurinn birtist.
Flýtiritun gerð virk eða óvirk
Styddu á (Valkostir) þegar þú skrifar texta og veldu Orðabók.
• Flýtiritun er virkjuð með því að velja tungumál af vallista orðabókarinnar.
Aðeins er hægt að velja flýtiritun á þeim tungumálum sem er að finna á
listanum.
• Til að skipta aftur í hefðbundna textaritun með því að velja Orðabók óvirk.
Notkun flýtiritunar
1. Sláðu inn orðið með því að styðja aðeins einu sinni á hvern takka fyrir hvern
staf. Orðið breytist í hvert skipti sem þú styður á takka. Ef þú vilt t.d. skrifa
‘Nokia’ þegar enska orðabókin er virk skaltu styðja á , , ,
2. Ef orðið sem birtist er það orð sem þú ætlaðir að skrifa skaltu styðja á og
byrja að skrifa næsta orð.
• Ef þú vilt velja annað orð skaltu styðja endurtekið á þar til orðið sem
þú vilt fá fram birtist.
• Ef „?“ birtist fyrir aftan orðið er það ekki að finna í orðabókinni. Orðinu er
bætt í orðabókina með því að styðja á Stafa, slá inn orðið (með
hefðbundinni textaritun) og styðja á Í lagi.
Ábendingar um ritun texta með hefðbundinni ritun og með flýtiritun:
• Styddu endurtekið á eða til að færa bendilinn til hægri eða vinstri.
• Styddu á til að setja inn bil.
• Styddu á til að eyða staf til vinstri við bendilinn. Styddu á og haltu
honum inni til þess að hreinsa skjáinn.
• Styddu endurtekið á til að skipta á milli há- og lágstafa, eða á milli
hefðbundinnar ritunar og textaritunar, og fylgstu með vísinum efst á skjánum.
• Styddu á og haltu honum inni til að skipta á milli bók- og tölustafa.
• Til að setja inn tölustaf, styddu á viðeigandi takka og haltu honum inni.
• Styddu á og haltu honum inni til að fá fram lista yfir sértákn, veldu svo
táknið sem þú vilt nota og styddu á Nota. Í hefðbundinni textaritun geturðu
einnig sett inn greinarmerki og viss sértákn með því að styðja endurtekið
á.
• Hefðbundin ritun: Til að slá inn staf sem er á sama takka og stafurinn sem þú
varst að slá inn, styddu á eða á (eða bíddu þar til bendillinn birtist) og
sláðu inn nýja stafinn.
• Flýtiritun: Til að setja inn samsett orð skaltu fyrst slá inn fyrri helming orðsins,
styðja svo á og slá þá inn síðari helming orðsins.
2. Styddu á eða til að skruna að þeirri aðalvalmynd sem þú vilt velja og
styddu á Velja til að opna hana. Styddu á til að loka aðalvalmynd.
3. Ef valmyndin inniheldur undirvalmyndir skaltu skruna að þeirri valmynd sem þú
vilt velja og styðja á Velja til að opna hana. Styddu á til að loka
undirvalmynd.
Þú getur skrifað og sent skilaboð í mörgum hlutum sem
samanstanda af nokkrum venjulegum textaboðum (símkerfisþjónusta). Gjaldtaka
kann að fara eftir fjölda venjulegra skilaboða sem þarf í ein samsett skilaboð.
Fjöldi tiltækra stafa auk númers samsettu boðanna sem verið er að skrifa sést efst
til hægri á skjánum, líkt og 120/2. Ef þú notar sérstafi (Unicode), líkt og â, á, ë, ì
kunna skilaboðin að skiptast í fleiri hluta en ella. Athugaðu að flýtiritun kann nota
sérstafi (Unicode).
Til að þú getir sent skilaboð þarf símanúmer skilaboðamiðstöðvarinnar þinnar að
vera vistað í símanum. Sjá bls. 32.
1. Styddu á Valmynd í biðham og veldu Skilaboð og Skrifa skilaboð.
2. Sláðu inn boðin. Fjöldi tiltækra stafa, auk númers boðanna, sést efst til hægri á
skjánum.
1. Þjónusta í boði, heiti og innihald fer eftir SIM-kortinu sem er notað.
3. Til að senda boðin þegar þú hefur skrifað þau skaltu styðja á Valkostir, velja
Senda, slá inn símanúmer viðtakandans eða leita að því í símaskránni og styðja
á Í lagi.
Ef þú vilt senda skilaboðin til margra einstaklinga, veldu Sendikostir og Senda á
marga. Skrunaðu svo að fyrsta viðtakandanum og styddu á Senda. Endurtaktu
þetta fyrir hvern viðtakanda.
Til að senda skilaboðin á fyrirfram skilgreindan dreifingarlista, veldu
Sendikostir og Senda á lista.
Aðrir valkostir eru: Innsetningarkostir, Smátt letur eða Stórt letur, Vista
skilaboð, Hreinsa texta, Hætta í ritli, Leiðbeiningar og Orðabók.
Til athugunar: Þegar boð eru send getur tækið birt orðin "Skilaboð send". Þetta er
merki um að skilaboðin hafi verið send úr tækinu í þjónustuversnúmerið sem
forritað er í tækið. Þetta er ekki sönnun þess að skilaboðin hafi komist á
áfangastað. Þjónustuveitan veitir nánari upplýsingar um skilaboðaþjónustu.
Textaskilaboð lesin (Innhólf)
Þegar þú móttekur textaskilaboð í biðham sést fjöldi nýrra skilaboða á skjánum
ásamt teikninu.
1. Styddu á Sýna til að opna strax nýju skilaboðin.
Ef þú vilt skoða þau síðar skaltu styðja á . Þegar þú vilt lesa skilaboðin
skaltu styðja á Valmynd og velja Skilaboð og Innhólf. Skrunaðu að
skilaboðunum sem þú vilt lesa og styddu á Velja.
3. Þegar þú lest skilaboð getur þú stutt á Valkostir fyrir eftirfarandi valkosti:
Eyða, Svara, Spjall, Breyta, Nota númer, Framsenda, Sem áminningu, Smátt
letur eða Stórt letur, Upplýsingar og Bæta á skim.lista.
Drög og sendir hlutir
Í Drög valmyndinni getur þú skoðað þau skilaboð sem þú hefur vistað með Vista
skilaboð valmyndinni. Í Sendir hlutir valmyndinni getur þú skoðað afrit af þeim
skilaboðum sem þú hefur sent.
Þegar þú skoðar skilaboð getur þú stutt á Valkostir til að velja eftirfarandi
valkosti: Eyða, Breyta, Nota númer, Framsenda, Sem áminningu, Smátt letur eða
Stórt letur, og Upplýsingar (aðeins fyrir senda hluti).
Spjall
Með þessari textaboðaþjónustu getur þú spjallað við annað fólk. Hver spjallboð
eru send sem aðskilin textaboð. Skilaboð sem eru send og móttekin í spjalllotu eru
ekki vistuð.
Til að hefja spjalllotu, styddu á Valmynd og veldu Skilaboð og Spjall. Þú getur
einnig stutt á Valkostir og valið Spjall þegar þú lest móttekin textaboð.
1. Sláðu inn símanúmer hins aðilans eða leitaðu að því í símaskránni og styddu á
Í lagi.
2. Sláðu inn gælunafn þitt fyrir spjalllotuna og styddu á Í lagi.
3. Sláðu inn skilaboðin, styddu á Valkostir og veldu Senda.
4. Svarskilaboðin frá hinum aðilanum birtast fyrir ofan skilaboðin sem þú sendir.
Til að svara skilaboðunum, styddu á Í lagi og endurtaktu skref 3 hér að ofan.
Þegar þú skrifar skilaboð getur þú stutt á Valkostir og valið Spjallnafn til að
breyta gælunafninu þínu, eða Spjallsaga til að skoða fyrri skilaboð.
Myndskilaboð
Þú getur móttekið og sent skilaboð sem innihalda myndir (símkerfisþjónusta).
Myndskilaboð eru vistuð í símanum. Athugaðu að hver myndboð eru samsett úr
nokkrum textaboðum. Þess vegna kann að vera dýrara að senda ein myndboð en
ein textaboð.
Til athugunar: Aðeins tæki sem styðja myndboð geta móttekið og birt
myndboð.
Til að búa til myndboð, styddu á Valmynd og veldu Skilaboð og Myndskilaboð.
Skrunaðu að myndinni sem þú vilt nota og styddu á Nota. Upplýsingar um hvernig
á að bæta texta við skilaboðin og senda þau er að finna í Textaskilaboð skrifuð á
bls. 27.
Myndboð móttekin
Ef þú vilt skoða myndboðin strax skaltu styðja á Sýna. Styddu á Valkostir til að
opna eftirfarandi valkosti fyrir myndskilaboðin:Eyða, Svara, Spjall, Breyta texta,
Vista mynd, Nota númer, Sem áminningu og Upplýsingar.
Dreifingarlistar
Þú getur tilgreint allt að sex dreifingarlista með allt að tíu viðtakendum á hverjum
þeirra.
Til að bæta við nýjum dreifingarlista, styddu á Valmynd, veldu Skilaboð og síðan
Dreifingarlistar. Styddu á Valkostir og veldu Bæta við lista. Gefðu
dreifingarlistanum það heiti sem þú vilt og styddu á Í lagi. Styddu á Valkostir og
veldu Skoða lista. Tengilið er bætt á listann með því að styðja á Valkostir og velja
Bæta við tengil.. Hafðu í huga að gjald er tekið fyrir hver skilaboð sem eru send.
Skimuð skilaboð
Hér eru geymd skilaboð sem eru skimuð með Skimuð númer. Nánari upplýsingar er
að finna á bls. 26. Skimuð skilaboð eru skoðuð með því að styðja á Valmynd og
veljaSkilaboð og Skimuð skilaboð. Skrunaðu að þeim skilaboðum sem þú vilt skoða
og styddu á Velja.
Styddu á Valkostir og veldu Eyða ef þú vilt eyða skilaboðunum, eða Eyða af lista ef
þú vilt eyða númeri þess sem sendi skilaboðin af lista skimaðra númera.
Skilaboðum eytt
Þú getur eytt skilaboðum með því að velja Öll lesin, Innhólf, Drög,Sendir hlutir, eða
Skimuð skilaboð.
Skilaboðateljari
Styddu á Valmynd og veldu Skilaboð og Skilaboðateljari. Skrunaðu niður til þess
að skoða fjölda sendra og móttekinna skilaboða. Til að núllstilla teljara skaltu fyrst
velja Núllstilla teljara og svo þá teljara sem þú vilt núllstilla.
Valmyndin Skilaboðateljari er einnig staðsett undir Símtalaskrá aðalvalmyndinni.
Með þessari símkerfisþjónustu getur þú fengið skilaboð um ýmis efnisatriði frá
símkerfinu, líkt og ástand vega. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
Skjalasnið
Veldu Skjalasnið til að skoða, breyta eða eyða forstilltu skilaboðunum.
Broskarlar
Veldu Broskarlar til að nota broskarla, líkt og ":-)", í skilaboðum. Þú getur einnig
breytt þeim broskörlum sem er að finna í símanum og búið til nýja broskarla.
Undirskriftir
Veldu Texti undirskriftar til að búa til eða breyta undirskriftinni þinni, sem svo
verður bætt sjálfkrafa við skilaboðin þín. Í Nota undirskrift geturðu valið hvort
undirskriftin þín birtist í skilaboðunum sem þú sendir eða ekki.
Sendisnið
Í Númer skilaboðamiðstöðvar: Hér er símanúmerið sem er nauðsynlegt til að
senda texta- og myndskilaboð vistað. Númerið fæst hjá þjónustuveitunni.
Skilaboð send sem: Hér er hægt að velja einhverja af eftirfarandi gerðum
skilaboða: Texta, Fax,Símboð, eða Tölvupóst (símkerfisþjónusta).
Gildistími skilaboða: Hér er valið hversu lengi símkerfið á að reyna að senda
skilaboðin til viðtakandans (símkerfisþjónusta).
Endurnefna sendisnið: Hér er hægt að breyta heiti sendisniðsins.
Ef skilatilkynningar eru valdar sendir símkerfið skilatilkynningar þegar skilaboðin
þín hafa náð á áfangastað (símkerfisþjónusta).
Svara í gegnum sömu miðstöð
Ef þessi valkostur er valinn getur viðtakandi skilaboðanna þinna sent svarboð til
þín um skilaboðamiðstöðina þína (símkerfisþjónusta).
Leturstuðningur
Með því að velja þennan möguleika er hægt að sjá hvort Fullur stuðningur eða
Minni stuðningur er notaður þegar textaskilaboð eru send (símkerfisþjónusta).
Þjónustuskipanir
Hægt er að senda þjónustubeiðnir til þjónustuveitu með þessum valkosti.
Valkosturinn er símkerfisþjónusta. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
Skimun númera
Með þessum valkosti er hægt að skoða, bæta við og eyða nöfnum af lista þeirra
sendanda sem þú síar skilaboð og símtöl frá þegar þau berast í símann þinn.
Síuðu skilaobðin verða vistuð beint í Skimuð skilaboð möppuna. Þegar einhver af
þessum lista hringir í þig heyrist hvorki hringitónninn né titrar síminn, sama
hvernig síminn þinn er stilltur. Ef þú svarar ekki þessum símtölum verða þau vistuð
í möppunni Hringingum ekki svarað undir Símtalaskrá.
Þú getur vistað nöfn og símanúmer í minni símans (innbyggðri
símaskrá) og í minni SIM-kortsins (SIM-símaskrá). Í innbyggðu
símaskránni er hægt að vista allt að 200 nöfn.
Leitað að nafni og símanúmeri
Styddu á Valmynd í biðham og veldu Tengiliðir ogLeita. Sláðu inn fyrsta stafinn,
eða stafina, í nafninu sem þú leitar að og styddu á Leita. Styddu á eða
til að finna nafnið sem þú vilt velja.
Ef nafnið eða símanúmerið er vistað í símaskrá SIM-kortsins birtist efst í
hægra horni skjásins. Ef það er hins vegar vistað í innbyggðu símaskránni
birtist.
FLJÓTLEG LEIT: Styddu á í biðham og sláðu inn fyrsta stafinn í
nafninu. Skrunaðu með eða til að finna nafnið sem þú vilt velja.
Þú getur einnig notað eftirfarandi valkosti í Tengiliðir valmyndinni:
• Bæta við tengilið til að vista nöfn og símanúmer í símaskránni.
• Eyða til að eyða nöfnum og símanúmerum úr símaskránni, annað hvort öllum í
einu eða einu í einu.
• Breyta til að breyta nöfnum og símanúmerum í símaskránni.
• Velja tón til að láta símann spila sérstakan hringitón þegar hringt er í þig úr
ákveðnu símanúmeri. Veldu símanúmerið eða nafnið og styddu á Velja.
Athugaðu að þetta gerist aðeins þegar bæði símkerfið og síminn bera kennsl á
númerið sem hringt er úr.
Síminn þinn skráir símanúmer ósvaraðra, móttekinna og
hringdra símtala, áætlaða lengd þeirra og fjölda sendra og
móttekinna skilaboða.
Síminn skráir aðeins ósvöruð og móttekin símtöl ef kveikt er á honum, ef hann er
innan þjónustusvæðis og ef símkerfið styður þessar aðgerðir.
Listi yfir síðustu símtöl
Styddu á Valmynd og veldu Símtalaskrá og Hringingum ekki svarað, Hringingum
svarað eða Hringt var í.
Þegar þú styður á Valkostir getur þú séð hvenær hringt var, breytt, skoðað eða
hringt í skráða símanúmer, bætt því við símaskrána eða lista yfir skimuð númer,
eða eytt því að listanum yfir nýleg símtöl. Þú getur einnig sent textaboð.
Ef þú vilt núllstilla lista nýlegra símtala skaltu fyrst velja Eyða nýlegum símtölum
og síðan þann lista sem þú vilt núllstilla.
Teljarar símtala
Styddu á Valmynd og veldu Símtalaskrá og Lengd símtals til að skoða áætlaða
lengd síðasta símtals, allra móttekinna símtala eða allra hringdra símtala, eða
áætlaða heildarlengd allra símtala.
Teljarar eru núllstilltir með því að velja Núllstilla teljara og styðja á Í lagi.
Athugaðu að þú þarft að slá inn öryggisnúmerið til að núllstilla teljarana.
Til athugunar: Reikningar þjónustuveitunnar fyrir símtöl og þjónustu kunna að
vera breytilegir eftir eiginleikum símkerfisins, sléttun fjárhæða við gerð reikninga,
sköttum og öðru slíku.
Skilaboðateljari
Valmyndin Skilaboðateljari er einnig staðsett undir aðalvalmyndinni Skilaboð, sjá
bls. 31.
■ Stillingar (Valmynd 4)
Í þessari valmynd geturðu breytt ýmsum stillingum í símanum.
Þú getur einnig valið að færa sumar valmyndarstillingar í
upphafleg horf með því að velja Velja upphafsstillingar
Tónar
Styddu á Valmynd og veldu Stillingar og Tónastillingar. Veldu
• Hringitónn til að velja hvaða tónn er spilaður þegar einhver hringir í þig.
• Hringistyrkur til að stilla hljóðstyrk hringitóna og skilaboðatóna.
• Titringur til að láta símann titra þegar einhver hringir í þig eða sendir þér
textaboð.
• Hljóðmerki skilaboða til að velja hvaða tónn heyrist þegar þú færð textaboð.
• Takkatónar til að velja hljóðstyrk takkatónanna.
• Aðvörunartónar til að velja ýmsa tóna, t.d. til að láta símann gefa frá sér
hljóðmerki þegar rafhlaðan er að klárast.
Styddu á Valmynd og veldu Stillingar og Skjástillingar. Veldu
• Þemu til að velja og breyta þema fyrir skjá símans. Auðkenndu þemað sem þú
vilt velja, styddu á Valkostir og
• Virkja og Fyrir virkt snið til að nota þemað með því sniði sem er í notkun.
• Virkja og Fyrir öll snið til að nota þemað með öllum sniðum.
• Forskoða til að forskoða það sem þú hefur valið.
• Breyta til að breyta þemanu. Veldu það veggfóður sem þú vilt nota í
biðham, bakgrunn valmyndarinnar ásamt merkis- og rafhlöðustiku fyrir
þemað.
• Valmyndarsýn til að birta aðalvalmyndina í töfluformi (Tafla) eða sem lista
(Listi).
• Sparnaðarklukka til að sýna stafrænu klukkuna og öll aðalskjáteikn sem
skjávara. Teiknin sem birtast sýna ósvöruð símtöl, takkavarann, hljóðlátan ham
og móttekin skilaboð.
• Táknmynd símafyrirtækis til að velja hvort þú vilt birta táknmynd
símafyrirtækis í biðham eða ekki.
• Upplýsingar um endurvarpa til að síminn láti þig vita þegar hann er notaður í
MCN-farsímakerfi (Micro Cellular Network) (símkerfisþjónusta).
• Tími skjálýsingar til að velja hvort ljós skjásins logi í 15 sekúndur (Venjuleg
birting), í 30 sekúndur (Löng birting), eða hvort slökkt sé á þeim (Óvirk). Þó svo
að skjálýsingin sé stillt á Óvirk loga ljósin í 15 sekúndur þegar kveikt er á
símanum.
•Í Skjábirta geturðu stillt skjábirtuna með því að styðja á og .
• Skjávari til að kveikja eða slökkva á skjávaranum skaltu tilgreina tímann sem á
að líða þangað til skjávarinn verður virkur (Tímalengd). Þú getur einnig valið
hvaða mynd á að birtast þegar skjávarinn verður virkur (Skjávari).
Snið
Þú getur breytt sniðum. T.d. getur þú látið snið innihalda hringitóna, liti og
veggfóður.
Styddu á Valmynd og veldu Stillingar og svo Snið.
Veldu sniðið sem þú vilt breyta og síðan Eigið val. Veldu Hringitónn, Hringistyrkur,
Titringur, Hljóðmerki skilaboða, Takkatónar, Aðvörunartónar, Taktföst baklýst
áminning, Þemu, Skjávari, eða Endurnefna (ekki til staðar undir Almennt). Veldu
valkostinn sem þú vilt nota eða breyta og styddu á Í lagi.
Þú getur einnig breytt stillingum þess sniðs sem er í notkun í valmyndunum
Tónastillingar og Skjástillingar, sjá bls. 37 og 38.
Hægt er að virkja snið á fljótlegan hátt í biðham eða meðan á símtali
stendur á eftirfarandi hátt: Styddu snöggt á takkann, skrunaðu að
því sniði sem þú vilt virkja og styddu á Í lagi.
Tímastillingar
Styddu á Valmynd og veldu Stillingar, Tímastillingar og
• Klukka og Stilla dagsetningu. Veldu 12 eða 24 tíma snið og sláðu inn tímann og
dagsetninguna.
Ef rafhlaðan er fjarlægð úr símanum þarftu ef til vill að slá inn tímann og
dagsetninguna aftur.
• Sjálfvirk uppfærsla dags og tíma. Þetta er símkerfisþjónusta. Þegar þú notar
þennan valkost getur það valdið því að stilltar aðvaranir renni út.
Símtalsstillingar
Styddu á Valmynd og veldu Stillingar, Símtalsstillingar og
• Símtalsflutningur til að flytja innhringingar í talhólfið þitt eða í annað
símanúmer (símkerfisþjónusta).
Veldu þann flutningsvalkost sem þú vilt nota. Veldu t.d. Flytja þegar síminn er á
tali til að flytja símtöl þegar þú ert að tala í símann eða þegar þú hafnar símtali.
Hægt er að hafa marga flutningsvalkosti virka samtímis. Þegar flutningurinn
Flytja öll símtöl er virkur, birtist á skjánum í biðham.
Virkjaðu valda valkostinn (Virkja) eða óvirkjaðu hann (Hætta við), kannaðu
hvort valkosturinn er virkur með því að velja Athugaðu stillingar, eða tilgreindu
biðtíma ákveðins flutnings í Velja biðtíma (ekki til staðar fyrir alla
flutningsvalkosti).
• Sjálfvirkt endurval til að láta símann reyna að hringja allt að tíu sinnum í
símanúmer sem ekki tókst að hringja í.
• Biðþjónusta símtala. Þegar þessi símkerfisþjónusta er virk lætur símkerfið þig
vita ef einhver reynir að hringja í þig þegar þú ert að tala í símann.
• Birta upplýsingar um mig til að símanúmerið þitt birtist á skjá þess síma sem þú
hringir í (Virkt) eða til að það birtist ekki (Óvirkt) (símkerfisþjónusta). Þegar þú
velur Samkvæmt áskrift gildir stilling þjónustuveitunnar.
• Lína til að hringja. Með þessari símkerfisþjónustu getur þú valið hvort þú vilt
nota símalínu 1 eða 2 þegar þú hringir, eða hindrað val á símalínum, ef SIMkortið þitt styður það (símkerfisþjónusta).
• Skimuð númer. Nánari upplýsingar er að finna í "Skimuð númer" á bls. 33.
Símastillingar
Styddu á Valmynd og veldu Stillingar, Símastillingar og
• Tungumál til að velja tungumál fyrir skjátexta símans.
• Stillingar fyrir takkavara. Veldu
• Sjálfvirkur takkavari og Virkur til að virkja sjálfvirka takkavarann. Síminn
birtir þá Stilla biðtíma:. Sláðu inn biðtímann og styddu á Í lagi. Þú getur
valið frá 10 sekúndum og upp í 59 mínútur og 59 sekúndur. Ef þú vilt óvirkja
sjálfvirka takkavarann skaltu velja Óvirkur.
• Lykilorð fyrir takkavara ef þú vilt virkja öryggistakkavarann, sláðu inn
öryggisnúmerið og styddu á Í lagi. Sjá bls. 10. Eftir að þú hefur valið Virk er
spurt um öryggisnúmerið í hvert skipti sem þú styður á Úr lás. Ef þú vilt
óvirkja öryggistakkavarann skaltu velja Óvirk.
• Val símkerfis til að láta símann velja farsímakerfi sjálfkrafa eða til að velja það
handvirkt.
• Opnunartónn: til að velja hvort opnunartónn heyrist þegar kveikt er á
símanum.
• Opnunarkveðja. Þú getur slegið inn skilaboð sem birtast í stutta stund á
skjánum þegar kveikt er á símanum.
• Staðfesta SIM-þjónustuaðgang. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
Kostnaðarstjórnun
Til athugunar: Reikningar þjónustuveitunnar fyrir símtöl og þjónustu kunna að
vera breytilegir eftir eiginleikum símkerfisins, sléttun fjárhæða við gerð reikninga,
sköttum og öðru slíku.
Styddu á Valmynd og veldu Stillingar, Stillingar kostnaðar og
• Lengd símtals: Ákvarðar hvort lengd símtals birtist á meðan talað er í símann.
• Samantekt símtals: Ákvarðar hvort lengd símtals birtist á skjánum að símtali
loknu.
• Kostnaður við símtöl: Sýnir áætlaðan kostnað síðasta símtalsins þíns eða allra
símtala þinna út frá þeim einingum sem hafa verið tilgreindar í Sýna kostnað í
valkostinum (símkerfisþjónusta).
• Fast númeraval: takmarkar úthringingar þínar við valin símanúmer, ef SIMkortið þitt styður þann valkost.
• Fyrirfram greidd inneign: Þegar SIM-kort með fyrirfram greiddri inneign er
notað geturðu aðeins hringt úr símanum þegar næg inneign er til staðar á
SIM-kortinu (símkerfisþjónusta).
Til athugunar: Þegar inneign á hleðslukorti eða öðru sambærilegu er búin gæti
aðeins verið hægt að hringja í opinbera neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.
Styddu á Valmynd, veldu Stillingar og Stillingar fyrir aukahluti. Veldu Höfuðtól
eða Hljóðmöskvi.
• Veldu Sjálfvalið snið til að velja sniðið sem síminn notar þegar aukahluturinn
er tengdur við hann.
• Veldu Sjálfvirkt svar til að láta símann svara innhringingu sjálfkrafa eftir fimm
sekúndur.
Öryggisstillingar
Þegar öryggisaðgerðir sem takmarka símtöl eru í notkun (svo sem útilokun,
lokaður notendahópur og fast númeraval) getur samt verið hægt að hringja í
opinbera neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.
Styddu á Valmynd og veldu Stillingar, Öryggisstillingar og
• Beiðni um PIN-númer til að láta símann þinn biðja um PIN-númer SIM-kortsins
þegar kveikt er á símanum. Á sumum SIM-kortum er ekki hægt að slökkva á
þessari stillingu.
• Útilokunarþjónusta. Með þessar símkerfisþjónustu getur þú takmarkað
hringingar í og úr símanum. Veldu einn af útilokunarkostunum og virkjaðu
hann (Virkja) óvirkjaðu hann (Hætta við) eða kannaðu hvort
útilokunarþjónusta er virk eða ekki (Athuga stöðu).
1. Teiknið fyrir aukahluti verður aðeins sýnilegt eftir að aukahlutur hefur verið
tengdur við símann. Önnur teikn fyrir aukahluti verða sömuleiðis aðeins sýnileg eftir að
viðkomandi aukahlutur hefur verið tengdur við símann.
• Lokaður notendahópur. Með þessari símkerfisþjónustu getur þú tilgreint hóp
fólks sem þú getur hringt í og sem getur hringt í þig.
• Öryggisstig til að síminn biðji um öryggisnúmer þegar nýtt SIM-kort er sett í
símann, Sími, eða þegar þú velur innbyggða símaskrá símans, Minni.
Athugaðu að þegar þú breytir öryggisstiginu gæti síminn eytt öll listum yfir
símtöl, þ.á.m. yfir ósvöruð símtöl, móttekin símtöl og hringd símtöl.
• Breyta aðgangslyklum til að breyta öryggisnúmerinu, PIN-númerinu, PIN2númerinu eða lykilorði útilokunar. Þessi númer geta aðeins innihaldið tölur frá
0 til 9.
Reyndu að forðast að nota aðgangslykil sem líkist neyðarnúmeri, líkt og 112, til
að komast hjá því að hringja óvart í neyðarnúmerið.
Stillingar hægri stýrihnapps
Þú getur tilgreint flýtivísanir sem þú getur valið í biðham með því að styðja á .
Styddu á Valmynd, veldu Stillingar, Still. hægri stýrihnapps og
• Valmöguleikar og veldu virkni flýtivísunarinnar með því að styðja á Merkja.
Valkostirnir birtast í lista flýtivísana í þeirri röð sem þú velur þær.
• Skipuleggja og skrunaðu að virkninni sem þú vilt færa. Styddu á Færa og veldu
valkostinn sem þú vilt færa.
Þegar þú hefur lokið við að skipuleggja virknina skaltu virkja breytingarnar með
því að styðja fyrst á og síðan á Já. Styddu tvisvar sinnum á ef þú vilt loka
valmyndinni án þess að vista breytingarnar.
Ef þú vilt færa einhverjar stillingar símans í upphaflegt horf skaltu styðja á
Valmynd, velja Stillingar og síðan Velja upphafsstillingar . Sláðu inn
öryggisnúmerið og styddu á Í lagi. Þeim nöfnum og símanúmerum sem eru vistuð í
símaskránni er ekki eytt.
■ Vekjaraklukka (Valmynd 5)
Þú getur stillt vekjaraklukkuna þannig að hún hringi einu
sinni eða oft á þeim tíma sem þú tilgreinir.
Styddu á Valmynd, veldu Vekjaraklukka og Stilla aðvörun.
Sláðu inn tímann þegar klukkan á að hringja. Veldu Endurt. aðvör. til að láta
vekjaraklukkuna hringja einu sinni eða oft. Veldu Aðvörunart. til að velja
vekjaratóninn.
Þegar vekjaraklukkan hringir getur þú slökkt á henni með því að styðja á . Ef
þú styður á Blunda hringir klukkan aftur eftir 10 mínútur.
Ef vekjaraklukkan hefur verið stillt og hringingartíminn rennur upp á meðan slökkt
er á tækinu kveikir það á sér og hringir. Ef þú styður á er spurt hvort opna eigi
tækið fyrir símtölum. Styddu á til að slökkva á tækinu eða Já til að geta hringt
og tekið við símtölum. Ekki skal styðja á Já þegar notkun þráðlausra síma getur
valdið truflun eða hættu.
■ Áminningar (Valmynd 6)
Þú getur vistað stutta minnispunkta með aðvörunartónum.
Styddu á Valmynd og veldu Áminningar. Þú getur valið úr eftirfarandi
valmöguleikum: Bæta við nýrri, Skoða allar, Dagbók (til að skoða og bæta við
áminningum fyrir núverandi mánuð), Eyða (til að eyða áminningum, annað hvort
einni í einu eða öllum í einu) eða Breyta.
Þegar tími áminningar rennur upp getur þú slökkt á aðvörunartóninum með því að
styðja á . Ef þú styður á Blunda heyrist aðvörunartónninn aftur eftir 10
mínútur.
■ Leikir (Valmynd 7)
Stuttur hjálpartexti fylgir hverjum leik.
Algengum leikjastillingum breytt
Styddu á Valmynd, veldu Leikir og Stillingar. Þú getur stillt hljóð og titring fyrir
leikinn í (Titringur). Athugaðu að þegar Aðvörunartónar eru ekki virkir getur verið
að engin hljóð heyrist, jafnvel þó svo Hljóð leiks séu notuð og að þegar Titringur er
ekki virk titrar síminn ekki, jafnvel þó svo að kveikt sé á Titringur.
■ Aukakostir (Valmynd 8)
Reiknivél
Til athugunar: Nákvæmni reiknivélarinnar er takmörkuð
og hún er ætluð til einfaldra útreikninga.
Styddu á Valmynd í biðham og veldu Aukakostir og Reiknivél.
• Tölustafir er slegnir inn með takka til . Tugabrotskommur eru slegnar
inn með takkanum. Styddu á til að eyða síðasta tölustafnum sem þú
slóst inn. Styddu á
Valkostir
til að breyta um merki
Breyta merki
.
• Styddu einu sinni á til að fá fram "+", tvisvar til að fá fram "-", þrisvar til
að fá fram "x" og fjórum sinnum til að fá fram "/".
• Til að fá fram niðurstöðuna skaltu styðja á Valkostir og velja Samtals. Styddu á
og haltu honum inni til að hreinsa skjáinn svo þú getir framkvæmt nýjan
útreikning.
Umreikningur gjaldeyris
Til að vista gengið: Styddu á Valkostir, veldu Gengi, veldu Erlend eining í eigin
einingum eða Eigin eining í erlendum einingum, sláðu inn gildið (styddu á til
að fá fram tugabrotskommu) og styddu að lokum á Í lagi.
Til að umreikna: Sláðu inn upphæð gjaldeyrisins sem þú vilt umreikna, styddu á
Valkostir, og veldu Í innlendri mynt eða Í erlendri mynt.
Til athugunar: Þegar grunngjaldmiðli er breytt verður að færa inn nýtt gengi því
allar fyrri gengistölur eru stilltar á núll.
Umreiknari
Þú getur umreiknað á milli mismunandi eininga.
Styddu á Valmynd í biðham og veldu Aukakostir, Umreiknari. Þú getur opnað
síðustu fimm umreikningana þína með því að velja Síðustu 5 umreikn.. Þú getur
einnig notað þær fimm einingar sem er að finna í símanum: Hitastig, Þyngd,
Þú getur bætt við þínum eigin umreikningi með Mínir umreikningar.
Töflureiknir (Örk)
Þú getur reiknað út dagleg og mánaðarleg útgjöld þín með því að nota Örk
forritið.
Styddu á Valmynd í biðham og veldu Aukakostir, Örk og Dagl. reikningur eða
Mán.l. reikningur til að skoða dagleg eða mánaðarleg útgjöld. Í Dagl. reikningur er
að finna dagana fyrir núverandi mánuð auk útgjalda fyrir hvern dag í samræmi við
fyrirfram tilgreinda útgjaldaflokka - líkt og Matur og Afþreying Í Mán.l. reikningur
getur þú skoðað mánaðarleg útgjöld út frá útgjaldaflokkum fyrir árið.
Notaðu skruntakkana til að skruna að deginum eða mánuðinum sem þú vilt breyta
og styddu á Valkostir. Veldu
• Breyta til að breyta gildi útgjalda, heiti útgjaldaflokks eða nafni arkarinnar
(eftir því hvar bendillinn er þegar þú styður á Valkostir).
• Bæta við röð eða Eyða röð til að bæta við nýjum útgjaldaflokki eða eyða
útgjaldaflokki sem þegar er til.
• Eyða öllum gögnum til að eyða öllum gögnum á skjánum sem er opinn.
• Skilgr. gildi raðar til að setja inn sama gildi fyrir hvern dag/mánuð í valda
útgjaldaflokknum.
• Vista til að vista örkina. Ef þú breytir örk og reynir síðan að loka henni án þess
að vista hana spyr síminn þig sjálfkrafa hvort þú vilt vista örkina eða ekki.
• Skoða upplýsingar til að skoða upplýsingar um ákveðinn dálk. Athugaðu að þú
getur einnig skoðað upplýsingarnar með því að styðja á og halda honum
inni.
• Uppfæra útgjöld (aðeins í Mán.l. reikningur) til að samstilla útgjöld í Dagl.
reikningur við viðeigandi mánuð í Mán.l. reikningur.
Dagbók
Styddu á Valmynd í biðham og veldu Aukakostir og Dagbók til að skoða mánuði
dagbókarinnar. Styddu a , , og til að færa bendilinn og auðkenna
ákveðna dagsetningu.
Niðurteljari
Styddu á Valmynd, veldu Aukakostir og síðan Niðurteljari. Sláðu inn tíma
aðvörunarinnar og styddu á Í lagi. Þú getur einnig slegið inn minnispunkt fyrir
aðvörunina, stillt tímann aftur og stöðvað teljarann.
Þegar teljarinn er virkur sést í biðham.
Þegar tíma aðvörunarinnar er náð gefur síminn frá sér tón og birtir aðvörunina.
Styddu á hvaða takka sem er til að slökkva á aðvöruninni.
Skeiðklukka
Styddu á Valmynd, veldu Aukakostir og Skeiðklukka.
Styddu á Byrja til að hefja tímatöku. Styddu á Stöðva til að ljúka tímatökunni.
Þegar tímatökunni er lokið getur þú stutt á Valkostir til að fá fram valkostina
Byrja, Núllstilla og Hætta. Ef þú velur Byrja heldur tímatakan áfram þaðan sem
hún var stöðvuð. Núllstilla stöðvar tímatökuna og núllstillir tímann.
Styddu á og haltu honum inni til að láta tímatökuna halda áfram í bakgrunni.
blikkar í biðham á meðan tímatakan er í gangi.
Notkun skeiðklukkunnar eða keyrsla hennar í bakgrunni meðan aðrar aðgerðir eru
notaðar krefst aukinnar rafhlöðuorku og styttir endingu rafhlöðunnar.
Tónsmiður
Styddu á Valmynd og veldu Aukakostir, Tónsmiður og svo
tón. Þú getur búið til þína eigin hringitóna með því að slá
inn nótur. Þú getur t.d stutt á fyrir nótuna f.
styttir (-) og lengir (+) nótuna eða hlé.
setur inn hlé. tilgreinir áttund. gerir nótuna
skarpa (ekki til staðar fyrir nótur e og b). og færir
bendilinn til vinstri eða hægri. Styddu á til að eyða
nótu eða hléi til vinstri við bendilinn.
Þegar tóni er lokið skaltu styðja á Valkostir og velja Spila, Vista, Hraði, Senda,
Tækið gengur fyrir rafhlöðu sem hægt er að endurhlaða. Rafhlaða nær ekki fullum afköstum
fyrr en hún hefur verið hlaðin og afhlaðin tvisvar til þrisvar sinnum. Hægt er að hlaða og
afhlaða rafhlöðu nokkur hundruð sinnum en að því kemur að hún gengur úr sér. Þegar talog biðtími er orðinn mun styttri en eðlilegt er skal kaupa nýja rafhlöðu. Aðeins skal nota
rafhlöður sem samþykktar eru af Nokia og aðeins skal endurhlaða rafhlöðu með
hleðslutækjum sem Nokia hefur samþykkt til notkunar með þessu tæki.
Taka skal hleðslutækið úr sambandi við rafmagnsinnstungu og tækið þegar það er ekki í
notkun. Ekki skal láta rafhlöðuna vera of lengi tengda hleðslutækinu. Ofhleðsla getur
minnkað endingu rafhlöðunnar. Fullhlaðin rafhlaða tapar hleðslunni smátt og smátt ef hún
er ekki í notkun. Sveiflur í hitastigi geta haft áhrif á hleðslugetu rafhlöðunnar.
Aðeins skal nota rafhlöðuna til þess sem hún er ætluð. Aldrei skal nota skemmt hleðslutæki
eða rafhlöðu.
Gæta skal þess að valda ekki skammhlaupi í rafhlöðunni. Skammhlaup getur orðið fyrir slysni
þegar málmhlutur, svo sem mynt, bréfaklemma eða penni veldur beinni tengingu milli + og skautanna á rafhlöðunni. (Þau líta út eins og málmrendur á rafhlöðunni.) Til dæmis getur
þetta gerst þegar vararafhlaða er höfð í vasa eða tösku. Skammhlaup milli skautanna getur
valdið skemmdum á rafhlöðunni eða hlutnum sem veldur tengingunni.
Ef rafhlaðan er skilin eftir í miklum hitum eða kuldum, til dæmis í lokuðum bíl að sumar- eða
vetrarlagi, dregur það úr afkastagetu hennar og endingu. Æskilegast er að rafhlaðan sé alltaf
höfð í hita á bilinu frá 15°C til 25°C (59°F og 77°F). Tæki með of heitri eða of kaldri rafhlöðu
getur orðið óvirkt um tíma, þó svo að rafhlaðan sé fullhlaðin. Einkum hefur mikið frost
takmarkandi áhrif á rafhlöður.
Ekki skal fleygja rafhlöðum í eld! Farga skal rafhlöðum í samræmi við staðbundnar
reglugerðir. Skila skal þeim í endurvinnslu þegar mögulegt er. Ekki skal fleygja þeim með
heimilisúrgangi.
Í tækinu fer saman frábær hönnun og flókin tækni sem fara þarf gætilega með. Eftirfarandi
leiðbeiningar hjálpa til við að halda tækinu í ábyrgð.
• Halda skal tækinu þurru. Úrkoma, raki og hvers kyns vökvar geta innihaldið steinefni sem
tæra rafrásirnar. Ef tækið blotnar skal fjarlægja rafhlöðuna og leyfa því að þorna alveg
áður en rafhlaða er sett í aftur.
• Ekki skal nota tækið á rykugum og óhreinum stöðum né geyma það þar. Færanlegu
hlutirnir í því geta skemmst.
• Ekki skal geyma tækið á heitum stað. Hátt hitastig getur dregið úr endingu
rafeindatækja, skemmt rafhlöður og undið eða brætt sum plastefni.
• Ekki skal geyma tækið á köldum stað. Þegar tækið hitnar upp að eðlilegu hitastigi getur
raki myndast innan í því og hann getur skemmt rafrásaspjöld.
• Ekki skal reyna að opna símann öðruvísi en tilgreint er í þessari handbók.
• Tækinu skal ekki henda, ekki skal banka í það eða hrista það. Óvarleg meðferð getur
skemmt innri rafrásarspjöld og fíngerðan búnað.
• Ekki skal nota sterk efni, leysiefni til hreingerninga eða sterk hreinsiefni til þess að þrífa
tækið.
• Ekki skal mála tækið. Málningin getur fest hreyfanlega hluti tækisins og komið í veg fyrir
að þeir vinni rétt.
• Aðeins skal nota loftnetið sem fylgir með símanum eða samþykkt varaloftnet.
Ósamþykkt loftnet, breytingar á þeim eða viðbætur, gætu skemmt tækið og kunna að
brjóta í bága við ákvæði laga um senditæki.
Allar ofangreindar ábendingar eiga jafnt við tækið, rafhlöðuna, hleðslutækið eða aðra
aukahluti. Ef tæki vinnur ekki rétt skal fara með það til næsta viðurkennda þjónustuaðila til
lagfæringar.
Ekki má nota handsíma við akstur ökutækis. Alltaf skal festa símann í þar til gert hald, ekki
má leggja símann í farþegasæti eða þar sem hann getur kastast til við árekstur eða
skyndilega stöðvun.
Hafa ber í huga að umferðaröryggi gengur fyrir!
■ Vinnuumhverfi
Hafa ber í huga að farið sé að öllum sérstökum reglugerðum sem gilda á hverju svæði og að
slökkva alltaf á tækinu þar sem notkun þess er bönnuð, eða þar sem hún kann að valda
truflun eða hættu. Tækið notist aðeins í hefðbundinni stöðu. Svo að farið sé að
leiðbeiningum um leyfileg mörk útvarpsbylgna skal aðeins nota aukahluti sem Nokia
viðurkennir með þessu tæki. Þegar kveikt er á tækinu og það borið á líkamanum skal ávallt
nota hulstur eða hald sem viðurkennt er af Nokia.
Hlutar tækisins eru segulmagnaðir. Málmefni geta dregist að tækinu og fólk með
heyrnartæki ætti ekki að halda tækinu upp að eyranu með heyrnartækinu. Alltaf skal festa
tækið í haldinu því málmefni gætu dregist að heyrnartólinu. Ekki má geyma kreditkort eða
aðra segulmagnaða hluti með geymsluminni nálægt tækinu því upplýsingar sem þar eru
geymdar gætu þurrkast út.
■ Lækningatæki
Notkun búnaðar sem sendir frá sér útvarpsbylgjur, þar með talin notkun þráðlausra síma,
kann að trufla virkni lækningatækja sem ekki eru nægilega vel varin. Hafa skal samband við
lækni eða framleiðanda lækningatækisins til þess að komast að því hvort það sé nægilega vel
varið fyrir utanaðkomandi útvarpsbylgjum eða til að afla nánari upplýsinga. Slökkva skal á
tækinu í námunda við heilsugæslustöðvar ef auglýstar reglugerðir þess efnis kveða á um að
það sé gert. Sjúkrastofnanir eða heilsugæslustöðvar kunna að nota búnað sem getur verið
næmur fyrir utanaðkomandi útvarpsbylgjum.
Gangráðar
Framleiðendur gangráða mæla með því að 15,3 sm (6 tommu) lágmarksbil sé haft á milli
þráðlauss síma og gangráðs til þess að komist sé hjá hugsanlegri truflun í gangráðinum.
Þessi tilmæli eru í samræmi við sjálfstæða rannsókn og tilmæli frá Wireless Technology
Research. Notendur gangráða:
• skyldu alltaf halda tækinu í meira en 15,3 sm (6 tommu) fjarlægð frá gangráðinum þegar
kveikt er á tækinu;
• skyldu ekki bera tækið í brjóstvasa; og
• skyldu hafa tækið við eyrað sem er fjær gangráðinum til að draga úr líkum á truflunum.
Ef grunur leikur á að truflun sé að verða skal slökkva á tækinu tafarlaust.
Heyrnartæki
Tiltekin stafræn þráðlaus tæki geta truflað sum heyrnartæki. Ef truflun verður skal leita til
þjónustuaðila.
■ Sprengifimt umhverfi
Slökkva skal á tækinu á svæðum þar sem hætta er á sprengingum og fara að öllum tilmælum
sem sjást á skiltum og leiðbeiningum. Sprengifimt andrúmsloft telst vera á svæðum þar sem
yfirleitt er beðið um að drepið sé á vél bifreiðar. Neistaflug á slíkum svæðum getur valdið
sprengingu eða eldi og haft í för með sér slys og jafnvel dauðsföll. Slökkva skal á símanum á
eldsneytisstöðvum, svo sem við eldsneytisdælur á bensínstöðvum. Virða skal takmarkanir á
notkun útvarpsbúnaðar í eldsneytisgeymslum, svæðum þar sem geymsla og dreifing
eldsneytis fer fram, efnaverksmiðjum eða þar sem verið er að sprengja. Svæði þar sem
sprengihætta er mikil eru oftast auðkennd en þó ekki alltaf. Þar á meðal eru svæði undir
þilfari á bátum; svæði þar sem sterk efni eru geymd eða búin til flutnings; ökutæki sem nýta
fljótandi svartolíugas (própan eða bútan) og svæði þar sem í lofti eru efni eða agnir, til
dæmis korn, ryk eða málmduft.
■ Ökutæki
Útvarpsbylgjur kunna að hafa áhrif á rafeindakerfi í vélknúnum ökutækjum, séu þau ekki rétt
upp sett eða ekki nægilega varin, svo sem rafeindastýrða eldsneytisgjöf, rafeindastýrð
hemlakerfi (með læsivörn), rafeindastýrð hraðakerfi og loftpúðakerfi. Nánari upplýsingar má
fá hjá framleiðanda bílsins eða búnaðarins sem bætt hefur verið við eða fulltrúa hans.
Aðeins á að fela fagmönnum að gera við tækið eða setja tækið upp í ökutæki. Gölluð
uppsetning eða viðgerð kann að valda hættu og ógilda hvers kyns ábyrgð sem kann að vera á
tækinu. Ganga skal reglulega úr skugga um að allur þráðlaus tækjabúnaður í ökutækinu sé
rétt uppsettur og vinni rétt. Ekki má geyma eða flytja eldfima vökva, lofttegundir eða
sprengifim efni í sama rými og tækið, hluta úr því eða aukahluti með því. Ef ökutæki er búið
loftpúða skal hafa hugfast að loftpúðar blásast út af miklum krafti. Ekki má setja hluti, þar
með talinn uppsettan eða færanlegan þráðlausan búnað, á svæðið yfir loftpúðanum eða á
útþenslusvið loftpúðans. Ef þráðlaus búnaður í bíl er illa settur upp og loftpúðinn þenst út
getur slíkt orsakað alvarleg meiðsl.
Notkun tækisins meðan á flugi stendur er bönnuð. Slökkva skal á tækinu áður en gengið er
um borð í flugvél. Notkun þráðlausra fjarskiptatækja í flugvél getur skapað hættu við stjórn
flugvélarinnar, rofið þráðlaust símasamband og verið ólöglegt.
Mikilvægt: Þráðlausir símar, þar á meðal þetta tæki, nota útvarpsmerki, þráðlaus
kerfi, kapalkerfi og notendaforritaðar aðgerðir. Því er ekki hægt að tryggja
tengingar við hvaða skilyrði sem er. Því skyldi aldrei treysta eingöngu á þráðlaust
tæki ef um er að ræða bráðnauðsynleg fjarskipti, t.d. í bráðatilvikum.
Neyðarhringing:
1. Ef slökkt er á tækinu skal kveikja á því. Athuga skal hvort nægilegur sendistyrkur sé fyrir
hendi.
Í tilteknum símkerfum kann að vera farið fram á að gilt SIM-kort sé rétt sett í tækið.
2. Styðja skal á eins oft og þarf til að hreinsa skjáinn og gera tækið tilbúið fyrir símtöl.
3. Opinbera neyðarnúmerið fyrir viðkomandi svæði er fært inn. Neyðarnúmer eru breytileg
eftir stöðum.
4. Stutt er á takkann .
Ef ákveðnar aðgerðir eru í notkun þarf ef til vill að gera þær óvirkar áður en neyðarhringing
er möguleg. Nánari upplýsingar má fá í þessari handbók eða hjá þjónustuveitunni.
Við neyðarhringingu þarf að gefa upp allar nauðsynlegar upplýsingar eins nákvæmlega og
kostur er. Þráðlausa tækið getur verið eina samskiptatækið á slysstað. Ekki má slíta símtali
fyrr en að fengnu leyfi til þess.
■ Upplýsingar um vottun (SAR)
ÞETTA TÆKI ER Í SAMRÆMI VIÐ ALÞJÓÐLEGAR LEIÐBEININGAR UM ÁHRIF AF
ÚTVARPSBYLGJUM.
Þráðlausa tækið er útvarpssendir og móttökutæki. Það er hannað og framleitt með tilliti til
leyfilegra marka um áhrif af útvarpsbylgjum (RF) sem alþjóðlegar leiðbeiningar (ICNIRP)
mæla með. Þessar takmarkanir eru hluti ítarlegra leiðbeininga og eru viðmiðunarreglur um
leyfileg mörk útvarpsmerkja sem almenningur getur komist í snertingu við. Þessar
leiðbeiningar voru settar af sjálfstæðum vísindastofnunum með reglubundnu og ítarlegu
mati á viðeigandi vísindarannsóknum. Í stöðlunum eru öryggisfrávik talsverð til að tryggja
öryggi allra, burtséð frá aldri eða heilsufari.
Í staðli um útvarpsbylgjur úr þráðlausum tækjum er notuð mælieiningin SAR (Specific
Absorption Rate). Efri mörk SAR samkvæmt alþjóðlegu leiðbeiningunum eru 2,0 W/kg*.
Mælingar á SAR eru gerðar í hefðbundnum stöðum þegar tækið sendir af mesta leyfða styrk
á öllum mældum tíðnisviðum. Þó að magn SAR sé mælt á hæsta sendistyrk getur SARstyrkur tækisins í notkun verið mun lægri en hámarksgildið. Það er vegna þess að tækið er
hannað til að vinna á mörgum styrkstigum en notar hverju sinni aðeins þann styrk sem til
þarf til að ná sambandi við símkerfið. Almennt gildir að því nær sem notandinn er grunnstöð,
þeim mun minni styrk notar tækið.
Hæsta SAR-gildi fyrir þetta tæki þegar það var mælt með notkun við eyrað er 0,80 W/kg.
Þetta tæki uppfyllir viðmiðanir um álag af völdum útvarpsbylgna á fólk við notkun hvort sem
er í eðlilegri stöðu við eyrað eða þegar því er haldið í a.m.k. 2,2 sm fjarlægð frá líkamanum.
Ef taska, beltisklemma eða hald er notað þegar tækið er borið á líkamanum við notkun ætti
slíkur búnaður ekki að innihalda málm og halda ætti tækinu í a.m.k. 2,2 sm fjarlægð frá
líkamanum.
Svo að hægt sé að senda gagnaskrár eða boð þarf þetta tæki góða tengingu við símkerfið. Í
sumum tilvikum getur sending gagna eða boða tafist þar til slík tenging er tiltæk. Tryggja
skal að ofangreindum fjarlægðarfyrirmælum sé fylgt þar til sendingu er lokið.
*Efri mörk SAR fyrir almenna notkun þráðlausra tækja eru 2,0 wött/kílógramm (W/kg) að
meðaltali á hver 10 grömm af líkamsvefjum. Í leiðbeiningunum eru talsverð öryggisfrávik til
að auka vernd almennings og taka tillit til frávika í mælingum. SAR-gildi kunna að vera
breytileg milli landa sökum mismunandi upplýsingaskyldu og tíðnisviðs. Upplýsingar um SAR
í öðrum löndum má finna í upplýsingum um vörur á www.nokia.com