Afrit af Samræmisyfirlýsingunni má finna
á http://www.nokia.com/phones/declaration_of_conformity/
Merkið sem sýnir yfirstrikaða ruslafötu táknar að innan
Evrópusambandsins verði að fara með vöruna á sérstaka staði til förgunar
að líftíma hennar liðnum. Þetta á við um tækið þitt en einnig um þá
aukahluti sem merktir eru á þennan hátt. Hendið þessum vörum ekki með
heimilisúrgangi. Nánari upplýsingar er að finna í Eco-yfirlýsingu vörunnar
vörumerki eða skrásett vörumerki Nokia Corporation. Nokia tune er vörumerki
Nokia Corporation. Önnur vöruheiti eða heiti fyrirtækja sem nefnd eru hér geta
verið vörumerki eða vöruheiti viðkomandi eigenda.
Hvers konar afritun, yfirfærsla, dreifing eða varðveisla á hluta skjals þessa eða
skjalsins alls er óheimil nema að fyrir fram fengnu skriflegu samþykki Nokia.
This product is licensed under the MPEG-4 Visual Patent Portfolio License (i) for
personal and noncommercial use in connection with information which has been
encoded in compliance with the MPEG-4 Visual Standard by a consumer engaged
in a personal and noncommercial activity and (ii) for use in connection with
Hér með lýsir NOKIA CORPORATION því yfir að
varan RM-133 er í samræmi við grunnkröfur og
aðrar kröfur sem gerðar eru í tilskipun 1999/5/EC.
MPEG-4 video provided by a licensed video provider. No license is granted or shall
be implied for any other use. Additional information, including that related to
promotional, internal, and commercial uses, may be obtained from MPEG LA, LLC.
See <http://www.mpegla.com>.
Þessi vara er háð leyfinu MPEG-4 Visual Patent Portfolio License (i) til
einkanotkunar og án viðskiptatilgangs í tengslum við upplýsingar sem hafa verið
kótaðar samkvæmt staðlinum MPEG-4 Visual Standard af neytanda í persónulegum
tilgangi og án viðskiptatilgangs og (ii) til notkunar í tengslum við MPEG-4
hreyfimynd sem fengin er hjá hreyfimyndaveitu með leyfi. Ekkert leyfi er veitt
eða undirskilið til neinnar annarrar notkunar. Viðbótarupplýsingar, svo sem notkun
í auglýsingum, innan fyrirtækis og í viðskiptum, má fá hjá MPEG LA, LLC.
Sjá <http://www.mpegla.com>.
Nokia framfylgir stefnu sem felur í sér stöðuga þróun. Nokia áskilur sér rétt til
að gera breytingar og úrbætur á hvers konar vöru sem getið er í þessu skjali
án undangenginnar tilkynningar.
AÐ ÞVÍ MARKI SEM VIÐEIGANDI LÖG LEYFA SKAL NOKIA, STARFSMENN ÞESS EÐA
SAMSTARFSAÐILAR UNDIR ENGUM KRINGUMSTÆÐUM BERA SKAÐABÓTAÁBYRGÐ
VEGNA TAPS Á GÖGNUM, TEKJUTJÓNI EÐA Á NEINU SÉRSTÖKU, TILVILJANAKENNDU,
AFLEIDDU EÐA ÓBEINU TJÓNI HVERNIG SEM ÞAÐ VILL TIL.
INNTAK ÞESSA SKJALS ER AFHENT „EINS OG ÞAÐ KEMUR FYRIR“. UMFRAM
ÞAÐ, ER LÖG ÁSKILJA, ER ENGIN ÁBYRGÐ VEITT, HVORKI BERUM ORÐUM EÐA
UNDIRSKILIN, Á NÁKVÆMNI, ÁREIÐANLEIKA EÐA INNTAKI ÞESSA SKJALS, Á ÞAÐ
MEÐAL ANNARS, EN EKKI EINGÖNGU, VIÐ UM SÖLUHÆFNI EÐA ÁBYRGÐ Á AÐ
VARAN HENTL TILTEKINNI NOTKUN. NOKIA ÁSKILUR SÉR RÉTT TIL AÐ ENDURSKOÐA
SKJALIÐ EÐA DRAGA ÞAÐ TILBAKA HVENÆR SEM ER ÁN UNDANGENGINNAR
TILKYNNINGAR.
Útflutningstakmarkanir
Framboð á tilteknum vörum, forritum og þjónustu fyrir þessar vörur getur verið
breytilegt eftir svæðum. Kannaðu það, ásamt tungumálavalkostum, hjá Nokia
söluaðila þínum.
Tæki þetta kann að innihalda vörur, tækni eða hugbúnað sem lýtur
útflutningslögum og reglugerðum í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
Breytingar á flutningsleiðum sem ekki samræmast lögum eru óheimilar.
YFIRLÝSING FCC/INDUSTRY CANADA
Tækið þitt getur valdið truflunum á sjónvarpi eða útvarpi (til dæmis þegar sími
er notaður nálægt viðtökutæki). FCC eða Industry Canada gætu krafist þess að þú
hættir að nota símann ef ekki er hægt að koma í veg fyrir slíkar truflanir. Ef þú þarft
aðstoð skaltu hafa sambandi við þjónustuaðila í nágrenni við þig. Þetta tæki er
í samræmi við 15. hluta af reglum FCC.
Notkun þess er háð eftirfarandi tveimur skilyrðum: (1) Tækið má ekki valda skaðlegum
truflunum; og (2) Tækið verður að taka við öllum truflunum sem það verður fyrir,
þ.m.t. truflunum sem geta valdið óæskilegri virkni þess. Sérhverjar breytingar sem
Nokia hefur ekki samþykkt geta ógilt heimild notandans til notkunar búnaðarins.
Þau forrit frá þriðju aðilum sem finna má í tækinu kunna að hafa verið búin til
og vera í eigu aðila eða fyrirtækja sem ekki tengjast Nokia. Nokia á ekki
höfundarréttindi eða hugverkaréttindi að þessum forritum þriðju aðila. Nokia
tekur því hvorki ábyrgð á aðstoð við notendur, virkni þessara forrita eða þeim
upplýsingum sem fylgja forritunum eða efninu. Nokia veitir enga ábyrgð
á þessum forritum þriðju aðila.
MEÐ NOTKUN SINNI VIÐURKENNIR NOTANDINN AÐ FORRITIN ERU AFHENT EINS
OG ÞAU KOMA FYRIR ÁN ÞESS AÐ NOKKUR ÁBYRGÐ SÉ VEITT, BERUM ORÐUM
EÐA ÓBEINT, AÐ ÞVÍ MARKI SEM HEIMILT ER Í VIÐKOMANDI LÖGUM. NOTANDINN
VIÐURKENNIR JAFNFRAMT AÐ HVORKI NOKIA NÉ TENGD FÉLÖG VEITA NOKKURS
KONAR FYRIRSVAR EÐA ÁBYRGÐ, BERUM ORÐUM EÐA ÓBEINT, ÞAR Á MEÐAL
EN EKKI EINGÖNGU ÁBYRGÐ Á EIGNARRÉTTI, SÖLUHÆFNI EÐA HÆFNI TIL
TILTEKINNAR NOTKUNAR, EÐA ÞVÍ AÐ FORRITIN BRJÓTI EKKI GEGN EINKARÉTTI,
HÖFUNDARRÉTTI, VÖRUMERKJARÉTTI EÐA ÖÐRUM RÉTTINDUM ÞRIÐJA AÐILA.
Lesið þessar einföldu leiðbeiningar. Sé þeim ekki fylgt getur
það verið hættulegt eða varðað við lög. Lesa skal alla
notendahandbókina til að fá nánari upplýsingar.
ÖRYGGI ÞEGAR KVEIKT ER Á TÆKINU Ekki
má kveikja á tækinu þar sem notkun þráðlausra
síma er bönnuð eða þar sem hún kann að valda
truflunum eða hættu.
UMFERÐARÖRYGGI GENGUR FYRIR Fara skal
að öllum staðbundnum lögum. Ætíð skal hafa
hendur frjálsar til að stýra ökutækinu við
akstur. Umferðaröryggi skal ganga fyrir í akstri.
TRUFLUN Öll þráðlaus tæki geta verið næm
fyrir truflunum, sem getur haft áhrif
ávirkniþeirra.
SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM
Á SJÚKRASTOFNUNUM Virða skal allar
takmarkanir. Slökkva skal á tækinu nálægt
lækningabúnaði.
HAFA SKAL SLÖKKT Á SÍMANUM
Í FLUGVÉLUM Virða skal allar takmarkanir.
Þráðlaus tæki geta valdið truflunum
íflugvélum.
SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM ÁÐUR EN
ELDSNEYTI ER TEKIÐ Ekki nota tækið nærri
eldsneytisdælu. Notist ekki í námunda
við eldsneyti eða sterk efni.
SLÖKKVA SKAL Á SÍMANUM ÞAR SEM
VERIÐ ER AÐ SPRENGJA Virða skal allar
takmarkanir. Ekki nota tækið þar sem verið
er að sprengja.
NOTIST AF SKYNSEMI Notist aðeins í þeim
stöðum sem lýst er í leiðbeiningum með
vörunni. Forðast skal óþarfa snertingu
við loftnetið.
VIÐURKENND ÞJÓNUSTA Aðeins viðurkennt
starfsfólk má setja upp eða gera við þessa vöru.
AUKAHLUTIR OG RAFHLÖÐUR Aðeins má
nota samþykkta aukahluti og rafhlöður.
Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.
VATNSHELDNI Tækið er ekki vatnshelt.
Halda skal því þurru.
7
ÖRYGGISAFRIT Muna skal að taka öryggisafrit
eða halda skrá yfir allar mikilvægar
upplýsingar.
TENGING VIÐ ÖNNUR TÆKI Þegar tækið er
tengt öðru tæki skal lesa notendahandbók með
því vandlega, einkum upplýsingar um öryggi.
Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.
NEYÐARSÍMTÖL Tryggja skal að kveikt sé
á símaaðgerðum tækisins og þær séu virkar.
Ýta skal á endatakkann eins oft og þarf til að
hreinsa skjáinn og fara aftur í biðstöðu. Sláðu
inn neyðarnúmerið og ýttu á hringitakkann.
Gefa skal upp staðarákvörðun. Ekki má slíta
símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.
Um tækið
Þráðlausa tækið sem lýst er í þessari handbók er samþykkt
til notkunar á EGSM 850/900/1800/1900 og UMTS 2100
símkerfunum. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar
um símkerfi.
Tækið styður internettengingar og aðrar tengiaðferðir.
Líkt og með tölvur geta vírusar, skaðleg skilaboð og forrit,
ásamt öðru skaðlegu efni haft áhrif á tækið. Gæta skal
varúðar og aðeins opna skilaboð, samþykkja tengibeiðnir,
hlaða niður efni og samþykkja uppsetningar frá traustum
aðilum. Til að auka öryggi tækisins er ráðlegt að setja upp,
nota og uppfæra reglubundið bæði vírusvarnarbúnað,
eldvegg og annan slíkan hugbúnað í tækinu og
tengdum tölvum.
Við notkun þessa tækis skal hlíta öllum lögum og virða
staðbundnar venjur, einkalíf og lögmæt réttindi annarra,
þ.m.t. höfundarrétt.
Höfundarréttarvarnir geta komið í veg fyrir að hægt
sé að afrita, breyta, flytja eða framsenda myndir, tónlist
(þ.m.t. hringitóna) og annað efni.
Viðvörun: Við notkun allra aðgerða í þessu tæki,
annarra en vekjara, þarf að vera kveikt á tækinu. Ekki
skal kveikja á tækinu þegar notkun þráðlausra tækja
getur valdið truflun eða hættu.
Skrifstofuforritið styður helstu valkosti Microsoft Word,
PowerPoint og Excel (Microsoft Office 2000, XP og 2003).
Ekki er hægt að skoða eða breyta öllum skráargerðum.
Tækið kann að innihalda bókamerki eða tengla sem veita
aðgang að síðum þriðju aðila. Einnig er hægt að fá aðgang
að síðum annarra þriðju aðila í tækinu. Síður þriðju aðila
tengjast ekki Nokia og Nokia mælir hvorki með né tekur
ábyrgð á þeim. Ef valið er að fara inn á slíkar síður skal
beita öryggisráðstöfunum.
8
Sérþjónusta
Aukahlutir, rafhlöður
Til að hægt sé að nota símann verður áskrift að
þjónustuveitu fyrir þráðlausa síma að vera fyrir hendi.
Margir af valkostum símans flokkast undir sérþjónustu.
Ekki er hægt að nota þessa valkosti í öllum símkerfum.
Í öðrum símkerfum kann jafnframt að vera farið fram
á sérstaka skráningu fyrir þessari þjónustu. Leiðbeiningar
ásamt upplýsingum um gjald fyrir þjónustuna fást hjá
þjónustuveitu. Sum símkerfi kunna að hafa takmarkanir
sem hafa áhrif á hvernig hægt er að nota sérþjónustu. Sum
símkerfi styðja t.d. ekki alla séríslenska bókstafi og þjónustu.
Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að tilteknar
aðgerðir væru hafðar óvirkar eða ekki gerðar virkar
í tækinu. Ef svo er birtast þær ekki í valmynd tækisins.
Tækið kann einnig að hafa verið sérstillt, t.d. kann heitum,
röð og táknum valmynda að hafa verið breytt.
Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
Þetta tæki styður WAP 2.0 samskiptareglur (HTTP og SSL)
sem keyra á TCP/IP samskiptareglum. Sumar aðgerðir þessa
tækis, svo sem MMS, netvafur, niðurhal tölvupósts og efnis
með vafranum eða um MMS krefjast símkerfisstuðnings
við þessa tækni.
Upplýsingar um framboð og notkun SIM-korta má fá hjá
seljanda SIM-kortsins. Þetta getur verið þjónustuveitan
eða annar söluaðili.
og hleðslutæki
Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður
en rafhlaðan er fjarlægð.
Athuga ber tegundarnúmer hleðslutækja áður en þau eru
notuð með þessu tæki. Þetta tæki er ætlað til notkunar
þegar það er hlaðið orku frá DC-4, AC-3 eða AC-4
hleðslutæki og frá AC-1, ACP-7, ACP-8, ACP-9, ACP-12,
LCH-9 eða LCH-12 hleðslutæki þegar það er notað með
CA-44 millistykki.
Rafhlaðan sem ætluð er til notkunar með þessu tæki
er BP-6M.
Viðvörun: Aðeins skal nota rafhlöður, hleðslutæki
og aukahluti sem Nokia hefur samþykkt til nota með
þessari tilteknu tegund. Ef notaðar eru aðrar gerðir gæti
öll ábyrgð og samþykki fallið niður og slíkri notkun
getur fylgt hætta.
Seljandi símans veitir upplýsingar um fáanlega aukahluti
sem samþykktir eru til notkunar. Þegar aukahlutur
er tekinn úr sambandi skal taka í klóna, ekki leiðsluna.
9
Tengimöguleikar
Tengimöguleikar
10
Notaðu tækið í 2G- og 3G-símkerfunum.
Sjá „Um tækið” á bls. 8.
Notaðu Bluetooth-tækni til að flytja skrár og tengjast
samhæfum aukahlutum. Sjá „Bluetooth-tengingar”
ábls.92.
Notaðu innrauða tengingu til að flytja og samstilla gögn
milli samhæfra tækja. Sjá „Innrauð tenging” á bls. 95.
Notaðu samhæfa USB-snúru, t.d. Nokia tengisnúruna
CA-53, til að tengjast samhæfum tækjum, svo sem
prenturum og tölvum. Sjá „Gagnasnúra” á bls. 96.
Notaðu samhæft miniSD-kort til að flytja gögn eða afrita
upplýsingar á. Sjá „Verkfæri fyrir minniskort” á bls. 14.
Nokia N73 tækið
Gerð: Nokia N73-1.
Hér eftir kallað Nokia N73. Ef aðgerð sem lýst er í þessari
handbók er aðeins tiltæk í frumgerð Nokia N73 tækisins
eða Nokia N73 Music Edition er getið um það í kaflanum
sem fjallar um þá aðgerð og vísað til Nokia N73 (frumgerð) eða Nokia N73 Music Edition. Skoðaðu
söluumbúðir tækisins til að sjá hvort tækið er Nokia N73
frumgerðin eða Nokia N70 Music Edition.
Rafhlaðan hlaðin
1 Stingdu hleðslutækinu í samband í innstungu.
2 Tengdu snúru hleðslutækisins við tækið. Ef rafhlaðan er
alveg tóm gæti liðið einhver tími þar til hleðsluvísirinn
byrjar að hreyfast.
3 Þegar rafhlaðan er fullhlaðin skaltu taka fyrst
hleðslutækið úr sambandi við tækið og síðan
úr innstungunni.
Stillingar
Í Nokia N73 tækinu eru stillingar fyrir MMS, GPRS,
straumspilun og internet yfirleitt valdar sjálfkrafa,
samkvæmt upplýsingum frá þjónustuveitunni.
Verið getur að þjónustuveitan hafi þegar sett upp
stillingarnar í tækinu, en einnig er hægt að fá þær
sendar í sérstökum textaskilaboðum.
Til að breyta almennum stillingum tækisins, svo sem
tungumáli, biðham og skjástillingum, sjá „Sími” á bls. 113.
Efni flutt úr öðru tæki
Hægt er að flytja efni, t.d. tengiliði, án endurgjalds úr
samhæfu Nokia-tæki yfir í Nokia N73 um Bluetooth eða
innrautt tengi. Það fer eftir gerð símans hvaða efni er hægt
að flytja. Ef hitt tækið styður samstillingu er einnig hægt
að samstilla gögn á milli þess og Nokia N73.
Þú getur notað SIM-kortið þitt í hinu tækinu. Ótengda
sniðið er sjálfkrafa valið þegar kveikt er á Nokia N73
tækinu án þess að SIM-kort sé í því.
Flutningur efnis
1 Til að nota forritið í fyrsta skipti skaltu styðja á
og velja Verkfæri > Flutningur. Ef forritið hefur verið
notað áður og þú vilt hefja nýjan flutning velurðu
Flytja gögn.
Veldu Halda áfram í upplýsingaglugganum.
Nokia N73 tækið
11
2 Veldu hvort þú vilt flytja gögnin um Bluetooth eða
innrautt tengi. Bæði tækin verða að styðja gerðina.
3 Ef þú velur Bluetooth:
Veldu Halda áfram til að láta Nokia N73 tækið leita að
Bluetooth-tækjum. Veldu tæki af listanum. Nokia N73
tækið biður þig að slá inn kóða. Sláðu inn kóðann
(1-16 tölustafir að lengd) og veldu Í lagi. Sláðu inn
Nokia N73 tækið
sama kóða í hitt tækið og veldu Í lagi. Þá eru tækin
pöruð. Sjá „Pörun tækja” á bls. 94.
Tækið kann að senda Gagnaflutn. forritið í suma síma
í skilaboðum. Gagnaflutn. er sett upp í hinu tækinu
með því að opna skilaboðin og fylgja leiðbeiningunum
á skjánum.
Ef þú hefur valið innrauða tengingu skaltu tengja tækin
saman. Sjá „Innrauð tenging” á bls. 95.
4 Í Nokia N73 tækinu skaltu velja efnið sem þú vilt flytja
úr hinu tækinu.
Efni er flutt úr minni hins tækisins á samsvarandi
staðsetningu í Nokia N73. Flutningstíminn veltur
á því gagnamagni sem er afritað. Hægt er að hætta
við flutninginn og halda honum áfram síðar.
Ef hitt tækið styður samstillingu er hægt að halda
gögnunum í nýjustu stöðu í báðum tækjum. Til að hefja
samstillingu við samhæft Nokia-tæki velurðu Símar,
skrunar að tækinu og velur Valkostir > Samstilla.
Fylgdu fyrirmælunum á skjánum.
Til þess að skoða skrá yfir fyrri gagnaflutning velurðu
Flutningsskrá.
Mikilvægir vísar
Tækið er notað í GSM-símkerfi.
Verið er að nota tækið á UMTS-símkerfi (sérþjónusta).
Mappan Innhólf í Skilaboð inniheldur ein eða fleiri
ólesin skilaboð.
Tölvupóstur bíður þín í ytra pósthólfinu.
Það eru ósend skilaboð í möppunni Úthólf.
Einhverjum símtölum hefur ekki verið svarað.
Birtist ef Gerð hringingar er stillt á Án hljóðs og
Viðv.tónn skilaboða, Viðv.tónn spjalls og Viðv.tónn
tölvupósts eru stillt á Óvirkt.
Takkaborðið er læst.
Vekjaraklukkan mun hringja.
Símalína 2 er í notkun (sérþjónusta).
Öll móttekin símtöl eru flutt í annað símanúmer.
Ef þú hefur tvær símalínur (sérþjónusta) er vísirinn fyrir
fyrri línuna og fyrir þá síðari.
Samhæft höfuðtól er tengt við tækið.
12
Tenging við samhæft Bluetooth-höfuðtól hefur
rofnað.
Hljóðmöskvi er tengdur við tækið.
Samhæfur Textasími er tengdur við tækið.
Gagnasímtal er virkt.
Hægt er að koma á GPRS-pakkagagnatengingu.
GPRS-pakkagagnatenging er virk.
GPRS-pakkagagnatenging er í bið.
Pakkagagnatenging er virk í þeim hluta kerfisins sem
styður EDGE-tengingu. sýnir að tengingin er í bið og
að tengingu sé komið á. Táknið sýnir að boðið er upp á
EDGE-tengingu í kerfinu, en ekki er víst að tækið noti EDGE
við gagnaflutninginn.
Hægt er að koma á UMTS-pakkagagnatengingu.
UMTS-pakkagagnatenging er virk.
UMTS-pakkagagnatenging er í bið.
Bluetooth-tenging er virk.
Verið er að flytja gögn um Bluetooth.
USB-tenging er virk.
Innrauð tenging er virk. Ef vísirinn blikkar er tækið
þitt að reyna ná sambandi við hitt tækið, eða þá að
tengingin hefur rofnað.
Stillingar hljóðstyrks og hátalara
Þegar símtal er í gangi eða
verið er að hlusta á eitthvað
er hljóðstyrkurinn stilltur
með því að ýta á hljóðstyrkstakkann á hlið tækisins.
Innbyggði hátalarinn gerir þér kleift að tala í tækið og
hlusta á það sem viðmælandinn segir úr lítilli fjarlægð
án þess að þurfa að halda á tækinu við eyrað.
Viðvörun: Ekki skal halda tækinu nálægt eyranu
þegar hátalarinn er notaður því hljóðstyrkur getur verið
mjög mikill.
Þegar verið er að tala í símann er kveikt á hátalaranum
með því að velja Valkostir > Virkja hátalara.
Slökkt er á hátalaranum með því að velja Valkostir >
Virkja símtól.
Margmiðlunartakki
(Nokia N73 (frumgerð))
Hér er fjallað um margmiðlunartakkann í Nokia N73 Music
tækinu (frumgerðinni).
Með margmiðlunartakkanum er hægt að fá skjótan aðgang
að margmiðlunarefni og fyrirfram skilgreindum forritum.
Nokia N73 tækið
13
Flýtivísir miðlunartakkans er opnaður með því að halda
inni. Ýtt er á til að opna lista yfir margmiðlunarforrit.
Forritin á listanum eru opnuð með skruntakkanum.
Listanum er lokað með því að ýta á.
Flýtivísunum er breytt með því að ýta á og . Til að
breyta forritunum sem birtast þegar ýtt er á skaltu velja
Efst, Vinstri, Fyrir miðju eða Hægri og svo forritið.
Nokia N73 tækið
Ekki er víst að hægt sé að breyta öllum flýtivísum.
Höfuðtól
Hægt er að tengja
samhæft höfuðtól við
TM
Pop-Port
tengi tækisins.
Viðvörun: Þegar
höfuðtólið er notað
getur það skert heyrn
á umhverfishljóðum.
Ekki skal nota höfuðtólið þar sem hætta getur stafað af.
kort sé ekki hægt að nota að fullu með þessu tæki.
Ósamhæf kort geta skaðað kortið og tækið og skemmt
gögn sem vistuð eru á kortinu.
Ýttu á og veldu Verkfæri > Minni. Hægt er að nota
samhæft miniSD-kort til að auka minnið og setja
öryggisafrit á kortið.
Til að taka öryggisafrit af gögnum í minni tækisins og setja
það á samhæft minniskort skaltu velja Valkostir > Afrita
minni símans
Til að setja upplýsingarnar aftur yfir á minni tækisins skaltu
velja Valkostir > Endurh. frá korti.
Til að fjarlægja minniskortið skaltu ýta á og velja Fjarl.
minniskort.
Mikilvægt: Fjarlægið ekki minniskortið meðan
á aðgerð stendur og kortið er í notkun. Ef kortið er
fjarlægt í miðri aðgerð getur það valdið skemmdum
á minniskortinu og tækinu sjálfu og gögn sem geymd
eru á kortinu geta skemmst.
Verkfæri fyrir minniskort
Aðeins skal nota samhæft miniSD-kort sem Nokia
samþykkir til notkunar með þessu tæki. Nokia styðst við
viðurkennda staðla fyrir minniskort. Þó getur verið að sum
14
Lykilorð sett inn
Til að setja inn lykilorð til að vernda minniskortið skaltu
velja Valkostir > Setja lykilorð. Hægt er að nota allt að
8 stafi í lykilorðið.
Til að breyta lykilorðinu skaltu velja Valkostir > Breyta
lykilorði.
Til að fjarlægja lykilorðið skaltu velja Valkostir >
Fjarlægja lykilorð.
Minniskort forsniðið
Þegar minniskort er forsniðið er öllum gögnum eytt
af því varanlega.
Sum minniskort eru forsniðin af framleiðanda og önnur
þarf að forsníða. Leitaðu upplýsinga hjá söluaðilanum
um hvort forsníða þurfi minniskortið fyrir notkun.
Minniskort er forsniðið með því að velja Valkostir >
Forsníða minniskort. Valið er staðfest með því að velja Já.
Skráastjóri
Margar aðgerðir/forrit tækisins vista gögn á minninu
og minnka það minni þess. Þessi forrit eru m.a. tengiliðir,
skilaboð, myndir, hreyfimyndir, hringitónar,
dagbókaratriði, skjöl og forrit sem hefur verið hlaðið niður
í tækið. Það fer eftir því gagnamagni sem vistað hefur
verið í minni tækisins hversu mikið minni er laust.
Hægt er að auka minnið með því að nota samhæft
minniskort. Minniskort eru endurskrifanleg og því er
hægt að eyða eldri upplýsingum og vista ný gögn á þeim.
Til að skoða skrár og möppur í minni tækisins eða
á minniskorti (ef það er notað) skaltu ýta á og velja
Ýttu á til að opna skjá minniskortsins (), ef hann
er til staðar.
Til að færa eða afrita skrár yfir í möppu skaltu ýta samtímis
á og til að merkja skrá og velja svo Valkostir > Færa
í möppu eða Afrita í möppu.
Til að finna skrá skaltu velja Valkostir > Finna, minnið sem
á að leita í og slá svo inn leitartextann (allt heiti
skráarinnar eða hluta af því).
Minnisnotkun athuguð
Til að skoða hvað gerð gagna er í tækinu og hversu mikið
minni mismunandi gerðir gagna taka skaltu velja
Valkostir > Minnisupplýsingar. Valkosturinn Laust minni
sýnir hversu mikið minni er laust.
Lítið minni eftir—losa minni
Tækið lætur þig vita ef það er lítið minni eftir í því eða
á minniskortinu.
Hægt er að losa um minni með því að flytja gögn yfir
á samhæft minniskort. Merktu þær skrár sem á að flytja,
veldu Valkostir > Færa í möppu > Minniskort og
svo möppu.
Nokia N73 tækið
15
Ábending! Þú getur notað Nokia Phone Browser
í Nokia PC Suite til að skoða minni tækisins og
flytja gögn.
Gögn eru fjarlægð með því að nota Skráastjórn eða opna
viðkomandi forrit. Þú getur t.d. fjarlægt:
• Skilaboð úr möppunum Innhólf, Uppköst og Sendir
hlutir í Skilaboð
• Móttekinn tölvupóst úr minni tækisins
Nokia N73 tækið
• Vistaðar vefsíður
• Vistaðar myndir, hreyfimyndir og hljóðskrár
• Tengiliðaupplýsingar
• Minnismiða í dagbók
• Forrit sem hlaðið hefur verið niður. Sjá einnig
„Stjórnandi forrita” á bls. 109.
• Uppsetningarskrár (.sis) forrita sem sett hafa verið
upp á samhæft miniSD-korti; takið fyrst afrit af þeim
á samhæfa tölvu með Nokia PC Suite.
• Hvaða gögnum öðrum sem þú þarft ekki lengur
áaðhalda
Til niðurhals
Til niðurhals (sérþjónusta) er verslun í tækinu þínu. Hægt
er að vafra, hlaða niður og setja upp hluti eins og forrit og
skrár í tækið frá internetinu.
Efnið er flokkað í vörulistum og ýmsar þjónustuveitur
útvega það. Sumt efni verður að greiða fyrir en yfirleitt
er hægt að skoða sýnishorn án endurgjalds.
Ýttu á og veldu Internet > Til niðurhals
Nánari upplýsingar er að finna í viðbótarbæklingi
um forritin.
16
Stuðningur við notendur
Þjónusta Nokia og upplýsingar
Á www.nokia.com/support eða staðbundnu vefsetri Nokia
er hægt að finna nýjustu útgáfuna af þessari handbók,
viðbótarupplýsingar, efni til niðurhals og þjónustu sem
tengist Nokia-vörunni.
Á vefsíðunni má fá upplýsingar um vörur og þjónustu
Nokia. Upplýsingar um þjónustustöðvar fyrirtækisins
er að finna á www.nokia.com/customerservice.
Upplýsingar um viðhaldsþjónustu er að finna
á www.nokia.com/repair.
Hugbúnaðaruppfærslur
Nokia framleiðir stundum uppfærð forrit sem geta
innihaldið nýjar aðgerðir eða virkað betur og afkastað
meiru. Það kann að vera hægt að biðja um þessar
uppfærslur með Nokia Software Updater forritinu. Til að
uppfæra hugbúnað tækisins þarf Nokia Software Updater
forrit og samhæfa tölvu með Microsoft Windows 2000 eða
XP stýrikerfi, breiðbands-internetaðgang og samhæfa
gagnasnúru til að tengja tækið við tölvuna.
Nánari upplýsingar um Nokia Software Updater forritið
og hvernig á að hlaða því niður er að finna
á www.nokia.com/softwareupdate eða vefsetri Nokia
í eigin landi.
Ef símkerfið styður hugbúnaðaruppfærslur um
nettengingu kann einnig að vera hægt að biðja
um uppfærslur í tækinu. Sjá „Stjórnandi tækis”,
„Hugbúnaðaruppfærslur” á bls. 98.
Hjálp
Tækið inniheldur hjálpartexta fyrir valmyndir. Hjálpartexti
fyrir skjá er opnaður með því að velja Valkostir > Hjálp.
Hægt er að skipta á milli opins forrits og hjálpartexta þess
með því að halda inni takkanum.
Hjálparforritið er opnað í aðalvalmyndinni með því að velja
Verkfæri> Hjálp
. Svo er forrit valið til að sjá hjálpartexta þess.
Kennsla
Kennsluforritið birtir upplýsingar um suma valkosti
tækisins. Kennsluforritið er opnað með því að ýta á ,
velja Forrit > Kennsla og svo þann hluta sem á að skoða.
Stuðningur við notendur
17
Myndavél
Í Nokia N73 tækinu eru tvær myndavélar, ein með hárri
upplausn aftan á tækinu (aðalmyndavélin) og önnur með
Myndavél
minni upplausn framan á því (aukamyndavélin). Hægt
er að nota báðar myndavélarnar til að taka kyrr- og
hreyfimyndir. Með fremri myndavélinni eru teknar
andlitsmyndir og landslagsmyndir með aðalmyndvélinni.
Nokia N73 tækið styður allt að 2048x1536 punkta
myndupplausn í aðalmyndavélinni. Myndupplausnin
í þessum efnum getur virst önnur.
Kyrrmyndirnar og
myndskeiðin vistast sjálfkrafa
í möppunni Myndir & hr.m.
í Gallerí. Myndir eru teknar
á .jpeg-sniði. Hreyfimyndir eru
teknar upp á .mp4-sniði eða
3GPP-sniði með endingunni
.3gp (Samnýting).
Sjá „Stillingar fyrir
hreyfimyndir” á bls. 26.
Hægt er að senda myndir og hreyfimyndir
í margmiðlunarboðum, sem viðhengi í tölvupósti eða
um Bluetooth- tengingu. Einnig er hægt að hlaða þeim
upp í samhæft netalbúm. Sjá „Samnýting” á bls. 35.
18
Myndataka
Hafðu eftirfarandi í huga þegar þú tekur mynd:
• Notaðu báðar hendur til að halda myndavélinni kyrri.
• Myndgæðin minnka þegar súmmið er notað.
• Myndavélin hálfslekkur á sér til að spara orku ef ekki
hefur verið ýtt á neinn takka í tiltekinn tíma. Ýtt er á
takkann til að halda áfram að taka myndir.
Hafðu eftirfarandi í huga þegar þú tekur mynd:
1 Opna skal lokið til að kveikja á aðalmyndvélinni.
Ef myndavélin er í Hreyfimyndataka skaltu velja
Skipta yfir í myndatöku á tækjastikunni.
2 Ýttu myndatökutakkanum niður til hálfs til að festa
fókusinn á myndefnið (aðeins á aðalmyndavél).
Á skjánum birtist grænn fókusvísir. Hafi fókusinn
ekki verið festur birtist rauður fókusvísir. Slepptu
myndatökutakkanum og ýttu honum aftur niður
til hálfs. Hægt er að taka mynd án þess að fókusinn
hafi verið festur.
3 Mynd er tekin með aðalmyndavélinni með því að ýta
á myndatökutakkann. Ekki hreyfa tækið fyrr en myndin
hefur verið vistuð.
Notaðu súmmtakkann á hlið tækisins til að súmma
að eða frá.
Hægt er að gera breytingar á lita- og birtustillingum áður
en þú tekur mynd með því að nota skruntakkann til að
fletta gegnum tækjastikuna. Sjá „Uppsetning—Stilling lita
og lýsingar” á bls. 22.
Ef stillingum fyrir súmm, lýsingu eða liti er breytt getur
tekið lengri tíma að vista myndir.
Til að losa minni áður en mynd er tekin skaltu velja
Valkostir > Sýna laust minni (aðeins hægt ef tekið hefur
verið afrit af myndum eða hreyfimyndum). Sjá „Minni
losað” á bls. 29.
Til að kveikja á fremri myndavélinni skaltu velja
Valkostir > Nota myndavél 2.
Loka skal tækinu til að slökkva á aðalmyndvélinni.
Myndavélarvísar fyrir kyrrmyndir
Myndglugginn fyrir kyrrmyndir sýnir eftirfarandi:
• Vísi fyrir virka tökustillingu (1).
• Tækjastikuna (2), sem hægt er að fletta í gegnum áður
en myndin er tekin til að ræsa sjálfvirka myndatöku eða
myndaraðir, eða velja tökustillingu, umhverfi, flass,
ljósgjafa, birtuskilyrði, litaáferð og ljósnæmi
(tækjastikan sést ekki meðan fókusinn er stilltur
og mynd tekin). Sjá „Tækjastika” á bls. 20.
• Vísinn fyrir
myndupplausn
(3) sem sýnir
hvort myndgæðin
eru Prentun
3M - Stór
(2048x1536
upplausn),
Prentun 2M Miðlungs
(1600x1200 upplausn), Prentun/tölvupóstur 0,8 -
Lítil (1024x768 upplausn) eða Margmiðlunarskilaboð
0,3M (640x480 upplausn).
• Teljarann (4) sem sýnir hve margar myndir hægt er að
taka með þeirri stillingu fyrir myndgæði sem er virk og
því minni sem er í notkun (teljarinn sést ekki meðan
fókusinn er stilltur og mynd tekin).
• Vísa (5) fyrir minni tækisins ( ) og minniskortið ( )
sem sýna hvar myndir eru vistaðar.
Til að allir vísar myndgluggans birtist skaltu velja
Valkostir > Sýna tákn. Til að aðeins myndavélarvísarnir
sjáist skaltu velja Fela tákn.
Myndavél
19
Tækjastika
Þegar myndavélin er virk er
hægt að nota tækjastikuna
sem flýtivísi til að velja hluti
Myndavél
og fínstilla hana áður eða
eftir að mynd eða
hreyfimynd er tekin.
Skrunaðu að ýmsum hlutum
á tækjastikunni og veldu þá
með því að ýta á
skruntakkann. Valkostirnir
sem eru í boði fara eftir því hver tökustillingin og staðan
er. Einnig er hægt að velja hvort tækjastikan sé alltaf
sýnileg á skjánum eða gerð virk með því að ýta á takka.
Ef þú vilt að tækjastikan sé sýnileg á skjánum áður og eftir
að mynd eða hreyfimynd er tekin skaltu velja Valkostir >
Sýna tákn.
Ef þú vilt að tækjastikan sé aðeins sýnileg þegar þú þarft
að nota hana skaltu velja Valkostir > Fela tákn. Þú getur
gert hana virka með því að ýta á skruntakkann.
Áður en þú tekur mynd eða hreyfimynd skaltu velja
úr eftirfarandi valkostum á tækjastikunni:
til að skipta milli hreyfimynda-og kyrrmyndastillingar.
til að velja umhverfi.
til að velja flassstillingu
til að kveikja á sjálfvirkri myndatöku (aðeins fyrir
kyrrmyndir). Sjá „Þú með á myndinni—sjálfvirk myndataka”
á bls. 23.
til að kveikja á myndaraðarstillingu (aðeins fyrir
kyrrmyndir). Sjá „Nokkrar myndir teknar í röð” á bls. 23.
til að stilla birtuskilyrði (aðeins fyrir kyrrmyndir).
til að stilla ljósgjafa,
til að velja litaáferð.
til að stilla ljósnæmi (aðeins fyrir kyrrmyndir)
Táknin breytast og sýna hvaða stillingar eru virkar.
Valkostirnir sem eru í boði eru mismunandi eftir því hvaða
skjá þú notar.
Sjá einnig valkosti á tækjastiku í „Að myndatöku lokinni”
á bls. 20, „Að hreyfimyndatöku lokinni” á bls. 25 og
„Tækjastika” á bls. 28 í Gallerí.
Að myndatöku lokinni
Að myndatöku lokinni, skaltu velja úr eftirfarandi
valkostum á tækjastikunni (aðeins í boði ef Sýna teknar
myndir er stillt á Kveikt í kyrrmyndastillingu):
• Ef þú vilt ekki vista myndina skaltu velja Eyða.
20
• Til að senda myndina sem margmiðlunarboð,
í tölvupósti eða um Bluetooth eða innrauða tengingu
eða hlaða henni upp í samhæft netalbúm skaltu ýta
á hringitakkann eða velja Senda. Nánari upplýsingar er
að finna í „Skilaboð” á bls. 57, „Bluetooth-tengingar”
á bls. 92 og „Samnýting” á bls. 35. Ekki er hægt að velja
þennan valkost meðan á símtali stendur. Einnig er hægt
að senda mynd til viðmælanda á meðan símtal fer fram.
Veldu Senda til viðmælanda (aðeins hægt að velja
á meðan símtal fer fram.).
• Ef merkja á myndir fyrir prentkörfu til prentunar
síðar skaltu velja Setja í Prentkörfu.
• Til að prenta mynd skaltu velja Prenta.
Sjá „Myndprentun” á bls. 33.
• Til að taka nýja mynd skaltu velja Ný mynd.
Til að endurnefna mynd skaltu velja Valkostir >
Endurnefna mynd.
Til að nota mynd sem veggfóður í biðham skaltu velja
Valkostir > Nota sem veggfóður.
Stillingar fyrir kyrrmyndir
Hægt er að velja á milli tveggja stillinga fyrir kyrrmyndir:
Upps. mynda og aðalstillinga. Til að stilla Upps. mynda, sjá
„Uppsetning—Stilling lita og lýsingar” á bls. 22. Stillingar á
uppsetningu breytast aftur yfir í sjálfvaldar stillingar þegar
myndavélinni er lokað, en aðalstillingarnar eru þær sömu
þar til þeim er breytt aftur. Aðalstillingunum er breytt með
því að velja Valkostir > Stillingar og úr eftirfarandi:
Myndgæði—Prentun 3M - Stór-Large
(2048x1536 upplausn), Prentun 2M - Miðlungs
(1600x1200 upplausn), Prentun/tölvupóstur 0,8 - Lítil
(1024x768 upplausn) eða Margmiðlunarskilaboð 0,3M
(640x480 upplausn). Því meiri sem gæðin eru, þeim mun
meira minni tekur myndin. Ef þú vilt prenta myndina skaltu
velja Prentun 3M - Stór, Prentun 2M - Miðlungs eða
Prentun/tölvupóstur 0,8 - Lítil. Ef þú vilt senda hana
í tölvupósti skaltu velja Prentun/tölvupóstur 0,8 - Lítil.
Til að senda myndina sem margmiðlunarboð skaltu velja
Margmiðlunarskilaboð 0,3M.
Þessar upplausnir er aðeins að finna í aðalmyndavélinni.
Setja inn í albúm—Þú getur valið hvort þú vilt vista
myndina í tilteknu albúmi í galleríinu. Ef þú velur Já
birtist listi yfir albúmin sem hægt er að velja.
Sýna teknar myndir—Veldu Kveikt ef þú vilt skoða mynd
eftir að hún er tekin, eða Slökkt ef þú vilt strax halda
áfram að taka myndir.
Sjálfgefið heiti myndar—Veldu sjálfgefið heiti fyrir myndir.
Aukin stafræn stækkun (aðeins á aðalmyndavél)—Veldu
Kveikt til að stighækkandi súmm sé samfellt milli
stafrænnar og aukinnar stafrænnar stækkunar. Ef þú vilt
takmarka stækkunina þannig að myndgæðin minnki ekki
skaltu velja Slökkt.
Myndavél
21
Myndatökuhljóð—Veldu tóninn sem heyrist þegar myndir
eru teknar.
Minni í notkun—Veldu hvar myndir eru vistaðar.
Upprunarlegar stillingar—Veldu Í lagi til að stillingar
Myndavél
myndavélarinnar verði aftur sjálfgefnar.
Flass
Aðeins er hægt að stilla á flass í aðalmyndavélinni.
Halda skal öruggri fjarlægð þegar flassið er notað.
Ekki má nota flassið á fólk eða dýr sem eru mjög nálægt.
Ekki má hylja flassið þegar mynd er tekin.
Myndavélin notar ljósdíóðu-flass þegar lýsing er lítil.
Eftirfarandi flassstillingar eru tiltækar fyrir kyrrmyndatöku:
Sjálfvirkt (), Laga rauð augu (), Kveikt ()
og Slökkt ().
Veldu þá flassstillingu sem þú vilt með því að skipta
um stillingu á tækjastikunni.
Uppsetning—Stilling lita og lýsingar
Til að gera myndavélinni kleift að greina betur liti og
lýsingu eða til að bæta inn áhrifum í myndir eða
hreyfimyndir skaltu nota skruntakkann til að fletta
gegnum tækjastikuna og velja úr eftirfarandi valkostum:
Ljósgjafi—Veldu ljósgjafa af listanum. Þetta gerir
myndavélinni kleift að endurskapa liti af meiri nákvæmni.
Leiðrétting við myndatöku (aðeins fyrir kyrrmyndir)—
Stilltu á leiðréttingu við myndatöku.
Litáferð—Veldu litáferðina af listanum.
Ljósnæmi (aðeins fyrir kyrrmyndir)—Veldu ljósnæmi
myndavélarinnar. Því dimmara sem umhverfið er þeim
mun meira ætti ljósnæmið að vera.
Skjárinn breytist eftir því hvaða stillingar eru valdar
og sýnir hvernig lokaútkoma myndarinnar eða
hreyfimyndarinnar verður.
Hvaða stillingar eru í boði veltur á því hvaða myndavél
hefur verið valin.
Þegar stillingum aukamyndavélarinnar er breytt hefur það
einnig áhrif á stillingar aðalmyndavélarinnar og öfugt.
Þegar myndavélinni er lokað eru sjálfgefnar stillingar
hennar valdar aftur.
Ef þú velur nýtt umhverfi kemur það í stað lita- og
birtustillinganna. Sjá „Umhverfi” á bls. 23. Hægt er að
breyta stillingunum ef þörf krefur eftir að umhverfi
hefur verið valið.
22
Umhverfi
Umhverfi auðveldar þér að finna réttu stillingarnar fyrir liti
og lýsingu. Veldu rétta umhverfisstillingu af listanum fyrir
myndir eða hreyfimyndir. Stillingarnar fyrir hvert umhverfi
henta því sérstaklega.
Umhverfisstillingar er aðeins að finna í aðalmyndavélinni.
Notaðu skruntakkann til að skruna gengum tækjastikuna
Sjálfgefna stillingin fyrir myndatöku er Sjálfvirkt. Hægt
er að velja Notandi tilgreinir sem sjálfgefna stillingu.
Til að búa til þína eigin umhverfisstillingu fyrir tiltekið
umhverfi skaltu fletta að Notandi tilgreinir og velja
Valkostir > Breyta. Í umhverfisstillingu notanda er hægt
að velja mismunandi stillingar fyrir lýsingu og liti. Til að
afrita stillingar úr annarri umhverfisstillingu skaltu velja
Byggt á umhverfi og svo stillinguna.
Nokkrar myndir teknar í röð
Aðeins er hægt að velja myndaraðarstillinguna
í aðalmyndavélinni.
Til að stilla myndavélina þannig að hún taki a.m.k. sex
myndir í röð (ef nægilegt minni er til staðar) skaltu velja
Skipta yfir í myndaröð á tækjastikunni.
Ýttu á myndatökutakkann til að taka sex myndir. Haltu
myndatökutakkanum niðri til að taka fleiri en sex myndir.
Slepptu myndatökutakkanum að myndatöku lokinni. Hægt
er að taka allt að 100 myndir, ef tiltækt minni leyfir.
Eftir að myndirnar hafa verið teknar eru þær birtar
í töflu á skjánum. Mynd er skoðuð með því að ýta á
til að opna hana.
Einnig er hægt að taka nokkrar myndir í röð með sjálfvirkri
myndatöku. Hámarksfjöldi mynda með sjálfvirkri
myndatöku er sex myndir.
Ýttu á myndatökutakkann til að fara aftur í myndgluggann
með myndaröðinni.
Þú með á myndinni—sjálfvirk
myndataka
Aðeins er hægt að stilla á sjálfvirka myndatöku
í aðalmyndavélinni.
Myndavél
23
Notaðu sjálfvirka myndatöku til að seinka myndatökunni
svo að þú getir verið með á myndinni. Til að stilla tíma
sjálfvirkrar myndatöku skaltu velja Sjálfvirk myndataka >
2 sekúndur, 10 sekúndur eða 20 sekúndur
á tækjastikunni. Veldu Virkja til að kveikja á sjálfvirku
Myndavél
myndatökunni. Tækið gefur frá sér hljóðmerki meðan
sjálfvirk myndataka er í gangi. Myndavélin tekur myndina
eftir að tíminn er liðinn.
Til að slökkva á Sjálfvirk myndataka skaltu velja Sjálfvirk
myndataka > Slökkt á tækjastikunni.
Einnig er hægt að nota sjálfvirka myndatöku fyrir
myndaraðir.
Ábending! Veldu Sjálfvirk myndataka > 2 sekúndur
á tækjastikunni til að minnka líkurnar á því að myndin
verði hreyfð.
Upptaka hreyfimynda
1 Opna skal lokið til að kveikja á aðalmyndvélinni.
Ef myndavélin er í Myndataka skaltu velja Skipta yfir
í hreyfimynd á tækjastikunni.
2 Ýttu á myndatökutakkann til að hefja upptöku. Notaðu
skruntakkann til að taka upp í andlitsmyndastillingu.
Rauða upptökutáknið birtist og hljóð heyrist sem
gefur til kynna að upptaka sé hafin.
3 Veldu Stöðva til að stöðva upptökuna. Myndskeiðið
vistast sjálfkrafa í möppunni Myndir & hr.m. í Gallerí.
Sjá „Gallerí” á bls. 27. Hámarkslengd
hreyfimyndarupptöku er 60 mínútur
(ef minni er nægjanlegt).
Hægt er að gera hlé á upptökunni hvenær sem er með því
að ýta á Hlé. Biðtáknið ( ) blikkar á skjánum. Upptakan
stöðvast sjálfkrafa ef gert hefur verið hlé á henni og ekki
er stutt á neinn takka í eina mínútu.
Ýttu á myndatökutakkann til að hefja aftur upptöku.
Notaðu súmmtakkann á hlið tækisins til að súmma
að eða frá.
Hægt er að gera breytingar á lita- og birtustillingum áður
en þú tekur upp hreyfimynd með því að nota skruntakkann
til að fletta gegnum tækjastikuna. Sjá „Uppsetning—
Stilling lita og lýsingar” á bls. 22 og „Umhverfi” á bls. 23.
Til að losa minni áður en hreyfimynd er tekin skaltu velja
Valkostir > Sýna laust minni (aðeins hægt ef tekið hefur
verið afrit af myndum eða hreyfimyndum). Sjá „Minni
losað” á bls. 29.
Til að kveikja á fremri myndavélinni skaltu velja
Valkostir > Nota myndavél 2.
Hreyfimyndastöðutákn
Hreyfimyndaglugginn sýnir eftirfarandi:
• Vísi fyrir virka tökustillingu (1).
• Vísi fyrir myndstöðugleika (2)
24
• Vísi fyrir slökkt á hljóði (3).
• Tækjastikuna (4) sem þú getur skrunað gegnum fyrir
upptöku til að velja umhverfi, ljósgjafa og litáferð
(tækjastikan sést ekki meðan tekið er upp).
• Heildartíma upptöku (5). Við upptöku sýnir
lengdarvísirinn einnig tímann sem er liðinn
og tímann sem eftir er.
• Vísa (6) fyrir
minni tækisins
( ) og
minniskortið ( )
sem sýna hvar
hreyfimyndir
eru vistaðar.
• Vísir fyrir
myndgæði (7)
sýnir hvort gæðin
eru stillt á Há, Venjuleg eða Samnýting.
• Skráargerðina (8).
Til að allir vísar myndgluggans birtist skaltu velja
Valkostir > Sýna tákn. Veldu Fela tákn til að sýna aðeins
hreyfimyndastöðutáknin og tiltækan upptökutíma meðan
á upptöku stendur, súmmstikuna þegar súmmað er,
og valtakkana.
Til að kveikja á fremri myndavélinni skaltu velja
Valkostir > Nota myndavél 2.
Að hreyfimyndatöku lokinni
Að hreyfimyndatöku lokinni, skaltu velja úr eftirfarandi
valkostum á tækjastikunni (aðeins í boði ef Sýna upptekna
hreyfim. er stillt á Kveikt í hreyfimyndastillingu):
• Til að spila hreyfimyndina strax eftir upptöku skaltu
velja Spila.
• Ef þú vilt ekki vista hreyfimyndina skaltu velja Eyða.
• Til að senda myndskeiðið sem margmiðlunarboð,
í tölvupósti eða um Bluetooth eða innrauða tengingu
eða hlaða því upp í samhæft netalbúm skaltu ýta
á hringitakkann eða velja Senda. Nánari upplýsingar
er að finna í „Skilaboð” á bls. 57, „Bluetoothtengingar” á bls. 92 og „Samnýting” á bls. 35. Ekki
er hægt að velja þennan valkost meðan á símtali
stendur. Ekki er hægt að senda hreyfimyndir sem eru
vistaðar á .mp4-sniði sem margmiðlunarboð. Einnig
er hægt að senda hreyfimynd til viðmælanda á meðan
símtal fer fram. Veldu Senda til viðmælanda.
• Til að taka upp nýja hreyfimynd skaltu velja
Ný hreyfimynd.
Til að endurnefna hreyfimyndina skaltu velja Valkostir >
Endurnefna hreyfimynd.
Myndavél
25
Stillingar fyrir hreyfimyndir
Í myndupptöku er hægt að velja á milli tveggja stillinga:
Upps. hrey.m. og aðalstillinga. Til að stilla Upps. hrey.m.,
sjá „Uppsetning—Stilling lita og lýsingar” á bls. 22.
Myndavél
Stillingar á uppsetningu breytast aftur yfir í sjálfvaldar
stillingar þegar myndavélinni er lokað, en aðalstillingarnar
eru þær sömu þar til þeim er breytt aftur. Aðalstillingunum
er breytt með því að velja Valkostir > Stillingar
og úr eftirfarandi:
Gæði hreyfimynda—Stilltu gæði hreyfimyndarinnar á Há
(mestu gæði fyrir langtímanotkun og spilun á samhæfu
sjónvarpi eða tölvu og farsíma), Venjuleg (almenn gæði
fyrir spilun gegnum farsíma) eða Samnýting (stærð
myndskeiðis er takmörkuð til að hægt sé að senda það sem
margmiðlunarboð). Ef þú vilt skoða hreyfimyndina
í samhæfu sjónvarpi eða í tölvu skaltu velja Há sem
er með CIF-upplausn (352x288) og á .mp4-sniði. Til að
senda hreyfimyndina sem margmiðlunarboð skaltu velja
Samnýting (QCIF upplausn, .3gp-skráasnið). Stærð
hreyfimynda sem tekin er upp með Samnýting takmarkast
við 300 KB (u.þ.b. 20 sekúndur að lengd) svo hægt sé
að senda þær sem margmiðlunarboð í samhæf tæki.
Stöðug hreyfimynd—Veldu Kveikt til að draga
úr myndavélartitringi við upptöku.
Hljóðupptaka—Veldu Kveikt ef þ ú vi lt b æði taka u pp h ljó ð
og mynd.
Setja inn í albúm—Veldu hvort þú vilt setja hreyfimyndina
í tiltekið albúm í Gallerí. Veldu Já til að opna lista yfir
albúmin sem standa til boða.
Sýna upptekna hreyfim.—Veldu hvort fyrsti rammi
hreyfimyndarinnar sést á skjánum eftir að upptökunni
lýkur. Veldu Spila á tækjastikunni (aðalmyndavél) eða
Valkostir > Spila (fremri myndvél) til að skoða
hreyfimyndina.
Sjálfg. heiti hreyfimynd.—Veldu sjálfgefið heiti fyrir
hreyfimyndir.
Minni í notkun—Veldu sjálfgefið geymsluminni: minni
tækisins eða minniskort (ef það er til staðar).
Upprunarlegar stillingar—Veldu Í lagi til að stillingar
myndavélarinnar verði aftur sjálfgefnar.
26
Gallerí
Til að vista og vinna með myndir, hreyfimyndir, hljóðskrár,
spilunarlista og straumspilunartengla skaltu ýta á
og velja Gallerí.
Ábending! Ef þú ert í öðru forriti og vilt sjá
myndina sem síðst var vistuð í Gallerí skaltu ýta
á skoðunartakkann á hlið tækisins. Til
að fara á aðalskjá möppunnar Myndir & hr.m.
skaltu ýta aftur á skoðunartakkann.
Skrár skoðaðar
Veldu Myndir & hr.m. ,
Lög , Hljóðinnskot ,
Straumtenglar ,
Kynningar eða Allar
skrár og ýttu á til
að opna þær.
Þú getur skoðað og opnað
möppur, sem og merkt hluti,
afritað þá og flutt í möppur.
Þú getur líka búið til albúm,
og merkt hluti, afritað og
bætt þeim við albúmin.
Sjá „Albúm” á bls. 29.
Skrár sem eru vistaðar á samhæfa minniskortinu
(ef það er í tækinu) eru táknaðar með .
Skrá er opnuð með því að ýta á . Hreyfimyndaskrár,
.ram-skrár og straumspilunartenglar eru opnaðir
og spilaðir í RealPlayer og tónlistar- og hljóðskrár
í Tónlistarspilari. Sjá „RealPlayer” á bls. 50
og „Tónlistarspilari” á bls. 38.
Til að afrita eða flytja skrár á minniskortið (ef það er
í tækinu) eða í minni tækisins skaltu velja skrá og síðan
Valkostir > Afrita og færa > Afrita á minniskort eða
Færa á minniskort eða Afrita í minni síma eða Færa
í minni síma.
Til að hlaða niður lögum eða hljóðinnskotum í Gallerí og
nota vafrann í möppunum Lög eða Hljóðinnskot skaltu
velja Sækja lög eða Sækja hljóð. Til að hlaða niður
myndum eða hreyfimyndum í möppuna Myndir & hr.m.
skaltu velja niðurhalstáknið. Vafrinn opnast og þú getur
valið bókamerki fyrir síðuna sem þú vilt hlaða niður af.
Myndir og hreyfimyndir
Myndir og hreyfimyndir sem hafa verið teknar með
myndavélinni eru geymdar í möppunni Myndir & hr.m.
í Gallerí. Einnig er hægt að taka við myndum og
Gallerí
27
myndskrám í margmiðlunarboðum, tölvupóstviðhengjum,
um Bluetooth og innrauða tengingu. Til að geta skoðað
móttekna mynd eða hreyfimynd í Gallerí eða í RealPlayer
Gallerí
þarf að vista skrána í minni tækisins eða á samhæfu
minniskorti (ef það er í tækinu).
Opnaðu möppuna Myndir & hr.m. í Gallerí. Myndirnar
og hreyfimyndirnar eru í lykkju og þeim er raðað eftir
dagsetningu. Fjöldi skránna er sýndur. Skrunaðu til hægri
eða vinstri til að skoða skrárnar, eina af annarri. Hægt er
að skoða skrár í hópi með því að skruna upp eða niður.
Þegar mynd er opnuð skaltu ýta á súmmtakkann
á hliðtækisins til að súmma hana að. Súmmhlutfallið
sést neðarlega til vinstri á skjánum. Súmmhlutfallið
er ekki vistað.
Til að snúa mynd til hægri eða vinstri skaltu velja
Valkostir > Snúa.
Mynd eða hreyfimynd er breytt með því að velja
Valkostir > Breyta. Myndvinnslan opnast.
Sjá „Hreyfimyndum breytt” á bls. 31. Sjá „Myndum breytt”
á bls. 30.
Til að búa til sérsniðna hreyfimynd skaltu velja hreyfimynd,
eða nokkur myndskeið í galleríinu og síðan Valkostir >
Breyta. Sjá „Hreyfimyndum breytt” á bls. 31.
Til að prenta út myndirnar á samhæfum prentara eða vista
þær á minniskortinu (ef það er í tækinu) til prentunar
skaltu velja Valkostir > Prenta. Sjá „Myndprentun”
á bls. 33. Einnig er hægt að merkja myndir til prentunar
síðar í prentkörfu í Gallerí. Sjá „Prentkarfa” á bls. 29.
Til að bæta mynd eða hreyfimynd við albúm í galleríinu
skaltu velja Valkostir > Albúm > Setja inn í albúm.
Sjá „Albúm” á bls. 29.
Til að nota myndina sem bakgrunnsmynd skaltu velja hana
og síðan Valkostir > Nota mynd > Nota sem veggfóður.
Mynd eða hreyfimynd er eytt með því að ýta á .
Tækjastika
Í möppunni Myndir & hr.m. er hægt að nota tækjastikuna
sem flýtivísi til að velja ýmislegt. Tækjastikan er aðeins
tiltæk þegar búið er að velja mynd eða hreyfimynd.
Skrunaðu upp og niður að ýmsum hlutum á tækjastikunni
og veldu þá með því að ýta á skruntakkann. Valkostirnir
sem eru í boði fara eftir því hver staðan er og hvort búið
sé að velja mynd eða hreyfimynd. Einnig er hægt að velja
hvort tækjastikan sé alltaf sýnileg á skjánum eða gerð
virk með því að ýta á takka.
Ef tækjastikan á að vera sýnileg á skjánum skaltu velja
Valkostir > Sýna tákn.
Ef þú vilt að tækjastikan sé aðeins sýnileg þegar þú þarft
að nota hana skaltu velja Valkostir > Fela tákn. Þú getur
gert hana virka með því að ýta á skruntakkann.
28
Veldu úr eftirfarandi:
til að spila tiltekna hreyfimynd.
til að senda tiltekna mynd eða hreyfimynd.
/ til að setja mynd í/ fjarlægja úr prentkörfu.
Sjá „Prentkarfa” á bls. 29.
til að skoða myndirnar í prentkörfunni.
til að hefja skyggnusýningu í tilteknu albúmi.
til að eyða tiltekinni mynd eða hreyfimynd.
til að prenta mynd sem verið er skoða.
Valkostirnir sem eru í boði eru mismunandi eftir
því hvaða skjá þú notar.
Minni losað
Til að minnka upplausn og skráarstærð mynda sem vistaðar
eru í Gallerí og losa þannig minni fyrir nýjar myndir skaltu
velja Valkostir > Smækka. En fyrst skal afrita myndirnar
yfir á samhæfa tölvu eða annan stað. Þegar valkosturinn
Smækka er valinn er mynd smækkuð niður í 640x480.
Til að auka minnið þegar þú ert búinn að afrita hluti
á annan stað eða annað tæki skaltu velja skrá og
Valkostir > Laust minni. Hægt er að skoða lista yfir
afritaðar skrár. Til að fjarlægja afritaða skrá úr Gallerí
skaltu velja Valkostir > Eyða.
Prentkarfa
Hægt er að merkja myndir sem fara í prentkörfuna
og prenta þær síðar í samhæfum prentara eða hjá
prentþjónustu, ef slík þjónusta er til staðar. Sjá
„Myndprentun” á bls. 33. Merktu myndirnar eru
auðkenndar með í möppunni Myndir & hr.m.
og albúmum.
Ef merkja á mynd til prentunar síðar skaltu velja hana
og síðan Setja í prentkörfu á tækjastikunni.
Til að skoða myndirnar í prentkörfunni skaltu velja Skoða
Prentkörfu á tækjastikunni eða velja prentkörfutáknið
úr möppunni Myndir & hr.m. (aðeins hægt ef búið er að
setja myndir í prentkörfuna.)
Ef fjarlægja á mynd úr prentkörfunni skal velja hana
í möppunni Myndir & hr.m. eða í albúmi og velja síðan
Fjarlægja úr prentun á tækjastikunni.
Albúm
Með albúmum er hægt að raða myndum og hreyfimyndum
eftir hentugleika. Til að skoða lista yfir albúm í möppunni
Til að bæta mynd eða hreyfimynd við albúm í gallerí skaltu
skruna að viðkomandi mynd eða hreyfimynd og velja
Gallerí
29
Valkostir > Albúm > Setja inn í albúm. Þá opnast listi yfir
albúm. Veldu albúmið sem þú vilt setja myndina eða
hreyfimyndina í og ýttu á .
Gallerí
Ýttu á til að fjarlægja skrá úr albúmi. Skránni er ekki
eytt úr möppunni Myndir & hr.m. í Gallerí.
Til að búa til nýtt albúm á albúmaskjánum skaltu
velja Valkostir > Nýtt albúm.
Myndum breytt
Til að breyta myndum eftir að þær hafa verið teknar,
eða þeim myndum sem eru þegar vistaðar í Gallerí,
skaltu velja Valkostir > Breyta.
Veldu Valkostir > Nota áhrif til að opna töflu þar sem
hægt er að velja ýmsar breytingar sem auðkenndar eru
með litlum táknum. Hægt er að klippa myndina og snúa
henni, laga birtustigið, litinn, birtuskilin og upplausnina, og
bæta sjónrænum áhrifum, texta, skreytingum eða ramma
við myndina.
Mynd klippt
Mynd er klippt með því að velja Valkostir > Nota áhrif >
Skurður. Mynd er klippt handvirkt með því að velja
Handvirkt eða hlutfall af listanum. Ef þú velur Handvirkt
birtist kross efst í vinstra horni myndarinnar. Færðu
skruntakkann til að velja svæðið sem á að klippa og veldu
svo Festa. Annar kross birtist neðst í hægra horninu.
Veldu aftur svæðið sem á að klippa. Til að stilla aftur fyrsta
svæðið skaltu velja Til baka. Þau svæði sem eru valin
mynda ferhyrning utan um þá mynd sem kemur út
úr klippingunni.
Ef þú velur hlutfall skaltu velja efra hornið til vinstri þar sem
á að klippa. Notaðu skruntakkann til að stilla auðkennda
svæðið. Hægt er að frysta valið svæði með því að ýta á .
Hægt er að færa til svæðið með skruntakkanum. Ýttu á til
að velja svæðið sem á að klippa.
Rauður litur fjarlægður
Hægt er að minnka rauðan lit í augum á myndum með því
að velja Valkostir > Nota áhrif > Laga rauð augu. Færðu
krossinn að auganu og ýttu á . Lykkja birtist á skjánum.
Færðu skruntakkann til að breyta stærð lykkjunnar svo hún
passi við augað. Ýttu á til að minnka rauða litinn.
Gagnlegir flýtivísar
Flýtivísar í myndvinnslu:
• Ýttu á til að skoða mynd á öllum skjánum.
Til að fara aftur í venjulegan skjá er ýtt aftur á .
• Ýttu á eða til að snúa mynd réttsælis eða
rangsælis.
• Ýttu á eða til að stækka eða minnka myndina.
• Flett er um súmmaða mynd með því að skruna upp,
niður, til vinstri eða hægri.
30
Loading...
+ 108 hidden pages
You need points to download manuals.
1 point = 1 manual.
You can buy points or you can get point for every manual you upload.