LEYFISYFIRLÝSING
Við, NOKIA CORPORATION lýsum því yfir og ábyrgjumst
að framleiðsluvaran RM-84 er í samræmi við
eftirfarandi samþykkt: 1999/5/EC. Eintak af yfirlýsingu
um samkvæmni er að finna á slóðinni http://
Merkið, sem sýnir yfirstrikaða ruslafötu, merkir að innan
Evrópusambandsins verði að fara með vöruna á sérstaka staði til
förgunar að líftíma hennar liðnum. Þetta á við um tækið þitt en einnig
um þá aukahluti sem merktir eru með þessu merki. Hendið þessum
skjalsins alls er óheimil nema að fyrir fram fengnu skriflegu samþykki Nokia.
Nokia, Nokia Connecting People, Pop-Port og Visual Radio eru vörumerki eða
skrásett vörumerki Nokia Corporation. Önnur vöruheiti eða heiti fyrirtækja sem
nefnd eru hér geta verið vörumerki eða vöruheiti viðkomandi eigenda.
Nokia tune er vörumerki Nokia Corporation.
This product includes software licensed from Symbian Software Ltd (c)
1998-200(5). Symbian and Symbian OS are trademarks of Symbian Ltd.
Java™ and all Java-based marks are trademarks or registered trademarks of
Sun Microsystems, Inc.
US Patent No 5818437 and other pending patents. T9 text input software Copyright
(C) 1997-2005. Tegic Communications, Inc. All rights reserved.
This product is licensed under the MPEG-4 Visual Patent Portfolio License (i) for
personal and noncommercial use in connection with information which has been
encoded in compliance with the MPEG-4 Visual Standard by a consumer engaged
in a personal and noncommercial activity and (ii) for use in connection with MPEG4 video provided by a licensed video provider. No license is granted or shall be
implied for any other use. Additional information including that relating to
promotional, internal and commercial uses may be obtained from MPEG LA, LLC.
See <http://www.mpegla.com>.
Þessi vara er háð leyfinu MPEG-4 Visual Patent Portfolio License (i) til
einkanotkunar og án viðskiptatilgangs í tengslum við upplýsingar sem hafa verið
kótaðar samkvæmt staðlinum MPEG-4 Visual Standard af neytanda í persónulegum
tilgangi og án viðskiptatilgangs og (ii) til notkunar í tengslum við MPEG-4
hreyfimynd sem fengin er hjá hreyfimyndaveitu með leyfi. Ekkert leyfi er veitt eða
undirskilið til neinnar annarrar notkunar. Viðbótarupplýsingar, svo sem notkun í
auglýsingum, innan fyrirtækis og í viðskiptum, má fá hjá MPEG LA, LLC.
Sjá <http://www.mpegla.com>.
Nokia framfylgir stefnu sem felur í sér stöðuga þróun. Nokia áskilur sér rétt til
að gera breytingar og úrbætur á hvers konar vöru sem getið er í þessu skjali án
undangenginnar tilkynningar.
Nokia ber undir engum kringumstæðum ábyrgð á tapi gagna eða tekjutapi og ekki
á beinu eða óbeinu tjóni, þar á meðal útlögðum kostnaði, tekjutapi eða missi ágóða,
af hvaða orsökum sem tjón kann að vera.
Inntak þessa skjals er afhent „eins og það kemur fyrir“. Umfram það, er lög áskilja,
er engin ábyrgð veitt, hvorki berum orðum eða undirskilin, á nákvæmni,
áreiðanleika eða inntaki þessa skjals, á það meðal annars, en ekki eingöngu, við
um söluhæfni eða ábyrgð á að varan hentl tiltekinni notkun. Nokia áskilur sér rétt
til að endurskoða skjalið eða draga það tilbaka hvenær sem er án undangenginnar
tilkynningar.
Birgðir á tilteknum vörum geta verið breytilegar eftir svæðum. Vinsamlegast
kannaðu málið hjá næsta söluaðila Nokia.
Tæki þetta kann að innihalda vörur, tækni eða hugbúnað sem lýtur
útflutningslögum og reglugerðum í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
Breytingar á flutningsleiðum sem ekki samræmast lögum eru óheimilar.
TILKYNNING FRÁ FCC/INDUSTRY CANADA
Tækið þitt getur valdið truflun í sjónvarps- eða útvarpstækjum (til að mynda þegar
sími er notaður mjög nálægt móttökutækjum). FCC (Federal Communications
Commission) eða Industry Canada geta krafist þess að þú hættir að nota símann
þinn ef ekki er hægt að koma í veg fyrir slíkar truflanir. Hafðu samband við
þjónustuaðila þinn ef þú þarfnast aðstoðar. Þetta tæki fellur undir grein 15 í
reglugerðunum FCC. Notkun er háð því skilyrði að tækið valdi ekki skaðlegum
truflunum.
Lesið þessar einföldu leiðbeiningar. Sé þeim ekki fylgt getur
það verið hættulegt eða varðað við lög. Lesa skal alla
notendahandbókina til að fá nánari upplýsingar.
ÖRYGGI ÞEGAR KVEIKT ER Á TÆKINU
Ekki má kveikja á tækinu þar sem notkun
þráðlausra síma er bönnuð eða þar sem hún
kann að valda truflunum eða hættu.
UMFERÐARÖRYGGI GENGUR FYRIR Fara skal
að öllum staðbundnum lögum. Ætíð skal hafa
hendur frjálsar til að stýra ökutækinu
við akstur. Umferðaröryggi skal ganga fyrir
íakstri.
TRUFLUN Öll þráðlaus tæki geta verið næm
fyrir truflunum, sem getur haft áhrif á virkni
þeirra.
SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM Á
SJÚKRASTOFNUNUM Virða skal allar
takmarkanir. Slökkva skal á símanum
nálægt lækningabúnaði.
HAFA SKAL SLÖKKT Á SÍMANUM Í
FLUGVÉLUM Virða skal allar takmarkanir.
Þráðlaus tæki geta valdið truflunum
íflugvélum.
SLÖKKVA SKAL Á SÍMANUM ÁÐUR EN
ELDSNEYTI ER TEKIÐ Ekki nota tækið nærri
eldsneytisdælu. Notist ekki í námunda við
eldsneyti eða sterk efni.
SLÖKKVA SKAL Á SÍMANUM ÞAR SEM
VERIÐ ER AÐ SPRENGJA Virða skal allar
takmarkanir. Ekki nota tækið þar sem verið
er að sprengja.
NOTIST AF SKYNSEMI Notist aðeins
í hefðbundinni stöðu eins og lýst er í
leiðbeiningum með vörunni. Forðast skal
óþarfa snertingu við loftnetið.
VIÐURKENND ÞJÓNUSTA Aðeins
viðurkennt starfsfólk má setja upp eða
gera við þessa vöru.
AUKAHLUTIR OG RAFHLÖÐUR Aðeins má
nota samþykkta aukahluti og rafhlöður. Ekki
má tengja saman ósamhæf tæki.
öryggisafrit eða halda skrá yfir allar
mikilvægar upplýsingar sem geymdar
eru í símanum.
TENGING VIÐ ÖNNUR TÆKI Þegar tækið
er tengt öðru tæki skal lesa notendahandbók
með því vandlega, einkum upplýsingar um
öryggi. Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.
NEYÐARSÍMTÖL Tryggja skal að kveikt sé á
símaaðgerðum tækisins og þær séu virkar.
Styðja skal á hætta-takkann eins oft og þarf
til að hreinsa skjáinn og hverfa aftur að
upphafsskjánum. Neyðarnúmerið er valið,
síðan er stutt á hringitakkann. Gefa skal upp
staðarákvörðun. Ekki má slíta símtali fyrr en
að fengnu leyfi til þess.
Um tækið
Þráðlausa tækið sem lýst er í þessari handbók er samþykkt
til notkunar á EGSM 900/1800/1900 og UMTS 2100
símkerfinu. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar
um símkerfi.
Hlíta skal öllum lögum og virða einkalíf og lögbundin
réttindi annarra við alla notkun þessa tækis.
Þegar myndir eða myndinnskot eru tekin eða notuð skal
fylgja öllum lögum og virða staðbundna siði auk einkalífs
og lögbundinna réttinda annarra.
Viðvörun: Við notkun allra aðgerða í þessu tæki,
annarra en vekjarans, þarf að vera kveikt á tækinu.
Ekki skal kveikja á tækinu þegar notkun þráðlausra
tækja getur valdið truflun eða hættu.
Sérþjónusta
Ef nota á símann verður áskrift að þjónustuveitu fyrir
þráðlausa síma að vera fyrir hendi. Margar aðgerðir í þessu
tæki eru háðar því að aðgerðir í þráðlausa símkerfinu virki.
Þessi sérþjónusta er hugsanlega ekki fyrir hendi í öllum
símkerfum eða þörf getur verið á sérstökum ráðstöfunum
hjá þjónustuveitunni áður en hægt er að nota sérþjónustu.
Þjónustuveitan getur þurft að gefa viðbótarfyrirmæli um
notkun og útskýra hvaða gjöld eiga við. Sum símkerfi geta
verið með takmörkunum sem hafa áhrif á hvernig hægt er
að nota sérþjónustu. Sum símkerfi styðja t.d. ekki alla
séríslenska bókstafi og þjónustu.
Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að tilteknar
aðgerðir væru hafðar óvirkar eða ekki gerðar virkar í
tækinu. Ef svo er birtast þær ekki í valmynd tækisins.
Tækinu kann einnig að hafa verið sérstaklega samskipað.
Þessi samskipan kann að fela í sér breytingar á
valmyndarheitum, röð valmynda og táknum.
Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
Þetta tæki styður WAP 2.0 samskiptareglur (HTTP og SSL)
sem keyra á TCP/IP samskiptareglum. Fyrir sumar aðgerðir
í tækinu, eins og MMS, netskoðun, tölvupóst og niðurhal
efnis um vafra eða með MMS, þarf símkerfisstuðning við
viðkomandi tækni.
Upplýsingar um framboð og notkun SIM-korta má fá hjá
seljanda SIM-kortsins. Þetta getur verið þjónustuveitan,
símafyrirtækið eða annar söluaðili.
Aukahlutir, rafhlöður
og hleðslutæki
Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður
en rafhlaðan er fjarlægð.
Athuga ber tegundarnúmer hleðslutækja áður en þau eru
notuð með þessu tæki. Þetta tæki er ætlað til notkunar
þegar það er hlaðið orku frá DC-4, AC-3, og AC-4
hleðslutækjum og AC-1, ACP-7, ACP-8, ACP-9, ACP-12,
LCH-8, LCH-9, eða LCH-12 hleðslutækjum þegar þau eru
notuð með millistykkinu CA-44 sem fylgir með tækinu.
Rafhlaðan sem nota skal með þessu tæki er BL-5C.
Viðvörun: Aðeins skal nota rafhlöður, hleðslutæki
og aukahluti sem Nokia hefur samþykkt til notkunar
með þessari tilteknu tegund. Ef notaðar eru aðrar
gerðir gæti öll ábyrgð og samþykki fallið niður og
slíkri notkun getur fylgt hætta.
Seljandi símans veitir upplýsingar um fáanlega aukahluti
sem samþykktir eru til notkunar með tækinu. Þegar
aukahlutur er tekinn úr sambandi skal taka í klóna,
ekki leiðsluna.
Kennsluforritið gefur þér upplýsingar um suma valkosti
tækisins.
Til að opna kennsluforritið skaltu ýta á og velja Forrit.
mín > Kennsla og þann hluta sem þú vilt skoða. Settu
minniskortið sem fylgdi með tækinu í það til að tryggja
að þú hafir aðgang að öllu kennsluefninu.
Nytsamlegir flýtivísar
Notaðu flýtivísa til að ná sem mestu út úr tækinu á
skömmum tíma. Nánari upplýsingar um aðgerðir er að
finna í viðkomandi köflum þessarar notendahandbókar.
Myndataka
• Ýttu á til að stilla uppsetningu mynda fyrir
myndatöku.
• Til að senda myndina eftir töku hennar Með
margmiðlun, Með tölvupósti eða Með Bluetooth,
press . Nánari upplýsingar er að finna í ‘Skilaboð’ á
bls. 54 og ‘Bluetooth-tengingar’ á bls. 88.
• Mynd er eytt með því að ýta á .
• Ný mynd er tekin með því að ýta á eða
myndatökutakkann.
Upptaka myndinnskota
• Ýttu á til að stilla uppsetningu hreyfimynda fyrir
upptöku þeirra.
• Eftir að hafa tekið upp myndinnskot getur þú sent
það Með margmiðlun, Með tölvupósti eða Með
Bluetooth með því að ýta á . Ekki er hægt að
senda myndinnskot sem eru vistuð á .mp4-sniði í
margmiðlunarskilaboðum. Nánari upplýsingar er að
finna í ‘Skilaboð’ á bls. 54 og ‘Bluetooth-tengingar’
bls. 88.
• Myndinnskoti er eytt með því að ýta á .
Texta og listum breytt
• Til að merkja atriði á lista skaltu velja það og ýta
samtímis á og .
• Til að merkja mörg atriði á lista skaltu halda inni
takkanum á sama tíma og þú styður á eða .
Ljúktu valinu með því að sleppa fyrst og síðan .
• Til að afrita og líma texta: Haltu takkanum inni til
að velja stafi og orð. Ýttu um leið á eða . Textinn
er auðkenndur um leið og valið færist. Til að afrita texta
meðan þú heldur enn inni skaltu ýta á Afrita. Til
að setja textann inn í skjal skaltu halda inni
takkanum og velja Líma.
Biðstaða
• Til að skipta á milli opinna forrita skaltu halda inni
takkanum. Ef minnið er orðið lítið er hugsanlegt að
tækið loki einhverjum forritum. Tækið vistar öll óvistuð
gögn áður en það lokar forriti.
Keyrsla forrita í bakgrunni krefst aukinnar
rafhlöðuorku og minnkar líftíma rafhlöðunnar.
• Ýttu á til að velja nýtt snið.
• Skipt er á milli sniðanna Almennt og Án hljóðs með
því að halda inni . Ef þú notar tvær símalínur
notarðu þessa aðgerð til að skipta á milli þeirra.
• Ýttu á til að opna lista yfir númerin sem þú
hringdir síðast í.
• Haltu inni takkanum til að nota raddskipanir.
• Til að koma á tengingu við Vefur skaltu halda inni
takkanum. Sjá ‘Vefur’ á bls. 76.
Upplýsingar um frekari flýtivísa sem hægt er að velja í
biðstöðu er að finna í ‘Virkur biðskjár’ á bls. 21.
Takkalás (takkavari)
• Til að læsa tökkunum: Ýttu á þegar tækið er í
biðstöðu og síðan á .
• Til að taka takkalásinn af: Ýttu á og síðan á .
• Ýttu á til að kveikja á skjálýsingunni þegar
takkaborðið er læst.
Þegar takkalásinn er virkur getur samt verið hægt að
hringja í opinbera neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.
Ýttu á og veldu Klukka.
Til að stilla vekjaraklukkuna skaltu velja Valkostir >
Stilla vekjara. Sláðu inn tímann og veldu Í lagi. Þegar
vekjaraklukkan hefur verið stillt sést vísirinn á
skjánum.
Veldu Stöðva til að slökkva á vekjaraklukkunni. Þegar
Nokia N70 tækið þitt
vekjaraklukkan hringir getur þú stutt á hvaða takka sem
er, eða valið Blunda til að stöðva hringinguna og láta
klukkuna hringja aftur eftir fimm mínútur. Þetta er hægt
að gera að hámarki fimm sinnum.
Ef vekjaraklukkan hefur verið stillt og tíminn rennur upp
á meðan slökkt er á tækinu kveikir það á sér og hringir.
Ef Stöðva er valið er spurt hvort opna eigi tækið fyrir
símtölum. Veldu Nei til að slökkva á tækinu eða Já til
að hringja og svara símtölum. Ekki velja Já þegar
notkun þráðlausra síma getur valdið truflun eða hættu.
Til að slökkva á vekjaraklukkunni áður en tíminn rennur
upp skaltu velja Klukka > Valkostir > Taka vekjara af.
Stillingar klukku
Til að breyta stillingum klukkunnar skaltu opna valmynd
hennar og velja Valkostir > Stillingar. Veldu Tími eða
Dagsetning til að breyta tímanum eða dagsetningunni.
Til að breyta gerð klukkunnar sem sést í biðstöðu skaltu
velja Útlit klukku > Með vísum eða Stafræn.
Til að leyfa farsímakerfinu að uppfæra tímann,
dagsetninguna og tímabelti klukkunnar (sérþjónusta)
skaltu velja Sjálfv. tímauppfærsla. Til að Sjálfv.
tímauppfærsla stillingin verði virk þarf tækið að
endurræsa sig.
Til að breyta hringitóni vekjaraklukkunnar skaltu velja
Tónn viðvörunar.
Til að kveikja eða slökkva á sumartímastillingunni skaltu
velja Sumartími. Veldu Á til að bæta einni klukkustund við
tímann í Núverandi borg mín. Sjá ‘Heimsklukka’ á bls. 14.
Vísirinn er sýnilegur í aðalskjá klukkunnar þegar
sumartími hefur verið valinn. Aðeins er hægt að velja
þessa stillingu ef kveikt er á Sjálfv. tímauppfærsla.
Heimsklukka
Opnaðu Klukka og ýttu á til að opna skjá
heimsklukkunnar. Í skjá heimsklukkunnar getur
þú séð tímann í hinum ýmsu borgum.
Til að bæta borgum við listann skaltu velja Valkostir >
Bæta við borg. Sláðu inn fyrstu stafina í nafni borgarinnar.
Leitarreiturinn birtist sjálfkrafa og þar má sjá borgirnar
sem passa við það sem var skrifað. Veldu borg. Það er að
hámarki hægt að bæta 15 borgum við listann.
Til að velja borgina sem þú ert staddur/stödd í skaltu velja
borg og síðan Valkostir > Núverandi borg mín. Borgin
birtist í aðalskjá klukkunnar og tíma tækisins er breytt í
samræmi við völdu borgina. Gakktu úr skugga um að
tíminn sé réttur og að hann passi við tímabeltið.
Stillingar hljóðstyrks og hátalara
Til að auka eða minnka
hljóðstyrkinn þegar símtal er
í gangi eða þú ert að hlusta á
hljóð, skaltu ýta á eða .
Innbyggði hátalarinn gerir þér kleift að tala í tækið og
hlusta á það sem viðmælandinn segir úr lítilli fjarlægð án
þess að þurfa að halda á tækinu við eyrað. Hátalarinn er
sjálfkrafa valinn fyrir hljóðforrit.
Viðvörun: Ekki skal halda tækinu nálægt eyranu
þegar hátalarinn er notaður því hljóðstyrkur getur verið
mjög mikill.
Til að kveikja á hátalaranum þegar þú ert með símtal í
gangi skaltu velja Valkostir > Virkja hátalara.
Til að slökkva á hátalaranum þegar þú ert með símtal í
gangi eða hlustar á tónlist skaltu velja Valkostir > Virkja
símtól.
Skráastjóri
Margar aðgerðir tækisins vista gögn og taka þannig
upp minni. Þessar aðgerðir eru meðal annars tengiliðir,
skilaboð, myndir, hringitónar, dagbók og minnismiðar,
skjöl og forrit sem hefur verið hlaðið niður í tækið. Það
hversu mikið minni er laust fer eftir því gagnamagni sem
hefur verið vistað í minni tækisins. Hægt er að auka
minnið með því að nota minniskort. Minniskort eru
endurskrifanleg og því er bæði hægt að vista og eyða
gögnum af þeim.
Til að skoða skrár og möppur í minni tækisins eða á
minniskorti (ef þú notar minniskort) skaltu ýta á
takkann og opna Verkfæri > Skr.stj.. Skjár tækjaminnisins
opnast (). Ýttu á til að opna skjá minniskortsins
().
Til að færa eða afrita skrár í möppu skaltu ýta samtímis á
Til að finna skrá skaltu velja Valkostir > Finna og minnið
sem þú vilt leita í. Sláðu svo inn leitartexta sem passar við
heiti skrárinnar.
Ábending! Þú getur notað Nokia Phone Browser í
Nokia PC Suite til að skoða mismunandi minni í
tækinu. Sjá geisladiskinn sem fylgir með tækinu.
Minnisnotkun athuguð
Til að skoða hvaða gerðir gagna eru í tækinu og hversu
Nokia N70 tækið þitt
mikið minni hver gerð notar skaltu velja Valkostir >
Minnisupplýsingar. Veldu Laust minni til að skoða
hversu mikið minni er laust í tækinu.
Til að skoða hversu mikið minni er laust á minniskortinu,
ef þú notar minniskort, skaltu ýta á takkann til að
opna glugga minniskortsins og velja Valkostir >
Minnisupplýsingar.
Lítið minni—losað um minni
Tækið lætur þig vita ef það er lítið minni eftir í því eða á
minniskortinu.
Til að losa um minni geturðu notað skráastjórann til að
flytja gögn yfir á minniskort. Merktu þær skrár sem þú vilt
færa, veldu Færa í möppu > Minniskort og svo möppu.
Ábending! Til að losa um minni í tækinu eða á
minniskorti skaltu nota Image Store í Nokia PC Suite
til að flytja myndir og myndinnskot yfir í samhæfa
tölvu. Sjá geisladiskinn sem fylgir með tækinu.
Þú getur notað Skr.stj. til að fjarlægja gögn og þannig
losa um minni eða opnað viðkomandi forrit. Þú getur t.d.
fjarlægt:
•Skilaboð úr Innhólf, Uppköst og Sendir hlutir
möppunum í Skilaboð
• Móttekinn tölvupóst úr minni tækisins
• Vistaðar vefsíður
• Vistaðar myndir, hreyfimyndir og hljóðskrár
• Tengiliðaupplýsingar
• Minnismiða í dagbók
• Sótt forrit. Sjá einnig ‘Stjórnandi forrita’ á bls. 109.
• Hvaða gögnum öðrum sem þú þarft ekki lengur á
að halda
Verkfæri fyrir minniskort
Til athugunar: Þetta tæki notar Reduced Size Dual
Voltage (1,8/3V) MultiMediaCard (RS-MMC). Aðeins skal
nota margmiðlunarkort sem nota bæði 1,8 og 3 volt til
að tryggja samhæfni. Upplýsingar um samhæfni
margmiðlunarkorts er hægt að fá hjá framleiðanda eða
söluaðila kortsins.
Aðeins skal nota samhæf margmiðlunarkort (Reduced Size
MultiMediaCards, eða RS-MMC) með þessu tæki. Önnur
minniskort, svo sem Secure Digital (SD) kort, passa ekki í
minniskortaraufina og eru ekki samhæf þessu tæki. Notkun
ósamhæfs minniskorts getur skemmt minniskortið og
einnig tækið, og gögn sem eru geymd á ósamhæfa kortinu
geta skaddast.
Öll minniskort skal geyma þar sem börn ná ekki til.
Ýttu á og veldu
Verkfæri > Minni. Hægt er
að auka minnið með því að
nota minniskort. Einnig er
ráðlegt að taka reglulega
öryggisafrit af gögnum í
minni tækisins og vista það á
minniskortinu. Hægt er að
flytja upplýsingarnar yfir í
tækið síðar.
Ekki er hægt að nota
minniskortið ef minniskortsraufin er opin.
Mikilvægt: Ekki má fjarlægja minniskortið í miðri
aðgerð þegar verið er að lesa af því. Ef kortið er fjarlægt í
miðri aðgerð getur það valdið skemmdum á minniskortinu
og tækinu sjálfu og gögn sem geymd eru á kortinu geta
skemmst.
Til að taka öryggisafrit af gögnum í minni tækisins og setja
það á minniskortið skaltu velja Valkostir > Afrita minni
símans.
Til að setja upplýsingarnar aftur í minni tækisins skaltu
velja Valkostir > Endurh. frá korti.
Ábending! Til að breyta heiti minniskorts skaltu velja
Valkostir > Nafn minniskorts.
Minniskort forsniðið
Þegar minniskort er forsniðið er öllum gögnum eytt af því
varanlega.
Sum minniskort eru forsniðin af framleiðanda og önnur
þarf að forsníða. Leitaðu upplýsinga hjá söluaðilanum um
hvort forsníða þurfi minniskortið fyrir notkun.
Til að forsníða minniskort skaltu velja Valkostir >
Forsníða minniskort. Veldu Já til að staðfesta valið.
Þegar búið er að forsníða kortið skaltu slá inn heiti
fyrir minniskortið og velja Í lagi.
Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að tilteknar
aðgerðir væru hafðar óvirkar eða ekki gerðar virkar í
tækinu. Ef svo er birtast þær ekki í valmynd tækisins.
Tækið þitt gæti líka hafa verið sett upp með sérstökum
stillingum frá þjónustuveitu. Þessi samskipan kann að fela
í sér breytingar á valmyndarheitum, röð valmynda og
táknum. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
• Upplýsingar um hvernig á að nota biðskjáinn til að
Stillingum tækisins breytt
18
opna mest notuðu forritin á fljótlegan hátt er að finna
í ‘Virkur biðskjár’ á bls. 21.
• Upplýsingar um hvernig á
að breyta
bakgrunnsmyndinni eða
mynd skjávarans þegar
orkusparnaður er virkur er
að finna í ‘Útliti tækisins
breytt’ á bls. 20.
• Upplýsingar um hvernig á
að breyta hringitónum
tækisins er að finna í
‘Snið—val tóna’, bls. 19.
• Upplýsingar um hvernig á að breyta flýtivísunum sem
virka þegar stutt er á skruntakkann auk hægri og
vinstri valtakkans í biðstöðu er að finna í ‘Biðhamur’,
á bls. 100. Ekki er hægt að velja flýtivísa skruntakkans
þegar kveikt er á virka biðskjánum.
• Til að breyta útliti klukkunnar sem birtist í biðstöðu
skaltu ýta á og velja Klukka > Valkostir >
Stillingar > Útlit klukku > Með vísum eða Stafræn.
• Til að breyta tóni vekjaraklukkunnar skaltu velja og
Klukka > Valkostir > Stillingar > Tónn viðvörunar og
síðan tóninn.
• Til að breyta tóni dagbókarinnar skaltu ýta á og velja
Dagbók > Valkostir > Stillingar > Viðv.tónn
dagbókar og síðan tóninn.
• Til að breyta opnunarkveðju í texta eða mynd skaltu
ýta á og velja Verkfæri > Stillingar > Sími >
Almennar > Opnun.kv. eða táknm..
• Til að tengja hringitón við tengilið skaltu ýta á og
velja Tengiliðir. Sjá ‘Hringitónum bætt við tengiliði’ á
bls. 34.
• Til að nota ákveðinn takka sem hraðvalstakka fyrir
tengilið skaltu ýta á takkann í biðstöðu ( er
frátekinn fyrir talhólfið) og svo á . Veldu Já og svo
tengiliðinn.
• Til að endurraða aðalvalmyndinni skaltu opna hana og
velja Valkostir > Færa, Færa í möppu eða Ný mappa.
Þú getur fært þau forrit sem þú notar sjaldan í möppur
og sett forrit sem þú notar oft á aðalvalmyndina.
Snið—val tóna
Til að velja og breyta hringitónum, skilaboðatónum og
öðrum tónum skaltu ýta á og velja Verkfæri > Snið.
Ef annað snið en sniðið Almennt er valið sést heitið á
því efst á skjánum í biðstöðu.
Ýttu á í biðstöðu til að velja annað snið. Veldu
sniðið sem þú vilt nota og svo Í lagi.
Til að breyta sniði skaltu ýta á og velja Verkfæri > Snið.
Veldu sniðið og síðan Valkostir > Sérsníða. Veldu
stillinguna sem þú vilt breyta og ýttu á til að opna
valkostina. Tónar sem eru geymdir á minniskortinu eru
táknaðir með . Þú getur flett í gegnum tónalistann og
hlustað á tónana áður en þú velur tón til að nota. Ýttu á
hvaða takka sem er til að slökkva á tóninum.
Ábending! Í lista yfir tóna er hægt að velja Hl. niður
tónum til að opna lista yfir bókamerki. Þú getur valið
bókamerki og tengst við vefsíðu til að hlaða niður
tónum.
Til að búa til nýtt snið skaltu velja Valkostir > Búa til nýtt.
Snið án tengingar
Ótengdur sniðið gerir þér kleift að nota tækið án tengingu
við þráðlausa símkerfið. Þegar þú virkjar sniðið Ótengdur
er slökkt á tengingunni við þráðlausa símkerfið og það
gefið til kynna með í sendistyrksvísinum. Lokað er á
allar þráðlausar sendingar til og frá tækinu. Ef þú reynir að
senda skilaboð er þeim komið fyrir í úthólfinu þaðan sem
þau eru send síðar.
Viðvörun: Í sniði án tengingar er hvorki hægt að
hringja né taka á móti símtölum. Áfram er hægt að
hringja í ákveðin neyðarnúmer en engar aðrar aðgerðir,
þar sem tenging við símkerfið er nauðsynleg, eru
mögulegar. Eigi að hringja verður fyrst að virkja
símaaðgerðina með því að skipta um snið. Ef tækinu
hefur verið læst skal færa inn lykilnúmerið.
Viðvörun: Það verður að vera kveikt á tækinu til
að hægt sé að nota sniðið Ótengdur. Ekki má kveikja
á tækinu þar sem notkun þráðlausra tækja er bönnuð
eða þar sem hún kann að valda truflunum eða hættu.
Til að loka Ótengdur sniðinu skaltu ýta á og velja
annað snið. Þá verða þráðlaus samskipti aftur möguleg (ef
nægur sendistyrkur er fyrir hendi). Ef Bluetooth-tenging er
virk þegar kveikt er á Ótengdur sniðinu er slökkt á henni.
Bluetooth-tengingunni er sjálfkrafa komið á aftur eftir að
slökkt er á sniðinu Ótengdur. Sjá ‘Stillingar Bluetooth’ á
bls. 89.
Hægt er að afrita tengiliði, dagbók, myndir, hreyfimyndir
og hljóðinnskot með Bluetooth-tengingu úr samhæfu
Nokia Series 60 tæki.
Hægt er að nota Nokia N70 án SIM-korts. Kveikt er
sjálfkrafa á sniðinu án tengingar þegar kveikt er á tækinu
án þess að SIM-kort sé í því. Með þessu móti er hægt að
nota SIM-kortið í öðru tæki.
Til að forðast tvöfaldar færslur er aðeins hægt að flytja
Stillingum tækisins breytt
sumar gerðir upplýsinga (líkt og tengiliði) einu sinni úr
öðru tæki í Nokia N70.
Áður en hægt er að hefja flutninginn þarf að kveikja á
Bluetooth-tengingunni í báðum tækjunum. Ýttu á í
hvoru tækinu fyrir sig og veldu Tenging > Bluetooth.
Veldu Bluetooth > Kveikt. Gefðu hvoru tækinu heiti.
Til að flytja efni:
1 Ýttu á og opnaðu Verkfæri > Flutningur í Nokia
N70 tækinu þínu. Fylgdu fyrirmælunum á skjánum.
2 Tækið leitar að tækjum með Bluetooth. Þegar leitinni
er lokið velurðu hitt tækið af listanum.
3 Nokia N70 tækið biður þig að slá inn kóða. Sláðu inn
kóða (1-16 tölustafir að lengd) og veldu Í lagi.
Sláðu inn sama kóða í hitt tækið og veldu Í lagi.
4 Forritið Flutningur er sent í hitt tækið í skilaboðum.
5 Opnaðu skilaboðin til að setja upp Flutningur forritið
í hinu tækinu og fylgdu leiðbeiningunum á skjánum.
6 Í Nokia N70 tækinu þínu skaltu velja efnið sem þú vilt
afrita úr hinu tækinu.
Efni er afritað úr minni og minniskorti hins tækisins í Nokia
N70 tækið og minniskort þess. Afritunartíminn fer eftir því
gagnamagni sem á að flytja á milli tækjanna. Hægt er að
hætta við afritunina og halda henni áfram síðar.
Flutningur forritinu er bætt við aðalvalmyndina í hinu
tækinu.
Útliti tækisins breytt
Til að breyta útliti skjásins, líkt og veggfóðri og táknum
skaltu ýta á og opna Verkfæri > Þemu. Þemað sem er
virkt er táknað með . Í Þemu getur þú hópað saman
atriðum úr öðrum þemum eða valið myndir í Gallerí til að
sérsníða þemu enn frekar. Þemu minniskortsins eru táknuð
með . Ekki er hægt að velja þemun á minniskortinu ef
minniskortið er ekki í tækinu. Ef þú vilt nota þemun sem
eru vistuð á minniskortinu án þess að minniskortið sé í
tækinu skaltu fyrst vista þau í minni þess.
Veldu Hlaða niður þema til að koma á nettengingu og
hlaða niður fleiri þemum.
Til að virkja þema skaltu velja það og síðan Valkostir >
Gera virkt.
Til að forskoða þema skaltu velja það og síðan Valkostir >
Skoða áður.
Þema er breytt með því að velja það og síðan Valkostir >
Breyta. Þá er hægt að breyta eftirfarandi valkostum:
Veggfóður—Myndin sem sést í bakgrunni á skjánum þegar
síminn er í biðstöðu.
Rafhlöðusparnaður—Gerð orkusparnaðar á skjánum: tími
og dagsetning, eða texti sem þú hefur skrifað. Sjá einnig
‘Skjár’ á bls. 100.
Mynd í 'Flýtivali'—Bakgrunnsmyndin fyrir Flýtival forritið.
Til að afturkalla allar breytingar sem þú hefur gert á
þemanu skaltu velja Valkostir > Velja upphafsþema.
Virkur biðskjár
Hægt er að nota biðskjáinn til að opna mest notuðu
forritin í tækinu á fljótlegan hátt. Sjálfgefin stilling er
að það sé kveikt á virka biðskjánum.
Ýttu á , veldu Verkfæri > Stillingar > Sími >
Biðhamur > Virkur biðskjár og ýttu á til að kveikja
eða slökkva á virka biðskjánum.
Í virkum biðskjá birtast
sjálfgefnu forritin efst á
skjánum og þar fyrir neðan
dagbókin, verkefni og
upplýsingar um það sem
verið er að spila hverju sinni.
Veldu forrit eða færslu og
ýttu á .
Ekki er hægt að nota flýtivísa
skruntakkans í biðstöðu
þegar kveikt er á virka
biðskjánum.
Til að breyta sjálfgefnum flýtivísum í forrit:
1 Ýttu á , veldu Verkfæri > Stillingar > Sími >
Biðhamur > Forrit. í virk. biðskjá og ýttu á .
2 Merktu flýtivísi í forrit og veldu Valkostir > Breyta.
3 Veldu nýtt forrit af listanum og ýttu á .
Sumir flýtivísar kunna að vera skilgreindir fyrirfram og þú
getur því ekki breytt þeim.
minnka hljóðstyrkinn meðan á símtali stendur. Þegar
Hringt úr tækinu
22
hljóðstyrkurinn er styrktur á Hljóðnemi af er ekk i h ægt
að stilla hann með skruntakkanum. Þess í stað skaltu
velja Hljóðn. á og ýta á eða .
1 Sláðu inn svæðis- og símanúmerið í biðstöðu.
Ýttu á til að stroka út tölustaf.
Ýttu tvisvar sinnum á til að fá fram + merkið
ef þú vilt hringja til útlanda (kemur í stað alþjóðlega
svæðisnúmersins) og sláðu inn landsnúmerið,
svæðisnúmerið (án 0, ef með þarf) og svo
símanúmerið.
2 Ýttu á til að hringja í númerið.
3 Ýttu á til að leggja á (eða hætta við að hringja).
Símtali er alltaf slitið þegar stutt er á , jafnvel þó
annað forrit sé í gangi.
Til að hringja úr Tengiliðir skaltu ýta á og velja
Tengiliðir. Skrunaðu að nafninu sem þú vilt velja eða
sláðu fyrstu stafi þess inn í leitarreitinn. Listi yfir þá
tengiliði sem passa við það sem þú slærð inn birtist.
Ýttu á til að hringja. Veldu Símtal.
Afrita verður tengiliðina af SIM-kortinu yfir í Tengiliðir
áður en hægt er að hringja með þessum hætti. Sjá
‘Tengiliðir afritaðir’, á bls. 33.
Til að hringja í talhólfið (sérþjónusta) skaltu halda inni
takkanum í biðstöðu. Sjá einnig ‘Flutningur símtals’ á
bls. 107.
Ábending! Til að breyta símanúmeri talhólfsins skaltu
ýta á og velja Verkfæri > Talhólf > Valkostir >
Breyta númeri. Sláðu inn númerið (fáanlegt hjá
þjónustuveitunni) og veldu Í lagi.
Til að hringja úr biðstöðu í númer sem þú hringdir nýlega í
skaltu ýta á til að sjá síðustu 20 símanúmerin sem þú
hringdir í eða reyndir að hringja í. Veldu númerið sem þú
vilt hringja í og ýttu á .
Símafundur
1 Hringdu í fyrsta þátttakandann.
2 Hringdu í annan þátttakanda með því að velja
Valkostir > Ný hringing. Fyrra símtalið er sjálfkrafa
sett í bið.
3 Til að tengja fyrsta þátttakandann við símafundinn
þegar annar þátttakandinn svarar skaltu velja
Valkostir > Símafundur.
Endurtaktu skref 2 ef þú vilt bæta nýjum þátttakanda
við símtalið og veldu Valkostir > Símafundur > Bæta
í símafund. Hægt er að halda símafundi með allt að
sex þátttakendum.
Til að tala einslega við einn þátttakandann skaltu
velja Valkostir > Símafundur > Einkamál. Veldu
þátttakanda og síðan Einkamál. Símafundurinn er
settur í bið í tækinu þínu. Aðrir þátttakendur geta
haldið fundinum áfram. Þegar einkasamtalinu lýkur
skaltu velja Valkostir > Bæta í símafund til að taka
aftur þátt í símafundinum.
Lagt er á þátttakanda með því að velja Valkostir >
Til að tengja símanúmer við einn af hraðvalstökkunum
(—) skaltu ýta á og velja Verkfæri > Hraðval.
Veldu takkann sem þú vilt tengja símanúmerið við og
síðan Valkostir > Á númer. takkinn er frátekinn
fyrir talhólfið.
Hringt er úr biðstöðu með því að ýta á hraðvalstakkann og
síðan á .
Raddstýrð hringing
Tækið þitt styður raddskipanir. Raddskipanir velta ekki
á rödd notandans þannig að hann þarf ekki að taka upp
raddmerki áður en hann notar þær. Þess í stað býr
tækið til raddmerki fyrir færslur í tengiliðum og ber
það raddmerki sem notandinn segir saman við þær.
Raddkennslin í tækinu laga sig að rödd aðalnotandans
til að líklegra sé að tækið beri kennsl á raddskipunina.
Raddmerki fyrir tengilið er nafnið eða gælunafnið sem
er vistað á tengiliðaspjaldinu. Til að hlusta á tilbúna
raddmerkið skaltu opna tengiliðaspjald og velja
Valkostir > Spila raddmerki.
Hringt með raddmerki
Til athugunar: Notkun raddmerkja getur verið erfið
í hávaðasömu umhverfi eða í neyðartilvikum, því ætti
ekki að treysta eingöngu á raddstýrt val við allar
aðstæður.
Þegar þú notar raddstýrða hringingu er hátalarinn í
notkun. Haltu tækinu nálægt þér þegar þú berð fram
raddmerkið.
1 Haltu inni takkanum til að hefja raddstýrða
hringingu. Ef þú notar samhæft höfuðtól með
höfuðtólstakka skaltu halda honum inni til að
hefja raddstýrða hringingu.
2 Stuttur tónn heyrist og textinn Tala nú birtist á
skjánum. Berðu skýrt fram nafnið eða gælunafnið
sem er vistað á tengiliðaspjaldinu.
3 Tækið spilar tilbúið raddmerki fyrir tengiliðinn
á því tungumáli sem er valið og birtir nafnið
og símanúmerið. Tækið hringir í númerið eftir
1,5 sekúndu.
Hringt úr tækinu
Ef tækið valdi rangan tengilið skaltu velja Næsta til að
skoða aðrar niðurstöður í lista eða Hætta til að hætta
við raddstýrða hringingu.
Ef nokkur númer eru vistuð undir nafninu velur tækið
sjálfgefna númerið, hafi það verið tilgreint. Annars velur
tækið fyrsta númerið í eftirfarandi röð: Farsími, Farsími
(heima), Farsími (vinna), Sími, Sími (heima) og Sími
(vinna).
Myndsímtöl
Í myndsímtali getur þú og viðmælandi þinn séð rauntíma
hreyfimynd af hvorum öðrum. Viðtakandi þinn sér þá
hreyfimyndina sem myndavélin þín tekur.
Til að geta hringt myndsímtal þarftu USIM-kort og að vera
innan þjónustusvæðis UMTS-símkerfis. Símafyrirtækið
þitt eða þjónustuveitan þín gefa upplýsingar um framboð
og áskrift að myndsímtölum. Aðeins er hægt að koma á
myndsímtali við einn aðila í einu. Hægt er að koma á
myndsímtali við samhæfan farsíma eða ISDN-tengd tæki.
Ekki er hægt að koma á myndsímtölum þegar annað símtal,
myndsímtal eða gagnasímtal er virkt.
Tákn:
Tækið þitt er ekki að taka við hreyfimynd (annað hvort
sendir viðtakandinn ekki hreyfimyndina eða símkerfið
sendir hana ekki).
Þú hefur hafnað myndsendingu úr tækinu þínu.
Upplýsingar um hvernig á að senda kyrrmynd í stað
hreyfimyndar er að finna í ‘Stillingar fyrir hringingu’,
bls. 100.
1 Til að koma á myndsímtali
skaltu slá inn númerið í
biðstöðu eða velja
Tengiliðir og svo tengilið.
2 Veldu síðan Valkostir >
Hringja > Myndsímtal.
Það getur tekið nokkurn tíma
að koma á myndsímtali. Bíð
eftir mynd birtist. Ef ekki tekst
að koma á tengingu, (t.d. ef
símkerfið styður ekki myndsímtöl eða móttökutækið er
ekki samhæft), er spurt hvort þú viljir hringja venjulegt
símtal eða senda textaskilaboð í staðinn.
Myndsímtal er í gangi þegar þú getur séð tvær
hreyfimyndir og heyrt hljóð úr hátalaranum.
Viðmælandinn getur hafnað myndsendingu ()
og þá heyrir þú aðeins í honum og sérð að auki kyrrmynd
eða gráan bakgrunn.
Til að velja hvað sent er skaltu velja Virkja/Óvirkja >
Hreyfimynd, Hljóð eða Hljóð & hreyfimynd.
Veldu Stækka eða Minnka til að stækka eða minnka
myndina af þér. Stækkunar/minnkunarvísirinn sést efst á
skjánum.
Hægt er að víxla myndunum á skjánum með því að velja
Víxla myndum.
Til athugunar: Jafnvel þó þú hafnir myndsendingu í
myndsímtali er tekið gjald fyrir símtalið sem
myndsímtal. Upplýsingar um verð fást hjá símafyrirtæki
eða þjónustuveitu.
Myndsímtalinu er lokið með því að ýta á .
Samnýting hreyfimynda
Samnýting hreyfimynda (sérþjónusta) valkosturinn
er notaður til að senda rauntíma hreyfimynd eða
myndinnskot úr tækinu í annað farsímatæki meðan á
símtali stendur. Bjóddu einfaldlega viðmælandanum að
skoða hreyfimyndina eða myndinnskotið sem þú vilt deila
með honum. Samnýtingin hefst sjálfkrafa þegar
viðmælandinn samþykkir boðið.
Kveikt er á hátalaranum þegar Samnýting hreyfimynda
er gert virkt. Einnig er hægt að nota höfuðtól til að
halda áfram símtali á sama tíma og verið er að samnýta
hreyfimynd. Þegar símtal er í gangi skaltu velja
Valkostir > Samnýta hreyfim. > Beint eða Innskot.
Veldu Stöðva til að ljúka myndsendingunni, eða lokaðu
myndavélinni. Einnig er slökkt á myndsendingunni þegar
lagt er á.
Forsendur fyrir samnýtingu
hreyfimynda
Þar sem síminn þarf að vera tengdur við þriðju kynslóðar
farsímakerfi (UMTS) til að hægt sé að nota Samnýting
valkosturinn á því hvort slíkt símkerfi sé til staðar.
Upplýsingar um farsímakerfi og gjald fyrir notkun
forritsins fást hjá þjónustuveitunni. Til að nota
Samnýting hreyfimynda þarftu að gera eftirfarandi:
• Gakktu úr skugga um að Samnýting hreyfimynda
sé sett upp í Nokia tækinu þínu.
• Gakktu úr skugga um að tækið þitt sé sett upp fyrir
tengingar á milli einstaklinga. Sjá ‘Stillingar’ á bls. 26.
• Gakktu úr skugga um að þú hafir virka UMTS-tengingu
og sért innan dreifisvæðis UMTS-símkerfis. Sjá
‘Stillingar’ á bls. 26. Ef þú byrjar samnýtinguna meðan
þú ert innan UMTS-farsímakerfis og skipt er yfir í GSM-
farsímakerfi, lýkur samnýtingunni en símtalið heldur
áfram. Ekki er hægt að ræsa Samnýting hreyfimynda
þegar tækið er ekki tengt við UMTS-símkerfi (t.a.m.
þegar það er tengt við GSM-símkerfi).
• Gakktu úr skugga um að bæði sendandinn og
viðtakandinn séu skráðir á UTMS-símkerfið. Ef þú
býður einhverjum í samnýtingu og slökkt er á tæki
Hringt úr tækinu
viðkomandi, það er ekki tengt við UMTS-símkerfi, eða
þá að samnýting eða P2P hefur ekki verið sett upp í því,
veit viðtakandinn ekki að þú sért að senda honum boð.
Þú færð hins vegar villuboð um að viðtakandinn geti
ekki samþykkt boðið.
Stillingar
Stillingar fyrir tengingar á milli einstaklinga
Tenging á milli einstaklinga er einnig þekkt undir
heitinu SIP-tenging (Session Initiation Protocol). SIPsniðstillingar þurfa að hafa verið valdar í tækinu áður en
þú getur notað Samnýting hreyfimynda. Uppsetning SIPsniðs gerir þér kleift að koma á rauntímasambandi við
samhæft tæki. SIP-sniðið verður einnig að geta móttekið
samnýtingu.
SIP-stillingarnar fást hjá símafyrirtækinu eða
þjónustuveitunni. Nauðsynlegt er að vista þær í
tækinu. Símafyrirtækið þitt gæti sent þér stillingarnar í
ljósvakaboðum eða gefið þér upp nauðsynlegar stillingar.
Ef þú veist SIP-vistfang viðtakandans getur þú slegið
það inn á tengiliðaspjald hans. Opnaðu Tengiliðir í
aðalvalmyndinni og síðan tengiliðaspjaldið (eða búðu til
nýtt spjald ef ekkert spjald hefur verið búið til áður). Veldu
Valkostir > Bæta við upplýsing. > Veffang. Sláðu inn SIP-
vistfangið á forminu sip:notandanafn@vistfang (hægt er
að nota IP-tölu í stað vistfangs).
UTMS-tengistillingar
Settu upp UMTS-tenginguna þína á eftirfarandi hátt:
• Hafðu samband við þjónustuveituna þína til að gerast
áskrifandi að UMTS-þjónustunni.
• Gakktu úr skugga um að UMTSaðgangsstaðastillingarnar hafi verið rétt valdar. Frekari
upplýsingar er að finna í ‘Tengistillingar’ á bls. 101.
Samnýting hreyfimynda
Til að geta tekið við myndsendingu verður viðmælandinn
að setja upp Samnýting hreyfimynda og velja réttar
stillingar í tækinu sínu. Bæði þú og viðmælandinn verðið
að skrá ykkur fyrir þjónustunni áður en þið getið byrjað
myndsendinguna.
1 Veldu Valkostir > Samnýta hreyfim. > Beint eða
Innskot.
Ef þú velur Innskot birtist listi með myndinnskotum.
Veldu myndinnskot sem þú vilt samnýta og svo
2 Veldu SIP-vistfang þess sem þú vilt senda boðið til af
tengiliðalistanum.
Ef ekki er hægt að velja SIP-vistfang viðtakanda skaltu
slá það inn.
3 Samnýtingin hefst sjálfkrafa þegar viðmælandinn
samþykkir boðið.
4 Veldu Hlé til að gera hlé á myndsendingunni. Veldu
Áfram til að halda sendingunni áfram. Hægt er að
spóla aftur á bak eða áfram.
5 Veldu Stöðva til að ljúka myndsendingunni, eða lokaðu
myndavélinni. Einnig er slökkt á myndsendingunni
þegar lagt er á.
Boð samþykkt
Þegar þú færð boð um samnýtingu birtist boðið ásamt
nafni eða SIP-vistfangi sendandans. Ef tækið þitt er ekki
stillt á Án hljóðs hringir það þegar þú færð boð.
Ef einhver sendir þér boð um samnýtingu og slökkt er á
tækinu, eða þú ert ekki innan UMTS-þjónustusvæðis,
færðu ekki að vita að þér hafi verið send boð.
Þegar þú færð boð geturðu valið:
Samþykkja—til að hefja myndsendinguna.
Hafna—til að hafna boðinu. Sendandinn fær skilaboð um
að þú hafir hafnað boðinu. Þú getur einnig stutt á Hættatakkann til að hafna samnýtingu og leggja á.
Veldu Stöðva til að ljúka myndsendingunni. Einnig er
slökkt á myndsendingunni þegar lagt er á.
Símtali svarað eða hafnað
Símtali er svarað með því að ýta á .
Til að slökkva á hringitóninum þegar einhver hringir í þig
skaltu velja Hljótt.
Ábending! Ef samhæft höfuðtól er tengt við tækið er
hægt að svara símtali og leggja á með því að ýta á
takka höfuðtólsins.
Ýttu á til að hafna símtali. Sá sem hringir heyrir
þá „á tali“-tón. Ef þú hefur kveikt á Stillingar sím-
talsflutnings > Ef á tali valkostinum er símtal einnig flutt
þegar því er hafnað. Sjá ‘Flutningur símtals’ á bls. 107.
Þegar þú hafnar símtali getur þú einnig sent textaskilaboð
til þess sem hringdi í þig til að láta hann vita hvers vegna
þú gast ekki svarað símtalinu. Veldu Valkostir > Senda
textaboð. Þú getur breytt texta skilaboðanna áður en þú
sendir þau. Sjá einnig Hafna símt. með SMS, bls. 100.
Ef símtali er svarað meðan á myndsímtali stendur er
myndsímtalinu slitið. Símtal í bið er ekki tiltækt í
myndsímtali.
Myndsímtali er svarað með því að ýta á .
Til að hefja myndsendinguna. Viðmælandinn sér þá
Hringt úr tækinu
rauntíma hreyfimynd, upptekið myndinnskot eða myndina
sem myndavélin tekur. Ef þú virkjar ekki myndsímtal er
engin mynd send og þú heyrir hljóð. Grár skjár birtist í
staðinn fyrir hreyfimyndina. Upplýsingar um hvernig á að
skipta gráa skjánum út fyrir kyrrmynd er að finna í
‘Stillingar fyrir hringingu’, Mynd í myndsímtali, á bls. 100.
Til athugunar: Jafnvel þó þú hafnir myndsendingu
í myndsímtali er tekið gjald fyrir símtalið sem
myndsímtal. Upplýsingar um verð fást hjá
símafyrirtæki eða þjónustuveitu.
Myndsímtalinu er lokið með því að ýta á .
Símtal í bið (sérþjónusta)
Hægt er að svara símtali meðan annað símtal er í gangi ef
kveikt er á Símtal í bið (sérþjónusta) í Verkfæri >
Stillingar > Hringing > Símtal í bið.
Ábending! Upplýsingar um hvernig á að breyta
tónum tækisins fyrir mismunandi umhverfi og
aðstæður (t.d. því hvernig er slökkt á öllum hljóðum
þess) er að finna í ‘Snið—val tóna’ á bls. 19.
Ýttu á til að svara símtali í bið. Fyrra símtalið er
sett í bið.
Til að skipta á milli símtalanna tveggja skaltu velja Víxla.
Veldu Valkostir > Færa til að tengja saman innhringingu
eða símtal í bið við virkt símtal og aftengjast sjálf/ur. Ýttu
á til að ljúka virka símtalinu. Til að ljúka báðum
símtölunum velurðu Valkostir > Slíta öllum símtölum.
Valkostir meðan á símtali stendur
Margir þeirra valkosta sem hægt er að nota meðan á
símtali stendur flokkast undir sérþjónustu. Veldu Valkostir
meðan á símtali stendur til að nýta þér einhvern af
eftirfarandi valkostum: Hljóðnemi af eða Hljóðn. á, Svara,
Hafna, Víxla, Í bið eða Úr bið, Virkja símtól, Virkja
hátalara eða Virkja höfuðtól (ef samhæft höfuðtól með
Bluetooth-tengingu er tengt við tækið), Slíta símtali í
gangi eða Slíta öllum símtölum, Ný hringing,
Símafundur og Færa. Veldu úr eftirfarandi:
Skipta um—til að ljúka virku símtali og svara símtali í bið.
Senda MMS (aðeins í UMTS-símkerfum)—Til að senda
mynd eða hreyfimynd í margmiðlunarboðum til annarra
þátttakenda símtalsins. Hægt er að breyta skilaboðunum
og velja aðra viðtakendur áður en þau eru send. Ýttu á
til að senda skrána í samhæft tæki (sérþjónusta).
Senda DTMF-tóna—til að senda DTMF-tónastrengi (líkt og
lykilorð). Sláðu inn DTMF-strenginn eða leitaðu að honum
í Tengiliðir. Til að setja inn biðstafinn (w) eða hléstafinn
(p) skaltu ýta endurtekið á . Veldu Í lagi til að senda
tóninn.
Ábending! Hægt er að bæta DTMF-tónum við reitina
Símanúmer eða DTMF-tónar á tengiliðaspjaldi.
Valkostir meðan á myndsímtali stendur
Veldu Valkostir meðan á myndsímtali stendur til að nota
eftirfarandi valkosti: Í bið eða Óvirkja (hreyfimynd, hljóð
eða bæði), Virkja símtól (ef Bluetooth höfuðtól er tengt
við tækið), Virkja hátalara, eða Virkja höfuðtól (aðeins ef
Bluetooth höfuðtól er tengt við tækið), Slíta símtali í
gangi, Víxla myndum, Stækka/Minnka og Hjálp.
Notkunarskrá
Síðustu símtöl
Til að skoða símanúmer móttekinna, hringdra og ósvaraðra
símtala skaltu ýta á og velja Forrit. mín >
Notkunarskrá > Síðustu símtöl. Númer móttekinna
símtala og símtala sem ekki er svarað eru aðeins skráð ef
símafyrirtækið styður þessar aðgerðir, ef kveikt er á
tækinu og það innan þjónustusvæðis.
Ábending! Þegar þú sérð skilaboð í biðstöðu um að
símtölum hafi ekki verið svarað skaltu velja Sýna til að
opna lista yfir ósvöruð símtöl. Hægt er að hringja í
viðkomandi með því að skruna að nafninu eða
númerinu og ýta á .
Til að hreinsa lista síðustu símtala skaltu velja Valkostir >
Eyða síðustu símt. í aðalskjá nýlegra símtala. Til að
hreinsa eina símtalaskrá skaltu opna skrána og velja
Valkostir > Hreinsa skrá. Til að eyða einstaka færslu
skaltu opna skrána, velja færsluna og ýta á .
Lengd símtala
Til að sjá áætlaða lengd móttekinna og hringdra
símtala þinna skaltu ýta á og velja Forrit. mín >
Notkunarskrá > Lengd símtala.
Til athugunar: Tíminn sem birtist á reikningum
þjónustuveitunnar fyrir símtöl kann að vera breytilegur
eftir eiginleikum símkerfisins, sléttun fjárhæða við
gerð reikninga og öðru slíku.
Til að hreinsa lengdarteljara símtala skaltu velja
Valkostir > Hreinsa teljara. Til þess þarftu
læsingarkóðann. Sjá ‘Öryggi’, ‘Sími og SIM’, bls. 104.
Hægt er að sjá hversu mikið magn gagna hefur verið sent
og móttekið meðan pakkagagnatenging var virk með því
að ýta á og velja Forrit. mín > Notkunarskrá >
Pakkagögn. Gjald fyrir pakkagagnatengingar getur
farið eftir því gagnamagni sem er sent og móttekið.
Hringt úr tækinu
Allir samskiptaatburðir skoðaðir
Tákn í Notkunarskrá:
Inn
Út
Samskiptaatburðir sem mistókust
Til að skoða öll símtöl,
myndsímtöl, textaskilaboð eða
gagnatengingar sem tækið
hefur skráð skaltu ýta á ,
velja Forrit. mín >
Notkunarskrá og ýta hægra
megin á skruntakkann til að
opna almennu
notkunarskrána. Hægt er
að sjá nafn sendanda eða
viðtakanda, símanúmer hans,
heiti þjónustuveitu eða aðgangsstað fyrir hvern
samskiptaatburð. Hægt er að afmarka leit í skránni til
að fá aðeins fram eina tegund samskipta og búa til ný
tengiliðaspjöld út frá upplýsingum í skránni.
Ábending! Hægt er að sjá lengd símtals á
aðalskjánum meðan á því stendur með því að velja
Valkostir > Stillingar > Sýna lengd símtala > Já.
Ábending! Til að skoða lista yfir send skilaboð skaltu
ýta á og velja Skilaboð > Sendir hlutir.
Undiratburðir, líkt og skilaboð sem veru send í fleiri en
einum hluta eða pakkagagnatengingar, eru skráðir sem
einn samskiptaatburður. Tenging við pósthólfið þitt,
skilaboðastöð margmiðlunarskilaboða eða vefsíður eru
sýndar sem pakkagagnatengingar.
Til að sía skrána skaltu velja Valkostir > Sía og svo síu.
Til að eyða innihaldi notkunarskrárinnar, teljurum nýlegra
símtala og skilatilkynningum skilaboða varanlega skaltu
velja Valkostir > Hreinsa notkun.skrá. Veldu Já til að
staðfesta valið.
Til að stilla Skráning varir skaltu velja Valkostir >
Stillingar > Skráning varir. Atburðirnir eru áfram í minni
tækisins í tiltekinn fjölda daga áður en þeim er eytt
sjálfkrafa til að losa um minni. Ef þú velur Engin skráning
er öllu innihaldi notkunarskrárinnar, teljara nýlegra símtala
og skilatilkynningum fyrir skilaboð eytt varanlega.
Til að sjá upplýsingar um samskiptaatburð skaltu velja
hann í aðalnotkunarskránni og ýta á skruntakkann.
símanúmer yfir á klemmuspjaldið og límt það t.d. inn í
skilaboð. Veldu Valkostir > Afrita númer.
Teljari pakkagagna og tímamælir tenginga: Til að sjá
hversu mikið magn gagna, í kílóbætum, er flutt og hversu
lengi pakkagagnatenging var virk, skaltu velja einhvern
viðburð, gefinn til kynna með Pakka og velja Valkostir >
Ýttu á og veldu Tengiliðir. Í Tengiliðir er hægt að
tengja hringitóna eða smámynd við tengiliðarspjald.
Einnig er hægt að búa til tengiliðahópa og þannig sent
textaskilaboð eða tölvupóst til margra viðtakenda
samtímis. Hægt er að bæta mótteknum
tengiliðaupplýsingum (nafnspjöldum) við tengiliði. Sjá
‘Gögn og stillingar’, á bls. 60. Aðeins er hægt að senda
Tengiliðir (Símaskrá)
upplýsingar um tengiliði á milli samhæfra tækja.
Ábending! Taktu reglulega afrit af upplýsingunum í
tækinu og settu það á minniskortið. Þá getur þú fært
upplýsingarnar, líkt og tengiliði, aftur í tækið síðar. Sjá
‘Verkfæri fyrir minniskort’, á bls. 16. Þú getur einnig
notað Nokia PC Suite til að taka öryggisafrit af
tengiliðunum þínum og vista það á tölvu. Sjá
geisladiskinn sem fylgir með tækinu.
Vistun nafna og númera
1 Veldu Valkostir > Nýr tengiliður.
2 Fylltu út þá reiti sem þú vilt og veldu Lokið.
Ábending! Ef þú notar samnýtingu hreyfimynda
(sérþjónusta) með tengilið skaltu vista SIP-vistfang
(Session Initiation Protocol) hans í reitinn Veffang
á tengiliðaspjaldinu. Sláðu inn SIP-vistfangið á
forminu sip:notandanafn@vistfang (hægt er að
nota IP-tölu í stað vistfangs).
Til að breyta tengiliðaspjöldum í Tengiliðir skaltu velja
spjaldið sem þú vilt breyta og síðan Valkostir > Breyta.
Til að eyða tengiliðaspjaldi í Tengiliðir skaltu velja spjaldið
og ýta á . Til að eyða nokkrum tengiliðaspjöldum á sama
tíma skaltu ýta á og til að merkja spjöldin og svo
á til að eyða þeim.
Ábending! Notaðu Nokia Contacts Editor sem er í
Nokia PC Suite til að bæta við og breyta
tengiliðaspjöldum. Sjá geisladiskinn sem fylgir með
tækinu.
Til að bæta smámynd við tengiliðaspjald skaltu opna
spjaldið og velja Valkostir > Breyta > Valkostir > Bæta
við smámynd. Smámyndin birtist þegar tengiliðurinn
hringir í þig.
Ábending! Til að senda tengiliðaupplýsingar skaltu
velja spjaldið sem þú vilt senda. Veldu Valkostir >
Senda > Sem SMS, Með margmiðlun eða Með
Bluetooth. Sjá ‘Skilaboð’, bls. 54 og ‘Gögn send um
Bluetooth’, bls. 89.
Sjálfgefin númer og tölvupóstföng
Hægt er að stilla (velja) númer eða tölvupóstföng á
tengiliðaspjaldi sem sjálfgefin. Ef tengiliður er með mörg
númer eða tölvupóstföng er þannig auðveldlega hægt að
hringja í ákveðið númer hans eða senda skilaboð á tiltekið
tölvupóstfang. Sjálfgefna númerið er einnig notað í
raddstýrðri hringingu.
1 Veldu tengilið í valmyndinni Tengiliðir og ýttu á .
2 Veldu Valkostir > Sjálfvalin.
3 Veldu sjálfgefinn reit þar sem þú vilt bæta við númeri
eða tölvupóstfangi Á númer.
4 Veldu númerið eða tölvupóstfangið sem þú vilt nota
sem sjálfgefið.
Sjálfgefnu upplýsingarnar eru undirstrikaðar á
tengiliðaspjaldinu.
Tengiliðir afritaðir
Ef símanúmer eru vistuð á SIM-kortinu skaltu afrita þau
yfir í Tengiliðir. Færslur sem eru aðeins vistaðar á SIMkortinu birtast ekki í tengiliðaskránni. Ef viðkomandi
hringir getur tækið því ekki birt upplýsingarnar á SIMkortinu.
Þegar nýtt SIM-kort er sett í tækið og valmyndin
Tengiliðir er opnuð í fyrsta skiptið, spyr tækið hvort afrita
eigi tengiliðaupplýsingarnar á SIM-kortinu yfir í minni
tækisins. Veldu Já til að afrita færslurnar yfir í
tengiliðaskrána.
Til að afrita sum þeirra nafna og númera sem eru á SIMkorti yfir í tækið skaltu ýta á og velja Tengiliðir >
Valkostir > SIM-tengiliðir > SIM-skrá. Veldu fyrst nöfnin
sem þú vilt afrita og síðan Valkostir > Afrita í Tengiliði.
Til að afrita tengiliði yfir á SIM-kortið skaltu ýta á og
velja Tengiliðir. Veldu nöfnin sem þú vilt afrita og síðan
Valkostir > Afrita í SIM-skrá eða Valkostir > Afrita >
ÁSIM-skrá. Aðeins þeir reitir á tengiliðaspjaldinu sem
SIM-kortið þitt styður eru afritaðir.
Ábending! Þú getur samstillt tengiliðina þína við
samhæfa tölvu með Nokia PC Suite. Sjá geisladiskinn
sem fylgir með tækinu.
SIM-skrá og önnur SIM-þjónusta.
Upplýsingar um framboð og notkun SIM-korta má fá hjá
seljanda SIM-kortsins. Þetta getur verið þjónustuveitan,
símafyrirtækið eða annar söluaðili.
tengiliðir > SIM-skrá til að sjá nöfnin og númerin sem
eru vistuð á SIM-kortinu. Í SIM-skránni getur þú bætt
númerum við tengiliði, breytt þeim, afritað og hringt í þau.
Til að skoða listann yfir númer í föstu númeravali skaltu
velja Valkostir > SIM-tengiliðir > Í föstu númeravali.
Aðeins er hægt að velja þessa stillingu ef SIM-kortið
styður hana.
Til að takmarka símtöl úr tækinu við ákveðin símanúmer
Tengiliðir (Símaskrá)
skaltu velja Valkostir > Virkja fast nr.val. Til að bæta
nýjum númerum við númer í föstu númeravali skaltu velja
Valkostir > Nýr SIM-tengiliður. Nauðsynlegt er að hafa
PIN2-númerið til að geta valið þennan valkost.
Þegar þú notar Fast númeraval geturðu ekki komið á
pakkagagnatengingum nema til að senda textaskilaboð.
Í því tilviki þarf númer skilaboðamiðstöðvarinnar og
númer viðtakandans að vera á lista fasts númeravals.
Þegar fast númeraval er virkt getur samt verið hægt að
hringja í opinbera neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.
Hringitónum bætt við tengiliði
Þegar tengiliður eða hópmeðlimur hringir í þig spilar
tækið hringitóninn sem hefur verið valinn (ef tækið ber
kennsl á símanúmerið sem er sent með hringingunni).
1 Ýttu á til að opna tengiliðaspjald eða opnaðu
hóplistann og veldu tengiliðahóp.
2 Veldu Valkostir > Hringitónn. Þá opnast listi yfir
hringitóna.
3 Veldu hringitóninn sem þú vilt nota fyrir tengiliðinn
eða hópinn.
Til að hætta að nota hringitóninn skaltu velja Sjálfvalinn
tónn af hringitónalistanum.
Tengiliðahópar búnir til
1 Í Tengiliðir skaltu ýta á til að opna hópalistann.
2 Veldu Valkostir > Nýr hópur.
3 Sláðu inn heiti fyrir hópinn eða notaðu sjálfgefna heitið
Hópur ... og veldu Í lagi.
4 Opnaðu hópinn og veldu Valkostir > Bæta
félögum við.
5 Veldu tengilið og ýttu á til að merkja hann. Til að
bæta við mörgum meðlimum á sama tíma skaltu
endurtaka þetta fyrir alla tengiliðina sem þú vilt bæta
við hópinn.
6 Veldu Í lagi til að bæta tengiliðunum við hópinn.
Hægt er að breyta heiti hóps með því að velja Valkostir >
Endurskíra, slá inn nýja nafnið og velja svo Í lagi.
Nokia N70 tækið hefur tvær myndavélar, myndavél með
hárri upplausn aftan á tækinu, og myndavél með minni
upplausn framan á því. Hægt er að nota báðar
Myndavél og Gallerí
myndavélarnar til að taka kyrrmyndir og hreyfimyndir.
Til að kveikja á myndavélinni á bakhlið tækisins skaltu
renna linsulokinu á bakhlið þess. Tækið ræsir forritið
Myndavél þegar kveikt er á myndavélinni og myndin
sem hægt er að taka birtist á skjánum. Til að nota
myndavélina á framhlið tækisins skaltu velja Valkostir >
Fremri myndavél.
Í Myndavél geturðu tekið myndir og tekið upp
hreyfimyndir. Skipt er á milli kyrrmyndar og
hreyfimyndar með því að velja Valkostir >
Myndataka eða Hreyfimyndataka.
Myndir og myndinnskot vistast sjálfkrafa í Gallerí.
Myndavélin tekur myndir á .jpeg sniði og myndinnskot
á .3gpp sniði með endingunni .3gp (með Venjuleg og
Samnýting gæðastillingum), eða á .mp4 sniði (með
Há gæðastillingunni). Sjá ‘Stillingar fyrir hreyfimyndir’
margmiðlunarskilaboðum, sem viðhengi í tölvupósti eða
með Bluetooth-tengingu.
Ábending! Hægt er að bæta myndum við
tengiliðaspjöld. Sjá ‘Vistun nafna og númera’ á bls. 32.
Nokia N70 tækið styður allt að 1600 x 1200 punkta
myndupplausn með myndavélinni á bakhlið þess.
Myndupplausnin í þessum efnum getur virst önnur.
Myndataka
Til að stilla lýsingu og liti áður en þú tekur mynd skaltu
velja Valkostir > Uppsetning mynda > Umhverfi, Flass,
Ljósgjafi eða Litáferð. Sjá ‘Stilling lita og lýsingar’, bls. 39
og ‘Umhverfi’, bls. 39.
Ábending! Hægt er að ýta á takkann eða
nota myndatökutakkann á hlið tækisins til að
taka kyrrmyndir.
Myndavélarvísar sýna eftirfarandi:
• Vísar (1) fyrir minni tækisins ( ) og minniskortið ( )
sýna hvar myndir eru vistaðar.
• Myndavísirinn (2) sýnir áætlaðan fjölda mynda sem
hægt er að vista í minni tækisins eða á minniskorti.
Fjöldinn fer eftir myndgæðunum.
• Umhverfisvísirinn (3) sýnir virka umhverfisstillingu. Sjá
‘Umhverfi’ á bls. 39.
• Flassvísirinn (4) sýnir hvort
flassið er stillt á Sjálfvirkt
(), Þvingað () eða
Óvirkt ().
• Vísirinn fyrir myndaröð (6)
birtist þegar stillt er á
myndaröð. Sjá ‘Nokkrar
myndir teknar í röð’ á
bls. 37.
• Vísirinn fyrir sjálfvirka
myndatöku (7) birtist
þegar kveikt er á sjálfvirku myndatökunni. Sjá ‘Þú ert
með á myndinni—Sjálfvirk myndataka’ á bls. 38.
Ef stillingum fyrir súmm, lýsingu eða liti er breytt getur
það tekið lengri tíma að vista myndir.
Hafðu eftirfarandi í huga þegar þú tekur mynd:
• Mælt er með því að báðar hendur sé notaðar til
að halda myndavélinni kyrri.
• Þegar myndir eða hreyfimyndir eru teknar ættu
stillingarnar að hæfa umhverfinu. Sjá ‘Umhverfi’
á bls. 39.
• Myndgæðin minnka þegar súmmið er notað.
• Myndavélin fer í orkusparnaðarstöðu ef ekki er ýtt á
neinn takka innan einnar mínútu. Ýtt er á takkann
til að halda áfram að taka myndir.
Hafðu eftirfarandi í huga þegar búið er að taka myndina:
• Ýtt er á til að vista ekki myndina.
• Til að senda myndina Með margmiðlun, Með
tölvupósti eða Með Bluetooth skaltu ýta á .
Nánari upplýsingar er að finna í ‘Skilaboð’ á bls. 54
og ‘Bluetooth-tengingar’ bls. 88. Ekki er hægt að
velja þennan valkost meðan á símtali stendur.
•Veldu Valkostir > Senda til viðmæl. til að senda
mynd til viðmælanda meðan á símtali stendur.
•Veldu Valkostir > Breyta til að breyta mynd.
Sjá ‘Myndum breytt’ á bls. 40.
•Veldu Valkostir > Prenta til að prenta mynd.
Sjá ‘Prentun mynda’ á bls. 48.
Nokkrar myndir teknar í röð
Ttil að láta myndavélina taka nokkrar myndir í röð þegar
ýtt er einu sinni á eða myndavélartakkann skaltu velja
Valkostir > Myndaröð. Ef takkanum eða
myndatökutakkanum er haldið inni tekur myndavélin
myndir þar til takkanum er sleppt. Það hversu margar
myndir er hægt að taka veltur á því hversu mikið minni
er laust.
Þú getur einnig tekið nokkrar myndir í röð með Sjálfvirk
myndataka. Sjá ‘Þú ert með á myndinni—Sjálfvirk
myndataka’ á bls. 38. Ef kveikt er á sjálfvirkri myndatöku
er að hámarki hægt að taka sex myndir í röð.
Notaðu sjálfvirka myndatöku til að seinka myndatökunni
svo þú getir verið með á myndinni. Til að stilla biðtíma
sjálfvirkrar myndatöku skaltu velja Valkostir > Sjálfvirk
myndataka > 10 sekúndur, 20 sekúndur eða 30
sekúndur. Kveikt er á sjálfvirkri tímatöku með því að velja
Kveikja. Vísirinn fyrir sjálfvirka myndatöku () blikkar
Myndavél og Gallerí
og tækið gefur frá sér hljóðmerki meðan tíminn líður.
Myndavélin tekur myndina eftir að tíminn er liðinn. Einnig
er hægt að nota myndaröðina þegar kveikt er á Sjálfvirk
myndataka. Sjá ‘Nokkrar myndir teknar í röð’ á bls. 37.
Flassið
Halda skal öruggri fjarlægð þegar flassið er notað. Ekki má
nota flassið á fólk eða dýr sem eru mjög nálægt. Ekki má
hylja flassið þegar mynd er tekin.
Myndavélin notar ljósdíóðuflass þegar lýsingin er lítil.
Hægt er að velja eftirfarandi stillingar fyrir flassið:
Sjálfvirkt (), Þvingað () og Óvirkt ().
Veldu Valkostir > Uppsetning mynda > Flass > Þvingað
til að nota flassið.
Ef flassið er stillt á Óvirkt eða Sjálfvirkt þegar
birtuskilyrðin eru góð gefur það samt frá sér veikt ljós
þegar mynd er tekin. Þannig veit sá sem verið er að taka
mynd af hvenær myndin er tekin. Flassið hefur engin áhrif
á myndina sem er tekin.
Stillingar fyrir kyrrmyndir
Hægt er að velja á milli tveggja stillinga fyrir kyrrmyndir:
Uppsetning mynda stillingar og aðalstillingar. Upplýsingar
um hvernig á að breyta Uppsetning mynda stillingum er
að finna í ‘Stilling lita og lýsingar’, á bls. 39. Stillingar á
uppsetningu breytast aftur yfir í sjálfvaldar stillingar þegar
myndavélinni er lokað, en aðalstillingarnar eru þær sömu
þar til þeim er breytt aftur. Til að breyta aðalstillingunum
skaltu velja Valkostir > Stillingar og svo úr eftirfarandi:
Myndgæði—Há - Prentun, Miðlungs - Póstur eða Lág MMS. Því meiri sem gæðin eru, þeim mun meira minni
tekur myndin. Myndgæðin minnka þegar súmmið er notað.
Veldu Há - Prentun ef þú vilt prenta myndina (upplausnin
er 1600x1200). Veldu Miðlungs - Póstur ef þú ætlar að
senda myndina í tölvupósti (upplausnin er 1280x960).
Veldu Lág - MMS til að senda myndina í MMS (upplausnin
er 640x480).
Útskýring: Upplausn er mæling á skerpu og skýrleika
myndar. Upplausn vísar til fjölda punkta (pixla) myndar.
Því fleiri sem punktarnir eru, því meiri eru gæðin og því
meira minni tekur myndin.
Setja inn í albúm—Þú getur valið hvort þú vilt vista
myndina í ákveðið albúm í galleríinu. Ef þú velur Já birtist
listi yfir albúmin sem hægt er að velja.
Sýna tekna mynd—Veldu Já ef þú vilt birta mynd eftir að
hún er tekin, eða Nei ef þú vilt halda áfram að taka myndir
án þess að birta þær myndir sem þú tekur.
Minni í notkun—Veldu hvar myndir eru vistaðar.
Stilling lita og lýsingar
Til að gera myndavélinni kleift að greina betur liti og
lýsingu, eða til að bæta inn sjónrænum áhrifum í myndir
eða hreyfimyndir, skaltu velja Valkostir > Uppsetning
mynda eða Uppsetning hreyfim. og síðan einhvern af
eftirfarandi valkostum:
Umhverfi—veldu stillingu sem hentar fyrir umhverfið/
aðstæðurnar. Sjá ‘Umhverfi’ á bls. 39. Fyrir hvert umhverfi
eru ákveðnar stillingar á lýsingu sem að hæfa því.
Flass (eingöngu myndir og myndavélin á bakhlið
tækisins)—Stilltu flassið á Sjálfvirkt, Þvingað eða Óvirkt.
Sjá ‘Flassið’ á bls. 38.
Ljósgjafi (aðeins myndavélin á bakhlið tækisins)—Veldu
birtuskilyrðin af listanum. Þetta gerir myndavélinni kleift
að endurskapa liti af meiri nákvæmni.
Litáferð (aðeins myndavélin á bakhlið tækisins)—Veldu
áferðina af listanum.
Skjárinn breytist eftir því hvaða stillingar eru valdar
og sýnir hvernig lokaútkoma myndarinnar eða
hreyfimyndarinnar verður.
Þegar myndavélinni er lokað eru sjálfgefnar stillingar
hennar valdar aftur. Ef ný umhverfisstilling er valin kemur
hún í stað sjálfvöldu stillinganna. Sjá ‘Umhverfi’ á bls. 39.
Ef þú þarft að breyta stillingunum getur þú gert það eftir
að umhverfisstillingin hefur verið valin.
Umhverfi
Umhverfisstillingar hjálpa þér við að finna réttu
stillingarnar fyrir liti og lýsingu. Veldu umhverfisstillingu
af listanum fyrir myndir eða hreyfimyndir. Stillingarnar
fyrir hvert umhverfi hafa verið valdar eftir umhverfinu þar
sem myndirnar eru teknar. Veldu Valkostir > Uppsetning
mynda/Uppsetning hreyfim. > Umhverfi:
Umhverfisstillingar fyrir hreyfimyndir
Venjulegt ()(sjálfvalið)—Notaðu þessa stillingu við öll
skilyrði.
Nótt ()—Notaðu þessa stillingu þegar birtan er lítil.
Umhverfisstillingar fyrir myndir
Sjálfvirkt () (sjálfvalið)—Notaðu þessa stillingu við öll
Notandi skilgr. ()—Notaðu þennan valkost til að búa
til þína eigin umhverfisstillingu með flassi, ljósgjafa og
litum.
Andlitsmynd ()—Notaðu þessa stillingu til að taka
andlitsmyndir.
Landslag ()—Notaðu þessa stillingu til að taka myndir
af hlutum sem eru langt í burtu.
Nótt ()—Notaðu þessa stillingu þegar birtan er lítil.
Myndavél og Gallerí
Íþróttir ()—Notaðu þessa stillingu til að taka myndir
af hlutum sem eru á mikilli hreyfingu. Þegar þessi stilling
er notuð er upplausn myndarinnar minnkuð úr 1600x1200
í 800x600. Sjá Myndgæði á bls. 38.
Þegar myndir eru teknar er stillingin Sjálfvirkt sjálfkrafa
valin. Ef þú velur Notandi skilgr. er hún gerð að
sjálfvalinni stillingu.
Til að búa til þína eigin stillingu skaltu velja Notandi
skilgr.. Með þessari stillingu getur þú stillt Byggt á
umhverfi, Flass, Ljósgjafi, Litáferð og Núllstilla
umhverfi options. Til að afrita stillingar úr öðru umhverfi
skaltu velja Byggt á umhverfi og þá umhverfið.
Myndum breytt
Til að breyta myndum eftir að þær eru teknar eða þeim
sem þegar hafa verið vistaðar í Gallerí, skaltu velja
Valkostir > Breyta.
Veldu Nota áhrif til að klippa myndina og snúa henni, laga
birtustigið, litinn, birtuskilin, þjöppun og upplausn; og
bæta sjónrænum áhrifum, texta, skreytingum eða ramma
við myndina.
Veldu Valkostir > Nota áhrif > Skurður til að klippa
myndina. Kross birtist efst í hægra horni myndarinnar.
Veldu svæðið sem þú vilt klippa með því að færa
skruntakkann og veldu Festa. Annar kross birtist neðst í
vinstra horninu. Veldu Skurður. Þau svæði sem eru valin
mynda ferhyrning utan um þá mynd sem kemur út úr
klippingunni.
Veldu Valkostir > Nota áhrif > Klippimynd til að bæta
skreytingum við myndina. Veldu hlutinn sem þú vilt bæta
inn á myndina af listanum og ýttu á . Til að færa, snúa
og breyta stærð hlutarins skaltu velja Valkostir > Færa,
Breyta stærð eða Snúa.
Veldu Valkostir > Nota áhrif > Texti til að bæta texta inn
á myndina. Sláðu inn textann og veldu Í lagi. Veldu
Valkostir > Færa, Breyta stærð, Snúa eða Velja lit til að
breyta textanum
Flýtivísar í myndvinnslu:
• Hægt er að skoða myndir á öllum skjánum með því að
ýta á . Til að fara aftur í venjulegan skjá er ýtt aftur
á .
Skipt er á milli kyrrmyndar og hreyfimyndar með því að
velja Valkostir > Myndataka eða Hreyfimyndataka.
Opnaðu Hreyfimyndataka.
Til að stilla lýsinguna og liti áður en þú tekur mynd skaltu
veljaValkostir > Uppsetning hreyfim. > Umhverfi,
Ljósgjafi eða Litáferð. Sjá ‘Stilling lita og lýsingar’ á
bls. 39.
Opnaðu Valkostir > Uppsetning hreyfim. > Umhverfi til
að velja stillingu fyrir umhverfið. Sjá ‘Umhverfi’ á bls. 39.
1 Ýttu á til að hefja upptöku. Þá birtist
upptökutáknið. Ljósdíóðuflassið logar og tónn heyrist
sem gefur til að kynna að verið sé að taka upp
hreyfimynd. Flassið hefur engin áhrif á hreyfimyndina
sem er tekin.
2 Hægt er að gera hlé á upptökunni hvenær sem er með
því að ýta á Hlé. Biðtáknið () blikkar á skjánum.
Upptakan stöðvast sjálfkrafa ef gert hefur verið hlé á
henni og ekki er stutt á neinn takka í eina mínútu.
3 Veldu Áfram til að halda upptökunni áfram.
4 Veldu Stöðva til að stöðva upptökuna. Myndinnskotið
er sjálfkrafa vistað í Myndir & hreyfimyndir möppunni
í Gallerí. Sjá ‘Gallerí’ á bls. 45.
Vísar myndupptöku sýna eftirfarandi:
• Vísar fyrir minni tækisins
( ) og minniskortsins
( ) (1) sýna hvar
hreyfimyndin er vistuð.
• Lengdarvísir (2) sýnir
tímann sem er liðinn og
tímann sem er eftir.
• Umhverfisvísirinn (3)
sýnir virka
umhverfisstillingu. Sjá
‘Umhverfi’ á bls. 39.
• Vísir hljóðnemans (4)
sýnir að slökkt er á hljóðnemanum.
• Vísirinn fyrir næturstillingu (5) sýnir að kveikt sé á
næturstillingunni.
Eftir að myndinnskot hefur verið tekið upp:
• Til að spila myndinnskotið um leið og það hefur
verið tekið upp skaltu velja Valkostir > Spila.
• Ýtt er á til að vista ekki hreyfimynd.
• Styddu á til að fara aftur í myndgluggann og
taka upp nýja hreyfimynd.
• Til að senda myndina Með margmiðlun, Með
tölvupósti eða Með Bluetooth skaltu ýta á .
Nánari upplýsingar er að finna í ‘Skilaboð’ á bls. 54
og ‘Bluetooth-tengingar’ bls. 88. Ekki er hægt að velja
þennan valkost meðan á símtali stendur.
myndinnskot til viðmælanda meðan á símtali stendur.
•Veldu Valkostir > Breyta til að breyta
myndinnskotinu. Sjá ‘Myndinnskotum breytt’ á bls. 42.
Stillingar fyrir hreyfimyndir
Í myndupptöku er hægt að velja á milli tveggja stillinga:
Uppsetning hreyfim. stillingar og aðalstillingar.
Upplýsingar um hvernig á að breyta Uppsetning hreyfim.
stillingum er að finna í ‘Stilling lita og lýsingar’, á bls. 39.
Myndavél og Gallerí
Stillingar á uppsetningu breytast aftur yfir í sjálfvaldar
stillingar þegar myndavélinni er lokað, en aðalstillingarnar
eru þær sömu þar til þeim er breytt aftur. Til að breyta
aðalstillingunum skaltu velja Valkostir > Stillingar og svo
úr eftirfarandi:
Hljóðupptaka—Veldu Virkt ef þú vilt bæði taka upp hljóð
og mynd.
Gæði hreyfimynda—Stilltu gæði myndinnskotsins á Há,
Venjuleg eða Samnýting. Ef þú velur Há eða Venjuleg
takmarkast lengd myndupptökunnar af geymsluplássinu á
minniskortinu, eða allt að einni klst. fyrir hvert
myndinnskot. Ef þú vilt skoða hreyfimyndina í sjónvarpi
eða í tölvu skaltu velja Há myndgæði, með CIF upplausn
(352x288) og á .mp4-sniði.
Ekki er hægt að senda myndinnskot sem eru vistuð á
.mp4-sniði í margmiðlunarskilaboðum. Ef þú vilt skoða
myndinnskotið í farsíma skaltu velja Venjuleg, með QCIF-
upplausn (176x144) og á .3gpp-sniði. Til að senda
myndinnskotið í MMS eða með samnýtingu skaltu velja
Samnýting (QCIF-upplausn, .3gpp-skráarsnið). Sjá
‘Samnýting hreyfimynda’ á bls. 25.
Venjuleg myndinnskot getur að hámarki verið 300 KB að
stærð (u.þ.b. 20 sekúndur að lengd) til að hægt sé að senda
það í margmiðlunarskilaboðum í samhæf tæki. Sum
símkerfi kunna þó einungis að styðja sendingu
margmiðlunarskilaboða sem eru að hámarki 100 kB.
Þjónustuveitan eða símafyrirtækið gefur nánari
upplýsingar.
Setja inn í albúm—Veldu hvort þú vilt vista myndinnskotið
í ákveðnu albúmi í Gallerí. Veldu Já til að opna lista yfir
albúmin sem standa til boða.
Sýna uppt. hreyfim.—Veldu hvort þú vilt að
myndinnskotið sé spilað sjálfkrafa að upptöku lokinni.
Minni í notkun —Veldu sjálfgefið geymsluminni: minni
símans eða minniskort.
Myndinnskotum breytt
Hægt er að breyta myndinnskotum í Gallerí.
Til að breyta myndinnskotum og búa til sérsniðin
myndinnskot skaltu velja myndinnskot og síðan
Valkostir > Breyta. Hægt er að búa til sérsniðin
myndinnskot með því að sameina og klippa til myndinnskot
og bæta við hljóðinnskotum, umbreytingu og áhrifum.
Umbreyting felst í sjónrænum áhrifum sem hægt er að
bæta við í upphafi og við lok innskotsins eða á milli
myndinnskota.
Í myndvinnslunni sjást tvær tímalínur: tímalína
myndinnskotsins og tímalína hljóðinnskotsins. Ef þú bætir
myndum, texta eða umbreytingum við myndinnskot sjást
þessi atriði á tímalínu myndinnskotsins. Til að færast til á
tímalínunum er skrunað til hægri eða vinstri. Til að skipta
á milli tímalína er skrunað upp eða niður.
Hreyfimynd, hljóði, mynd, texta og
umbreytingum breytt
Til að búa til sérsniðin myndinnskot skaltu velja eitt eða
fleiri innskot og svo Valkostir > Breyta.
Ýttu á og til að skipta á milli mynd- og
hljóðinnskotsins.
Veldu eftirfarandi valkosti til að breyta hreyfimyndinni:
Br. myndinnskoti:
Klippa—Klippir myndinnskotið á þar til gerðum skjá.
Bæta við litaáhrifum—Setur litaáhrif inn í myndinnskotið.
Nota hægspilun—Hægir á spilun myndinnskotsins.
Taka hljóð af/Setja hljóð á—Tekur hljóðið af
myndinnskotinu eða setur það á.
Færa—Færir myndinnskotið á valinn stað.
Fjarlægja—Fjarlægir myndinnskotið úr hreyfimyndinni.
Búa til afrit—Tekur afrit af valda myndinnskotinu.
Breyta texta (kemur aðeins fram ef texta hefur verið bætt
við)—Til að færa, fjarlægja eða afrita texta; breyta lit eða
lögun textans; ákvarða hversu lengi hann á að vera á
skjánum og bæta áhrifum við hann.
Breyta mynd (kemur aðeins fram ef mynd hefur verið
bætt við innskotið)—Til að færa, fjarlægja eða afrita
myndina; ákvarða hversu lengi hún á að vera á skjánum
og stilla bakgrunn eða litaáhrif.
Breyta hljóðinnskoti:
Klippa—Klippir hljóðinnskotið á þar til gerðum skjá.
Færa—Færir hljóðinnskotið á valin stað.
Fjarlægja—Fjarlægir hljóðinnskotið úr hreyfimyndinni.
Búa til afrit—Tekur afrit af því hljóðinnskoti sem er valið.
Velja lengd—Breytir lengd hljóðinnskotsins.
þrjár gerðir umbreytinga
er að ræða: í upphafi
hreyfimyndar, við lok hennar
og á milli myndinnskota.
Hægt er að velja
upphafsbreytingu þegar
fyrsta umbreyting
hreyfimyndarinnar er virk.
Myndavél og Gallerí
Setja inn :
Myndinnskot—Setur inn
valið myndinnskot. Á aðalskjánum birtist smámynd af
myndinnskotinu. Smámynd samanstendur af fyrsta
ramma myndinnskotsins sem ekki er svartur. Heiti
og lengd valda myndinnskotsins sjást einnig.
Mynd—Bætir við valinni mynd. Á aðalskjánum birtist
smámynd af myndinni.
Texta—Setur texta inn í myndinnskotið. Þú getur sett inn
titil, texta og lista yfir þá sem unnu að gerð myndarinnar.
Hljóðinnskot—Setur inn valið hljóðinnskot. Heiti og lengd
valda hljóðinnskotsins sést á aðalskjánum.
Nýtt hljóðinnskot—Tekur upp nýtt hljóðinnskot og vistar
það á völdum stað.
Kvikmynd—Til að skoða kvikmyndina í fullri skjástærð eða
sem smámynd, vista hana eða senda, eða klippa hana
niður í þá stærð sem gerir það kleift að senda hana í
margmiðlunarskilaboðum.
Ábending! Til að taka einn ramma út úr myndinni
skaltu velja Valkostir > Taka skjámynd í
forskoðunarskjá fyrir smámyndir eða á skjánum fyrir
klippingu hreyfimynda.
Til að vista hreyfimyndina skaltu velja Valkostir >
Kvikmynd > Vista. Til að velja Minni í notkun skaltu opna
Valkostir > Stillingar. Minni tækisins er sjálfkrafa valið.
Ábending! Í skjánum Stillingar er hægt að velja Sj.g.
nafn myndinnsk., Sjálfgefið heiti, Upplausn og Minni
í notkun.
Veldu Senda > Með margmiðlun, Með tölvupósti eða
Með Bluetooth ef þú vilt senda hreyfimyndina. Hafðu
samband við þjónustuveituna eða símafyrirtækið til að fá
upplýsingar um það hversu stór skilaboð er hægt að senda.
Ef hreyfimyndin er of stór til að hægt sé að senda hana í
margmiðlunarskilaboðum birtist táknið.
Ábending! Ef þú vilt senda myndinnskot sem er yfir
þeirri hámarksstærð sem þjónustuveitan þín leyfir geturðu
sent það með Bluetooth. Sjá ‘Gögn send um Bluetooth’ á
bls. 89. Þú getur einnig flutt hreyfimyndirnar þínar
þráðlaust með Bluetooth yfir í tölvu, eða með því að nota
minniskortalesara (aukahlutur).
Til að geyma og vinna með myndir, myndinnskot,
hljóðinnskot, lagalista og straumspilunartengla skaltu ýta
á og velja Gallerí. Til að opna galleríið í forritinu
Myndavél skaltu velja Valkostir > Opna Gallerí.
Í Myndavél er aðeins hægt að velja Myndir &
hreyfimyndir möppuna.
Ábending! Til að skipta
úr Gallerí yfir í
myndavélina skaltu velja
Myndavél úr Myndir &
hreyfimyndir möppunni.
Veldu Myndir &
hreyfimyndir , Lög ,
Hljóðinnskot , Tenglar
, eða Allar skrár , og
ýttu á til að opna það.
Þú getur skoðað og opnað
möppur, sem og merkt hluti, afritað þá og flutt í möppur.
Hljóðinnskot, myndinnskot, .ram-skrár og
straumspilunartenglar eru opnaðir og spilaðir í forritinu
RealPlayer. Sjá ‘RealPlayer™’ á bls. 49. Þú getur líka búið til
albúm, og merkt hluti, afritað og bætt þeim við albúmin.
Sjá ‘Albúm’ á bls. 47.
Ábending! Hægt er að flytja myndir úr tækinu í
samhæfa tölvu með Nokia Phone Browser í Nokia PC
Suite. Sjá geisladiskinn sem fylgir með tækinu.
Ýttu á til að opna skrá. Hreyfimyndir, tónlist og
hljóðinnskot eru opnuð í RealPlayer. Sjá ‘Myndir og
myndinnskot skoðuð’,
á bls. 45.
Til að afrita eða færa skrá yfir á minniskortið eða minni
tækisins skaltu velja hana og svo Valkostir >
Skipuleggja > Afrita á minniskort/Færa á minniskort
eða Afrita í minni síma/Færa í minni síma. Skrár sem eru
geymdar á minniskortinu eru táknaðar með .
Til að hlaða skrám niður í Gallerí í eina af aðalmöppunum
með vafranum skaltu velja Sækja myndir(), Sækja
hreyfim., Sækja lög eða Sækja hljóð. Vafrinn opnast og
þú getur valið bókamerki fyrir síðuna sem þú vilt hlaða
niður af.
Myndir og myndinnskot skoðuð
Myndir og myndinnskot sem hafa verið tekin með
myndavélinni eru geymd í möppunni Myndir &
hreyfimyndir í Gallerí. Gæðin eru gefin til kynna með einu
að eftirfarandi táknum: (Mikil), (Venjuleg) og
(Samnýting). Þú getur einnig tekið við myndum og
myndinnskotum í margmiðlunarskilaboðum, sem
tölvupóstviðhengi eða um Bluetooth. Nauðsynlegt er að
vista móttekna mynd eða myndinnskot í minni tækisins
eða á minniskorti til að geta skoðað skrána í galleríinu eða
spilaranum.
Opnaðu möppuna Myndir & hreyfimyndir í Gallerí.
Myndirnar og myndinnskotin eru í lykkju og þeim er raðað
eftir dagsetningu. Fjöldi skránna er sýndur á skjánum.
Skrunaðu til hægri eða vinstri til að skoða skrárnar. Haltu
eða inni til að skoða skrárnar í samfelldri röð.
Til að breyta mynd eða myndinnskoti skaltu velja
Myndavél og Gallerí
Valkostir > Breyta. Myndvinnslan opnast.
Til að spara minni eftir að hafa prentað út eða hlaðið upp
myndum geturðu valið Valkostir > Minnka til að geyma
minni útgáfu af myndinni í tækinu.
Til að bæta mynd eða myndinnskoti við albúm í galleríinu
skaltu velja Valkostir > Setja inn í albúm. Sjá ‘Albúm’ á
bls. 47.
Til að búa til sérsniðin myndinnskot skaltu velja innskot,
eða nokkur innskot, í galleríinu og svo Valkostir > Breyta.
Sjá ‘Myndinnskotum breytt’, bls. 42.
Til að prenta út myndirnar í tækinu á prentara sem er
tengt við það, eða vista það á minniskortinu fyrir prentun,
skaltu velja Valkostir > Prenta. Sjá ‘Prentun mynda’,
bls. 48.
Til að súmma mynd skaltu velja Valkostir > Stækka. Efst á
skjánum sést hversu mikið er súmmað. Súmmhlutfallið er
ekki vistað.
Mynd eða myndinnskoti er eytt með því að ýta á .
Skyggnusýning
Notaðu Skyggnusýning til að skoða myndir og
myndinnskot á öllum skjánum. Veldu úr eftirfarandi:
• Byrja—til að hefja skyggnusýninguna.
• Spila—til að opna RealPlayer forritið.
• Gera hlé—til að gera hlé á skyggnusýningunni.
• Halda áfram—til að halda skyggnusýningunni áfram.
• Loka—til að loka skyggnusýningunni.
Ýttu á (hraðar) eða (hægar) til að stilla Hraði. Ýttu
á (fyrri) eða (næsta) til að skoða smámyndirnar.
Til að bæta hljóði við skyggnusýninguna skaltu velja
Valkostir > Tónlistar\-stillingar og svo úr eftirfarandi:
með því að velja hann í galleríinu, myndavélinni,
myndvinnslunni eða myndskjánum.
Notaðu Myndprentun til að prenta myndirnar þínar
með því að nota gagnasnúru, Bluetooth-tengingu eða
minniskortið þitt.
Aðeins er hægt að prenta myndir sem eru á .jpg-sniði.
Myndirnar sem teknar eru með myndavélinni eru
sjálfkrafa vistaðar á .jpg-sniði.
Til að geta prentað með prentara sem er samhæfur
PictBridge-staðlinum skaltu velja prentvalkostinn áður
en þú tengir USB-snúruna.
Veldu myndina sem þú vilt prenta og síðan Valkostir >
Prenta.
Val á prentara
Þegar þú notar Myndprentun í fyrsta sinn birtist listi yfir
þá prentara sem þú getur valið, eftir að þú hefur valið
myndina sem þú vilt prenta. Veldu prentarann sem þú vilt
nota. Prentarinn er svo stilltur sem sjálfvalinn prentari.
Ef tækið er tengt við samhæfan PictBridge USB-prentara
með CA-53-snúrunni sem fylgir með tækinu, birtist sá
prentari sjálfkrafa.
Ef sjálfvalinn prentari er ekki til staðar birtist listi yfir þá
prentara sem er hægt að velja.
Forskoðun prentunar
Forskoðun prentunar opnast aðeins þegar þú byrjar
að prenta mynd í galleríinu eða í biðstöðu.
Myndirnar sem þú valdir eru sýndar í fyrirfram völdu
umbroti. Hægt er að velja annað umbrot fyrir prentarann
með því að nota vinstri og hægri skruntakkann. Ef
myndirnar passa ekki á eina síðu skaltu fletta upp
eða niður til að birta viðbótarsíðurnar.
Prentstillingar
Valkostirnir sem eru í boði fara eftir því hvaða prentari
er valinn.
Til að velja pappírsstærðina skaltu velja Pappírsstærð, svo
pappírsstærðina af listanum og loks Í lagi. Veldu Hætta við
til að bakka um einn skjá.
RealPlayer™
Ýttu á og veldu Myndafor. > RealPlayer. Með
RealPlayer, getur þú spilað myndinnskot, hljóðinnskot og
spilunarlista, eða straumspilað miðlunarskrár. Hægt er að
velja straumspilunartengla þegar vefsíður eru skoðaðar,
sem og vista þá í minni tækisins eða á minniskorti.
RealPlayer styður skrár með endingum eins og .aac, .awb,
.m4a, .mid, .mp3 og .wav. Þó er ekki víst að RealPlayer
styðji öll skráasnið eða öll afbrigði skráasniða. Til dæmis
reynir RealPlayer að opna allar .mp4-skrár. Hins vegar
getur verið að sumar .mp4-skrár innihaldi efni sem er ekki
samhæft við 3GPP-staðalinn og sem tækið styður þar af
leiðandi ekki.
Ábending! Hægt er að flytja tónlistarskrár úr tækinu
yfir á minniskort með Nokia Audio Manager í Nokia PC
Suite. Sjá geisladiskinn sem fylgir með tækinu.
Spilun mynd- og hljóðinnskota
1 Til að spila skrá sem er vistuð í minni tækisins eða á
minniskorti skaltu velja Valkostir > Opna og svo úr
eftirfarandi:
Nýjustu innskot—til að spila eina af þeim sex skrám
sem voru síðast spilaðar í RealPlayer.
Vistað innskot—til að spila skrá sem er vistuð í Gallerí.
Sjá ‘Gallerí’ á bls. 45.
2 Veldu skrá og ýttu á til að spila hana.
Ábending! Til að birta myndinnskot á öllum skjánum
skaltu ýta á . Ýttu aftur á takkann til að fara aftur í
venjulegan skjá.
Tákn í RealPlayer: —Endurtaka; —Af handahófi;
— Endurtaka og af handahófi; og —Slökkt á
hátalara.
Lagalisti búinn til
Til að búa til lagalista með þeirri tónlist sem er í minni
tækisins eða á minniskortinu:
1 Veldu Valkostir > Nýr lagalisti.
2 Veldu minnið sem þú vilt velja tónlistina úr og svo sjálf
lögin.
3 Sláðu inn heiti fyrir lagalistann.
4 Veldu lögin sem eiga að vera á listanum.
5 Veldu Til baka. Spilun lagalistans hefst sjálfkrafa.
Ábending!Til að hafa forritið áfram opið og spila
tónlistina í bakgrunni skaltu ýta tvisvar sinnum á
til að fara aftur í biðstöðu. Ýttu á og veldu
• Til að taka hljóðið af skaltu halda inni þar til
birtist. Hljóðið er sett á með því að halda inni þar
Myndaforrit
til birtist.
Straumspilun efnis
Margar þjónustuveitur fara fram á að
internetaðgangsstaður (IAP) sé notaður sem sjálfgefinn
aðgangsstaður. Aðrar þjónustuveitur leyfa notkun WAPaðgangsstaða.
Hægt er að stilla aðgangsstaðina þegar tækið er ræst í
fyrsta skipti.
Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
Til athugunar: Í RealPlayer getur þú aðeins opnað
vefföng sem byrja á rtsp://. RealPlayer ber þó einnig
kennsl á http-tengil í .ram-skrá.
Til að straumspila efni skaltu velja straumspilunartengil
sem er vistaður í Gallerí eða á vefsíðu, eða sem þú fékkst
sendan í texta- eða margmiðlunarskilaboðum. Áður en
straumspilun hefst tengist tækið þitt við síðuna og byrjar
að hlaða efninu. Efnið er ekki vistað í tækinu.
Móttaka RealPlayer-stillinga
Þú getur fengið RealPlayer stillingar sendar í sérstökum
textaskilaboðum frá símafyrirtækinu eða þjónustuveitu.
Sjá ‘Gögn og stillingar’ á bls. 60. Hafðu samband við
símafyrirtækið þitt eða þjónustuveituna til að fá nánari
upplýsingar.
RealPlayer-stillingum breytt
Veldu Valkostir > Stillingar og svo eitthvað af eftirfarandi:
Hreyfimynd—til að RealPlayer endurtaki myndinnskot
sjálfkrafa eftir að spilun þeirra lýkur.
Stillingar hljóðs—til að velja hvort þú vilt endurtaka spilun
lagalista og spila lög á lagalista af handahófi.
Tengistillingar—til að velja að nota proxy-miðlara skaltu
breyta sjálfgefna aðgangsstaðnum og stilla biðtíma og
gáttamörk sem eru notuð þegar tengingu er komið á.
Hafðu samband við þjónustuveituna til að fá réttar
stillingar.
Proxy-stillingar:
Nota proxy—Veldu Já til að nota proxy-miðlara.
Veff. proxy-miðlara—Sláðu inn IP-tölu proxy-miðlarans.
Númer proxy-gáttar—Sláðu inn gáttarnúmer proxy-
efnismiðlara og notenda. Sumar þjónustuveitur nota þá
til að geta boðið upp á aukið öryggi og hraðari aðgang
að vefsíðum sem innihalda hljóð- eða myndinnskot.
Stillingar símkerfis:
Sjálfg. aðgangsst.—Veldu aðgangsstaðinn sem þú vilt
nota til að tengjast internetinu og styddu á .
Tengitími—Stilltu tímann sem á að líða þangað til
RealPlayer aftengist við símkerfið þegar hlé hefur verið
gert á spilun efnis í gegnum nettengil. Veldu svo Notandi
skilgr. og styddu á . Sláðu inn tímann og veldu Í lagi.
Lægsta UDP gátt—Sláðu inn neðri mörkin á gáttarsviði
miðlarans. Lágmarksgildið er 6970.
Hæsta UDP gátt—Sláðu inn efri mörkin á gáttarsviði
miðlarans. Hámarksgildið er 32000.
Veldu Valkostir > Frekari stillingar til að breyta
bandvíddargildum fyrir mismunandi símkerfi.
Leikstjórii
Til að búa til muvee skaltu ýta á og velja Myndafor. >
Leikstjóri. Muvees eru stutt og breytt myndinnskot sem
geta innihaldið hreyfimynd, myndir, tónlist og texta.
Fljótg. muvee er sjálfkrafa búin til af Leikstjóri eftir að þú
hefur valið muvee-stíl. Leikstjóri notar sjálfvalda tónlist
og texta sem tengjast þeim stíl sem hefur verið valinn.
Sérhver stíll hefur t.d. eigin leturgerð, lit, tónlist og hraða.
Í Sérsn. muveegeturðu valin eigin mynd- og
tónlistarinnskot, myndir og stíl, og bætt við upphafs- og
lokaskilaboðum. Hægt er að senda muvees í
margmiðlunarskilaboðum.
Opnaðu Leikstjóri og ýttu á eða til að skipta á
milli og skjánna. Þú getur einnig farið aftur í
aðalskjáinn úr með því að velja Lokið.
skjárinn inniheldur lista yfir myndinnskot og þú
getur valið eftirfarandi valkosti: Spila, Senda, Endurskíra
og Eyða.
Fljótgerð muvees búin til
1 Í aðalskjá Leikstjóri skaltu velja Fljótg. muvee.
2 Veldu stíl úr listanum. Það muvee sem búið hefur verið
til er vistað í muvvee-lista í Leikstjóri. muvee er spilað
sjálfkrafa eftir vistun þess.
Ábending! Til að hlaða nýjum stíl í tækið þitt skaltu
1 Í aðalskjá Leikstjóri skaltu velja Sérsn. muvee.
2 Veldu innskotin sem þú vilt nota í muvee-inu í
Myndinnskot, Mynd, Stíll eða Tónlist.
Myndaforrit
Þegar þú hefur valið myndinnskotin og myndirnar
skaltu velja Valkostir > Frekari valkostir til að ákveða
í hvaða röð skrárnar eru spilaðar. Veldu skrána sem þú
vilt færa með því að ýta á skruntakkann. Finndu svo
skrána sem merkta skráin á að fara í og ýttu á
skruntakkann.
Til að klippa myndinnskotin skaltu velja Valkostir >
Veldu hluta. Sjá ‘Efni valið’ á bls. 52.
Í Skilaboð getur þú bætt opnunar- og lokakveðju
við muvee.
3 Veldu Búa til muvee og eitthvað af eftirfarandi:
Margmiðlunarboð—til að skráin passi í MMS.
Sjálfvirkt val—til að láta allar myndirnar og
myndinnskotin sem voru valin fylgja með.
Sama og tónlist—til að láta muvee vara jafn
lengi og tónlistarinnskotið sem var valið.
Notandi skilgreinir—til að ákveða lengd muvee.
4 Veldu Valkostir > Vista.
Til að forskoða sérsniðið muvee áður en þú vistar það
skaltu opna Forskoða muvee skjáinn og velja Valkostir >
Spila.
Veldu Valkostir > Endurgera til að búa til nýtt sérhannað
muvee með því að nota sömu stillingar.
Efni valið
Þegar þú hefur valið myndir og myndinnskot fyrir muvee
getur þú klippt þessi innskot til. Veldu Valkostir > Frekari
valkostir > Valkostir > Veldu hluta. Þú getur valið þá
kafla myndinnskotsins sem þú vilt að verði með, eða þá
sem þú vilt ekki að verði með, í muvee. Rennistika fyrir
neðan skjáinn sýnir með litum hvaða kaflar eru með, hvaða
kaflar eru ekki með, auk hlutlausra kafla: grænn þýðir að
kaflinn er með, rauður að hann er ekki með og grár þýðir
að kafli sé hlutlaus.
Til að hafa myndinnskot með í muvee skaltu finna
innskotið og velja Valkostir > Nota.
Til að hafa kafla myndinnskots ekki með í muvee skaltu
skruna að kaflanum og velja Valkostir > Nota ekki.
Til að láta Leikstjóri velja eða hafna myndinnskoti af
handahófi skaltu finna innskotið og velja Valkostir >
Merkja s. hlutlaust.
Veldu Valkostir > Undanskilja bil til að taka út ramma
myndinnskots.
Til að láta Leikstjóri velja eða hafna köflum úr
myndinnskoti af handahófi velurðu Valkostir > Merkja
Ýttu á takkann og opnaðu Skilaboð. Í Skilaboð getur
þú búið til, sent, tekið á móti, skoðað, breytt og skipulagt
textaskilaboð, margmiðlunarskilaboð, tölvupóstskeyti og
sérstök textaskilaboð sem innihalda gögn. Þú getur einnig
tekið við skilaboðum og gögnum um Bluetooth-tengingu,
tekið við vefþjónustuboðum, skilaboðum frá endurvarpa
og sent þjónustuskipanir.
Til athugunar: Aðeins tæki með samhæfar aðgerðir
geta tekið á móti og birt margmiðlunarskilaboð. Útlit
skilaboða getur verið breytilegt eftir móttökutækinu.
Þegar þú opnar Skilaboð sérðu Ný skilaboð valkostinn
auk lista með möppum:
Innhólf—Inniheldur móttekin skilaboð, utan
tölvupósts og skilaboða frá endurvarpa. Tölvupóstskeyti
eru vistuð í Pósthólf.
Mínar möppur—Til að flokka skilaboð í möppur.
Pósthólf—Í Pósthólf getur þú tengst við ytra
pósthólfið þitt til að sækja nýjan tölvupóst eða skoða
tölvupóst sem þú hefur áður sótt án tengingar. Sjá
‘Tölvupóstur’ á bls. 66.
Sendir hlutir—Inniheldur síðustu 20 skilaboðin sem
voru send, fyrir utan þau sem hafa verið send um
Bluetooth-tengingu. Upplýsingar um hvernig á að breyta
fjölda vistaðra skilaboða er að finna í ‘Annað stillingar’ á
bls. 69.
Úthólf—Er tímabundinn geymslustaður skilaboða sem
bíða þess að verða send.
Tilkynningar—Hægt er að biðja símkerfið að senda
skilatilkynningar fyrir send texta- og
margmiðlunarskilaboð (sérþjónusta). Hugsanlega er ekki
hægt að fá skilatilkynningar um margmiðlunarskilaboð
sem hafa verið send á tölvupóstfang.
Ábending! Þegar þú opnar einhverja af þessum
möppum getur þú skipt á milli þeirra með því að ýta á
eða .
Til að slá inn og senda þjónustubeiðnir (einnig þekktar sem
USSD-skipanir) til þjónustuveitunnar, líkt og skipanir um
að virkja sérþjónustu, skaltu velja Valkostir >
Þjónustuskipun í aðalskjá Skilaboð.
Með Upplýs. frá endurvarpa (sérþjónusta) getur þú fengið
skilaboð frá þjónustuveitunni um mismunandi efni, líkt og
veður og umferð. Upplýsingar um hvaða efni eru í boði og
efnisnúmer þeirra fást hjá þjónustuveitunni. Í aðalskjá
Skilaboð skaltu velja Valkostir > Upplýs. frá endurvarpa.
Í aðalskjánum getur þú séð stöðu efnis, númer þess, heiti
og hvort það hefur verið merkt sem ( ) til að fylgja
því eftir.
Ekki er hægt að fá upplýsingar frá endurvarpa í UMTSsímkerfum. Pakkagagnatenging getur valdið því að
upplýsingar frá endurvarpa berist ekki.
Textaritun
Hefðbundin textaritun
, og merkir að verið er að slá inn stafi.
merkir að verið sé að slá inn tölur.
sést þegar hefðbundinn innsláttur er notaður.
• Styddu endurtekið á takka (—) þar til
bókstafurinn sem þú vilt nota birtist. Hver takki
inniheldur fleiri stafi en þá sem eru prentaðir á hann.
• Til að fá fram tölustaf skaltu halda takkanum inni.
• Haltu inni takkanum til að skipta á milli tölu- og
bókstafa.
• Ef næsti stafur er á sama takka og stafurinn sem þú
varst að slá inn skaltu bíða þar til bendillinn birtist (eða
ýta á til að til að geta slegið stafinn strax inn) og
slá svo inn stafinn.
• Ýttu á takkann til að eyða staf. Haltu
takkanum inni til að fjarlægja fleiri en einn staf.
• Algengustu greinarmerki eru á takkanum. Í hvert
sinn sem stutt er á takkann birtist nýtt
greinarmerki.
Ýttu á til að opna lista yfir sérstafi. Notaðu til
að fletta í gegnum listann og veldu staf.
• Ýttu á til að setja inn bil. Ýttu þrisvar sinnum á
ef þú vilt færa bendilinn í næstu línu.
• Ýttu á til að skipta á milli stafagerða (samsetningar
há- og lágstafa).
Flýtiritun—Orðabók
Hægt er að slá inn hvaða staf sem er með því að ýta aðeins
einu sinni á takka hans. Í flýtiritun er notuð innbyggð
orðabók sem hægt er að bæta nýjum orðum inn í. Þegar
orðabókin er orðin full er elsta orðinu sem var sett inn í
hana skipt út þegar nýtt orð er sett inn.
1 Kveikt er á flýtirituninni
með því að ýta á og
velja Orðabók virk. Þá er
kveikt á flýtirituninni fyrir
öll forrit (ritla) símans.
vilt. Ýttu aðeins einu sinni á hvern takka fyrir hvern
staf. Ýttu t.d. á fyrir N, fyrir o, fyrir k,
Skilaboð
fyrir i og fyrir a til að skrifa 'Nokia' þegar enska
orðabókin hefur verið valin.
Tillagan að orðinu breytist í hvert skipti sem ýtt er
átakka.
3 Þegar þú klárar að skrifa orðið og það er rétt skaltu ýta
á til að staðfesta það, eða á til að setja inn bil.
Ef orðið er ekki rétt skaltu ýta endurtekið á til að
skoða önnur orð sem orðabókin fann, eða velja og
T9-orðabók > Finna svipað.
Ef ? birtist aftan við orðið inniheldur orðabókin ekki
orðið sem þú vildir slá inn. Orði er bætt inn í
orðabókina með því að velja Stafa, slá inn orðið á
venjulegan hátt og velja síðan Í lagi. Þá er orðinu bætt
inn í orðabókina. Þegar orðabókin er orðin full er elsta
orðinu sem var sett inn í hana skipt út fyrir nýjasta
orðið.
4 Byrjaðu að skrifa næsta orð.
Ábending! Hægt er að kveikja eða slökkva á
flýtirituninni með því að ýta tvisvar sinnum snöggt á
takkann.
Ábendingar um flýtiritun
Ýttu á takkann til að eyða staf. Haltu takkanum
inni til að fjarlægja fleiri en einn staf.
Ýttu á til að skipta á milli stafagerða. Slökkt er á
flýtirituninni með því að ýta tvisvar sinnum snöggt á
takkann.
Ábending! Flýtiritun reynir að giska á hvaða algenga
greinamerki (.,?!‘) á best við. Röð og val greinarmerkja
fer eftir tungumáli orðabókarinnar.
Til að slá inn tölustaf þegar þú ert að slá inn bókstafi skaltu
halda viðkomandi tölutakka inni.
Haltu inni takkanum til að skipta á milli tölu- og
bókstafa.
Algengustu greinarmerki eru á takkanum. Ýttu á
og síðan endurtekið á til að finna það greinarmerki
sem þú vilt nota.
Haltu inni takkanum til að opna lista yfir sérstafi.
Ýttu endurtekið á til að skoða þau samsvarandi orð
sem orðabókin hefur fundið.
Ýttu á , veldu T9-orðabók og ýttu á til að velja
einn af eftirfarandi valkostum:
Finna svipað—Til að skoða lista með orðum sem passa við
þá takka sem þú studdir á.
Bæta í orði—Til að bæta orði í orðabókina með
hefðbundinni ritun. Þegar orðabókin er orðin full er elsta
orðinu sem var sett inn í hana skipt út fyrir nýjasta orðið.
ritun. Hægt er að nota þennan valkost þegar orð er
undirstrikað (virkt).
Ábending! Þegar þú ýtir á birtast eftirfarandi
valkostir (fer eftir valinni stillingu): Orðabók
(flýtiritun), Bókstafahamur (hefðbundin ritun),
Talnahamur, Klippa úr (þegar texti hefur verið valinn),
Afrita (þegar texti hefur verið valinn), Líma (þegar texti
hefur verið klipptur eða afritaður fyrst), Slá inn tölu,
Slá inn tákn og Tungumál texta: (breytir
innsláttartungumálinu í öllum ritlum tækisins).
Ritun samsettra orða
Sláðu inn fyrri hluta samsetts orðs og staðfestu það með
því að ýta á . Sláðu inn seinni hluta orðsins. Ýttu á
til að setja inn bil og klára þannig orðið.
Slökkt á flýtiritun
Ýttu á og veldu Orðabók > Óvirk til að slökkva á
flýtirituninni í öllum ritlum tækisins.
Afritun texta á klemmuspjald
1 Haltu takkanum inni til að velja stafi og orð. Ýttu
um leið á eða . Textinn er auðkenndur um leið
og valið færist.
2 Til að afrita textann á klemmuspjaldið skaltu halda inni
takkanum og ýta á Afrita.
3 Til að setja textann inn í skjal skaltu halda inni
takkanum og velja svo Líma, eða ýta einu sinni á
og velja Líma.
Haltu inni takkanum til að velja textalínur.
Ýttu um leið á eða .
Ýttu á . til að eyða valda textanum úr skjalinu
Ritun og sending skilaboða
Útlit margmiðlunarskilaboða getur verið breytilegt eftir
móttökutækinu.
Höfundarréttarvarnir geta komið í veg fyrir að hægt sé að
afrita, breyta, flytja eða framsenda myndir, tónlist (þ.m.t.
hringitóna) og annað efni.
Ábending! Þú getur búið til skilaboð í öllum forritum
sem hafa valkostinn Senda. Veldu skrá (mynd eða
texta) sem þú vilt bæta inn í skilaboðin og síðan
Valkostir > Senda.
Til að geta búið til margmiðlunarskilaboð eða skrifað
tölvupóst verða réttar tengistillingar að vera fyrir hendi.
Sjá ‘Móttaka stillinga fyrir MMS- og tölvupósts’ á bls. 59
og ‘Tölvupóstur’ á bls. 66.
Þráðlausa símkerfið kann að takmarka stærð MMSskilaboða. Ef myndin sem bætt er inn fer yfir þessi mörk
getur tækið minnkað hana þannig að hægt sé að senda
hana með MMS.
1 Veldu Ný skilaboð. Þá opnast listi yfir mismunandi
gerðir skilaboða.
SMS—til að senda textaskilaboð (SMS).
Skilaboð
Margmiðlunarboð—til að senda
margmiðlunarskilaboð (MMS).
Tölvupóst—til að senda tölvupóst. Ef þú hefur ekki sett
upp tölvupóstfang er beðið um að þú gerir það.
2 Ýttu á til að velja viðtakendur eða hóp viðtakenda
úr tengiliðum, eða sláðu inn símanúmer eða
tölvupóstfang viðtakandans. Ýttu á til að bæta við
semíkommu (;) sem skilur að viðtakendurna. Einnig er
hægt að afrita og líma númer eða tölvupóstföng af
klemmuspjaldinu.
Ábending! Veldu tengilið og ýttu á til að
merkja hann. Hægt er að merkja marga viðtakendur
í einu.
3 Ýttu á til að fara í textasvæði skilaboðanna.
4 Skrifaðu skilaboðin.
5 Til að setja inn hlut (skrá) í margmiðlunarskilaboð
skaltu velja Valkostir > Setja inn hlut > Mynd,
Hljóðinnskot eða Myndinnskot. táknið birtist
þegar hljóði er bætt við.
Ekki er hægt að senda myndinnskot sem eru vistuð á
.mp4 sniði í margmiðlunarskilaboðum. Upplýsingar um
hvernig á að breyta því á hvaða sniði hreyfimyndir eru
vistaðar er að finna í ‘Stillingar fyrir hreyfimyndir’, á
bls. 42.
6 Til að taka nýja mynd eða
taka upp hljóð eða
hreyfimynd fyrir
margmiðlunarskilaboð
skaltu velja Setja inn
nýja > Mynd,
Hljóðinnskot eða
Myndinnskoti. Veldu
Skyggnu til að bæta nýrri
skyggnu í skilaboðin.
Veldu Valkostir >
Forskoða til að sjá
hvernig margmiðlunarskilaboðin líta út.
7 Til að setja viðhengi í tölvupóst skaltu velja Valkostir >
Bæta í > Mynd, Hljóðinnskoti, Myndinnskoti eða
Minnismiða. Viðhengi í tölvupósti eru auðkennd með
tákninu í stöðustikunni.
Ábending! Til að senda skrár sem viðhengi (fyrir
utan hljóðskrár og minnismiða) skaltu opna
viðeigandi forrit og velja Senda > Með tölvupósti
(ef sá valkostur er í boði).
8 Skilaboð eru send með því að velja Valkostir > Senda
eða ýta á .
Tækið styður sendingu á textaboðum sem eru lengri en
sem nemur lengdartakmörkunum á stökum skilaboðum.
Lengri skilaboð verða send sem röð tveggja eða fleiri
skilaboða. Þjónustuveitan tekur hugsanlega gjald í
samræmi við það. Stafir sem nota kommur eða önnur tákn
og stafir úr sumum tungumálakostum, eins og kínversku,
taka meira pláss sem takmarkar þann fjölda stafa sem
hægt er að senda í einum skilaboðum. Í upplýsingaröndinni
sést lengdarvísir boðanna sem telur aftur á bak. Til dæmis
merkir 10 (2) að enn er hægt að bæta við 10 stöfum til að
senda boðin sem tvenn boð.
Til athugunar: Tölvupóstur færist sjálfkrafa í Úthólf
áður en hann er sendur. Ef sending mistekst er
tölvupósturinn áfram í Úthólf þar sem hann er merktur
sem Mistókst.
Ábending! Í Skilaboð getur þú líka búið til kynningar
og sent þær í margmiðlunarskilaboðum. Þegar þú
skrifar margmiðlunarskilaboð skaltu velja Valkostir >
Búa til kynningu (sést aðeins ef MMS-hamur er stillt
á Með viðvörunum eða Allt). Sjá
‘Margmiðlunarskilaboð’ á bls. 65.
Ábending! Þegar þú sendir margmiðlunarskilaboð á
tölvupóstfang eða í tæki sem styður stórar móttöku
stórra mynda skaltu nota stærri gerðir mynda. Ef þú ert
ekki viss um hvort móttökutækið eða símkerfið styðji
sendingu stórra skráa er mælt með því að þú sendir
aðeins minni gerðir mynda eða hljóðinnskot sem eru
ekki lengri en 15 sekúndur. Stillingunni er breytt
með því að velja Valkostir > Stillingar >
Margmiðlunarboð > Stærð myndar í aðalskjá
Skilaboð.
Móttaka stillinga fyrir MMS- og
tölvupósts
Þú getur fengið stillingar sendar í textaskilaboðum frá
símafyrirtækinu þínu eða þjónustuveitu. Sjá ‘Gögn og
stillingar’ á bls. 60.
Símafyrirtækið eða þjónustuveitan gefa upplýsingar um
þá gagnaþjónustu sem er í boði og áskriftina. Fylgdu
leiðbeiningum þjónustuveitunnar.
MMS-stillingar slegnar inn handvirkt:
1 Opnaðu Verkfæri > Stillingar > Samband >
Aðgangsstaðir og tilgreindu stillingarnar fyrir
aðgangsstað margmiðlunarskilaboða. Sjá
‘Tengistillingar’ á bls. 101.
2 Opnaðu Skilaboð > Valkostir > Stillingar >
Margmiðlun-arskilaboð > Aðg.staður í notkun og
veldu að nota aðgangsstaðinn sem þú bjóst til sem
aðaltengingu. Sjá einnig ‘Margmiðlunarskilaboð’ á
bls. 65.
Áður en þú getur sent, tekið á móti, sótt, svarað og
framsent tölvupóst verðurðu að gera eftirfarandi:
• Samstilla internetaðgangsstað (IAP) á réttan hátt.
Sjá ‘Tengistillingar’ á bls. 101.
• Tilgreina tölvupóstsstillingarnar á réttan hátt. Sjá
‘Tölvupóstur’ á bls. 66. Þú verður að vera með
tölvupóstreikning. Fylgdu leiðbeiningunum frá ytra
pósthólfinu þínu og internetþjónustuveitunni (ISP).
Þegar þú færð skilaboð birtist táknið ásamt
textanum 1 ný skilaboð. Veldu Sýna til að opna
skilaboðin. Til að opna skilaboð í Innhólf skaltu velja
þau og ýta á .
Til að sjá hvaða hluti margmiðlunarskilaboð innihalda
skaltu opna skilaboðin og velja Valkostir > Hlutir. Þú
getur valið að vista skrá úr margmiðlunarskilaboðum
í tækinu þínu eða sent hana um Bluetooth (t.d., í
samhæft tæki).
Veldu Valkostir > Spilun kynningar til að skoða
mótteknar margmiðlunarkynningar.
Höfundarréttarvarnir geta komið í veg fyrir að hægt sé að
afrita, breyta, flytja eða framsenda myndir, tónlist (þ.m.t.
hringitóna) og annað efni.
60
Margmiðlunarskilaboð
Mikilvægt: Fara skal með gát þegar skilaboð eru
opnuð. Hlutir í margmiðlunarboðum geta innihaldið
skaðlegan hugbúnað eða skaðað tölvuna eða tækið á
einhvern annan hátt.
Þú getur fengið tilkynningu um að einhver hafi sent þér
margmiðlunarskilaboð sem hafa verið vistuð í
margmiðlunarboðamiðstöðinni. Veldu Valkostir > Sækja
til að koma á pakkagagnatengingu og flytja skilaboðin
ítækið.
Þegar þú opnar margmiðlunarskilaboð () getur þú séð
mynd og texta og á sama tíma hlustað á hljóð í
hátalaranum ( birtist ef margmiðlunarskilaboðin
innihalda hljóð). Smelltu með örinni á táknið til að hlusta
á hljóðið.
Tækið getur tekið við margs konar textaskilaboðum
sem innihalda gögn (), einnig kölluð ljósvakaboð
(OTA-skilaboð):
Skilaboð um samskipan—Þú getur fengið þjónustunúmer
textaskilaboða, talhólfsnúmer, internetaðgangsstaði,
stillingar innskráningar á aðgangsstaði eða
tölvupóststillingar frá símafyrirtækinu þínu, þjónustuveitu
eða upplýsingadeild fyrirtækis í samstillingarboðum.
Stillingarnar eru vistaðar með því að velja Valkostir >
Vista alla.
Nafnspjald—Til að vista upplýsingarnar í Tengiliðir skaltu
velja Valkostir > Vista nafnspjald. Vottorð og hljóðskrár
sem fylgja með nafnspjöldum eru ekki vistaðar.
Hringitónn—Veldu Valkostir > Vista til að vista
hringitóninn.
Skjátákn símafyrirt.—Til að birta táknið þegar síminn
er í bið í stað skjátákns símafyrirtækisins skaltu velja
Valkostir > Vista.
Dagbókaratriði—Til að vista boðið skaltu velja Valkostir >
Vista í dagbók.
Vefskilaboð—Til að vista bókamerki í bókamerkjunum
þínum í Vef skaltu velja Valkostir > Bæta við bókamerki.
Veldu Valkostir > Vista alla til að vista gögn ef skilaboð
innihalda bæði stillingar fyrir aðgangsstaði og bókamerki.
Tilkynning um tölvupóst—Segir til um fjölda nýrra
tölvupóstskeyta í ytra pósthólfinu. Ítarlegri tilkynning kann
að innihalda nákvæmari upplýsingar.
Ábending! Ef þú færð vCard-skrá með mynd í
viðhengi er myndin vistuð í tengiliðum.
Vefþjónustuboð
Vefþjónustuboð, (), eru tilkynningar (líkt
fréttafyrirsagnir) sem geta innihaldið texta eða tengil.
Nánari upplýsingar um framboð og áskrift fást hjá
þjónustuveitu.
Mínar möppur
Í Mínar möppur getur þú flokkað skilaboðin þín í möppur,
búið til nýjar möppur, breytt heiti mappa og eytt möppum.
Ábending! Hægt er að nota texta í
skjalasniðsmöppunni til að komast hjá því að
endurskrifa skilaboð sem eru send oft.
Pósthólf
Ef þú velur Pósthólf og hefur ekki sett upp
tölvupóstsreikning er beðið um að þú gerir það. Sjá
‘Tölvupóstur’ á bls. 66. Þegar þú býrð til nýtt pósthólf
kemur heitið sem þú gefur því í stað Pósthólf í aðalskjá
Skilaboð valmyndarinnar. Hægt er að hafa allt að sex
pósthólf.
Pósthólfið opnað
Þegar þú opnar pósthólf getur þú valið á milli þess að
tengjast við tölvupóstmiðlarann eða skoða tölvupóst og
fyrirsagnir tölvupósts sem þú hefur áður sótt án þess að
tengjast.
Þegar þú velur pósthólfið þitt og styður á spyr tækið
hvort þú viljir Tengjast pósthólfi?
Veldu Já til að tengjast við pósthólfið þitt og sækja
fyrirsagnir tölvupósts eða texta þeirra. Þegar þú skoðar
tölvupóst meðan á tengingu stendur ertu stöðugt í
sambandi við ytra pósthólfið með gagnapakkatengingu.
Skilaboð
Sjá einnig ‘Tengistillingar’ á bls. 101.
Veldu Nei til skoða tölvupóst sem þú hefur sótt áður án
þess að tengjast við miðlarann. Þegar þú skoðar tölvupóst
án tengingar er tækið ekki tengt við ytra pósthólfið.
Tölvupóstur sóttur
Til að tengjast við ytra pósthólf skaltu velja Valkostir >
Tengja.
Mikilvægt: Fara skal með gát þegar skilaboð eru
opnuð. Tölvupóstboð geta innihaldið skaðlegan hugbúnað
eða skaðað tölvuna eða tækið á einhvern annan hátt.
1 Veldu Valkostir > Sækja tölvupóst þegar þú hefur
komið á tengingunni við ytra pósthólfið.
Nýjan—til að flytja öll ný tölvupóstskeyti í tækið.
Valinn—til að sækja aðeins þau tölvupóstskeyti sem
hafa verið merkt.
Allan—til að sækja öll tölvupóstskeyti úr pósthólfinu.
Hægt er að hætta við að sækja tölvupóst með því að
velja Hætta við.
2 Þegar þú hefur sótt tölvupóstinn geturðu haldið áfram
að skoða hann án þess að aftengjast, eða valið
Valkostir > Aftengja til að aftengjast og skoða
tölvupóstinn án tengingar.
Stöðutákn fyrir tölvupóst:
Nýr tölvupóstur (með eða án tengingar): efnið
hefur ekki verið flutt í tækið.
Nýr tölvupóstur: efnið hefur verið flutt í tækið.
Tölvupósturinn hefur verið lesinn.
Tölvupóstfyrirsögn hefur verið lesin og efni
tölvupóstsins verið eytt úr tækinu.
3 Ýttu á til að opna tölvupóst. Ef tölvupóstskeyti
hefur ekki verið sótt (ör í tákninu beinist út) og
tengingin er ekki virk er spurt hvort þú viljir flytja
skeytið úr pósthólfinu.
Til að skoða viðhengi skaltu opna skeyti sem hefur tákn
um að það innihaldi viðhengi ( ) og velja Valkostir >
Viðhengi. Ef táknið fyrir viðhengið er dekkt hefur
viðhengið ekki verið flutt í tækið. Til að sækja það skaltu
velja Valkostir > Sækja. Í skjánum Viðhengi getur þú sótt,
opnað, vistað eða eytt viðhengjum. Einnig er hægt að
senda viðhengi með Bluetooth.
Ábending! Ef pósthólfið þitt notar IMAP4
samskiptareglur getur þú valið hversu mörg skeyti þú
vilt sækja og hvort viðhengin séu einnig sótt. Sjá
‘Tölvupóstur’ á bls. 66. Með POP3-samskiptareglunum
eru valkostirnir: Aðeins hausar, Að hluta til (kB) og
Til að sækja tölvupóst sjálfkrafa skaltu velja Valkostir >
Stillingar tölvupósts > Sjálfvirk tenging > Síðuhausar
sóttir. Veldu Alltaf virk eða Eing. á heimas.k. og
tilgreindu hvenær og hversu oft á að sækja tölvupóstinn.
Það að sækja tölvupóst sjálfkrafa getur hækkað
símtalskostnað þinn vegna gagnaflutninga.
Tölvupósti eytt
Til að eyða tölvupósti úr tækinu, en geyma hann samt
áfram í ytra pósthólfinu, skaltu velja Valkostir > Eyða.
Í Eyða skilaboðum úr: skaltu velja Síma eingöngu.
Tækið speglar tölvupóstfyrirsagnirnar í ytra pósthólfinu.
Það merkir að þó að sv o efni tölvupósts sé eytt er fyrirsögn
hans áfram í tækinu. Ef þú vilt einnig eyða fyrirsögnum
þarftu fyrst að eyða tölvupóstinum úr ytra pósthólfinu
og síðan að koma aftur á tengingu milli tækisins og ytra
pósthólfsins til að uppfæra stöðuna.
Ábending! Til að afrita tölvupóst úr ytra pósthólfinu í
möppu í Mínar möppur skaltu velja Valkostir > Afrita
í möppu, þá möppu af listanum og að lokum Í lagi.
Til að eyða tölvupósti úr tækinu og ytra pósthólfinu skaltu
velja Valkostir > Eyða Í Eyða skilaboðum úr: skaltu velja
Síma og miðlara.
Ef tengingin er ekki virk er tölvupóstinum fyrst eytt úr
tækinu. Honum er svo sjálfkrafa eytt úr ytra pósthólfinu
næst þegar þú tengist við það. Ef þú notar POP3samskiptareglur er tölvupóstur sem eru merktur til
eyðingar ekki fjarlægður fyrr en tengingunni við
pósthólfið er lokað.
Til að hætta við að eyða tölvupósti úr tækinu og af miðlara
skaltu velja tölvupóstinn sem hefur verið merktur til
eyðingar við næstu tengingu () og svo Valkostir >
Afturkalla.
Tenging við pósthólf rofin
Þegar tenging er virk skaltu velja Valkostir > Aftengja
til að rjúfa pakkagagnatengingu við ytra pósthólf.
Ábending! Ef tengingin er höfð opin sækir tækið
nýjan tölvupóst (Aðeins hausar er sjálfgefna stillingin)
sjálfkrafa af miðlaranum (aðeins ef miðlarinn styður
IMAP IDLE-aðgerðina). Ýttu tvisvar sinnum á ef þú
vilt hafa skilaboðaforritið opið í bakgrunni. Það að
hafa tenginguna opna getur hækkað símtalskostnað
þinn vegna gagnaflutninga.
Tölvupóstur skoðaður án tengingar
Þegar þú opnar Pósthólf næst og vilt skoða og lesa
tölvupóst án þess að tengjast við ytra pósthólfið skaltu
svara Nei við spurningunni Tengjast pósthólfi?. Þú getur
lesið fyrirsagnir og texta tölvupóst sem þú hefur áður sótt.
skilatilkynningar fyrir þau skilaboð sem þú sendir
(sérþjónusta). Þegar Nei er valið sést aðeins staðan Send í
notkunarskránni. Sjá ‘Notkunarskrá’ á bls. 29.
Gildistími skilaboða—Ef ekki er hægt að ná í viðtakanda
skilaboða innan ákveðins tíma er skilaboðunum eytt úr
textaboðmiðstöðinni. Símkerfið verður að styðja þessa
aðgerð. Hámarkstími er leyfilegur hámarkstími
símkerfisins.
Skilaboð send sem—Ekki breyta þessum valkosti nema
vera viss um að skilaboðamiðstöðin geti umbreytt
textaskilaboðum í það snið sem þú vilt velja. Hafðu
samband við símafyrirtækið þitt.
Æskileg tenging—Þú getur sent textaskilaboð um
venjulegt GSM-símkerfi eða með pakkagögnum, ef
símkerfið styður það. Sjá ‘Tengistillingar’ á bls. 101.
Svar um sömu miðst.—Veldu Já ef þú vilt að
svarskilaboðin verði send um sama símanúmer
textaboðamiðstöðvarinnar (sérþjónusta).
Nýrri textaboðamiðstöð bætt við
1 Veldu Skilaboðamiðstöðvar > Valkostir > Ný
skilab.miðstöð.
2 Ýttu á , skrifaðu heiti skilaboðamiðstöðvarinnar og
veldu Í lagi.
3 Ýttu á og og skrifaðu númer
textaboðamiðstöðvarinnar. Þjónustuveita lætur
þér þetta númer í té.
4 Veldu Í lagi.
5 Til að nota nýju stillingarnar skaltu fara aftur í
stillingaskjáinn. Veldu Skb.miðstöð í notkun og svo
nýju skilaboðamiðstöðina.
Margmiðlunarskilaboð
Veldu Skilaboð > Valkostir > Stillingar >
Margmiðlunarboð.
Stærð myndar—Veldu myndastærðina í
margmiðlunarskilaboðum. Valkostirnir eru Upprunaleg
(aðeins birt þegar MMS-hamur er stillt á Með
viðvörunum eða Allt), Lítil og Stór. Veldu Upprunaleg til
að auka stærð margmiðlunarskilaboða.
MMS-hamur—Ef þú velur Með viðvörunum lætur tækið
þig vita ef þú reynir að senda skilaboð sem ekki er víst að
móttökutæki styðji. Veldu Takmarkað til að láta tækið
hindra sendingu óstuddra skilaboða.
Aðg.staður í notkun (Þarf að skilgr.)—Veldu hvaða
aðgangsstaður er notaður sem tenging við
skilaboðamiðstöð margmiðlunarskilaboðanna.
Móttaka margmiðl.—Veldu hvernig þú vilt taka á móti
margmiðlunarskilaboðum. Veldu Sjálfvirk í heimakerfi til
að taka sjálfkrafa á móti margmiðlunarskilaboðum á
heimasímkerfi. Utan heimasímkerfisins mun tilkynning
berast um að þú hafir móttekið margmiðlunarskilaboð
sem hafa verið vistuð í margmiðlunarboðamiðstöðinni.
Þú getur valið hvort þú vilt sækja skilaboðin í tækið.
Skilaboð
Utan símkerfisins þíns getur sending og móttaka
margmiðlunarskilaboða kostað þig meira.
Ef þú velur Móttaka margmiðl. > Alltaf sjálfvirk, mun
tækið sjálfkrafa koma á virkri pakkagagnatengingu til að
sækja skilaboðin bæði innan og utan símkerfisins þíns.
Leyfa nafnl. skilaboð—Veldu Nei ef þú vilt hafna
skilaboðum frá óþekktum sendanda.
Fá auglýsingar—Veldu hvort þú vilt taka á móti
auglýsingum í margmiðlunarskilaboðum eða ekki.
Tilkynning um skil—Veldu Já ef þú vilt að staða
sendra skilaboða sé sýnd í notkunarskránni (sérþjónusta).
Hugsanlega geturðu ekki fengið skilatilkynningar um
margmiðlunarskilaboð sem hafa verið send á
tölvupóstfang.
Neita sendingu tilk.—Veldu Já ef þú vilt ekki að tækið
sendi skilatilkynningar vegna móttekinna
margmiðlunarskilaboða.
Gildistími skilaboða—Ef ekki næst í viðtakanda skilaboða
innan ákveðins tíma eru skilaboðin fjarlægð úr miðstöð
margmiðlunarskilaboða. Símkerfið verður að styðja þessa
aðgerð. Hámarkstími er leyfilegur hámarkstími
símkerfisins.
Ábending! Þú getur einnig fengið margmiðlunar-
og tölvupóststillingar frá þjónustuveitunni þinni í
stillingaboðum. Þjónustuveitan gefur nánari
upplýsingar. Sjá ‘Gögn og stillingar’ á bls. 60.
Tölvupóstur
Veldu Skilaboð > Valkostir > Stillingar > Tölvupóstur
eða veldu Valkostir > Stillingar tölvupósts í aðalskjá
pósthólfsins og svo eitthvað af eftirfarandi:
Pósthólf í notkun—Veldu hvaða pósthólf þú vilt nota til
að senda tölvupóst.
Pósthólf—Opnar lista yfir tilgreind pósthólf. Ef engin
pósthólf hafa verið valin er beðið um að það sé gert. Veldu
pósthólf til að breyta eftirfarandi stillingum: Stillingar
Stillingar pósthólfs:
Nafn pósthólfs—Sláðu inn lýsandi heiti fyrir pósthólfið.
Aðg.staður í notkun (Þarf að skilgr.)—Veldu
internetaðgangsstað (IAP) fyrir pósthólfið. Sjá
‘Tengistillingar’ á bls. 101.
Tölvupóstfangið mitt (Þarf að skilgr.)—Sláðu inn
tölvupóstfangið sem þjónustuveitan lét þér í té. Öll svör
við skeytunum þínum eru send á það tölvupóstfang.
Miðlari fyrir útpóst (Þarf að skilgr.)—Sláðu inn IP-tölu
eða hýsiheiti póstmiðlarans sem sendir tölvupóstinn þinn.
Verið getur að þú getir eingöngu notað útmiðlara
símafyrirtækisins þíns. Þjónustuveitan gefur nánari
upplýsingar.
Notandanafn—Sláðu inn notandanafn þitt sem
þjónustuveitan þín lætur þér í té.
Lykilorð:—Sláðu inn lykilorðið þitt. Ef þú fyllir ekki út
þennan reit verður beðið um lykilorðið þegar þú reynir
að tengjast við ytra pósthólfið.
Miðlari fyrir innpóst (Þarf að skilgr.)—Sláðu inn IP-tölu
eða hýsiheiti miðlarans sem tekur við tölvupóstinum
þínum.
sem þjónustuveita ytra pósthólfsins mælir með.
Valkostirnir eru POP3 og IMAP4. Þessa stillingu er aðeins
hægt að velja einu sinni og þú getur ekki breytt henni eftir
að þú hefur vistað eða farið út úr stillingum pósthólfs.
Ef þú notar POP3-samskiptareglur eru skilaboðin ekki
uppfærð sjálfkrafa þegar tenging er virk. Til að sjá nýjasta
tölvupóstinn þarftu að aftengjast við pósthólfið og
tengjast svo aftur.
Öryggi (gáttir)—Notað með POP3-, IMAP4- og SMTP-
samskiptareglum til að tryggja öryggi tengingarinnar við
ytra pósthólfið.
Örugg APOP-innskr. (ekki birt ef IMAP4 er valið fyrir
Tegund pósthólfs)—Notað með POP3-samskiptareglunni
til að dulkóða sendingar á lykilorðum í ytri
tölvupóstmiðlara þegar tengst er við pósthólfið.
Notendastillingar:
Senda skilaboð—Tilgreindu hvernig tölvupóstur er sendur
úr tækinu. Veldu Strax svo tækið tengist pósthólfinu þegar
þú velur Senda tölvupóst. Ef þú velur Í næstu tengingu,
er tölvupóstur sendur þegar tenging við ytra pósthólfið er
til staðar.
Sótt tölvupóstskeyti (sést ekki ef
tölvupóstsamskiptareglunar eru stilltar á POP3)—Veldu
hversu marga nýja tölvupósta tækið sækir.
Sækja (sést ekki ef tölvupóstsamskiptareglunar eru stilltar
á IMAP4) —Veldu hvaða hluta tölvupóstsins á að sækja:
Aðeins hausar, Að hluta til (kB) eða Sk.boð & viðhengi.
Sækja viðhengi (sést ekki ef tölvupóstsamskiptareglunar
eru stilltar á POP3)—Veldu hvort þú vilt sækja tölvupóst
með eða án viðhengja.
Möppur í áskrift (sést ekki ef
Skilaboð
tölvupóstsamskiptareglurnar eru stilltar á POP3)—
Þú getur einnig fengið áskrift að öðrum möppum í ytra
pósthólfinu og sótt efni í þessar möppur.
Afrit til sendanda—Veldu Já til að vista afrit af
tölvupóstinum í ytra pósthólfinu og á tölvupóstfangið sem
tilgreint er í Tölvupóstfangið mitt.
Nota undirskrift—Veldu Já ef þú vilt setja undirskrift í
tölvupóstskeytin þín.
Mitt nafn—Sláðu nafnið þitt inn hér. Nafnið þitt birtist í
stað tölvupóstfangs þíns í síma viðtakandans ef síminn
hans styður það.
Sjálfvirk tenging:
Síðuhausar sóttir—Þegar þessi aðgerð er virk eru skeyti
sótt sjálfkrafa. Þú getur tilgreint hvenær og hversu oft
skeytin eru sótt.
Ef kveikt er á Síðuhausar sóttir getur verið að
símtalskostnaðurinn þinn hækki vegna gagnaflutninga.
Vefþjónustuboð
Veldu Skilaboð > Valkostir > Stillingar > Þjónustusk.boð.
Veldu hvort þú vilt taka við þjónustuboðum. Veldu Hlaða
niður skilab. > Sjálfvirk ef þú vilt láta tækið ræsa vafrann
sjálfkrafa og koma á tengingu við símkerfið til að sækja
efni þegar það móttekur þjónustuboð.
Skilaboð frá endurvarpa
Athugaðu hvaða málefni og tengd efnisnúmer eru tiltæk
hjá þjónustuveitunni þinni og veldu Skilaboð >
Valkostir > Stillingar > Uppl. frá endurvarpa til að breyta
stillingunum.
Móttaka—Veldu hvort þú vilt taka við endurvarpsboðum.
Tungumál—Öll gerir þér kleift að taka á móti skilaboðum
frá endurvarpa á öllum studdum tungumálum. Valin gerir
þér kleift að velja á hvaða tungumálum þú vilt fá skilaboð
frá endurvarpa. Ef þú finnur ekki tungumálið sem þú óskar
skaltu velja Önnur.
Greina nýtt efni—Ef þú hefur stillt Greina nýtt efni > á
Virkt leitar tækið sjálfkrafa að nýjum efnisnúmerum og
vistar nýju númerin án heitis í málefnalistann. Veldu
Óvirkt ef þú vilt ekki vista ný efnisnúmer sjálfkrafa.
Ýttu á og veldu Útvarp. Hægt er að nota forritið sem
venjulegt FM útvarp til að hlusta á og vista stöðvar. Einnig
er hægt að nota það til að birta uppýsingar á skjánum sem
tengjast því efni sem hlustað er á, ef útvarpsstöðin býður
upp á sjónræna þjónustu (Visual Radio service). Sjónræn
þjónusta byggir á pakkagögnum (sérþjónusta). Hægt er að
hlusta á FM útvarpið á sama tíma og önnur forrit tækisins
eru notuð.
Til að nota sjónræna þjónustu verður tækið að uppfylla
eftirfarandi skilyrði:
• Kveikt verður að vera á því.
• Gilt SIM-kort verður að vera í því.
• Útvarpsstöðin sem hlustað er á, auk símafyrirtækisins,
verður að styðja þjónustuna.
• Nauðsynlegt er að tilgreina internetaðgangsstað til að
tengjast við Visual Radio miðlara símafyrirtækisins.
• Nauðsynlegt auðkenni verður að vera til staðar fyrir
Visual Radio og kveikt verður að vera á þjónustunni.
Sjá ‘Vistaðar stöðvar’, á bls. 71.
Ef þú hefur ekki aðgang að Visual Radio þjónustunni er
ekki víst að símafyrirtækið eða útvarpsstöðvarnar þar sem
þú ert styðji þjónustuna. Ekki er víst að sjónræna
þjónustan sé í boði á öllum svæðum og löndum.
Vanalega er hægt að hringja eða svara símtali þegar
hlustað er á útvarpið. Slökkt er á útvarpinu þegar símtal er
í gangi. Þegar símtalinu er lokið getur verið nauðsynlegt að
kveikja handvirkt á útvarpinu aftur.
Útvarpið velur tíðnisviðið út frá landsupplýsingunum
sem það fær frá símkerfinu. Ef þessar upplýsingar eru
ekki til staðar getur verið að tækið biðji þig að tilgreina
staðsetningu þína, eða þá að þú getur valið hana í
stillingum útvarpsins.
Hlustað á útvarpið
Athugaðu að móttökugæði útvarpsins fara eftir sendistyrk
útvarpsstöðvarinnar á svæðinu.
FM-útvarpið þarf annað loftnet en það sem er í þráðlausa
tækinu. Samhæft höfuðtól eða aukahlutur þarf að vera
tengdur tækinu ef FM-útvarpið á að virka rétt.
Ýttu á og veldu Útvarp. Leitað er að útvarpsstöðvum
með því að velja eða . Leitinni lýkur þegar tækið
finnur útvarpsstöð. Tíðninni er breytt handvirkt með því að
velja Valkostir > Handvirk leit.
Ef útvarpsstöðvar hafa verið vistaðar er hægt að velja
eða til að stilla á næstu eða fyrri stöð. Einnig er hægt
að ýta á takkann þar sem útvarpsstöðin er vistuð.
Hljóðstyrkurinn er valinn með því að ýta á eða .
Hlustað er á útvarpið í hátalaranum með því að velja
Valkostir > Virkja hátalara.
Viðvörun: Hlusta skal á tónlist með hæfilegum
hljóðstyrk. Stöðug áraun af háum hljóðstyrk getur
skaðað heyrn. Ekki skal halda tækinu nálægt eyranu
þegar hátalarinn er notaður því hljóðstyrkur getur verið
mjög mikill.
Til að skoða þær útvarpsstöðvar sem hægt er að velja á
tilteknum stað skaltu velja Valkostir > Stöðvaskrá
(sérþjónusta).
Til að vista þá stöð sem valin er á útvarpsstöðvalistanum
skaltu velja Valkostir > Vista stöð. Til að opna listann með
vistuðum stöðvum þínum skaltu velja Valkostir > Stöðvar.
Sjá ‘Vistaðar stöðvar’, á bls. 71.
Til að fara í biðstöðu og hafa áfram kveikt á útvarpinu
skaltu velja Valkostir > Spila í bakgrunni.
Skoðun sjónræns efnis
Símafyrirtækið þitt eða þjónustuveitan þín gefa
upplýsingar um framboð, kostnað og áskrift.
Til að skoða sjónrænt efni þeirrar útvarpsstöðvar sem stillt
er á skaltu velja eða Valkostir > Opna sjónr. þjón..
Ef auðkennið hefur ekki verið vistað fyrir stöðina skaltu slá
það inn eða velja Sækja til að leita að því á
stöðvalistanum (sérþjónusta).
Þegar tengingu hefur verið komið á við sjónræna þjónustu
sést efni þjónustuveitunnar á skjánum.
Til að breyta stillingum fyrir skjá sjónræns efnis skaltu
velja Valkostir > Skjástillingar > Lýsing eða Skjávari
birtist eftir.
Vistaðar stöðvar
Hægt er að vista allt að 20 útvarpsstöðvar. Stöðvalistinn
er opnaður með því að velja Valkostir > Stöðvar.
Hlustað er á vistaða stöð með því að velja Valkostir >
Stöð > Hlusta. Sjónrænt efni útvarpsstöðvar er skoðað
með því að velja Valkostir > Stöð > Opna sjónr. þjón..
Stöðvaupplýsingum er breytt með því að velja Valkostir >
dagbókarskjá sem er. Fundaratriði opnast og stöfunum
sem þú slærð inn er bætt inn í Efni reitinn.
Ábending! Taktu reglulega afrit af upplýsingunum í
tækinu og settu það á minniskortið. Þú getur sett
upplýsingarnar, líkt og dagbókaratriði, aftur yfir í tækið
síðar. Sjá ‘Verkfæri fyrir minniskort’, á bls. 16.
Dagbókaratriði búin til
1 Ýttu á , veldu Dagbók >
Valkostir > Nýtt atriði og
svo eitthvað af
eftirfarandi:
Fundur—Til að minna þig
á stefnumót með
tiltekinni dagsetningu
og tíma.
Minnisatriði—Til að skrifa
almenna færslu fyrir
tiltekinn dag.
Afmæli—Til að minna þig á afmæli og aðra
merkisdaga. Færslur fyrir afmælisdaga eru endurteknar
á hverju ári.
2 Fylltu út reitina. Notaðu takkann til að fara á
milli reita.
Viðvörun (fundir og afmæli)—Veldu Virk og ýttu á
til að fylla út Tími viðvörunar og Dagur viðvörunar
reitina. táknið í dagskjánum táknar hljóðmerki.
Endurtaka—Ýttu á til að breyta atriðinu í
endurtekið atriði ( sést í dagskjánum).
Endurtaka fram til—Hægt er að velja lokadagsetningu
fyrir endurtekna atriðið.
Samstilling:
Einkamál—Eftir samstillingu getur einungis þú séð
dagbókaratriðið þar sem það er falið fyrir öðrum sem
hafa aðgang að dagbókinni á netinu.
Opinber—Þeir sem hafa aðgang að dagbókinni þinni á
netinu geta séð atriðið.
Engin—Dagbókaratriðið er ekki afritað yfir í tölvuna
Slökkt er á hljóðmerki með því að velja Hljótt. Textinn er
þó áfram á skjánum. Veldu Stöðva til að slökkva alveg á
áminningunni. Stillt er á blund með því að velja Blunda.
Dagbók
Ábending! Til að senda dagbókaratriði í samhæfan
síma skaltu velja Valkostir > Senda > Sem SMS, Með
margmiðlun eða Með Bluetooth.
Ábending! Þú getur flutt gögn úr dagbókar- og
verkefnaforritum flestra annarra Nokia síma yfir í
tækið þitt og samstillt dagbókina þína og verkefni við
samhæfa tölvu með Nokia PC Suite. Sjá geisladiskinn
sem fylgir með tækinu.
Minnt á atriði
Þú getur látið tækið minna þig á fundi og afmæli.
1 Opnaðu atriðið sem þú vilt láta minna þig á og veldu
Viðvörun > Virk.
2 Veldu Tími viðvörunar og Dagur viðvörunar.
3 Veldu Endurtaka og ýttu á til að velja hversu oft
þú vilt að minnt sé á atriðið.
4 Veldu Lokið.
Til að eyða áminningu um atriði skaltu opna það og velja
Viðvörun > Óvirk.
Dagbókarskjáir
Ábending! Veldu Valkostir > Stillingar til að breyta
upphafsdegi vikunnar eða því hvaða skjár birtist þegar
dagbókin er opnuð.
Í mánaðarskjánum eru þeir dagar sem atriðum hefur verið
bætt við merktir með litlum þríhyrningi neðst í hægra
horninu. Í vikuskjánum birtast minnisatriði og afmæli fyrir
klukkan 8. Ýttu á til að skipta á milli mánaðarskjásins,
vikuskjásins og dagskjásins.
Tákn á daga- og vikuskjá: Minnisatriði og Afmæli.
Það er ekkert tákn fyrir valkostinn Fundur.
Það er alltaf hægt að velja daginn í dag með því að ýta á
. Til að opna tiltekinn dag skaltu velja Valkostir > Fara
á dagsetningu, slá inn dagsetninguna og velja Í lagi.
Dagbókaratriðum eytt
Hægt er að auka laust minni í tækinu með því að
eyða gömlum atriðum í Dagbók.
Til að eyða nokkrum atriðum í einu skaltu opna
mánaðarskjáinn, velja Valkostir > Eyða atriði og
svo eitt af eftirfarandi:
Ýmsar þjónustuveitur halda úti síðum sem eru sérstaklega
hannaðar fyrir farsíma. Til að opna þessar síður skaltu ýta
á og velja Vefur. Á þessum síðum er notað WML
(Wireless Markup Language), XHTML (Extensible
Hypertext Markup Language) eða HTML (Hypertext
Markup Language).
Athuga skal upplýsingar um þjónustu, verðlagningu
og gjaldskrá hjá símafyrirtæki eða þjónustuveitu.
Þjónustuveitur veita einnig leiðbeiningar um hvernig nota
eigi þjónustu þeirra.
Flýtivísir:Tengingu er komið á með því að halda inni
takkanum í biðstöðu.
Vefur opnaður
• Vistaðu stillingarnar sem eru nauðsynlegar til að fá
aðgang að vefsíðunni sem þú vilt nota. Sjá ‘Móttaka
vafrastillinga’, bls. 76 eða ‘Stillingar færðar inn
handvirkt’, bls. 76.
• Komdu á tengingu við vefinn. Sjá ‘Tengingu komið á’,
á bls. 77.
• Vafraðu um síðurnar. Sjá ‘Vafrað’, á bls. 78.
• Lokaðu tengingunni við vefinn. Sjá ‘Tenging rofin’, á
bls. 80.
Móttaka vafrastillinga
Ábending! Stillingar kunna að vera aðgengilegar á
vefsvæði símafyrirtækis eða þjónustuveitu.
Hægt er að taka við vefþjónustustillingum í sérstökum
textaskilaboðum frá símafyrirtækinu eða þjónustuveitunni
sem heldur úti vefsíðunni. Sjá ‘Gögn og stillingar’, á bls. 60.
Hafðu samband við símafyrirtækið þitt eða
þjónustuveituna til að fá nánari upplýsingar.
Stillingar færðar inn handvirkt
Fylgdu leiðbeiningum þjónustuveitunnar.
1 Ýttu á , veldu Verkfæri > Stillingar > Samband >
Aðgangsstaðir og veldu stillingar fyrir aðgangsstað.
(nauðsynlegt), heiti bókamerkisins, aðgangsstað og,
ef vefsíðan krefst þess, notandanafni og lykilorði.
Tækið kann að vera með nokkrum bókamerkjum fyrir setur
sem ekki eru tengd Nokia. Nokia hvorki ábyrgist né hvetur
til notkunar þessara vefsetra. Ef valið er að heimsækja þessi
vefsetur skal beita sömu öryggisráðstöfunum og fyrir öll
önnur setur.
Tákn á bókamerkjaskjánum:
Upphafssíðan fyrir sjálfgefna aðgangsstaðinn.
Ef breytt er um aðgangsstað breytist upphafssíðan
í samræmi við hann.
Sjálfvirka bókamerkjamappan inniheldur bókamerki
() sem er safnað sjálfkrafa þegar vefsíður eru skoðaðar.
Bókamerkjunum í þessari möppu er raðað sjálfkrafa
eftir léni.
Bókamerki sem sýnir heiti eða veffang bókamerkisins.
(Ef til staðar) Mappa sem inniheldur bókamerki fyrir
efni sem hægt er að hlaða niður.
Bókamerkjum bætt við handvirkt
1 Í bókamerkjaskjánum skaltu velja Valkostir > Stj.
bókamerkja > Bæta við bókamerki.
2 Fylltu út reitina. Aðeins er nauðsynlegt að slá inn
veffangið. Sjálfgefni aðgangsstaðurinn notaður fyrir
bókamerkið ef annar er ekki valinn. Ýttu á til að slá
inn sérstafi líkt og /, ., : og @. Ýttu á til að stroka
út stafi.
3 Veldu Valkostir > Vista til að vista bókamerkið.
Sending bókamerkja
Veldu bókamerki og síðan Valkostir > Senda > Sem SMS.
Ýttu á til að senda bókamerkið. Hægt er að senda
fleiri en eitt bókamerki í einu.
Tengingu komið á
Þegar allar nauðsynlegar tengistillingar hafa verið
vistaðar er hægt að opna vefsíður.
1 Veldu bókamerki eða sláðu inn veffang í reitinn ().
Þegar þú slærð inn veffang birtast þau bókamerki sem
passa við það sem þú hefur skrifað fyrir ofan reitinn.
Ýttu á til að velja eitthvert bókamerkjanna.
Ef öryggisvísirinn birtist á meðan tenging er virk er
Vefur
gagnasending á milli tækisins og netgáttar eða miðlara
dulkóðuð.
Öryggistáknið sýnir ekki að gagnasendingin milli
gáttarinnar og efnisþjónsins (eða staðarins þar sem
umbeðin tilföng eru geymd) sé örugg. Þjónustuveitan
tryggir gagnasendinguna milli gáttarinnar og
efnisþjónsins.
Veldu Valkostir > Upplýsingar > Öryggi til að skoða
upplýsingar um tenginguna, stöðu dulkóðunar og
upplýsingar um miðlara og notandakenni.
Öryggisaðgerðir geta verið nauðsynlegar fyrir tiltekna
þjónustu, líkt og bankaþjónustu. Þú þarft öryggisvottorð
fyrir slíkar tengingar. Þjónustuveitan gefur nánari
upplýsingar. Sjá einnig ‘Vottorðastjórnun’, bls. 106.
Vafrað
Mikilvægt: Aðeins skal nota þjónustu sem er treyst
og sem veitir nægilegt öryggi og vörn gegn skaðlegum
hugbúnaði.
Á vefsíðu eru nýir tenglar undirstrikaðir með bláu og
tenglar sem áður hafa verið skoðaðir með fjólubláu. Jaðar
mynda sem gegna hlutverki tengla er blár.
Til að opna tengil, merkja í reiti og velja skaltu ýta á .
Flýtivísir: er notaður til að fara neðst á síðu og
til að fara efst á síðu.
Til að fara til baka um eina síðu þegar þú vafrar skaltu velja
Til baka. Ef Til baka er ekki í boði skaltu velja Valkostir >
Valm. í leiðarkerfi > Forsaga til að skoða lista í tímaröð
yfir þær síður sem þú hefur opnað. Þessi listi er hreinsaður
í hvert sinn sem hætt er að vafra.
Til að uppfæra efni síðunnar skaltu velja Valkostir > Valm.
í leiðarkerfi > Hlaða aftur.
Til að vista bókamerki skaltu velja Valkostir > Vista s.
bókamerki.
Ábending! Til að opna bókamerkjaskjáinn á meðan þú
vafrar skaltu halda inni . Til að fara aftur í
vafraskjáinn skaltu velja Valkostir > Aftur að síðu.
Til að vista síðu á meðan þú vafrar skaltu velja Valkostir >
Frekari möguleikar > Vista síðu. Hægt er að vista síður í
minni tækisins eða á minniskorti (ef minniskort er í tækinu)
og þannig skoða þær án þess að tengjast við vefinn.
Síðurnar eru opnaðar síðar með því að ýta á í
bókamerkjaskjánum. Þá opnast skjárinn Vistaðar síður.
Til að slá inn nýtt veffang skaltu velja Valkostir > Valm. í
Til að opna undirlista með skipunum eða aðgerðum fyrir
síðuna sem er opin skaltu velja Valkostir >
Þjónustuvalkostir.
Hægt er að hlaða niður skrám sem ekki sjást á vefsíðunni,
líkt hringitónum, myndum, táknmyndum símafyrirtækis,
þemum og myndinnskotum. Hlutir sem hlaðið er niður eru
meðhöndlaðir af viðeigandi forritum tækisins. Til dæmis er
mynd sem hlaðið hefur verið niður vistuð í Gallerí.
Höfundarréttarvarnir geta komið í veg fyrir að hægt sé að
afrita, breyta, flytja eða framsenda myndir, tónlist (þ.m.t.
hringitóna) og annað efni.
Mikilvægt: Aðeins skal setja upp og nota forrit og
annan hugbúnað frá aðilum sem veita nægilegt öryggi og
vörn gegn skaðlegum hugbúnaði.
Ábending! Vafrinn safnar bókamerkjum sjálfkrafa
meðan vafrað er. Bókamerkin eru vistuð í sjálfvirku
bókamerkjamöppunni () og flokkuð sjálfkrafa
eftir lénum. Sjá einnig ‘Vefstillingar’, á bls. 80.
Vistaðar síður skoðaðar
Ef þú skoðar oft síður með upplýsingum sem eru sjaldan
uppfærðar geturðu vistað þær og skoðað án tengingar.
Í skjá vistaðra síðna geturðu einnig búið til möppur þar
sem þú getur geymt vistaðar síður.
Ýttu á í bókamerkjaskjá til að opna skjá vistaðra síðna.
Í skjá vistaðra síðna skaltu ýta á til að opna vistaða
síðu ().
Til að vista síðu á meðan þú vafrar skaltu velja Valkostir >
Frekari möguleikar > Vista síðu.
Til að koma á tengingu við vafraþjónustu og hlaða niður
nýjustu útgáfu síðunnar skaltu velja Valkostir > Hlaða
aftur. Tækið er áfram tengt við vefinn eftir að nýju
útgáfunni hefur verið hlaðið inn.
Niðurhal og kaup á hlutum
Hægt er að hlaða niður niður hlutum eins og hringitónum,
myndum, skjátáknum símafyrirtækis, þemum og
myndinnskotum. Sumir þessara hluta eru ókeypis á meðan
aðrir eru til sölu. Hlutir sem hlaðið er niður eru
meðhöndlaðir af viðeigandi forritum tækisins. T.d. er
ljósmynd sem hlaðið hefur verið niður vistuð í Gallerí.
Mikilvægt: Aðeins skal setja upp og nota forrit og
annan hugbúnað frá aðilum sem veita nægilegt öryggi og
vörn gegn skaðlegum hugbúnaði.
1 Til að hlaða niður hlut skaltu skruna að tengli hans og
ýta á .
2 Veldu viðeigandi valkost til að kaupa hlutinn (t.d.
niður. Veldu Hætta við til að hætta við niðurhalið.
Höfundarréttarvarnir geta komið í veg fyrir að hægt sé að
afrita, breyta, flytja eða framsenda myndir, tónlist (þ.m.t.
hringitóna) og annað efni.
Tenging rofin
Veldu Valkostir > Frekari möguleikar > Aftengja til
að loka tengingunni og skoða vefsíðuna þannig, eða
Valkostir > Hætta til að loka tengingunni sem og
vafranum.
Skyndiminni hreinsað
Upplýsingarnar eða þjónustan sem þú fékkst aðgang
að eru vistaðar í skyndiminni tækisins.
Skyndiminni er minni sem er notað til að vista gögn
til skamms tíma. Ef reynt hefur verið að komast í eða
opnaðar hafa verið trúnaðarupplýsingar sem krefjast
aðgangsorðs skal tæma skyndiminnið eftir hverja notkun.
Upplýsingarnar eða þjónustan sem farið var í varðveitist í
skyndiminninu. Skyndiminnið er tæmt með því að velja
Veldu Valkostir > Stillingar og eitthvað af eftirfarandi:
Aðgangsstaður—Til að breyta sjálfgefna aðgangsstaðnum
skaltu ýta á . Þá opnast listi yfir þá aðgangsstaði sem
þú getur valið úr. Sjá ‘Tengistillingar’, á bls. 101.
Sýna myndir—Til að velja hvort þú vilt hlaða niður
myndum þegar þú vafrar. Ef þú velur Nei geturðu valið
Valkostir > Sýna myndir til að hlaða niður myndum síðar.
Leturstærð—Til að velja leturstærðina.
Sjálfvalin kóðun—Ef stafir birtast ekki á réttan hátt er
hægt að velja aðra kóðun. Sá valkostur fer eftir því hvaða
tungumál er notað.
Sjálfvirk bókamerki—Til að slökkva á sjálfvirkri vistun
bókamerkja skaltu velja Óvirk. Ef þú vilt halda áfram
að vista bókamerki sjálfkrafa, en ekki birta möppuna í
bókamerkjaskjánum, skaltu velja Fela möppu.
Skjástærð—Til að velja hvað birtist þegar þú vafrar.
Veldu Bara valda takka eða Allur skjár.
Heimasíða—Til að tilgreina heimasíðuna.
Leitarsíða—Til að tilgreina vefsíðu sem hlaðið er niður
þegar þú velur Valm. í leiðarkerfi > Opna leitarsíðu í
bókamerkjaskjánum, eða á meðan þú vafrar.
Hljóðstyrkur—Ef þú vilt að vafrinn spili hljóð af vefsíðum
skaltu velja hljóðstyrkinn.
Sækja—Ef þú vilt að útlit síðunnar birtist eins nákvæmlega
og hægt er í Lítill skjár skaltu velja Út frá gæðum. Ef þú
vilt ekki hlaða niður ytri CSS-stílsniðum skaltu velja Út frá
hraða.
Fótspor—Til að leyfa eða leyfa ekki móttöku og sendingu
fótspora.
Útskýring: Efnisveitur nota fótspor til að bera kennsl
á notendur og sjá hvaða efni þeir kjósa helst að skoða.
Java/ECMA forskrift—Til að leyfa eða leyfa ekki forskriftir.
Öryggisviðvaranir—Til að fela eða birta öryggisviðvaranir.
Staðf. DTMF-send.—Veldu hvort þú staðfesta sendingu
DTMF-tóna á meðan á símtali stendur. Sjá einnig ‘Valkostir
meðan á símtali stendur’, á bls. 28.
Ýttu á , veldu Forrit. mín og svo leik. Upplýsingar um
hvernig á að leika leik fást með því að velja Valkostir >
Hjálp.
Tónlistarspilari
Ýttu á og veldu Forrit. mín > Tónlist. Með
tónlistarspilaranum er hægt að spila tónlistarskrár og búa
til og hlusta á lagalista.
Viðvörun: Hlusta skal á tónlist með hæfilegum
hljóðstyrk. Stöðug áraun af háum hljóðstyrk getur
skaðað heyrn. Ekki skal halda tækinu nálægt eyranu
þegar hátalarinn er notaður því hljóðstyrkur getur
verið mjög mikill.
Öll lög birtir allar tónlistarskrár á minniskortinu í
stafrófsröð. Nýlega bætt við birtir lista yfir alla tónlist á
minniskortinu með því lagi sem síðast var bætt við efst í
listanum.
Veldu Möppur eða Tónlistamenn til að skoða lög eftir
plötu eða flytjanda. Tækið safnar upplýsingum um plötuna
og flytjandann af ID3 hlutum laganna, ef þeir eru til staðar.
Tónlist bætt við
Til að bæta tónlist við spilarann skaltu afrita tónlistarskrár
yfir á minniskortið þitt. Ýttu á og veldu Forrit. mín >
Tónlist > Valkostir > Uppfæra safn.
Höfundarréttarvarnir geta komið í veg fyrir að hægt sé að
afrita, breyta, flytja eða framsenda myndir, tónlist (þ.m.t.
hringitóna) og annað efni.
Eftir að þú hefur sett tónlistarskrár á minniskort, eða
fjarlægt þær þaðan, getur verið að þú þurfir að uppfæra
upplýsingar spilarans. Veldu Valkostir > Uppfæra safn.
Uppfærslan getur tekið nokkrar sekúndur, eftir fjölda
tónlistarskránna og stærð minnisins.
Spilun tónlistar
Tónlist er spiluð með því að velja Öll lög, Tónlistamenn,
Möppur, Nýlega bætt við eða Spilunarlistar og lag.
Spilarinn byrjar að spila valda lagið, sem og önnur lög
áskjánum.
Ýtt er á skruntakkann til að setja lög í bið og halda spilun
þeirra áfram. Spólað er áfram í lagi með því að halda inni
. Spólað er áfram með því að halda inni .
Hljóðstyrkurinn er valinn með því að ýta á eða .
Skipt er yfir í fyrra eða næsta lag með því að ýta á
eða.
Skipt er á milli handahófskenndrar spilunar og venjulegrar
spilunar með því að velja Valkostir > Stokka. Valið er
hvort spilun stöðvast þegar komið er að lokum lagalistans,
eða hvort hann byrjar aftur frá upphafi með því að velja
Valkostir > Endurtaka.
Leitað er að lögum á lagalista með því að ýta á takkanna
og slá þannig inn stafi í leitarreitinn.
Til að velja nokkur lög fyrir lagalista eða til að eyða þeim
skaltu halda inni á sama tíma og þú ýtir á eða .
Lögum er eytt með því að velja þau og ýta á . Það að
eyða lagi fjarlægir það varanlega af minniskortinu.
Lagalistar
Tónlistarspilarinn styður einfalda .m3u lagalista.
Afritaðu lagalista með tónlistarskrám, eða búðu
þá til í tónlistarspilaranum.
Til að bæta lagi, plötu eða flytjanda við lagalista skaltu
velja hlutinn og svo Valkostir > Bæta við spilunarlista.
Þú getur búið til nýjan lagalista eða bætt lögum við
lagalista sem þegar eru til.
Hlustað er lagalista með því að velja Spilunarlistar og svo
lagalista.
Lagalista er eytt með því að velja hann og ýta á . Þegar
lagalista er eytt er tónlistarskránum á honum ekki eytt.
Flýtival—flýtivísum
bætt við
Sjálfgefnir flýtivísar: opnar Dagbók, opnar Innhólf
og opnar Minnismiðar.
Til að vista flýtivísa (tengla í uppáhalds myndirnar þínar,
minnismiða, bókamerki o.s.frv.) skaltu ýta á og velja
Forrit. mín > Flýtival. Flýtivísum er einungis bætt við úr
forritum. Þessi möguleiki er ekki fyrir hendi í öllum
forritum.
1 Veldu hlut í forriti sem þú vilt bæta flýtivísi við.
2 Veldu Bæta við 'Flýtival'. Flýtivísir í Flýtival er
sjálfkrafa uppfærður ef þú færir hlutinn sem hann vísar
í (t.d. úr einni möppu í aðra).
Til að breyta auðkenni flýtivísistákns neðst í vinstra
horninu skaltu velja Valkostir > Teikn flýtivísis.
Veldu flýtivísinn og ýttu á . Ekki er hægt að eyða
sjálfgefnu flýtivísunum í Minnism., Dagbók og Innhólf.
Þegar þú fjarlægir forrit eða skjal sem er með flýtivísi í
Flýtival er flýtivísistákn þess hlutar dekkt í Flýtival
Forritin mín
skjánum. Hægt er að eyða flýtivísinum næst þegar Flýtival
er ræst.
Spjall
Ýttu á og veldu Forrit. mín > Spjall.
Spjallið (sérþjónusta) gerir þér kleift að hafa samband við
annað fólk með því að nota spjallskilaboð og taka þátt í
umræðuhópum (spjallhópum) þar sem rætt er um ákveðin
málefni. Þjónustuveitur halda úti spjallmiðlurum sem þú
getur skráð þig inn á þegar þú hefur gerst áskrifandi að
þjónustunni.
Veldu Samtöl til að hefja eða halda áfram samræðum við
aðra notendur; Spjalltengiliðir til að búa til, breyta eða
skoða hvort tengiliðir eru tengdir eða ekki; Spjallhópar til
að hefja eða halda hópsamræðum áfram við fleiri en einn
notanda; eða Upptekið spjall til að skoða eldri samræður
sem þú hefur vistað.
Til athugunar: Kannaðu framboð spjallþjónustu,
verðlagningu og gjaldskrá hjá símafyrirtæki og/eða
þjónustuveitu. Þjónustuveitur veita einnig
leiðbeiningar um hvernig nota eigi þjónustu þeirra.
Móttaka spjallstillinga
Þú verður að vista stillingarnar til að fá aðgang að
þjónustunni sem þú vilt nota. Stillingarnar kunna að berast
í sérstökum textaskilaboðum frá símafyrirtækinu eða
þjónustuveitunni sem býður upp á spjallþjónustuna. Sjá
‘Gögn og stillingar’ á bls. 60. Þú getur einnig slegið inn
stillingarnar handvirkt. Sjá ‘Stillingar spjallmiðlara’ á
bls. 87.
Tengst við spjallmiðlara
Ábending: Til að skrá þig inn sjálfkrafa þegar þú ræsir
Spjall skaltu velja Valkostir > Stillingar > Stillingar
miðlara > Gerð innskr. á spjall > Við ræs. forrits.
1 Opnaðu Spjall til að láta tækið tengjast við
spjallmiðlarann sem þú notar. Upplýsingar um hvernig
á að skipta um spjallmiðlara sem er notaður og vista
nýja spjallmiðlara er að finna í ‘Stillingar
spjallmiðlara’, bls. 87.
2 Sláðu inn aðgangsorðið þitt og lykilorð og ýttu á til
að skrá þig inn. Þú færð aðgangsorðið og lykilorðið fyrir
spjallmiðlarann hjá þjónustuveitunni þinni.
Þegar þú hefur gengið í spjallhóp geturðu bæði skoðað
skilaboðin sem skipst er á í hópnum og sent þín eigin
skilaboð.
Til að senda skilaboð skaltu slá þau inn og ýta á .
Forritin mín
Til að senda einkaboð til þátttakanda skaltu velja
Valkostir > Senda einkamál, velja viðtakanda, skrifa
skilaboðin og ýta á .
Til að svara einkaboðum sem þú hefur móttekið skaltu
velja skilaboðin og svo Valkostir > Svara.
Til að bjóða spjalltengiliðum sem eru tengdir að ganga í
spjallhóp skaltu velja Valkostir > Senda boð, velja
tengiliðina sem þú vilt bjóða, skrifa boðið og ýta á .
Til að loka fyrir móttöku skilaboða frá ákveðnum
þátttakendum skaltu velja Valkostir >
Útilokunarmöguleik. og svo valkostinn sem þú vilt.
Vista spjall
Til að taka upp samtal eða samskipti spjallhóps í
samtalsskrá skaltu velja Valkostir > Taka upp spjall, slá
inn heiti fyrir samtalsskrána og ýta á . Til að stöðva
vistunina skaltu velja Valkostir > Stöðva upptöku.
Vistuðu samtalsskrárnar eru sjálfkrafa vistaðar í Upptekið
spjall.
Til að skoða vistað spjall skaltu velja Upptekið spjall í
aðalskjánum, velja samtalið og ýta á .
Skoða og hefja samtöl
Farðu í Samtöl skjáinn til að sjá lista yfir þátttakendur sem
eru í virku tveggja manna tali við þig.
Til að skoða samtalið skaltu finna þátttakandann og ýta
á.
Til að halda samtalinu áfram skaltu skrifa skilaboðin og ýta
á .
Til að fara aftur í samtalalistann án þess að ljúka samtalinu
skaltu ýta á Til baka.
Til að ljúka samtalinu skaltu velja Valkostir > Ljúka
samtali. Þeim samtölum sem eru í gangi er slitið sjálfkrafa
þegar þú hættir í Spjall.
Til að hefja nýtt samtal skaltu velja Valkostir > Nýtt
samtal og úr eftirfarandi:
Velja móttakanda—Til að sjá lista yfir spjalltengiliði þína
sem eru tengdir. Skrunaðu að tengiliðnum sem þú vilt tala
við og ýttu á .
Slá inn aðgangsorð—Til að slá inn aðgangsorð notandans
sem þú vilt eiga samtal við skaltu styðja á .
Útskýring: Þjónustuveitan úthlutar aðgangsorðum til
þeirra sem skrá sig fyrir þessari þjónustu.
Til að vista viðmælanda þinn í spjalltengiliðunum þínum
skaltu skruna að honum og velja Valkostir > Bæta í
spjalltengiliði.
Til að senda sjálfvirk svör við mótteknum skilaboðum
skaltu velja Valkostir > Setja á sjálfv. svar. Sláðu inn
textann og ýttu á Lokið. Þú getur ennþá tekið á móti
skilaboðum.
Spjalltengiliðir
Farðu í Spjalltengiliðir til að sækja lista yfir spjalltengiliði
af miðlaranum eða til að bæta nýjum spjalltengilið við
tengiliðalistann. Þegar þú skráir þig inn á miðlara eru
spjalltengiliðalistar sem hafa verið notaðir áður sóttir
sjálfkrafa af miðlaranum.
Halda utan um spjallhópa
Farðu í Spjallhópar skjáinn til að sjá lista yfir spjallhópa
sem þú hefur vistað eða ert í þá stundina.
Stillingar spjallmiðlara
Veldu Valkostir > Stillingar > Stillingar miðlara.
Stillingarnar kunna að berast í sérstökum textaboðum
frá símafyrirtækinu eða þjónustuveitunni sem veitir
viðkomandi spjallþjónustu. Þú færð aðgangsorð og lykilorð
frá þjónustuveitunni þegar þú skráir þig í þjónustuna.
Ef þú veist ekki aðgangs- eða lykilorðið þitt skaltu hafa
samband við þjónustuveituna.
Til að velja annan spjallmiðlara til að tengjast við skaltu
velja Sjálfgefinn miðlari.
Til að bæta nýjum miðlara á listann yfir spjallmiðlara
skaltu velja Miðlarar > Valkostir > Nýr miðlari. Sláðu
inn eftirfarandi stillingar.
Nafn miðlara—Sláðu inn heiti spjallmiðlarans.
Aðgangsst. í notkun—Veldu aðgangsstaðinn sem þú
vilt nota fyrir spjallmiðlarann.
Veffang—Sláðu inn veffang spjallmiðlarans.
Aðgangsorð notanda—Sláðu inn aðgangsorðið þitt.
Lykilorð—Sláðu inn innskráningarlykilorðið þitt.
Þú getur tengst öðrum samhæfum tækjum þráðlaust
með Bluetooth. Samhæf tæki eru m.a. farsímar, tölvur og
aukabúnaður eins og höfuðtól og bílbúnaður. Þú getur
notað Bluetooth til að senda myndir, myndinnskot, tónlist,
hljóðinnskot og minnismiða; til að tengjast öðrum
samhæfum tölvum þráðlaust (t.d. til að flytja skrár) eða til
að tengjast við samhæfan prentara til að prenta myndir
með valkostinum Myndprentun. Sjá ‘Prentun mynda’ á
bls. 48.
Þar sem tæki með Bluetooth nota útvarpsbylgjur til
samskipta þarf tækið ekki að vera í beinni sjónlínu við hitt
tækið. Nóg er að tækin séu í innan við 10 metra (32 feta)
fjarlægð hvort frá öðru. Truflanir geta þó orðið á
tengingunni vegna hindrana líkt og veggja eða annarra
raftækja.
Þetta tæki er samhæft við Bluetooth Specification 1.2
sem styður eftirfarandi snið: Basic Printing Profile,
Generic Access Profile, Serial Port Profile, Dial-up
Networking Profile, Headset Profile, Handsfree Profile,
Generic Object Exchange Profile, Object Push Profile, File
Transfer Profile, Basic Imaging Profile og Human Interface
Device Profile. Til að tryggja samvirkni milli annarra tækja
sem styðja Bluetooth-tækni skal nota aukahluti sem eru
viðurkenndir af Nokia fyrir þessa tegund. Leita skal
upplýsinga hjá framleiðendum annarra tækja um samhæfi
þeirra við þetta tæki.
Útskýring: Snið tengist þjónustu eða virkni og
skilgreinir hvernig mismunandi tæki tengjast. Til dæmis
er handfrjálsa sniðið notað til að tengja handfrjálst
tæki og símann. Til að tæki séu samhæf þurfa þau að
styðja sömu snið.
Takmarkanir kunna að vera á notkun Bluetooth-tækni á
sumum stöðum. Kanna skal það hjá yfirvöldum á staðnum
eða þjónustuveitunni.
Aðgerðir sem nota Bluetooth-tækni eða leyfa slíkum
aðgerðum að keyra í bakgrunni meðan aðrar aðgerðir eru
notaðar krefjast aukinnar rafhlöðuorku og minnka endingu
rafhlöðunnar.
Ek ki er hæ gt að no ta B luetoo th þegar tækið er læst. Frekari
upplýsingar um læsingu tækisins er að finna í ‘Öryggi’, á
bls. 104.
Stillingar Bluetooth
Ýttu á og veldu Tenging > Bluetooth. Þegar þú opnar
forritið í fyrsta skipti er beðið um að þú gefir tækinu þínu
heiti. Eftir að þú hefur stillt Bluetooth tengingu og breytt
Sýnileiki síma míns í Sýnilegur öllum geta önnur
Bluetooth tæki séð tækið þitt og heiti þess.
Veldu úr eftirfarandi:
Bluetooth—Veldu Kveikt eða Slökkt. Til að tengjast
þráðlaust við samhæft tæki skaltu stilla Bluetooth á Kveikt
og koma síðan á tengingu.
Sýnileiki síma míns—Til að leyfa öðrum tækjum með
Bluetooth að finna tækið þitt skaltu velja Sýnilegur öllum.
Til að fela tækið þitt skaltu velja Falinn.
Nafn síma míns—Veldu heiti fyrir tækið þitt.
Öryggi
Þegar þú ert ekki að nota Bluetooth skaltu stilla það á
Slökkt eða velja Sýnileiki síma míns > Falinn.
Ekki parast við óþekkt tæki.
Gögn send um Bluetooth
Hægt er að hafa nokkrar Bluetooth-tengingar virkar í einu.
Til dæmis er samtímis hægt að vera með höfuðtól tengt og
senda skrár til annars samhæfs tækis.
Vísar fyrir Bluetooth
• Þegar sést í biðstöðu er Bluetooth-tenging virk.
• Þegar blikkar er tækið að reyna að tengjast við
hitt tækið.
• Þegar táknið er stöðugt er Bluetooth-tengingin
virk.
Ábending! Til að senda texta um Bluetooth (í stað
þess að senda hann í textaskilaboðum) skaltu opna
Minnism., skrifa textann og velja Valkostir > Senda >
Með Bluetooth.
1 Opnaðu forrit þar sem hluturinn sem þú vilt senda er
geymdur. Opnaðu t.d. Gallerí til að senda mynd til
samhæfs tækis.
2 Veldu hlutinn (t.d. mynd) og síðan Valkostir > Senda
> Með Bluetooth. Tæki með Bluetooth sem eru innan
sendisvæðis byrja að birtast eitt af öðru á skjánum. Þú
sérð tækistákn, heiti tækisins, gerð þess eða stuttnefni.
Ábending! Ef þú hefur áður leitað að tækjum
birtist fyrst listi yfir þau tæki sem fundust við þá
leit. Til að hefja nýja leit skaltu velja Fleiri tæki.
Listinn er hreinsaður þegar slökkt er á tækinu.
Tákn fyrir tæki:
—Tölva; —Sími; —Hljóð- eða myndtæki;
—Höfuðtól; —Annað.
Til að stöðva leitina skaltu ýta á Hætta leit.
Tækjalistinn stöðvast.
4 Ef hitt tækið krefst pörunar áður en hægt er að senda
gögn heyrist hljóðmerki og þú ert beðin/n um að slá
inn lykilorð. Sjá ‘Pörun tækja’ á bls. 90.
5 Þegar tengingu hefur verið komið á birtist textinn
Tengingar
Sendi gögn.
Mappan Sendir hlutir í Skilaboð vistar ekki skilaboð
sem hafa verið send um Bluetooth.
Ábending! Þegar leitað er að tækjum kann að
vera að sum tæki sýni einungis eingild vistföng
(auðkennisnúmer tækis). Til að finna eingilt
auðkennisnúmer tækisins þíns skaltu slá inn
kóðann *#2820# í biðstöðu.
Pörun tækja
Útskýring: Pörun þýðir sannvottun. Notendur tækja
með Bluetooth þurfa að koma sér saman um lykilorð
og nota sama lykilorð fyrir bæði tækin til að geta parað
þau. Tæki sem ekki eru með notandaviðmót eru með
fast lykilorð frá framleiðanda.
Í aðalskjá Bluetooth skaltu ýta á til að opna skjá
paraðra tækja ().
Fyrir pörun skaltu búa til þitt eigið lykilorð (1-16
tölustafir) og biðja eiganda hins tækisins um að nota
sama lykilorð. Lykilorðið er aðeins notað einu sinni.
Til að parast við tæki skaltu velja Valkostir > Nýtt parað
tæki. Tæki með Bluetooth sem eru innan sendisvæðis byrja
að birtast eitt af öðru á skjánum. Veldu tækið og sláðu inn
lykilorðið. Slá verður sama lykilorð inn í hitt tækið. Eftir
pörunina vistast tækið á skjá paraðra tækja.
Pöruð tæki eru auðkennd með í tækjaleitinni.
Ábending! Til að velja stuttnefni (gælunafn) fyrir
parað tæki skaltu velja það og svo Valkostir > Gefa
stuttnefni í skjá paraðra tækja. Þetta nafn hjálpar þér
að þekkja ákveðið tæki á meðan tækjaleit stendur yfir
eða þegar tæki biður um tengingu.
Til að tilgreina tæki sem heimilt eða óheimilt skaltu velja
það og svo úr eftirfarandi valkostum:
Stilla sem heimilað—Hægt er að koma á tengingu milli
tækisins þíns og þessa tækis án þinnar vitneskju. Ekki þarf
að samþykkja eða heimila tenginguna sérstaklega. Notaðu
þessa stillingu fyrir þín eigin tæki, s.s. samhæft höfuðtól
eða tölvu, eða tæki þeirra sem þú treystir. táknar
samþykkt tæki í skjá paraðra tækja.
Stilla sem óheimilað—Alltaf þarf að samþykkja beiðni um
tengingu frá tækinu.
Til að hætta við pörun skaltu velja tækið og síðan
Valkostir > Eyða. Ef þú vilt hætta við allar paranir skaltu
pöruninni við það er hún fjarlægð strax og slökkt er
á tengingunni.
Gögn móttekin um Bluetooth
Þegar þú móttekur gögn um Bluetooth-tengingu heyrist
hljóðmerki og spurt er hvort þú viljir taka á móti
skilaboðunum. Ef þú samþykkir birtist og skilaboðin
eru sett í Innhólf möppuna í Skilaboð. Skilaboð sem
móttekin eru um Bluetooth-tengingu eru auðkennd
með. Sjá ‘Innhólf—móttaka skilaboða’ á bls. 60.
Slökkt á Bluetooth
Til að slökkva á Bluetooth-tengingu skaltu velja
Bluetooth > Slökkt.
Tenging við tölvu
Þú getur notað tækið þitt með ýmsum forritum fyrir
tengingu við tölvu og gagnaflutning. Með Nokia PC Suite
getur þú samstillt tengiliði, dagbók og verkefni, sem og
flutt myndir á milli tækisins og samhæfrar tölvu.
Komdu tengingunni alltaf á í tölvunni til að samstilla
hana við tækið.
Nánari upplýsingar um hvernig setja á upp Nokia PC Suite
(samhæft við Windows 2000 og Windows XP), sjá
notandahandbók fyrir Nokia PC Suite og Nokia PC Suite
hjálpina í uppsetningarhluta geisladisksins.
Tengingar
Geisladiskur
Geisladiskurinn ætti að fara í gang eftir að þú setur hann í
ge isla drifi ð á sa mhæfr i töl vu. E f það geri st ek ki sk altu g era
eftirfarandi: Opnaðu Windows Explorer, hægrismelltu á
geisladrifið sem geisladiskurinn er í og veldu Autoplay.
Tækið notað sem mótald
Þú getur notað tækið þitt sem mótald til að senda og taka
á móti tölvupósti eða til að tengjast við internetið með
samhæfri tölvu með Bluetooth-tengingu eða gagnasnúru.
Nánari leiðbeiningar um uppsetningu er að finna í
notendahandbókinni fyrir Nokia PC Suite í
mótaldsvalkostum (Modem options) á geisladiskinum.
Ábending! Þegar þú notar Nokia PC Suite í fyrsta
skipti skaltu nota Get Connected forritið í Nokia PC
Suite til að tengjast við tölvuna þína. Sjá geisladiskinn
sem fylgir með tækinu.
Hægt er að hafa fjölda gagnatenginga virkar í einu þegar
Tengingar
þú notar tækið í GSM- og UMTS-símkerfum. Ýttu á
og veldu Tenging > Stj. teng. til að sjá stöðu margra
gagnatenginga, skoða upplýsingar um magn sendra og
móttekinna gagna og til að rjúfa tengingar. Þegar þú
opnar Stj. teng. sérð þú eftirfarandi:
• Opnar gagnatengingar: gagnasímtöl () og
pakkagagnatengingar ( ) eða ( ).
• Staða hverrar tengingar
• Magn gagna sem hefur verið hlaðið upp og niður í
hverri tengingu (aðeins sýnt fyrir
pakkagagnatengingar)
• Lengd hverrar tengingar (aðeins fyrir gagnasímtöl).
Til athugunar: Tíminn sem birtist á reikningum
þjónustuveitunnar fyrir símtöl kann að vera breytilegur
eftir eiginleikum símkerfisins, sléttun fjárhæða við
gerð reikninga og öðru slíku.
Til að rjúfa tengingu skaltu skruna að henni og velja
Valkostir > Aftengja.
Til að rjúfa allar virkar tengingar skaltu velja Valkostir >
Aftengja allar.
Skoða upplýsingar um gagntengingu
Veldu tengingu og síðan Valkostir > Upplýsingar til að
skoða upplýsingarnar um hana.
Nafn—Heiti internetaðgangsstaðarins (IAP) sem er í
notkun eða heiti mótaldstengingarinnar ef tengst er með
innhringingu.
Fl.máti—Gerð gagnatengingarinnar: Gagnasímtal,
Háhraða GSM eða Pakkagögn.
Staða—Staða tengingarinnar: Tengist, Teng. (óvirk),
Teng. (virk), Í bið, Aftengist eða Aftengd.
Móttekið—Magn gagna, í bætum, sem flutt hafa verið
ítækið.
Sent—Magn gagna, í bætum, sem send hafa verið úr
tækinu.
Lengd—Hversu lengi tengingin hefur verið virk.
Hraði—Hraði sendinga og móttöku gagna í kB/s
(kílóbætum á sekúndu).
Innhr.nr.—Innhringinúmerið sem er notað.
Nafn—Heiti aðgangsstaðarins sem er í notkun.
Samnýtt (birtist ekki ef tengingin er ekki samnýtt)—
Ýttu á og veldu Tenging > Samstilling. Samstilling
gerir þér kleift að samstilla minnismiðana þína, dagbókina
og tengiliði við ýmis dagbókar- og símaskrárforrit í
samhæfri tölvu eða á internetinu.
Samstillingarforritið notar SyncML-tækni við samstillingu.
Söluaðilar dagbókar- eða símaskrárforritanna sem
samstilla á gögn tækisins við veita upplýsingar um
samhæfni SyncML.
Þú getur fengið stillingar í sérstökum textaskilaboðum.
Sjá ‘Gögn og stillingar’ á bls. 60.
Búa til nýtt samstillingarsnið
1 Hafi engin snið verið tilgreind spyr tækið hvort þú viljir
búa til nýtt snið. Veldu Já.
Til að bæta nýju sniði við þau snið sem fyrir eru skaltu
velja Valkostir > Nýtt samst.snið. Veldu hvort nota eigi
sjálfgefin gildi eða afrita gildin úr sniði sem þegar er til
og sem þú vilt nota sem grunn fyrir nýja sniðið.
2 Tilgreindu eftirfarandi:
Nafn samst.sniðs—Gefðu sniðinu lýsandi heiti.
Gagnaflutningsmáti—Veldu gerð tengingarinnar:
Vefur eða Bluetooth.
Aðgangsstaður (sést aðeins ef Gagnaflutningsmáti er
stillt á Vefur)—Veldu aðgangsstaðinn sem þú vilt nota
fyrir gagnatenginguna.
Heimanetfang—Sláðu inn IP-tölu miðlarans. Rétt gildi
fást hjá þjónustuveitu eða kerfisstjóra.
Gátt (sést aðeins ef Gagnaflutningsmáti er stillt á
Vefur)—Hafðu samband við þjónustuveituna eða
kerfisstjórann til að fá rétt gildi.
Notandanafn—Notandakenni þitt á
samstillingarmiðlarann. Hafðu samband við
þjónustuveituna þína eða kerfisstjóra til að fá rétt
notandakenni.
Lykilorð—Sláðu inn lykilorðið þitt. Hafðu samband við
þjónustuveituna þína eða kerfisstjóra til að fá rétt gildi.
Leyfa samst.beiðnir—Veldu Já ef þú vilt leyfa
miðlaranum að hefja samstillinguna.
Samþyk. allar beiðnir—Veldu Nei ef þú vilt að tækið
biðji þig um staðfestingu á því að miðlarinn megi hefja
samstillinguna.
Sannvottun símkerfis (birtist aðeins ef
Gagnaflutningsmáti er stilltur á Vefur)—Veldu Já til
að slá inn notandanafn og lykilorð fyrir símkerfið. Ýttu
á til að skoða reiti notandanafns og lykilorðs.
Ýttu á til að velja Tengiliðir, Dagbók eða
• Í Ytri gagnagrunnur skaltu slá inn rétta slóð í ytri
gagngrunn dagbókar, símaskrár eða minnismiða á
miðlaranum.
• Veldu Gerð samstillingar: Venjuleg (samstilling í
Tengingar
báðar áttir), Aðeins til miðlara eða Aðeins til síma.
3 Veldu Til baka til að vista stillingarnar og fara aftur í
aðalskjáinn.
Samstilling gagna
Í aðalskjá Samstilling sérð þú mismunandi
samstillingarsnið sem og þá gerð gagna sem á að
samstilla.
1 Veldu samstillingarsnið og síðan Valkostir >
Samstilla. Staða samstillingarinnar birtist neðst á
skjánum.
Hægt er að stöðva samstillingu áður en henni er lokið
með því að velja Hætta við.
2 Tilkynning birtist þegar samstillingu er lokið. Þegar
samstillingunni lýkur skaltu velja Valkostir > Skoða
notk.skrá til að opna notkunarskrá sem sýnir stöðu
samstillingarinnar (Lokið eða Ekki lokið) og það
hversu margar dagbókar- eða tengiliðafærslur hafa
verið uppfærðar, bætt við, eytt eða fleygt (ekki
samstilltar) í tækinu eða á miðlaranum.
Stjórnandi tækis
Ýttu á og veldu Tenging > Stj. tækis. Þú getur fengið
miðlarasnið og mismunandi stillingar frá símafyrirtækinu
þínu, þjónustuveitu eða upplýsingadeild. Þessar stillingar
geta verið fyrir aðgangsstaði gagnatenginga sem og
mismunandi forrit í tækinu.
Til að tengjast við miðlara og fá stillingar fyrir tækið þitt
skaltu velja snið og svo Valkostir > Hefja samskipun.
Til að leyfa eða hafna móttöku stillinga frá þjónustuveitu
skaltu velja Valkostir > Virkja samskipun eða Óvirkja
samskipun.
Stillingar miðlarasniðs
Hafðu samband við þjónustuveituna til að fá réttar
stillingar.
Nafn miðlara—Sláðu inn heiti samskipunarmiðlarans.
Auðkenn.nr. netþjóns—Sláðu inn einkvæma kennið til að
auðkenna samskipunarmiðlarann.
Lykilorð miðlara—Sláðu inn lykilorð til að miðlarinn beri
kennsl á tækið þitt.
Aðgangsstaður—Veldu aðgangsstað sem á að nota þegar
takmörkuð og hún er ætluð til einfaldra útreikninga.
Umreiknari
Til að umreikna mælieiningar eins og Lengd úr einni
einingu (Jardar) yfir í aðra (Metrar) skaltu ýta á og
opna Vinnuforrit > Umreikn..
Hafa skal í huga að nákvæmni Umreikn. er takmörkuð og
sléttunarvillur eru hugsanlegar.
1 Veldu Gerð reitinn og ýttu á til að opna lista yfir
mælieiningar. Veldu mælieininguna sem þú vilt nota og
síðan Í lagi.
2 Veldu fyrri Eining reitinn og ýttu á . Veldu eininguna
sem þú vilt umreikna og svo Í lagi. Veldu síðari Eining
reitinn og svo eininguna sem þú vilt umreikna yfir í.
3 Veldu fyrri Magn reitinn og sláðu inn gildið sem þú vilt
umreikna. Hinn Magn reiturinn breytist sjálfkrafa og
sýnir umreiknaða gildið.
Ýttu á til að bæta við aukastaf og fyrir +, -
(fyrir hitastig) og E (veldisvísir) táknin.
Ábending! Til að breyta röð umreikningsins skaltu
slá inn gildið í síðari Magn reitinn. Útkoman birtist
í fyrsta Magn reitnum.
Val á grunngjaldmiðli og gengi
Áður en hægt er að umreikna gjaldmiðil þarf að velja
grunngjaldmiðil og gengi. Gildi grunngjaldmiðilsins er
alltaf 1. Grunngjaldmiðillinn ákvarðar gildi umreikningsins
fyrir aðra gjaldmiðla.
1 Veldu Umreikn. > Valkostir > Gengisskráning. Listi yfir
gjaldmiðla opnast þar sem grunngjaldmiðillinn birtist
efstur.
Ábending! Til að breyta heiti gjaldmiðils skaltu
opna gengisskráninguna, velja gjaldmiðilinn og svo
Valkostir > Endurskíra gjaldm..
2 Til að skipta um grunngjaldmiðil skaltu velja nýja
gjaldmiðilinn og síðan Valkostir > Nota s. gr. gjaldm..
3 Veldu gengið. Veldu gjaldmiðilinn og sláðu inn nýtt
gengi, þ.e. hversu margar einingar af gjaldmiðlinum
samsvara einni einingu af grunngjaldmiðlinum sem þú
hefur valið.
Eftir að hafa slegið inn gengið geturðu umreiknað
gjaldmiðilinn.
Til athugunar: Þegar grunngjaldmiðli er breytt
verður að færa inn nýtt gengi því allar fyrri gengistölur
eru stilltar á núll.
Verkefni
Ýttu á takkann og opnaðu Vinnuforrit > Verkefni til
að skrifa minnismiða og búa til verkefnalista.
Minnismiði er búinn til með því að ýta á hvaða takka sem
er til að skrá verkefnið í Efni reitinn.
Til að tilgreina lokafrest verkefnisins skaltu velja reitinn
Lokafrestur og svo dagssetninguna.
Til að tilgreina forgang fyrir Verkefni skaltu velja
Forgangur reitinn og ýta á takkann til að velja
forganginn. Táknin fyrir forgang verkefnisins eru (Hár)
og (Lágur). Það er ekkert tákn fyrir Venjulegur.
Til að merkja verkefni sem er lokið skaltu velja það í
Verkefni listanum og svo Valkostir > Merkja sem lokið.
Til að gera verkefnið virkt aftur skaltu velja það í Verkefni
listanum og síðan Valkostir > Merkja sem ólokið.
Ýttu á og veldu Vinnuforrit > Minnism. til að skrifa
minnismiða. Hægt er að senda minnismiða til samhæfra
Vinnuforrit
tækja og vista einfaldar textaskrár (á .txt-sniði) í forritinu
Minnism..
Upptaka
Ýttu á og opnaðu Vinnuforrit > Upptaka til að taka
upp símtöl og tal (minnisatriði). Þegar símtal er tekið upp
heyra báðir aðilar tón á 5 sekúndna fresti meðan á
upptökunni stendur.
Ýttu á til að opna flýtivísinn sem er tengdur við
miðlunartakkann. Ýttu aftur á til að fara aftur um einn
skjá. Til að tengja nýjan flýtivísi við takkann skaltu ýta á
og velja Verkfæri > Miðlunart. > Valkostir > Breyta.
Veldu forrit af listanum og svo Í lagi.
Flýtivísirinn er valinn í hvert skipti sem ýtt er á .
Stillingar
Stillingum er breytt með því að ýta á og opna
Verkfæri > Stillingar. Veldu valkost og ýttu á til að
opna hann. Veldu stillingu sem þú vilt breyta og ýttu á .
Símastillingar
Almennar
Tungumál síma—Ef tungumáli skjátexta er breytt í tækinu
hefur það einnig áhrif á það hvernig dagsetningin og
tíminn birtast, sem og þau skiltákn sem eru notuð (t.d.
við útreikning). Sjálfvirkt velur tungumálið út frá
upplýsingunum á SIM-kortinu þínu. Tækið endurræsist
þegar nýtt tungumál er valið fyrir skjátexta.
Þegar stillingunum Tungumál síma eða Tungumál texta
er breytt hefur það áhrif á öll forrit tækisins og breytingin
er virk þangað til stillingunum er breytt aftur.
Tungumál texta—Þegar tungumálinu er breytt hefur það
áhrif á það hvaða stafi og sértákn er hægt að velja þegar
texti er ritaður og kveikt er á flýtirituninni.
Orðabók—Til að stilla flýtiritunina á Virk eða Óvirk í öllum
ritlum tækisins. Ekki er hægt að velja flýtiritun fyrir öll
tungumál.
Opnun.kv. eða táknm.—Opnunarkveðjan eða táknið
birtist í stutta stund í hvert sinn sem kveikt er á tækinu.
Veldu Sjálfvalin til að nota sjálfgefnu myndina, Texti til
að skrifa opnunarkveðju (allt að 50 stafi) eða Mynd til að
velja mynd úr Gallerí.
Upprun. símastillingar—Þú getur fært sumar stillingarnar
aftur í upprunalegt horf. Til þess þarftu læsingarkóðann.
Sjá ‘Sími og SIM’ á bls. 105. Þegar stillingar hafa verið
færðar í upprunalegt horf getur það tekið lengri tíma að
ræsa tækið. Breytingin hefur engin áhrif á skjöl og skrár.
Virkur biðskjár—Notaðu flýtivísa í forrit á aðalskjánum
þegar tækið er í biðstöðu. Sjá ‘Virkur biðskjár’ á bls. 21.
Verkfæri
Vinstri valtakki—Veldu forrit af listanum sem þú vilt nota
sem flýtivísi fyrir vinstri valtakkann () í biðstöðu.
Hægri valtakki—Veldu forrit af listanum sem þú vilt nota
sem flýtivísi fyrir hægri valtakkann () í biðstöðu.
Forrit. í virk. biðskjá—Veldu forrit af listanum sem þú vilt
birta flýtivísa í á virka biðskjánum. Aðeins er hægt að velja
þessa stillingu ef kveikt er á Virkur biðskjár.
Einnig er hægt að velja forrit af listanum sem opnast
þegar stutt er á skruntakkann. Ekki er hægt að velja þessa
flýtivísa skruntakkans þegar kveikt er á virka biðskjánum.
Skjátákn símafyrirt.—Þessi stilling er aðeins sýnileg ef þú
hefur móttekið og vistað skjátákn símafyrirtækis. Þú getur
valið að birta skjátáknið eða fela það.
Skjár
Skjábirta—Þú getur stillt birtuna á skjánum og þannig lýst
eða dekkt skjáinn. Birtustig skjásins er sjálfkrafa stillt til
samræmis við umhverfið.
Sparnaður hefst eftir—Orkusparnaðurinn á skjánum
verður virkur þegar tíminn er liðinn.
Tímamörk ljósa—Veldu tímann sem þú vilt að líði þar til
slökkt er á baklýsingu aðalskjásins.
Stillingar fyrir hringingu
Senda mitt númer—Þú getur valið að leyfa þeim sem þú
hringir í að sjá símanúmerið þitt (Já) eða að leyfa það ekki
(Nei). Einnig kann símafyrirtækið þitt eða þjónustuveita að
velja aðra hvora stillinguna fyrir þig þegar þú gerist
áskrifandi (Stillt af símkerfi) (network service).
Símtal í bið—Ef þú kveikir á þessari stillingu (sérþjónusta)
lætur símkerfið þig vita ef einhver hringir í þig þegar þú ert
með símtal í gangi. Veldu Gera virkt til að senda beiðni til
símkerfisins um að virkja þjónustu símtala í bið, Ógilda til
að senda beiðni til símkerfisins um að óvirkja þjónustuna
og Athuga stöðu til að kanna hvort þjónustan er virk
eða ekki.
Hafna símt. með SMS—Veldu Já til að senda
textaskilaboð til þeirra sem reyna að hringja í þig þar sem
þú lætur þá vita af hverju þú getur ekki svarað símtalinu.
Sjá ‘Símtali svarað eða hafnað’ á bls. 27.
Texti skilaboða—Skrifaðu textann sem á að senda í
skilaboðum þegar þú hafnar símtali.
Mynd í myndsímtali—Þú getur valið að senda ekki
hreyfimynd þegar einhver hringir í þig. Veldu kyrrmynd sem
birtist þá í stað hreyfimyndarinnar.
Sjálfvirkt endurval—Veldu Virkt og þá reynir tækið að
koma á sambandi allt að tíu sinnum þegar ekki náðist