LEYFISYFIRLÝSING
Við, NOKIA CORPORATION lýsum því yfir og ábyrgjumst að framleiðsluvaran RM-
159 er í samræmi við helstu kröfur og önnur viðeigandi ákvæði tilskipunar 1999/
5/EC. Eintak af yfirlýsingu um samkvæmni er að finna á slóðinni http://
www.nokia.com/phones/declaration_of_conformity/.
Nokia, Nokia Connecting People, Nseries, N80, Pop-Port og Visual Radio eru
vörumerki eða skrásett vörumerki Nokia Corporation. Nokia tune er vörumerki
Nokia Corporation. Önnur vöruheiti eða heiti fyrirtækja sem nefnd eru hér geta
verið vörumerki eða vöruheiti viðkomandi eigenda.
Hvers konar afritun, yfirfærsla, dreifing eða varðveisla á hluta skjals þessa eða
skjalsins alls er óheimil nema að fyrir fram fengnu skriflegu samþykki Nokia.
This product includes software licensed from Symbian
Software Ltd (c) 1998-2007. Symbian and Symbian OS are
trademarks of Symbian Ltd.
Java and all Java-based marks are trademarks or registered
trademarks of Sun Microsystems, Inc.
US Patent No 5818437 and other pending patents. T9 text input software
Copyright (C) 1997-2007. Tegic Communications, Inc. All rights reserved.
This product is licensed under the MPEG-4 Visual Patent Portfolio License (i) for
personal and noncommercial use in connection with information which has been
encoded in compliance with the MPEG-4 Visual Standard by a consumer engaged
in a personal and noncommercial activity and (ii) for use in connection with
MPEG-4 video provided by a licensed video provider. No license is granted or shall
be implied for any other use. Additional information, including that related to
promotional, internal, and commercial uses, may be obtained from MPEG LA, LLC.
See <http://www.mpegla.com>.
Þessi vara er háð leyfinu MPEG-4 Visual Patent Portfolio License (i) til
einkanotkunar og án viðskiptatilgangs í tengslum við upplýsingar sem hafa verið
kótaðar samkvæmt staðlinum MPEG-4Visual Standard af neytanda í persónulegum
tilgangi og án viðskiptatilgangs og (ii) til notkunar í tengslum við
MPEG-4hreyfimynd sem fengin er hjá hreyfimyndaveitu með leyfi. Ekkert leyfi er
veitt eða undirskilið til neinnar annarrar notkunar. Viðbótarupplýsingar, svo sem
notkun í auglýsingum, innan fyrirtækis og í viðskiptum, má fá hjá MPEG LA, LLC. Sjá
<http://www.mpegla.com>.
Nokia framfylgir stefnu sem felur í sér stöðuga þróun. Nokia áskilur sér rétt til að
gera breytingar og úrbætur á hvers konar vöru sem getið er í þessu skjali án
undangenginnar tilkynningar.
AÐ ÞVÍ MARKI SEM VIÐEIGANDI LÖG LEYFA SKAL NOKIA, STARFSMENN ÞESS EÐA
SAMSTARFSAÐILAR UNDIR ENGUM KRINGUM STÆÐUM BERA SKAÐABÓTAÁBYRGÐ
VEGNA TAPS Á GÖGNUM, TEKJUTJÓNI EÐA Á NEINU SÉRSTÖKU,
TILVILJANAKENNDU, AFLEIDDU EÐA ÓBEINU TJÓNI HVERNIG SEM ÞAÐ VILL TIL.
INNTAK ÞESSA SKJALS ER AFHENT „EINS OG ÞAÐ KEMUR FYRIR“. UMFRAM ÞAÐ,
ER LÖG ÁSKILJA, ER ENGIN ÁBYRGÐ VEITT, HVORKI BERUM ORÐUM EÐA
UNDIRSKILIN, Á NÁKVÆMNI, ÁREIÐANLEIKA EÐA INNTAKI ÞESSA SKJALS, Á ÞAÐ
MEÐAL ANNARS, EN EKKI EINGÖNGU, VIÐ UM SÖLUHÆFNI EÐA ÁBYRGÐ Á AÐ
VARAN HENTL TILTEKINNI NOTKUN. NOKIA ÁSKILUR SÉR RÉTT TIL AÐ ENDURSKOÐA
SKJALIÐ EÐA DRAGA ÞAÐ TILBAKA HVENÆR SEM ER ÁN UNDANGENGINNAR
TILKYNNINGAR.
Birgðir á tilteknum vörum og forritum og þjónustu fyrir þessar vörur getur verið
breytilegt eftir svæðum. Kannaðu það, ásamt tungumálavalkostum, hjá Nokia
söluaðila þínum.
Útflutningstakmarkanir
Tæki þetta kann að innihalda vörur, tækni eða hugbúnað sem lýtur
útflutningslögum og reglugerðum í Bandaríkjunum og öðrum löndum. Breytingar á
flutningsleiðum sem ekki samræmast lögum eru óheimilar.
YFIRLÝSING FCC/INDUSTRY CANADA
Tækið þitt getur valdið truflunum á sjónvarpi eða útvarpi (til dæmis þegar sími er
notaður nálægt viðtökutæki). FCC eða Industry Canada gætu krafist þess að þú
hættir að nota símann ef ekki er hægt að koma í veg fyrir slíkar truflanir. Ef þú þarft
aðstoð skaltu hafa sambandi við þjónustuaðila í nágrenni við þig. Þetta tæki er í
samræmi við 15. hluta af reglum FCC. Notkun þess er háð eftirfarandi tveimur
skilyrðum: (1) Tækið má ekki valda skaðlegum truflunum; og (2) Tækið verður að
taka við öllum truflunum sem það verður fyrir, þ.m.t. truflunum sem geta valdið
óæskilegri virkni þess. Sérhverjar breytingar sem Nokia hefur ekki samþykkt geta
ógilt heimild notandans til notkunar búnaðarins.
Þau forrit frá þriðju aðilum sem finna má í tækinu kunna að hafa verið búin til og
vera í eigu aðila eða fyrirtækja sem ekki tengjast Nokia. Nokia á ekki
höfundarréttindi eða hugverkaréttindi að þessum forritum þriðju aðila. Nokia tekur
því hvorki ábyrgð á aðstoð við notendur, virkni þessara forrita eða þeim
upplýsingum sem fylgja forritunum eða efninu. Nokia veitir enga ábyrgð á þessum
forritum þriðju aðila.
MEÐ NOTKUN SINNI VIÐURKENNIR NOTANDINN AÐ FORRITIN ERU AFHENT EINS
OG ÞAU KOMA FYRIR ÁN ÞESS AÐ NOKKUR ÁBYRGÐ SÉ VEITT, BERUM ORÐUM EÐA
ÓBEINT, AÐ ÞVÍ MARKI SEM HEIMILT ER Í VIÐKOMANDI LÖGUM. NOTANDINN
VIÐURKENNIR JAFNFRAMT AÐ HVORKI NOKIA NÉ TENGD FÉLÖG VEITA NOKKURS
KONAR FYRIRSVAR EÐA ÁBYRGÐ, BERUM ORÐUM EÐA ÓBEINT, ÞAR Á MEÐAL EN
EKKI EINGÖNGU ÁBYRGÐ Á EIGNARRÉTTI, SÖLUHÆFNI EÐA HÆFNI TIL
TILTEKINNAR NOTKUNAR, EÐA ÞVÍ AÐ FORRITIN BRJÓTI EKKI GEGN EINKARÉTTI,
HÖFUNDARRÉTTI, VÖRUMERKJARÉTTI EÐA ÖÐRUM RÉTTINDUM ÞRIÐJA AÐILA.
Lesið þessar einföldu leiðbeiningar. Sé þeim ekki fylgt getur
það verið hættulegt eða varðað við lög. Lesa skal alla
notendahandbókina til að fá nánari upplýsingar.
ÖRYGGI ÞEGAR KVEIKT ER Á TÆKINU Ekki
má kveikja á tækinu þar sem notkun þráðlausra
síma er bönnuð eða þar sem hún kann að valda
truflunum eða hættu.
UMFERÐARÖRYGGI GENGUR FYRIR Fara skal
að öllum staðbundnum lögum. Ætíð skal hafa
hendur frjálsar til að stýra ökutækinu við
akstur. Umferðaröryggi skal ganga fyrir í akstri.
TRUFLUN Öll þráðlaus tæki geta verið næm
fyrir truflunum, sem getur haft áhrif á virkni
þeirra.
SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM Á
SJÚKRASTOFNUNUM Virða skal allar
takmarkanir. Slökkva skal á tækinu nálægt
lækningabúnaði.
HAFA SKAL SLÖKKT Á SÍMANUM Í
FLUGVÉLUM Virða skal allar takmarkanir.
Þráðlaus tæki geta valdið truflunum í
flugvélum.
SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM ÁÐUR EN
ELDSNEYTI ER TEKIÐ Ekki nota tækið nærri
eldsneytisdælu. Notist ekki í námunda við
eldsneyti eða sterk efni.
SLÖKKVA SKAL Á SÍMANUM ÞAR SEM
VERIÐ ER AÐ SPRENGJA Virða skal allar
takmarkanir. Ekki nota tækið þar sem verið er
að sprengja.
NOTIST AF SKYNSEMI Notist aðeins í
hefðbundinni stöðu eins og lýst er í
leiðbeiningum með vörunni. Forðast skal
óþarfa snertingu við loftnetið.
VIÐURKENND ÞJÓNUSTA Aðeins viðurkennt
starfsfólk má setja upp eða gera við þessa
vöru.
AUKAHLUTIR OG RAFHLÖÐUR Aðeins má
nota samþykkta aukahluti og rafhlöður. Ekki
má tengja saman ósamhæf tæki.
VATNSHELDNI Tækið er ekki vatnshelt. Halda
skal því þurru.
7
ÖRYGGISAFRIT Muna skal að taka
öryggisafrit eða halda skrá yfir allar
mikilvægar upplýsingar sem geymdar eru í
tækinu.
TENGING VIÐ ÖNNUR TÆKI Þegar tækið er
tengt öðru tæki skal lesa notendahandbók
með því vandlega, einkum upplýsingar um
öryggi. Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.
NEYÐARSÍMTÖL Tryggja skal að kveikt sé á
símaaðgerðum tækisins og þær séu virkar. Ýta
skal á endatakkann eins oft og þarf til að
hreinsa skjáinn og fara aftur í biðstöðu. Sláðu
inn neyðarnúmerið og ýttu á hringi-takkann.
Gefa skal upp staðarákvörðun. Ekki má slíta
símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.
Um tækið
Þráðlausa tækið sem lýst er í handbókinni er samþykkt til
notkunar í EGSM 850/900/1800/1900 og UMTS 2100
símkerfunum. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar
um símkerfi.
Við notkun þessa tækis skal hlíta öllum lögum og virða
staðbundnar venjur, einkalíf og lögmæt réttindi annarra,
þ.m.t. höfundarrétt.
Höfundarréttarvarnir geta komið í veg fyrir að hægt sé að
afrita, breyta, flytja eða framsenda myndir, tónlist (þ.m.t.
hringitóna) og annað efni.
Tækið styður internettengingar og aðrar tengiaðferðir. Líkt
og með tölvur geta vírusar, skaðleg skilaboð og forrit,
ásamt öðru skaðlegu efni haft áhrif á tækið. Gæta skal
varúðar og aðeins opna skilaboð, samþykkja tengibeiðnir,
hlaða niður efni og samþykkja uppsetningar frá traustum
aðilum. Til að auka öryggi tækisins ættir þú að hugleiða að
setja upp vírusvarnarbúnað með uppfærsluþjónustu og
nota eldvegg.
Viðvörun: Við notkun allra aðgerða í þessu tæki,
annarra en vekjara, þarf að vera kveikt á tækinu. Ekki
skal kveikja á tækinu þegar notkun þráðlausra tækja
getur valdið truflun eða hættu.
Skrifstofuforritið styður helstu valkosti Microsoft Word,
PowerPoint og Excel (Microsoft Office 2000, XP og 2003).
Ekki er hægt að skoða eða breyta öllum skráargerðum.
Við suma notkun, t.d. þegar myndsímtal er í gangi, kann
tækið að hitna. Þetta er eðlilegt í flestum tilfellum. Ef þú
telur tækið ekki vinna rétt skaltu fara með það til næsta
viðurkennda þjónustuaðila.
Tækið getur innihaldið bókamerki og tengla fyrir vefsíður
þriðju aðila. Einnig er hægt að skoða vefsíður annarra
þriðju aðila með tækinu. Vefsíður þriðju aðila tengjast ekki
Nokia og Nokia hvetur hvorki til að þær séu skoðaðar né
8
tekur ábyrgð á þeim. Ef þú kýst að opna þessar síður ættir
þú að gera viðeigandi varúðarráðstafanir varðandi öryggi
þeirra og efni.
Sérþjónusta
Til að hægt sé að nota símann verður áskrift að
þjónustuveitu fyrir þráðlausa síma að vera fyrir hendi.
Margir af valkostum símans flokkast undir sérþjónustu.
Ekki er hægt að nota þessa valkosti í öllum símkerfum. Í
öðrum símkerfum kann jafnframt að vera farið fram á
sérstaka skráningu fyrir þessa þjónustu. Leiðbeiningar
ásamt upplýsingum um gjald fyrir þjónustuna fást hjá
þjónustuveitu. Sum símkerfi kunna að hafa takmarkanir
sem hafa áhrif á hvernig hægt er að nota sérþjónustu. Sum
símkerfi styðja t.d. ekki alla séríslenska bókstafi og
þjónustu.
Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að tilteknar
aðgerðir væru hafðar óvirkar eða ekki gerðar virkar í
tækinu. Ef svo er birtast þær ekki í valmynd tækisins. Tækið
kann einnig að hafa verið sérstillt, t.d. kann heitum, röð og
táknum valmynda að hafa verið breytt. Þjónustuveitan
gefur nánari upplýsingar.
Þetta tæki styður WAP 2.0 samskiptareglur (HTTP og SSL)
sem keyra á TCP/IP samskiptareglum. Fyrir sumar aðgerðir
í tækinu, eins og MMS, netskoðun, tölvupóst og niðurhal
efnis um vafra eða með MMS, þarf símkerfisstuðning við
viðkomandi tækni.
Aukahlutir, rafhlöður
og hleðslutæki
Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður
en rafhlaðan er fjarlægð.
Athuga ber tegundarnúmer hleðslutækja áður en þau eru
notuð með þessu tæki. Þetta tæki er ætlað til notkunar
hlaðið raforku frá DC-4, AC-3, eða AC-4 hleðslutækjum og
frá AC-1, ACP-8, ACP-12, LCH-8, LCH-9 og LCH-12
hleðslutæki þegar það er notað með CA-44 millistykki.
Þetta tæki er ætlað til notkunar með BL-5B rafhlöðu.
Viðvörun: Aðeins skal nota rafhlöður, hleðslutæki
og aukahluti sem Nokia hefur samþykkt til nota með
þessari tilteknu tegund. Ef notaðar eru aðrar gerðir
gæti öll ábyrgð og samþykki fallið niður og slíkri
notkun getur fylgt hætta.
Seljandi símans veitir upplýsingar um fáanlega aukahluti
sem samþykktir eru til notkunar. Þegar aukahlutur er
tekinn úr sambandi skal taka í klóna, ekki leiðsluna.
9
Nokia N80 tækið þitt
Nokia N80 tækið þitt
10
Gerð: Nokia N80-1
Hér eftir kallað Nokia N80.
Hugbúnaðaruppfærslur
Nokia kann að framleiða hugbúnaðaruppfærslur með
nýjum möguleikum, bættum aðgerðum eða aukinni virkni.
Þú getur nálgast þessar uppfærslur með forritinu Nokia
Software Updater PC. Til að uppfæra hugbúnað tækisins
þarftu að hafa Nokia Software Updater forritið og
samhæfa tölvu með Microsoft Windows 2000 eða XP
stýrikerfi, háhraðainternettengingu og samhæfa
gagnasnúru til að tengja tækið við tölvuna.
Hægt er að hlaða niður Nokia Software Updater forritinu,
og fá upplýsingar um það, á www.nokia.com/
softwareupdate eða vefsíðu Nokia í þínu landi.
Ef símkerfið styður hugbúnaðaruppfærslur með
ljósvakaboðum kannt þú einnig að geta beðið um
uppfærslur úr tækinu. Sjá “Hugbúnaðaruppfærslur” á
bls. 97.
Stillingar
Í Nokia N80 tækinu eru stillingar fyrir MMS, GPRS,
straumspilun og internetþjónustu farsíma yfirleitt valdar
sjálfkrafa, samkvæmt upplýsingum frá þjónustuveitunni
eða símafyrirtækinu. Verið getur að þjónustuveitan hafi
þegar sett upp stillingar í tækinu, en einnig er hægt að fá
þær sendar í sérstökum skilaboðum.
Þjónusta Nokia og upplýsingar
Á www.nokia.com/support eða staðbundnu vefsetri Nokia
er hægt að finna nýjustu útgáfuna af þessari handbók,
viðbótarupplýsingar, efni til niðurhals og þjónustu sem
tengist Nokia-vörunni.
Á vefsíðunni má fá upplýsingar um vörur og þjónustu
Nokia. Upplýsingar um þjónustustöðvar fyrirtækisins er að
finna á www.nokia.com/customerservice.
Upplýsingar um viðhaldsþjónustu í mismunandi löndum er
að finna á www.nokia.com/repair.
Efni flutt úr öðru tæki
Hægt er að flytja efni, eins og tengiliði, úr samhæfu Nokia
tæki yfir í Nokia N80 með Bluetooth eða innrauðu tengi.
Það hvaða efni er hægt að flytja fer eftir gerð símans. Ef
hitt tækið styður samstillingu er einnig hægt að samstilla
gögn á milli hins tækisins og Nokia N80.
Þú getur notað SIM-kortið þitt í hinu tækinu Ótengda
sniðið er sjálfkrafa valið þegar kveikt er á Nokia N80
tækinu án þess að SIM-kort sé í því.
Flutningur efnis
1 Til að nota forritið í fyrsta skipti er stutt á , og valið
Verkfæri > Flutningur. Ef forritið hefur verið notað
áður og þú vilt hefja nýjan flutning velurðu Flytja
gögn.
Veldu Halda áfram í upplýsingaglugganum.
2 Veldu hvort þú vilt flytja gögnin um Bluetooth eða
innrautt tengi. Bæði tækin verða að styðja gerðina.
3 Ef þú velur Bluetooth:
Veldu Halda áfram til að láta Nokia N80 tækið leita að
Bluetooth tækjum. Veldu tæki af listanum. Nokia N80
tækið biður þig að slá inn kóða. Sláðu inn kóðann (1-16
tölustafir að lengd) og veldu Í lagi. Sláðu inn sama kóða
í hitt tækið og veldu Í lagi. Þá eru tækin pöruð. Sjá
‘Pörun tækja’ á bls. 92.
Tækið kann að senda Flutningur forritið í suma síma í
skilaboðum. Flutningur er sett upp í hinu tækinu með
því að opna skilaboðin og fylgja leiðbeiningunum á
skjánum.
Ef þú hefur valið innrauða tengingu skaltu tengja
tækin saman. Sjá ‘Innrauð tenging’ á bls. 93.
4 Í Nokia N80 tækinu skaltu velja efnið sem þú vilt afrita
úr hinu tækinu.
Efni er afritað úr minni hins tækisins á samsvarandi
staðsetningu í Nokia N80. Afritunartíminn veltur á því
gagnamagni sem er afritað. Hægt er að hætta við
afritunina og halda henni áfram síðar.
Ef hitt tækið styður samstillingu er hægt að halda
gögnunum í nýjustu stöðu í báðum tækjum. Til að hefja
samstillingu við samhæft Nokia tæki velurðu Símar, flettir
að tækinu og velur Valkostir > Samstilla. Fylgdu
fyrirmælunum á skjánum.
Til þess að skoða skrá yfir fyrri gagnaflutning velurðu
Flutningsskrá.
Nokia N80 tækið þitt
11
Mikilvægir vísar
Verið er að nota tækið á GSM-símkerfi.
Verið er að nota tækið á UMTS-símkerfi
(sérþjónusta).
Mappan Innhólf í Skilaboð inniheldur ein eða fleiri
ólesin skilaboð.
Tölvupóstur bíður þín í ytra pósthólfinu.
Nokia N80 tækið þitt
Það eru ósend skilaboð í möppunni Úthólf.
Einhverjum símtölum hefur ekki verið svarað.
Birtist ef Gerð hringingar er stillt á Án hljóðs.
Takkaborðið er læst.
Vekjaraklukkan mun hringja.
Símalína 2 er í notkun (sérþjónusta).
Öll móttekin símtöl eru flutt í annað símanúmer.
Ef þú hefur tvær símalínur (sérþjónusta) er vísirinn fyrir
fyrri línuna og fyrir þá síðari .
Samhæft höfuðtól er tengt við tækið.
Tenging við samhæft Bluetooth-höfuðtól hefur
rofnað.
Samhæfur hljóðmöskvi er tengdur við tækið.
Samhæfur Textasími er tengdur við tækið.
Gagnasímtal er virkt.
Hægt er að koma á GPRS- eða EDGE-
pakkagagnatengingu.
GPRS- eða EDGE-pakkagagnatenging er virk.
GPRS- eða EDGE-pakkagagnatenging er í bið.
Hægt er að koma á UMTS-pakkagagnatengingu.
UMTS-pakkagagnatenging er virk.
UMTS-pakkagagnatenging er í bið.
Hægt er að tengjast við þráðlaust staðarnet (eftir að
þú hefur stillt tækið þannig að það leiti að þráðlausum
staðarnetum). Sjá ‘Þráðlaust staðarnet’ á bls. 109.
Þráðlaus staðarnetstenging er virk á kerfi sem notar
dulkóðun.
Þráðlaus staðarnetstenging er virk á kerfi sem notar
ekki dulkóðun.
Kveikt er á Bluetooth.
Verið er að flytja gögn um Bluetooth.
USB-tenging er virk.
Innrauð tenging er virk. Ef vísirinn blikkar er tækið
þitt að reyna ná sambandi við hitt tækið, eða þá að
tengingin hefur rofnað.
12
Takkalás (takkavari)
Tökkunum er læst með því að loka tækinu og velja Já þegar
textinn Læsa tökkum? birtist. Þegar tækið er lokað er
tökkunum læst með því að ýta á rofann og velja Læsa
tökkum.
Takkarnir eru opnaðir með því að opna tækið, eða ýta á
(Úr lás) og velja Í lagi þegar textinn Takkar úr lás?
birtist.
Þegar takkalásinn er virkur getur samt verið hægt að
hringja í opinbera neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.
Stillingar hljóðstyrks og hátalara
Þegar símtal er í gangi eða
verið er að hlusta á eitthvað
er hljóðstyrkurinn stilltur
með því að ýta á eða .
Innbyggði hátalarinn gerir þér kleift að tala í tækið og
hlusta á það sem viðmælandinn segir úr lítilli fjarlægð án
þess að þurfa að halda tækinu við eyrað.
Viðvörun: Ekki skal halda tækinu nálægt eyranu
þegar hátalarinn er notaður því hljóðstyrkur getur verið
mjög mikill.
Þegar verið er að tala í símann er kveikt á hátalaranum
með því að velja Valkostir > Virkja hátalara.
Slökkt er á hátalaranum með því að velja Valkostir >
Virkja símtól.
Klukka
Ýttu á og veldu Klukka. Vekjaraklukkan er stillt með því
að velja Valkostir > Stilla vekjara. vísirinn sést á
skjánum þegar vekjaraklukkan hefur verið stillt.
Slökkt er á vekjaraklukkunni með því að velja Stöðva.
Einnig er hægt að slökkva á tóninum í 5 mínútur með því
að velja Blunda.
Ef vekjaraklukkan hefur verið stillt og tíminn rennur upp á
meðan slökkt er á tækinu kveikir það á sér og hringir. Ef
valið er Stöðva er spurt hvort opna eigi tækið fyrir
símtölum. Veldu Nei til að slökkva á tækinu eða Já til að
hringja og svara símtölum. Ekki velja Já þegar notkun
þráðlausra síma getur valdið truflun eða hættu.
Slökkt er á vekjaraklukkunni (áður en hún hringir) með því
að velja Klukka > Valkostir > Slökkva á vekjara.
Nokia N80 tækið þitt
13
Stillingar klukku
Stillingum klukkunnar er breytt í Klukka > Valkostir >
Stillingar.
Veldu Tími eða Dagsetning til að breyta tímanum eða
dagsetningunni.
Veldu Útlit klukku > Með vísum eða Stafræn til að
breyta gerð (útliti) klukkunnar sem sést í biðstöðu.
Veldu Sjálfv. tímauppfærsla > Sjálfvirk uppfærsla til að
Nokia N80 tækið þitt
láta farsímakerfið uppfæra tímann, dagsetninguna og
tímabelti tækisins (sérþjónusta).
Tónn vekjaraklukkunnar er valinn í Tónn viðvörunar.
Heimsklukka
Heimsklukkan er opnuð með því að opna Klukka og ýta á
. Í skjá heimsklukkunnar er hægt að sjá tímann í hinum
ýmsu borgum.
Borgum er bætt á listann með því að velja Valkostir >
Bæta við borg. Það er að hámarki hægt að bæta
15 borgum við listann.
Til að tilgreina borgina sem þú ert staddur/stödd í skaltu
velja borg og síðan Valkostir > Núverandi borg mín.
Borgin birtist í aðalskjá klukkunnar og tíma tækisins er
breytt til samræmis við hana. Gakktu úr skugga um að
tíminn sé réttur og að hann passi við tímabeltið.
Höfuðtól
Hægt er að tengja
samhæft höfuðtól við
TM
Pop-Port
höfuðtólið er notað getur
það skert heyrn á
umhverfishljóðum. Ekki
skal nota höfuðtólið þar sem hætta getur stafað af.
tengi tækisins.
Viðvörun: Þegar
Úlnliðsband
Ólin er þrædd líkt og sýnt
er og svo er hert að.
Þráðlaust staðarnet
Tækið getur tengst við þráðlaus staðarnet (þráðlaus LAN).
Á þráðlausu staðarneti er hægt að tengjast við internetið
og önnur tæki sem eru tengd við kerfið. Nánari upplýsingar
um notkun tækisins á heimakerfi er að finna í ‘Heimakerfi’
á bls. 16.
14
Í sumum löndum, eins og Frakklandi, eru takmarkanir á
notkun þráðlausra neta. Fáðu upplýsingar um það hjá
yfirvöldum á staðnum.
Aðgerðir sem byggja á þráðlausu staðarneti eða leyfa
slíkum aðgerðum að keyra í bakgrunni á meðan aðrar
aðgerðir eru notaðar krefjast aukins rafmagns og draga úr
endingu rafhlöðunnar.
Tækið styður eftirfarandi fyrir þráðlaust staðarnet:
• IEEE 802.11b/g-staðal
• 2,4 GHz tíðni
• WEP-dulkóðunarstaðalinn (Wired equivalent privacy)
með allt að 128 bita lyklum, Wi-Fi staðalinn (WPA) og
802.1x. Aðeins er hægt að nota þessa valkosti ef
símkerfið styður þá.
Hægt er að búa til netaðgangsstaði (IAP) fyrir þráðlaust
staðarnet og nota hann fyrir forrit sem þurfa að tengjast
við internetið.
Netaðgangsstaður búinn til
1 Ýttu á og veldu Tenging > Stj. teng. > Staðarnet
í boði.
2 Tækið leitar að þráðlausum staðarnetum á svæðinu.
Flettu að netkerfinu sem þú vilt búa til netaðgangsstað
fyrir og veldu Valkostir > Tilgreina aðgangsst..
3 Tækið býr til netaðgangsstað með sjálfgefnum
stillingum. Upplýsingar um hvernig á að skoða eða
breyta þessum stillingum er að finna í ‘Aðgangsstaðir’
á bls. 107.
Þegar forrit biður þig að velja aðgangsstað skaltu velja
þann aðgangsstað sem var búinn til, eða Leita að
staðarnet. til að leita að þráðlausum staðarnetum á
svæðinu.
Þráðlausri staðarnettengingu er komið á þegar þú býrð til
gagnatengingu með því að nota netaðgangsstað.
Þráðlausa staðarnettengin er rofin þegar þú lokar
gagnatengingunni. Upplýsingar um hvernig á að loka
tengingunni er að finna í ‘Stjórnandi tenginga’ á bls. 95.
Hægt er að nota þráðlaust staðarnet meðan á símtali
stendur eða pakkagagnatenging er virk. Aðeins er hægt að
tengjast við einn aðgangsstað fyrir þráðlaust staðarnet í
einu, en nokkur forrit geta hins vegar notað sömu
tenginguna.
Hægt er að koma á þráðlausri staðarnetstengingu þrátt
fyrir að Ótengdur sniðið hafi verið valið. Mundu að fara
að öllum viðeigandi öryggisreglum þegar þú kemur á og
notar þráðlausa staðarnetstengingu.
Hægt er að velja á stillinga fyrir þráðlaus staðarnet:
grunngerð eða sértækt (ad hoc).
Nokia N80 tækið þitt
15
Með grunnnets-stillingu er tækið tengt við aðgangsstað
fyrir þráðlaust staðarnet. Hægt er að ná sambandi við
samhæf tæki eða staðarnet í gegnum aðgangsstaðinn.
Með sértækri stillingu geta samhæf tæki sent og tekið við
gögnum beint frá hvort öðru. Upplýsingar um hvernig á að
búa til netaðgangsstað fyrir sértæki netkerfi er að finna í
‘Aðgangsstaðir’ á bls. 107.
Ábending! Til að sjá MAC-vistfangið sem auðkennir
tækið þitt skaltu slá inn *#62209526# í biðstöðu.
Nokia N80 tækið þitt
Heimakerfi
Tækið styður UPnP (Universal Plug and Play). Með því að
nota aðgangsstaðartæki eða beini fyrir þráðlaust
staðarnet geturðu búið til heimakerfi og tengt samhæf
UPnP tæki við það, líkt og Nokia N80, samhæfa tölvu,
samhæfan prentara, samhæft hljóðkerfi, samhæft
sjónvarp eða hljóðkerfi/sjónvarp sem er búið samhæfum
móttakara fyrir þráðlaus kerfi.
Eftir að heimakerfið hefur verið stillt er hægt að afrita,
skoða eða spila samhæfar skrár og prenta út myndir í
Gallerí á öðrum tækjum sem eru tengd við það. Þannig er
t.d. hægt að skoða myndir sem eru vistaðar í Nokia N80
tækinu í samhæfu sjónvarpi. Sjá ‘Heimanet’ bls. 36 og
‘Myndprentun’ bls. 43.
Til að setja upp heimakerfi á þráðlausu staðarneti skaltu
fyrst búa til og stilla netaðgangsstaðinn fyrir þráðlausa
staðarnetið, og svo stilla tækin. Veldu stillingarnar í
Heimanet í Nokia N80 tækinu þínu. Sjá ‘Heimanet’ á bls.
36. Til að hægt sé að tengja samhæfa tölvu við heimakerfi
þarf fyrst að setja upp Home Media Server hugbúnaðinn á
geisladiskinum sem fylgir með Nokia N80 tækinu.
Hægt er að nota heimkerfið þegar allar nauðsynlegar
stillingar hafa verið valdar í öllum tækjunum sem eru tengd
við það. Sjá ‘Skrár skoðaðar’ á bls. 37.
Heimkerfið notar öryggisstillingar þráðlausu
staðarnetstengingarinnar. Notaðu heimkerfi á þráðlausu
staðarneti (grunnkerfi) með aðgangsstaðatæki eða beini
og kveikt á dulkóðun.
Mikilvægt: Alltaf skal virkja eina af tiltækum
dulkóðunaraðferðum til að auka öryggi þráðlausu
staðarnetstengingarinnar. Notkun dulkóðunar dregur úr
hættunni á því að einhver fái aðgang að gögnunum þínum
án heimildar.
Upplýsingar um hvernig á að skoða eða breyta
stillingunum fyrir netaðgangsstað í Nokia N80 tækinu er
að finna í ‘Aðgangsstaðir’ á bls. 107.
16
Mikilvægar upplýsingar um öryggi
Þegar þú stillir þráðlaust staðarnet í heimahúsi skaltu
kveikja á dulkóðuninni, fyrst í aðgangsstaðatækinu eða
beininum og svo í hinum tækjunum sem eru tengd við það.
Nánari upplýsingar er að finna í fylgiskjölum tækjanna.
Halda skal öllum númerum leyndum og geyma þau á
öruggum stað fjarri tækjunum.
Upplýsingar um hvernig á að skoða eða breyta
stillingunum fyrir netaðgangsstað í Nokia N80 tækinu er
að finna í ‘Aðgangsstaðir’ á bls. 107.
Ef þú notar sértæka stillingu til að búa til heimakerfi með
samhæfu tæki skaltu nota eina af dulkóðunaraðferðunum
í Öryggi þráðl. staðarnets þegar þú stillir
netaðgangsstaðinn. Þetta minnkar líkurnar á að
óviðkomandi komist inn á kerfið.
Tækið lætur þig vita ef annað tæki reynir að tengjast við
það og heimakerfið. Ekki samþykkja beiðnir um tengingu
frá tækjum sem þú þekkir ekki.
Ef þú notar þráðlaust staðarnet í kerfum sem án
dulkóðunar skaltu slökkva á samnýtingu Nokia N80 skráa
með öðrum tækjum, eða velja að samnýta ekki einkaskrár.
Upplýsingar um hvernig á að breyta öryggisstillingum er að
finna í ‘Heimanet’ á bls. 36.
Minniskort
Hægt er að auka minnið með samhæfu
miniSD-minniskorti og spara þannig
minni tækisins. Einnig er hægt að taka
afrit af upplýsingunum í tækinu og
vista þær á minniskortinu.
Aðeins skal nota samhæf miniSD kort sem Nokia hefur
samþykkt til notkunar með þessu tæki. Nokia styðst við
viðurkennda staðla fyrir minniskort. Þó getur verið að sum
kort sé ekki hægt að nota að fullu með þessu tæki.
Ósamhæf kort geta skaðað kortið og tækið og skemmt
gögn sem vistuð eru á kortinu.
Öll minniskort skal geyma þar sem börn ná ekki til.
Minniskorti komið fyrir
1 Minniskortinu er komið
fyrir í tækinu með því að
setja fingur í dældina efst
á lokinu fyrir raufinni og
opna það.
2 Settu minniskortið í
raufina. Snertur kortsins
þurfa að snúa upp og að
raufinni og skáhornið
þarf að vísa að neðri
hluta tækisins.
Nokia N80 tækið þitt
17
3 Ýttu kortinu inn. Smellur heyrist
þegar kortið fellur á sinn stað.
4 Lokaðu raufinni. Ekki er hægt að
nota minniskortið þegar lokið
yfir raufinni er opið.
Minniskort fjarlægt
1 Áður en minniskortið er fjarlægt
þarf að ýta á rofa tækisins og
velja Fjarl. minniskort. Öllum forritum er lokað.
2 Þegar Fjarlægðu minniskort og styddu á 'Í lagi'
Nokia N80 tækið þitt
birtist skaltu opna lokið fyrir raufinni.
3 Ýttu á minniskortið til að losa það úr raufinni.
4 Fjarlægðu minniskortið. Ef kveikt er á tækinu skaltu
velja Í lagi.
Mikilvægt: Fjarlægið ekki minniskortið meðan á
aðgerð stendur og kortið er í notkun. Ef kortið er fjarlægt
í miðri aðgerð getur það valdið skemmdum á
minniskortinu og tækinu sjálfu og gögn sem geymd eru á
kortinu geta skemmst.
Verkfæri fyrir minniskort
Ýttu á og veldu Verkfæri > Minni. Hægt er að nota
miniSD-minniskort til að auka minnið og setja öryggisafrit
á kortið.
Til að taka öryggisafrit af gögnum í minni tækisins og setja
það á minniskort skaltu velja Valkostir > Afrita minni
símans.
Til að setja upplýsingarnar aftur yfir á minni tækisins skaltu
velja Valkostir > Endurh. frá korti.
Minniskort forsniðið
Þegar minniskort er forsniðið er öllum gögnum eytt af því
varanlega.
Sum minniskort eru forsniðin af framleiðanda og önnur
þarf að forsníða. Leitaðu upplýsinga hjá söluaðila um hvort
forsníða þurfi minniskortið áður en það er notað.
Minniskort er forsniðið með því að velja Valkostir >
Forsníða minniskort. Valið er staðfest með því að velja Já.
Skráastjóri
Margar aðgerðir/forrit tækisins vista gögn á minninu og
minnka það minni þess. Þessi forrit eru m.a. tengiliðir,
skilaboð, myndir, hreyfimyndir, hringitónar,
dagbókaratriði, skjöl og forrit sem hefur verið hlaðið niður
í tækið. Það hversu mikið minni er laust fer eftir því
gagnamagni sem hefur verið vistað í minni tækisins.
18
Hægt er að auka minnið með því að nota samhæft
minniskort. Minniskort eru endurskrifanleg og því er hægt
að eyða eldri upplýsingum og vista ný gögn á þeim.
Til að skoða skrár og möppur í minni tækisins eða á
minniskorti (ef það er notað) skaltu ýta á og velja
Ýttu á til að opna skjá minniskortsins (), ef hann er
til staðar.
Til að færa eða afrita skrár yfir í möppu skaltu ýta samtímis
á og til að merkja skrá og velja svo Valkostir >
Færa í möppu eða Afrita í möppu.
Til að finna skrá skaltu velja Valkostir > Finna, minnið sem
á að leita í og slá svo inn leitartextann (allt heiti skrárinnar
eða hluta af því).
Minnisnotkun athuguð
Til að skoða hvað gerð gagna er í tækinu og hversu mikið
minni mismunandi gerðir gagna taka skaltu velja
Valkostir > Minnisupplýsingar. Valkosturinn Laust minni
sýnir hversu mikið minni er laust.
Lítið minni — losað um minni
Tækið lætur þig vita ef það er lítið minni eftir í því eða á
minniskortinu.
Hægt er að losa um minni með því að flytja gögn yfir á
samhæft minniskort. Merktu þær skrár sem á að flytja,
veldu Færa í möppu > Minniskort og svo möppu.
Einnig er hægt að flytja skrár yfir í önnur tæki, líkt og
tölvur, með flutningsvalkostinum í Gallerí. Sjá
‘Öryggisskrár’ á bls. 36.
Ábending! Þú getur notað Nokia Phone Browser í
Nokia PC Suite til að skoða minni tækisins og flytja
gögn.
Gögn eru fjarlægð með því að nota Skr.stj. eða opna
viðkomandi forrit. Til dæmis er hægt að fjarlægja:
• Skilaboð úr möppunum Innhólf, Uppköst og Sendir
hlutir í Skilaboð
• Móttekinn tölvupóst úr minni tækisins
• Vistaðar vefsíður
• Vistaðar myndir, hreyfimyndir og hljóðskrár
• Tengiliðaupplýsingar
•Dagbókaratriði
• Sótt forrit. Sjá einnig ‘Stjórnandi forrita’ á bls. 115.
• Hvaða gögnum öðrum sem þú þarft ekki lengur á að
halda
Uppsetningarskrár (.sis) eru áfram í minni tækisins eftir að
forrit þeirra hafa verið sett upp á samhæfu minniskorti.
Skrárnar geta tekið mikið minni og valdið því að ekki sé
hægt að vista aðrar skrár. Til að losa um minni skaltu nota
Nokia PC Suite til að taka öryggisafrit af uppsetningar-
Nokia N80 tækið þitt
19
skrám og setja afritið á samhæfa tölvu. Að því loknu skaltu
nota Skráarstjórann til að eyða uppsetningarskránum úr
minni tækisins. Sjá ‘Skráastjóri’ á bls. 18. Ef .sis-skráin er
viðhengi með skilaboðum skaltu eyða skilaboðunum úr
innhólfinu.
Gagnlegir flýtivísar
Flýtivísar eru gagnlegir til að spara tíma. Nánari
upplýsingar um flýtivísa er að finna í viðkomandi köflum
Nokia N80 tækið þitt
þessarar notendahandbókar.
Biðstaða
• Skipt er á milli opinna forrita með því að halda inni
takkanum og velja forritið. Ef minnið er lítið er
hugsanlegt að tækið loki einhverjum forritum. Tækið
vistar öll óvistuð gögn áður en það lokar forriti.
Keyrsla forrita í bakgrunni krefst aukinnar
rafhlöðuorku og minnkar líftíma rafhlöðunnar.
• Kveikt er á myndavélinni með því að halda
myndatökutakkanum inni lengur en í 1 sekúndu.
• Hringt er í talhólfið (sérþjónusta) með því að halda
inni.
• Margmiðlunarforrit eru opnuð með því að halda inni
. Sjá ‘Margmiðlunartakki’ á bls. 104.
• Snið er valið með því að ýta á og velja nýtt snið.
• Skipt er á milli sniðanna Almennt og Án hljóðs með því
að halda inni . Ef þú notar tvær símalínur
(sérþjónusta) er skipt á milli þeirra á sama hátt.
• Listi yfir númerin sem hringt var í síðast er opnaður
með því að ýta á .
• Raddskipanir eru notaðar með því að halda inni .
• Tengingu er komið á við Þjónusta (sérþjónusta) með
því að halda inni . Sjá ‘Þjónusta’ á bls. 74.
Upplýsingar um frekari flýtivísa sem hægt er að velja í
biðstöðu er að finna í ‘Virkur biðskjár’ á bls. 103.
Texta og listum breytt
• Atriði á lista er merkt með því að velja það og ýta
samtímis á og .
• Hægt er að merkja mörg atriði á lista með því að halda
inni takkanum og ýta á sama tíma á eða .
Valinu er lokið með því að sleppa fyrst og síðan .
• Til að afrita og líma texta: Stafir og orð eru valdir með
því að halda takkanum inni. Á sama tíma er ýtt á
eða til að auðkenna texta. Textinn er afritaður
með því að halda enn inni og velja Afrita. Textinn
er settur inn í skjal með því að halda inni takkanum
og velja Líma.
20
Hjálp
Tækið inniheldur hjálpartexta fyrir valmyndir. Hjálpartexti
fyrir skjá er opnaður með því að velja Valkostir > Hjálp.
Hægt er að skipta á milli opins forrits og hjálpartexta þess
með því að halda inni takkanum.
Hjálparforritið er opnað í aðalvalmyndinni með því að velja
Verkfæri > Hjálp. Svo er forrit valið til að sjá hjálpartexta
þess.
Kennsla
Kennsluforritið birtir upplýsingar um suma valkosti
tækisins. Kennsluforritið er opnað með því að ýta á ,
velja Forrit. mín > Kennsla og svo þann hluta sem á að
skoða.
Nokia N80 tækið þitt
21
Myndavél
22
Nokia N80-tækið hefur tvær myndavélar, eina með hárri
upplausn aftan á tækinu (aðalmyndavélin), og aðra með
Myndavél
minni upplausn framan á því (aukamyndavélin). Hægt er
að nota báðar myndavélarnar til að taka kyrr- og
hreyfimyndir. Fremri myndavélin tekur andlitsmyndir og
sú aftari landslagsmyndir.
Þetta tæki styður 2048x1536 punkta myndupplausn.
Myndupplausnin í þessari handbók getur virst önnur.
Kveikt er á myndavélinni
með því að ýta á og
velja Myndafor. >
Myndavél eða halda
myndatökutakkanum inni.
Myndglugginn opnast og
sýnir myndina sem hægt
er að taka. Skipt er á milli
myndavélanna með því að
velja Valkostir > Nota myndavél 2 eða Nota
myndavél 1.
Myndir og hreyfimyndir vistast sjálfkrafa í Myn. & hr.m.
möppunni í Gallerí. Myndir eru teknar á .jpeg sniði.
Hreyfimyndir eru teknar á 3GPP-skráarsniðinu með
endingunni.3gp (fyrir venjulegar myndir og samnýtingu)
eða á .mp4 skráarsniðinu (hágæða myndir). Sjá ‘Stillingar
fyrir hreyfimyndir’ á bls. 29.
Hægt er að senda myndir og hreyfimyndir í
margmiðlunarboðum, sem viðhengi í tölvupósti eða um
Bluetooth-tengingu.
Myndataka
Ef myndavélin er stillt á Hreyfimyndataka, skaltu velja
venjulega myndatöku með Valkostir > Myndataka.
Til að velja fremri myndavélina, t.d. til að vera sjálf/ur á
myndinni, skaltu velja Valkostir > Nota myndavél 2.
Hægt er að eyða afritum af fluttum skrám og tæma minnið
fyrir nýjar myndir með því að velja Valkostir > Sýna laust
minni (aðeins fyrir aðalmyndavélina).
Mynd er tekin með aðalmyndavélinni með því að ýta á
myndatökutakkann. Mynd er tekin með fremri
myndavélinni með því að ýta á skruntakkann. Ekki hreyfa
tækið fyrr en myndin hefur verið vistuð.
Til að gera breytingar á lita- og birtustillingum áður en þú
tekur mynd skaltu velja Valkostir > Uppsetning mynda.
Sjá ‘Uppsetning — Stillinga lita og lýsingar’ á bls. 25.
Ef stillingum fyrir stækkun/minnkun, lýsingu eða liti er
breytt getur það tekið lengri tíma að vista myndir.
Stillingar fyrir myndumhverfi eru valdar með Valkostir >
Uppsetning mynda > Myndumhverfi. Sjá ‘Myndumhverfi’
á bls. 26.
Myndavélarvísar sýna eftirfarandi:
• Vísar (1) fyrir minni tækisins ( ) og minniskortið ( )
sýna hvar myndir eru vistaðar.
• Myndavísirinn (2) sýnir áætlaðan fjölda mynda sem
hægt er að vista í minni tækisins eða á minniskorti (sé
það í tækinu). Fjöldinn fer eftir myndgæðunum.
• Vísirinn fyrir myndumhverfi (3) sýnir hvaða stilling
hefur verið valin.
• Flassvísirinn (4) sýnir
hvort flassið er stillt á
Sjálfvirkur (), Lag.
rauð aug. (),
Kveikt () eða Slökkt
().
• Vísirinn fyrir
myndupplausn (5)
sýnir valin myndgæði.
• Vísirinn fyrir myndaröð
(6) birtist þegar stillt hefur verið á myndaröð. Sjá
‘Nokkrar myndir teknar í röð’ á bls. 24.
• Vísir fyrir sjálfvirka myndatöku (7) sýnir að kveikt er á
sjálfvirku myndatökunni. Sjá ‘Þú með á myndinni —
sjálfvirk myndataka’ á bls. 24.
Flýtivísar eru eftirfarandi:
• Flettu upp og niður til að stækka og minnka. Vísirinn
sem birtist til hliðar við myndefnið sýnir stækkunar/
minnkunarhlutfallið.
• Flettu til vinstri til að opna Uppsetning mynda
stillingarnar. Sjá ‘Uppsetning — Stillinga lita og
lýsingar’ á bls. 25.
Hafðu eftirfarandi í huga þegar þú tekur mynd:
• Notaðu báðar hendur til að halda myndavélinni kyrri.
• Þegar myndir eða hreyfimyndir eru teknar ættu
stillingarnar að hæfa umhverfinu.
• Myndgæðin minnka þegar mynd hefur verið stækkuð.
• Kveikt er á orkusparnaði myndavélarinnar ef ekki hefur
verið ýtt á neinn takka í tiltekinn tíma. Ýtt er á
takkann til að halda áfram að taka myndir.
Þegar mynd hefur verið tekin:
• Ef ekki á að vista myndina er ýtt á eða Valkostir >
Eyða valið.
• Hægt er að senda myndina Með margmiðlun, Með
tölvupósti, Með Bluetooth eða Með IR með því að ýta
á eða velja Valkostir > Senda. Nánari upplýsingar
er að finna í ‘Skilaboð’ á bls. 49 og ‘Bluetooth-
Myndavél
23
tengingar’ bls. 90. Ekki er hægt að velja þennan valkost
meðan á símtali stendur.
• Mynd er send til viðmælanda meðan á símtali stendur
með því að velja Valkostir > Senda til viðmælanda.
• Hægt er að breyta myndinni með því að velja
Myndavél
Valkostir > Breyta. Sjá ‘Myndum breytt’ á bls. 27.
• Mynd er prentuð með því að velja Valkostir > Prenta.
Sjá ‘Myndprentun’ á bls. 43.
Nokkrar myndir teknar í röð
Aðeins er hægt að velja Ítarleg myndaröð með
aðalmyndavélinni.
Til að taka nokkrar myndir í röð velurðu Valkostir >
Ítarleg myndaröð og svo tímann á milli mynda.
Myndafjöldinn takmarkast við það hversu mikið minni er
laust.
Ýttu á myndatökutakkann til að taka myndir.
Eftir að myndirnar hafa verið teknar eru þær birtar í töflu
á skjánum. Mynd er skoðuð með því að ýta á til að
opna hana.
Einnig er hægt að taka nokkrar myndir í röð með sjálfvirkri
myndatöku.
Ýttu á myndatökutakkann til að fara aftur í
myndgluggann með myndaröðinni.
Þú með á myndinni —
sjálfvirk myndataka
Aðeins er hægt að stilla á sjálfvirka myndatöku í
aðalmyndavélinni.
Notaðu sjálfvirka myndatöku til að seinka myndatökunni
svo þú getir verið með á myndinni. Til að stilla tíma
sjálfvirkrar myndatöku skaltu velja Valkostir > Sjálfvirk
myndataka > 2 sekúndur, 10 sekúndur eða 20 sekúndur.
Veldu Kveikja til að kveikja á sjálfvirku myndatökunni.
Vísirinn fyrir sjálfvirka myndatöku () blikkar og tækið
gefur frá sér hljóðmerki meðan tíminn líður. Myndavélin
tekur myndina eftir að tíminn er liðinn.
Einnig er hægt að nota sjálfvirka myndatöku fyrir
myndaraðir.
Ábending! Veldu Valkostir > Sjálfvirk myndataka >
2 sekúndur til að minnka líkurnar á því að myndin sé
hreyfið.
Flassið
Aðeins er hægt að stilla á flassið í aðalmyndavélinni.
Halda skal öruggri fjarlægð þegar flassið er notað. Ekki má
nota flassið á fólk eða dýr sem eru mjög nálægt. Ekki má
hylja flassið þegar mynd er tekin.
24
Myndavélin notar ljósdíóðu-flass þegar lýsing er lítil. Hægt
er að velja eftirfarandi stillingar fyrir flassið: Sjálfvirkt
(), Lag. rauð aug. (), Kveikt ( ) og Slökkt ().
Kveikt er á flassinu með því að velja Valkostir >
Uppsetning mynda > Flass > Kveikt.
Ef flassið er stillt á Slökkt eða Sjálfvirkt þegar
birtuskilyrðin eru góð gefur það samt frá sér veikt ljós
þegar mynd er tekin. Þannig veit sá sem verið er að taka
mynd af hvenær myndin er tekin. Flassið hefur engin áhrif
á myndina.
Ef flassið er stillt á Lag. rauð aug., dregur það úr rauða
augnalitnum á myndinni.
Uppsetning — Stillinga lita og lýsingar
Til að láta myndavélina greina liti og lýsingu betur, eða til
að bæta sjónrænum áhrifum í myndir eða hreyfimyndir,
skaltu velja Valkostir > Uppsetning mynda eða
Uppsetning hreyfim. og velja úr eftirfarandi valkostum:
Myndumhverfi — Veldu stillingu sem hentar fyrir
umhverfið. Fyrir hvert umhverfi eru ákveðnar stillingar fyrir
lýsingu sem að hæfa því.
Flass (aðeins myndir) — Stilltu flassið í samræmi við
lýsinguna. Sjá ‘Flassið’ á bls. 24.
Ljósgafi — Veldu birtuskilyrðin af listanum. Þetta gerir
myndavélinni kleift að endurskapa liti af meiri nákvæmni.
Leiðrétt. á lýsingu (aðeins fyrir myndir) — Stilltu
Skjárinn breytist eftir því hvaða stillingar eru valdar og
sýnir hvernig lokaútkoma myndarinnar eða
hreyfimyndarinnar verður.
Það hvaða stillingar eru í boði veltur á því hvaða myndavél
hefur verið valin.
Þegar stillingum fremri myndavélarinnar er breytt hefur
það ekki áhrif á stillingar aðalmyndavélarinnar og öfugt.
Uppsetningarstillingar hvorrar myndavélar virka hins
vegar bæði fyrir myndir og hreyfimyndir.
Þegar myndavélinni er lokað eru sjálfgefnar stillingar
hennar valdar aftur. Ef ný umhverfisstilling er valin kemur
hún í stað sjálfvöldu stillinganna. Sjá ‘Myndumhverfi’ á
bls. 26. Ef þú þarft að breyta uppsetningarstillingunum
geturðu gert það eftir að hafa valið umhverfi.
Myndavél
25
Myndumhverfi
Umhverfisstillingar hjálpa þér við að finna réttu
stillingarnar fyrir liti og lýsingu. Veldu rétta umhverfisstillingu af listanum fyrir myndir eða hreyfimyndir.
Myndavél
Stillingarnar fyrir hvert umhverfi henta því sérstaklega.
Undir linsu aðalmyndavélarinnar er hnappur fyrir
nærmyndir. Með nærmyndatakkanum geturðu valið að
taka nærmyndir eða myndir af texta. Til að stilla sjálfgefið
á nærmyndir skaltu ýta takkanum upp ( ). Skipt er á milli
Nærmynd og Skjalatexti stillinganna með því að velja
Valkostir > Uppsetning mynda > Myndumhverfi.
Til að velja annað umhverfi skaltu ýta takkanum til baka í
upphafsstöðu sína (), velja Valkostir > Uppsetning
(þegar þú notar Íþróttir stillinguna er upplausnin minnkuð
niður í 1280x960). Sjá Myndgæði í ‘Stillingar fyrir
kyrrmyndir’ á bls. 26.), Landslag - nótt (),
Andlitsmynd - nótt () og Kertaljós ().
Sjálfgefna stillingin fyrir myndatöku er Sjálfvirkt. Hægt er
að velja Notandi tilgreinir sem sjálfgefna stillingu.
Til að búa til þína eigin umhverfisstillingu fyrir tiltekið
umhverfi skaltu fletta að Notandi tilgreinir og velja
Valkostir > Breyta. Í umhverfisstillingu notanda er hægt
að velja mismunandi stillingar fyrir lýsingu og liti. Hægt er
að afrita stillingar úr annarri umhverfisstillingu með því að
velja Byggt á myndumhverfi og svo stillinguna.
Það hvaða stillingar eru í boði veltur á því hvaða myndavél
hefur verið valin.
Stillingar fyrir kyrrmyndir
Hægt er að velja á milli tveggja stillinga fyrir kyrrmyndir:
Uppsetning mynda og aðalstillinga. Upplýsingar um
hvernig á að stilla Uppsetning mynda er að finna í
‘Uppsetning — Stillinga lita og lýsingar’ á bls. 25.
Uppsetningarstillingar breytast aftur yfir í sjálfvaldar
stillingar þegar myndavélinni er lokað, en aðalstillingarnar
eru þær sömu þar til þeim er breytt aftur. Aðalstillingunum
er breytt með því að velja Valkostir > Stillingar og úr
eftirfarandi:
Myndgæði — Prentun 3M - Stór (2048 x 1536 mynd-
upplausn), Prentun 2M - Miðlungs (1600 x 1200 myndupplausn), Prentun 1,3M - Lítil (1280 x 960 myndupplausn), Tölvupóstur 0,5 (800 x 600 myndupplausn) eða
MMS 0,3M (640 x 480 myndupplausn). Því meiri sem
26
gæðin eru, því meira minni tekur myndin. Ef þú vilt prenta
myndina skaltu velja Prentun 3M - Stór, Prentun 2M -
Miðlungs eða Prentun 1,3M - Lítil. Veldu Tölvu-póstur
0,5 ef þú vilt senda hana í tölvupósti. Veldu MMS 0,3M ef
þú vilt senda hana í margmiðlunarskilaboðum.
Setja inn í albúm — Veldu hvort þú vilt vista myndina í
tilteknu albúmi (möppu) í Gallerí. Ef þú velur Já birtist listi
yfir albúmin sem hægt er að velja.
Sýna tekna mynd — Veldu Já ef þú vilt sjá mynd eftir að
hún er tekin og Nei ef þú vilt halda áfram að taka myndir
án þess að birta þær sem þú hefur tekið.
Aukin stækkun (aðeins fyrir aðalmyndavélina) — Veldu
Kveikt ef þú vilt nota hámarksstækkun í myndatökum.
Myndgæðin minnka þegar mynd hefur verið stækkuð. Ef þú
vilt takmarka stækkunina þannig að myndgæðin minnki
ekki skaltu velja Slökkt.
Sjálfgefið heiti myndar — Veldu sjálfgefið heiti fyrir
myndir.
Lokarahljóð — Veldu tóninn sem heyrist þegar myndir eru
teknar.
Minni í notkun — Veldu hvar myndir eru vistaðar.
Myndum breytt
Til að breyta myndum eftir að þær hafa verið teknar, eða
þeim myndum sem eru þegar vistaðar í Gallerí skaltu velja
Valkostir > Breyta.
Veldu Nota áhrif til að klippa myndina og snúa henni, laga
birtustigið, litinn, birtuskilin og upplausnina, og til að
bæta sjónrænum áhrifum, texta, skreytingum eða ramma
við myndina.
Mynd er klippt með því að velja Valkostir > Nota áhrif >
Skurður. Mynd er klippt handvirkt með því að velja
Handvirkt eða hlutfall af listanum. Ef þú velur Handvirkt
birtist kross efst í vinstra horni myndarinnar. Færðu
skruntakkann til að velja svæðið sem á að klippa og veldu
svo Festa. Annar kross birtist neðst í hægra horninu. Veldu
aftur svæðið sem á að klippa. Til að stilla aftur fyrsta
svæðið skaltu velja Til baka. Þau svæði sem eru valin
mynda ferhyrning utan um þá mynd sem kemur út úr
klippingunni.
Ef þú velur hlutfall skaltu velja efra hornið til vinstri þar
sem á að klippa. Notaðu skruntakkann til að stilla
auðkennda svæðið. Hægt er að frysta valið svæði með því
að ýta á . Hægt er að færa til svæðið með
skruntakkanum. Ýtt er á til að velja svæðið sem á að
klippa.
Myndavél
27
Hægt er að minnka rauðan lit í augum á myndum með því
að velja Valkostir > Nota áhrif > Laga rauð augu. Færðu
krossinn að auganu og ýttu á . Lykkja birtist á skjánum.
Færðu skruntakkann til að breyta stærð lykkjunnar svo
hún passi við augað. Ýttu á til að minnka rauða litinn.
Myndavél
Flýtivísar í myndvinnslu:
• Ýttu á til að skoða mynd á öllum skjánum. Ýttu
aftur á til að fara aftur í venjulegan skjá.
• Ýttu á og til að snúa mynd réttsælis eða
rangsælis.
• Ýttu á eða til að stækka eða minnka myndina.
• Flett eru um stækkaða mynd með því að skruna upp,
niður, til vinstri eða hægri.
Myndupptaka
Ef myndavélin er stillt á Myndataka, skaltu velja
hreyfimyndir með Valkostir > Hreyfimyndataka.
Til að velja fremri myndavélina, t.d. til að vera sjálf/ur á
myndinni, skaltu velja Valkostir > Nota myndavél 2.
Hægt er að eyða afritum af fluttum skrám og tæma
minnið fyrir nýjar myndir með því að velja Valkostir >
Sýna laust minni (aðeins fyrir aðalmyndavélina).
1 Ýttu á myndatökutakkann ef þú hefur valið
aðalmyndavélina og á ef þú hefur valið fremri
myndavélina til að hefja upptökuna. Þá birtist
upptökutáknið. Ljósdíóðuflassið logar og tónn heyrist
sem gefur til að kynna að verið sé að taka upp
hreyfimynd. Flassið hefur engin áhrif á hreyfimyndina
sem er tekin.
2 Hægt er að gera hlé á upptökunni hvenær sem er með
því að ýta á Hlé. Biðtáknið ( ) blikkar á skjánum.
Upptakan stöðvast sjálfkrafa ef gert hefur verið hlé á
henni og ekki er stutt á neinn takka í eina mínútu.
3 Veldu Áfram til að halda upptökunni áfram.
4 Veldu Stöðva til að stöðva upptökuna. Hreyfimyndin er
sjálfkrafa vistuð í Myn. & hr.m. möppunni í Gallerí. Sjá
‘Gallerí’ á bls. 33.
Til að gera breytingar á lita- og birtustillingum áður en þú
tekur upp hreyfimynd skaltu velja Valkostir > Uppsetning
hreyfim.. Sjá ‘Uppsetning — Stillinga lita og lýsingar’ á
bls. 25.
Stillingar fyrir myndumhverfi eru valdar í Valkostir >
Uppsetning hreyfim. > Myndumhverfi. Sjá
‘Myndumhverfi’ á bls. 26.
Vísar myndupptöku sýna eftirfarandi:
• Vísar fyrir minni tækisins ( ) og minniskortsins ( ) (1)
sýna hvar hreyfimyndin er vistuð.
• Lengdarvísir (2) sýnir tímann sem er liðinn og tímann
sem er eftir.
• Vísirinn fyrir myndumhverfi (3) sýnir hvaða stilling
hefur verið valin.
28
•Myndjafnvægi (4)
merkir að kveikt sé á
myndjafnvægi sem
dempar áhrif
smáhreyfinga í
skerpunni (aðeins fyrir
aðalmyndavélina).
• Vísir hljóðnemans (5)
sýnir að slökkt er á
hljóðnemanum.
• Vísir fyrir skráargerðina (6) sýnir á hvaða sniði
hreyfimyndin er.
• Vísir fyrir myndgæði (7) sýnir hvort gæðin eru stillt á
Há, Venjuleg eða Samnýting.
Flýtivísarnir eru eftirfarandi:
• Flettu upp og niður til að stækka og minnka. Vísirinn
sem birtist til hliðar við myndefnið sýnir stækkunar/
minnkunarhlutfallið.
• Flettu til vinstri til að opna Uppsetning hreyfim.
stillingarnar. Sjá ‘Uppsetning — Stillinga lita og
lýsingar’ á bls. 25.
Eftir að hreyfimynd hefur verið tekin:
• Til að spila hreyfimyndina um leið og hún hefur verið
tekin skaltu velja Valkostir > Spila.
• Ef þú vilt ekki vista hreyfimyndina skaltu ýta á , eða
velja Valkostir > Eyða.
• Hægt er að senda hreyfimyndir Með margmiðlun,
Með tölvupósti, Með Bluetooth eða Með IR með því
að ýta á , eða velja Valkostir > Senda. Nánari
upplýsingar er að finna í ‘Skilaboð’ á bls. 49 og
‘Bluetooth-tengingar’ bls. 90. Ekki er hægt að velja
þennan valkost meðan á símtali stendur. Ekki er hægt
að senda hreyfimyndir sem eru vistaðar á .mp4-sniði í
margmiðlunarskilaboðum.
•Veldu Valkostir > Senda til viðmælanda til að senda
hreyfimynd til viðtakanda meðan á símtali stendur.
•Veldu Valkostir > Breyta til að slökkva á
hreyfimyndinni. Sjá ‘Hreyfimyndum breytt’ á bls.30.
Stillingar fyrir hreyfimyndir
Í myndupptöku er hægt að velja á milli tveggja stillinga:
Uppsetning hreyfim. og aðalstillinga. Upplýsingar um
hvernig á að stilla Uppsetning hreyfim. er að finna í
‘Uppsetning — Stillinga lita og lýsingar’ á bls. 25.
Uppsetningarstillingar breytast aftur yfir í sjálfvaldar
stillingar þegar myndavélinni er lokað, en aðalstillingarnar
eru þær sömu þar til þeim er breytt aftur. Aðalstillingunum
er breytt með því að velja Valkostir > Stillingar og úr
eftirfarandi:
Hljóðupptaka — Veldu Kveikt ef þú vilt bæði taka upp
hljóð og mynd.
Myndavél
29
Gæði hreyfimynda — Stilltu gæði hreyfimyndarinnar á
Há, Venjuleg eða Samnýting. Gæðin eru gefin til kynna
með einu af eftirfarandi táknum: (Mikil),
(Venjuleg) eða (Samnýting). Ef þú velur Há eða
Venjuleg takmarkast lengd myndupptökunnar af
Myndavél
geymsluplássinu á minniskortinu (ef það er til staðar) eða
allt að 1 klukkustund fyrir hverja hreyfimynd. Ef þú vilt
skoða hreyfimyndina í samhæfu sjónvarpi eða í tölvu
skaltu velja Há myndgæði, með CIF upplausn (352x288)
og á .mp4-sniði. Ekki er hægt að senda hreyfimyndir sem
eru vistaðar á .mp4-sniði í margmiðlunarskilaboðum. Ef
þú vilt skoða hreyfimyndina í farsíma skaltu velja
Venjuleg, með QCIF-upplausn (176x144) og á .3gp-sniði.
Til að senda hreyfimyndina í margmiðlunarskilaboðum
skaltu velja Samnýting (QCIF upplausn, .3gp skráarsnið).
Stærð hreyfimynda takmarkast við 300 KB (u.þ.b. 20
sekúndur að lengd) svo hægt sé að senda þær í
margmiðlunarskilaboðum í samhæf tæki. Sum símkerfi
kunna þó einungis að styðja sendingu margmiðlunarskilaboða sem eru að hámarki 100 KB. Frekari upplýsingar
fást hjá símafyrirtækinu eða þjónustuveitunni.
Setja inn í albúm — Veldu hvort þú vilt vista
hreyfimyndina í tilteknu albúmi (möppu) í Gallerí. Veldu
Já til að opna lista yfir albúmin sem hægt er að velja.
Sýna upptekn. hreyfim. — Veldu hvort fyrsti rammi
hreyfimyndarinnar sést á skjánum eftir að upptökunni
lýkur. Veldu Valkostir > Spila til að skoða hreyfimyndina.
Sjálfg. heiti hreyfimynd. — Veldu sjálfgefið heiti fyrir
hreyfimyndir.
Minni í notkun — Veldu sjálfgefið geymsluminni: minni
tækisins eða minniskort (ef það er til staðar).
Hreyfimyndum breytt
Til að breyta hreyfimyndum í Gallerí og búa til sérsniðnar
hreyfimyndir skaltu fletta að hreyfimynd og velja
Valkostir > Breyta. Sjá ‘Gallerí’ á bls. 33. Hægt er að búa
til sérsniðnar hreyfimyndir með því að sameina og klippa til
hreyfimyndir og bæta við hljóðum, umbreytingu og
áhrifum. Umbreyting felst í sjónrænum áhrifum sem hægt
er að bæta við í upphafi og við lok hreyfimyndarinnar eða
á milli myndskeiða.
Í myndvinnslunni sjást tvær tímalínur: tímalína
hreyfimyndarinnar og tímalína hljóðsins. Ef þú bætir
myndum, texta eða umbreytingum við hreyfimyndir sjást
þessi atriði á tímalínu þeirra. Flett er upp eða niður til að
skipta á milli tímalína.
Hreyfimynd, hljóði, mynd, texta og
umbreytingum breytt
Til að búa til sérsniðnar hreyfimyndir skaltu merkja og velja
eitt eða fleiri myndskeið og velja Valkostir > Breyta.
30
Loading...
+ 105 hidden pages
You need points to download manuals.
1 point = 1 manual.
You can buy points or you can get point for every manual you upload.