Um tækið4
Símkerfisstillingar4
Sérþjónusta4
Samnýtt minni5
Lykilorð5
Uppfærsla hugbúnaðar með tölvu5
Þjónusta6
Tækið tekið í notkun6
Takkar og hlutar6
SIM-korti komið fyrir7
Minniskorti komið fyrir7
Rafhlöðu komið fyrir9
Rafhlaðan hlaðin9
Kveikt og slökkt10
Skjár10
Takkalás10
GSM-loftnet11
Aukabúnaður11
Símtöl12
Símtöl – hringt og svarað12
Hátalari12
Flýtivísar símtala13
Texta- og margmiðlunarskilaboð14
Leifturboð15
Nokia Xpress hljóðskilaboð 16
Nokia Mail16
Spjall17
Talskilaboð17
Skilaboðastillingar18
Tengiliðir 18
Símtalaskrá 19
Stillingar19
Snið19
Tónar19
Skjár19
Dagsetning og tími19
Flýtivísar20
Samstilling og öryggisafrit20
Tengimöguleikar20
Símtal og síminn22
Aukabúnaður22
Stillingar22
Upprunalegar stillingar23
Gallerí23
Forrit23
Vekjaraklukka23
Dagbók og verkefni23
Aðrar aðgerðir24
Myndavél & myndupptaka24
FM útvarp25
Raddupptaka26
Margmiðlunarspilari26
Kort27
Vefur eða Internet 30
Tengjast vefþjónustu30
SIM-þjónusta30
Græn ráð30
Orkusparnaður31
Endurvinnsla31
Lærðu meira31
Vöru- og öryggisupplýsingar31
Atriðaskrá38
Page 3
Öryggi3
Öryggi
Lesið þessar einföldu leiðbeiningar. Sé þeim ekki fylgt getur það verið hættulegt eða
varðað við lög. Lesa skal alla notendahandbókina til að fá nánari upplýsingar.
ÖRYGGI ÞEGAR KVEIKT ER Á TÆKINU
Ekki má kveikja á tækinu þar sem notkun þráðlausra síma er bönnuð eða þar
sem hún kann að valda truflunum eða hættu.
UMFERÐARÖRYGGI GENGUR FYRIR
Fara skal að öllum staðbundnum lögum. Ætíð skal hafa hendur frjálsar til að
stýra ökutækinu við akstur. Umferðaröryggi skal ganga fyrir í akstri.
TRUFLUN
Öll þráðlaus tæki geta verið næm fyrir truflunum, sem getur haft áhrif á virkni
þeirra.
SLÖKKT Á TÆKINU Á AFMÖRKUÐUM SVÆÐUM
Virða skal allar takmarkanir. Slökkva skal á tækinu um borð í flugvélum, nærri
lækningatækjum, eldsneytisstöðvum, efnaverksmiðjum eða svæðum þar
sem verið er að sprengja.
VIÐURKENND ÞJÓNUSTA
Aðeins viðurkennt starfsfólk má setja upp eða gera við þessa vöru.
AUKABÚNAÐUR OG RAFHLÖÐUR
Aðeins má nota samþykktan aukabúnað og rafhlöður. Ekki má tengja saman
ósamhæf tæki.
VATNSHELDNI
Tækið er ekki vatnshelt. Halda skal því þurru.
Page 4
4Almennar upplýsingar
Almennar upplýsingar
Um tækið
Þráðlausa tækið sem er lýst í þessari handbók er samþykkt til notkunar í GSM 850, 900,
1800, 1900 og WCDMA 900, 1900, og 2100 MHz símkerfi. Þjónustuveitan gefur nánari
upplýsingar um símkerfi.
Í tækinu gætu verið foruppsett bókamerki og tenglar á netsíður þriðju aðila sem gætu
gert þér kleift að nálgast slíkar síður. Þær tengjast ekki Nokia og Nokia leggur hvorki
stuðning sinn við þær né tekur ábyrgð á þeim. Ef þú nálgast slík svæði skaltu huga að
öryggi og efni.
Viðvörun:
Við notkun allra aðgerða í þessu tæki, annarra en vekjara, þarf að vera kveikt á tækinu.
Ekki skal kveikja á tækinu þegar notkun þráðlausra tækja getur valdið truflun eða hættu.
Við notkun þessa tækis skal hlíta öllum lögum og virða staðbundnar venjur, einkalíf og
lögmæt réttindi annarra, þ.m.t. höfundarrétt. Varnir vegna höfundarréttar geta hindrað
afritun, breytingu eða flutning sumra mynda, tónlistar og annars efnis.
Taktu öryggisafrit eða haltu skrá yfir allar mikilvægar upplýsingar sem geymdar eru í
tækinu.
Þegar tækið er tengt öðru tæki skal lesa notendahandbók þess vandlega, einkum
upplýsingar um öryggi. Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.
Myndir í þessum bæklingi kunna að líta öðruvísi út en á skjá tækisins.
Aðrar mikilvægar upplýsingar um tækið er að finna í notendahandbókinni.
Símkerfisstillingar
Til að velja hvers konar símkerfi á að nota velurðu Valmynd > Stillingar >
Símastillingar > Netkerfi. Þessi valkostur er ekki tiltækur á meðan símtal fer fram.
Sérþjónusta
Til að hægt sé að nota tækið verða notendur að vera áskrifendur þjónustu fyrir þráðlausa
síma. Ekki er hægt að nota alla þessa valkosti í öllum símkerfum. Fyrir suma eiginleika
kann jafnframt að vera farið fram á sérstaka skráningu hjá þjónustuveitunni.
Sérþjónusta felur í sér sendingu gagna. Fáðu upplýsingar hjá þjónustuveitu þinni um
gjöld á heimaneti þínu og þegar reiki er notað á öðrum netum. Þú getur fengið
upplýsingar um gjöld hjá þjónustuveitunni. Sum netkerfi geta verið með takmörkunum
sem hafa áhrif á hvernig hægt er að nota tiltekna eiginleika tækisins og krefjast
netþjónustu á borð við stuðning við tiltekna tækni eins og WAP 2.0 samskiptareglur
(HTTP og SSL) sem fara eftir TCP/IP samskiptareglum og ýmsum sérstöfum í
tungumálum.
Page 5
Almennar upplýsingar5
Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að tilteknar aðgerðir væru hafðar óvirkar eða
ekki gerðar virkar í tækinu. Ef svo er birtast þær ekki í valmynd tækisins. Í tækinu gætu
atriði einnig verið sérsniðin, s.s. heiti á valmyndum, skipanir og tákn.
Samnýtt minni
Eftirfarandi aðgerðir í þessu tæki geta samnýtt minni: margmiðlunarskilaboð (MMS),
tölvupóstforrit, spjallskilaboð. Notkun einnar eða fleiri af þessum aðgerðum getur
minnkað tiltækt minni fyrir aðrar aðgerðir. Ef tækið sýnir boð um að minnið sé fullt
skaltu eyða einhverjum upplýsingum úr samnýtta minninu.
Lykilorð
Öryggiskóðinn kemur í veg fyrir að síminn sé notaður í leyfisleysi. Forstillta númerið er
12345. Hægt er að búa til og breyta númerinu og láta tækið biðja um númerið. Haltu
númerinu leyndu og á öruggum stað fjarri tækinu. Ef þú gleymir númerinu og tækið er
læst þarftu að leita til þjónustuaðila. Þú getur þurft að greiða viðbótargjald og
persónulegum gögnum í tækinu kann að verða eytt. Nánari upplýsingar fást hjá Nokia
Care þjónustuveri eða seljanda símans.
PIN-númerið, sem fylgir SIM-kortinu, ver kortið fyrir óleyfilegri notkun. PIN2-númerið,
sem fylgir sumum SIM-kortum, er nauðsynlegt til að komast í tiltekna þjónustu. Ef þú
slærð inn rangt PIN- eða PIN2-númer þrisvar sinnum í röð þarftu að slá inn PUK- eða
PUK2-númerið. Ef þau fylgja ekki SIM-kortinu skaltu hafa samband við þjónustuveituna.
PIN-númer öryggiseiningar er nauðsynlegt til að fá aðgang að upplýsingum í
öryggiseiningunni. PIN-númer undirskriftar kann að vera nauðsynlegt til að nota
stafrænu undirskriftina. Slá þarf inn lykilorð útilokunar þegar útilokunarþjónustan er
notuð.
Hægt er að velja hvernig tækið notar aðgangsnúmer og öryggisstillingar í Valmynd >
Stillingar > Öryggi.
Uppfærsla hugbúnaðar með tölvu
Nokia Software Updater er tölvuforrit sem gerir þér kleift að uppfæra hugbúnaðinn í
tækinu. Til að uppfæra hugbúnaðinn í tækinu þarf samhæfa tölvu, háhraða
internettengingu og samhæfa USB-gagnasnúru til að tengja tækið við tölvuna.
Hægt er að fá nánari upplýsingar, skoða athugasemdir fyrir nýjustu hugbúnaðarútgáfur
og sækja Nokia Software Updater forritið á www.nokia.com/softwareupdate eða
vefsvæði Nokia í þínu landi.
Gerðu eftirfarandi til að uppfæra hugbúnað tækisins:
1 Sæktu Nokia Software Updater forritið í tölvuna og settu það upp.
2 Tengdu tækið við tölvu með samhæfri USB-snúru og veldu PC Suite.
3 Opnaðu Nokia Software Updater forritið. Nokia Software Updater forritið leiðbeinir
þér við að taka öryggisafrit af skránum þínum, uppfæra hugbúnaðinn og
endurheimta skrárnar.
Page 6
6Tækið tekið í notkun
Þjónusta
Ef þú vilt læra meira um hvernig nota á vöruna eða þú ert ekki viss um hvernig tækið
virkar finnurðu nánari upplýsingar í notendahandbókinni eða á slóðinni
www.nokia.com/support eða á vefsvæði Nokia í heimalandi þínu eða með farsíma á
www.nokia.mobi/support.
Ef þetta leysir ekki vandann skaltu reyna eitt af eftirfarandi:
•Endurræstu tækið: slökktu á tækinu og taktu rafhlöðuna úr því. Eftir u.þ.b. mínútu
skaltu setja rafhlöðuna aftur á sinn stað og kveikja á tækinu.
•Settu aftur upp upprunalegu stillingarnar eins og lýst er í notendahandbókinni.
•Uppfærðu hugbúnað tækisins reglulega eins og útskýrt er í notandahandbókinni til
að fá bestu afköst og nýja eiginleika.
Ef þetta leysir ekki vandann skaltu hafa samband við Nokia. Sjá www.nokia.com/
repair. Ávallt skal taka öryggisafrit af gögnum í tækinu áður en það er sent í viðgerð.
hleðslutæki
9USB-tengi
10Tengi fyrir höfuðtól
11Linsa
12Myndatökutakki
13Úlnliðsbandsfestin
g
SIM-korti komið fyrir
SIM-kortið og innihald þess getur hæglega orðið fyrir skemmdum ef það er rispað eða
beygt svo fara skal varlega þegar það er meðhöndlað, sett inn og tekið út.
1 Fjarlægðu rafhlöðuna ef hún er í tækinu og ýttu á SIM-kortsfestinguna til að opna
hana.
2 Opnaðu festinguna.
3 Settu SIM-kortið í festinguna þannig að snertiflöturinn snúi niður.
4 Lokaðu festingunni.
5 Ýttu á festinguna til að læsa henni.
Minniskorti komið fyrir
Page 8
8Tækið tekið í notkun
Aðeins skal nota samhæft microSD-kort sem Nokia samþykkir til notkunar með þessu
tæki. Nokia styðst við viðurkennda staðla fyrir minniskort. Þó getur verið að sum kort
sé ekki hægt að nota að fullu með þessu tæki. Ósamhæf kort geta skaðað kortið og
tækið og skemmt gögn sem vistuð eru á kortinu.
Tækið styður microSD-kort sem eru allt að 16 GB að stærð. Hver einstök skrá má ekki
vera meira en 2 GB.
Minniskorti komið fyrir
1 Fjarlægðu rafhlöðuna ef hún er í tækinu og ýttu á minniskortsfestinguna til að opna
hana.
2 Haltu festingunni opinni.
3 Komdu minniskortinu fyrir í festingunni og láttu snertiflötinn snúa niður.
4 Lokaðu festingunni.
5 Ýttu á festinguna til að læsa henni.
Page 9
Tækið tekið í notkun9
Rafhlöðu komið fyrir
1 Fjarlægðu bakhliðina ef hún er á tækinu, gættu að snertum rafhlöðunnar og komdu
rafhlöðunni fyrir.
2 Settu bakhliðina aftur á sinn stað.
Rafhlaðan hlaðin
Rafhlaðan var hlaðin að hluta í verksmiðjunni. Ef tækið sýnir að lítil hleðsla sé eftir skaltu
gera eftirfarandi.
1 Stingdu hleðslutækinu í samband við innstungu.
2 Tengdu hleðslutækið við tækið.
3 Þegar tækið sýnir að rafhlaðan er fullhlaðin skaltu fyrst taka hleðslutækið úr
sambandi við tækið og síðan úr innstungunni.
Einnig er hægt að hlaða rafhlöðuna með USB-snúru sem tengd er við tölvu.
1 Tengdu USB-snúruna við USB-tengi tölvunnar og einnig við tækið.
2 Fjarlægðu USB-snúruna þegar rafhlaðan er fullhlaðin.
Þú þarft ekki að hlaða rafhlöðuna í tiltekinn tíma og þú getur notað tækið á meðan það
er í hleðslu. Ef rafhlaðan er alveg tóm geta liðið nokkrar mínútur þar til hleðsluvísirinn
birtist á skjánum eða þar til hægt er að hringja.
Page 10
10 Tækið tekið í notkun
Ef síminn er settur í hleðslu meðan kveikt er á útvarpinu geta gæði merkisins minnkað.
Kveikt og slökkt
Ýttu á rofann og haltu honum inni.
Skjár
1 Sýnir sendistyrk farsímakerfisins
2 Hleðslustaða rafhlöðu
3 Vísar
4 Heiti farsímakerfisins eða skjátákn símafyrirtækisins
5 Klukka
6 Dagsetning (aðeins ef heimaskjárinn er óvirkur)
7 Skjár
8 Valkostur vinstri valtakka
9 Virkni flettitakkans
10 Valkostur hægri valtakka
Hægt er að breyta valkostum vinstri og hægri valtakkanna.
Sjá „Flýtivísar“, bls. 20.
Takkalás
Til að koma í veg fyrir að ýtt sé á takkana í ógáti, lokarðu símanum og velur Læsa innan
5 sekúndna til að læsa tökkum símans (takkaborðinu).
Til að aflæsa takkaborðinu skaltu velja Úr lás > Í lagi, eða opna símann. Ef kveikt er á
öryggistakkavaranum skaltu slá inn öryggisnúmerið þegar beiðni um það birtist.
Til að láta takkaborðið læsast sjálfkrafa eftir fyrirfram ákveðinn tíma, þegar síminn er í
biðstöðu, velurðu Valmynd > Stillingar > Símastillingar > Sjálfvirkur takkavari >
Virkur.
Page 11
Tækið tekið í notkun11
Ýtt er á hringitakkann til að svara símtali þegar takkaborðið er læst. Þegar lagt er á eða
símtali er hafnað læsist takkaborðið sjálfkrafa.
Þegar tækið eða takkaborðið er læst kann að vera hægt að hringja í opinbera
neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.
GSM-loftnet
Í tækinu kunna að vera innri og ytri loftnet. Forðast skal óþarfa snertingu við loftnetið
þegar verið er að senda eða taka á móti. Snerting við loftnet hefur áhrif á sendigæði og
getur valdið því að tækið noti meiri orku og getur minnkað líftíma rafhlöðu þess.
Á myndinni er svæði GSM-loftnetsins merkt með gráu.
Aukabúnaður
USB-snúra tengd
Opnaðu lokið á USB-tenginu og tengdu USB-snúruna við tækið.
Höfuðtól
Viðvörun:
Þegar höfuðtólið er notað getur það skert heyrn á umhverfishljóðum. Ekki skal nota
höfuðtólið þar sem hætta getur stafað af.
Þegar ytri tengi eða höfuðtól önnur en þau sem Nokia samþykkir til notkunar með þessu
tæki eru tengd við Nokia hljóð- og myndtengið skal gæta sérstaklega að hljóðstyrknum.
Ekki skal tengja vörur sem senda frá sér merki þar sem slíkt getur skemmt símann. Ekki
skal stinga spennugjafa í samband við Nokia AV-tengið.
Til að hringja slærðu inn símanúmerið, ásamt lands- og svæðisnúmeri ef þess þarf, og
ýtir á hringitakkann. Flett er upp eða niður til að stilla hljóðstyrk eyrnatólsins eða
höfuðtólsins meðan á símtali stendur.
Ýttu á hringitakkann til að svara mótteknu símtali. Ýtt er á hætta-takkann til að hafna
símtali.
Hátalari
Hægt er að velja Hátalari eða Símtól til að nota hátalara eða heyrnartól símans meðan
talað er í hann, sé um slíkt að ræða.
Viðvörun:
Stöðug áraun af háum hljóðstyrk getur skaðað heyrn. Hlusta skal á tónlist á hóflegum
hljóðstyrk og ekki halda tækinu nærri eyranu þegar kveikt er á hátölurunum.
Page 13
Textaritun 13
Flýtivísar símtala
Símanúmer tengd við tölutakka
Veldu Valmynd > Tengiliðir > Hraðvals-númer, flettu að viðeigandi númeri (2-9) og
veldu Velja. Sláðu inn símanúmer eða veldu Leita og svo vistaðan tengilið.
Hægt er að slá inn texta (t.d. þegar textaskilaboð eru skrifuð) á hefðbundinn hátt eða
með flýtiritun.
Þegar texti er sleginn inn er hægt að halda inni Valkostir til að skipta á milli venjulegs
textainnsláttar, táknaður með
flýtiritun á öllum tungumálum.
Það hvort stillt er á lágstafi eða hástafi er táknað með
Skipt er á milli há- og lágstafa með #. Skipt er úr bókstöfum yfir í tölustafi, táknað með
, með því að halda inni # og velja Talnahamur. Skipt er úr bókstöfum yfir í tölustafi
með því að halda takkanum # inni.
Veldu Valkostir > Tungumál texta til að velja ritunartungumálið.
, og flýtiritunar, táknuð með . Síminn styður ekki
, eða .
Venjulegur innsláttur texta
Ýtt er á tölutakka, 2-9, þar til viðkomandi bókstafur birtist. Það hvaða tungumál er valið
hefur áhrif á það hvaða bókstafir birtast.
Ef næsti stafur er á sama takka og sá sem þú hefur slegið inn skaltu bíða þar til bendillinn
birtist og slá svo inn stafinn.
Til að fá aðgang að algengustu greinarmerkjum og sértáknum ýtirðu á 1 nokkrum
sinnum. Listi yfir sérstafi er opnaður með því að ýta á *. Bil er sett inn með því að ýta á
0.
Flýtiritun
Í flýtiritun er notuð innbyggð orðabók sem hægt er að bæta nýjum orðum inn í.
1 Byrjaðu að skrifa orð með tökkunum 2 til 9. Ýttu aðeins einu sinni á hvern takka
fyrir hvern staf.
Page 14
14 Notkun valmyndarinnar
2 Til að staðfesta orð flettirðu til hægri eða bætir við bili.
•Ef orðið er ekki rétt skaltu ýta endurtekið á * og velja orðið af listanum.
•Ef greinarmerkið ? birtist aftan við orðið er orðið sem þú vilt slá inn ekki að
finna í orðabókinni. Orðinu er bætt inn í orðabókina með því að velja Stafa.
Sláðu inn orðið á venjulegan hátt og veldu Vista.
•Til að rita samsett orð færirðu inn fyrsta hluta orðsins og flettir til hægri til að
staðfesta. Svo slærðu inn síðari hluta orðsins og staðfestir það.
3 Byrjaðu að skrifa næsta orð.
Notkun valmyndarinnar
Aðgerðir tækisins eru flokkaðar í valmyndir. Ekki er öllum aðgerðum eða valkostum lýst
hér.
Veldu Valmynd á heimaskjánum og síðan viðkomandi valmynd og undirvalmynd.
Farið út úr valmynd
Veldu Hætta eða Til baka.
Farið til baka á heimaskjáinn
Ýttu á hætta-takkann.
Útliti valmyndar breytt
Veldu Valmynd > Valkostir > Aðalskjár valmynd..
Skilaboð
Með tækinu er hægt að búa til og taka á móti skilaboðum á borð við texta- og
margmiðlunarskilaboð. Aðeins er hægt að nota skilaboðaþjónustuna ef símkerfið eða
þjónustuveitan styðja hana.
Texta- og margmiðlunarskilaboð
Hægt er að búa til skilaboð og hengja hluti, líkt og myndir, við þau. Síminn breytir
textaskilaboðum sjálfkrafa í myndskilaboð þegar skrá er hengd við skilaboðin.
Textaskilaboð
Tækið styður textaskilaboð sem fara yfir takmörkin fyrir ein skilaboð. Lengri skilaboð
eru send sem tvö eða fleiri skilaboð. Þjónustuveitan tekur hugsanlega gjald í samræmi
við það. Stafir sem nota kommur, önnur tákn eða valkosti sumra tungumála taka meira
pláss og takmarka þann stafafjölda sem hægt er að senda í einum skilaboðum.
Stafafjöldi sem eftir er og fjöldi skilaboða sem þarf til sendingar birtist.
Page 15
Skilaboð 15
Til að hægt sé að senda skilaboð þarf rétta skilaboðamiðstöðvarnúmerið að vera vistað
í tækinu. Venjulega er þetta númer sett sjálfkrafa inn með SIM-kortinu.
Til að setja númerið inn handvirkt þarftu að gera eftirfarandi:
2 Sláðu inn nafnið og númerið sem þjónustuveitan gaf upp.
Margmiðlunarskilaboð
Margmiðlunarskilaboð geta innihaldið texta, myndir og hljóð- eða myndskeið.
Aðeins tæki með samhæfar aðgerðir geta tekið á móti og birt margmiðlunarskilaboð.
Útlit skilaboða getur verið breytilegt eftir móttökutækinu.
Þráðlausa símkerfið kann að takmarka stærð MMS-skilaboða. Ef myndin sem bætt er inn
fer yfir þessi mörk gæti tækið minnkað hana þannig að hægt sé að senda hana með
MMS.
Mikilvægt: Fara skal með gát þegar skilaboð eru opnuð. Skilaboð geta innihaldið
skaðlegan hugbúnað eða skaðað tölvuna eða tækið á einhvern annan hátt.
Þjónustuveitan gefur upplýsingar um þjónustu og áskrift að margmiðlunarþjónustunni
(MMS).
Skilaboð búin til
1Veldu Valmynd > Skilaboð > Búa til skilaboð.
2 Skrifaðu skilaboðin.
Til að setja inn sérstaf eða broskarl velurðu Valkostir > Setja inn tákn.
Til að setja hlut sem viðhengi við skilaboðin velurðu Valkostir > Setja inn hlut.
Skilaboðin breytast sjálfkrafa í margmiðlunarskilaboð.
3 Til að setja inn fleiri viðtakendur velurðu Senda til og viðtakanda.
Til að slá símanúmer eða netfang inn handvirkt velurðu Númer eða netf.. Sláðu
inn símanúmer eða veldu Tölvup., og sláðu inn netfang.
4Veldu Senda.
Margmiðlunarskilaboð eru sýnd með tákni efst á skjánum.
Þjónustuveitur kunna að taka mismunandi gjald eftir gerðinni. Nánari upplýsingar má
fá hjá þjónustuveitunni.
Leifturboð
Leifturboð eru textaskilaboð sem birtast um leið og þau eru móttekin.
Veldu Valmynd > Skilaboð.
1Veldu Fleira > Önnur skilaboð > Leifturboð.
Page 16
16 Skilaboð
2 Skrifaðu skilaboðin.
3Veldu Senda til og tengilið.
Nokia Xpress hljóðskilaboð
Hægt er að nota MMS til að búa til og senda hljóðskilaboð á þægilegan hátt.
Veldu Valmynd > Skilaboð.
1Veldu Fleira > Önnur skilaboð > Hljóðskilaboð. Raddupptakan opnast.
2Veldu
3 Upptakan er stöðvuð með því að velja
4Veldu Senda til og tengilið.
Nokia Mail
Lestu, skrifaðu og sendu tölvupóst í tækinu þínu. Þetta tölvupóstforrit er ólíkt SMStölvupóstforritinu.
Til að nota tölvupóst verður þú að vera með tölvupóstreikning hjá tölvupóstþjónustu.
Hafðu samband við tölvupóstveituna þína til að fá réttar stillingar. Hægt er að fá
tölvupóststillingarnar sem stillingaskilaboð frá þjónustuveitunni.
Póstleiðbeiningarforrit
Leiðbeiningarforritið opnast sjálfkrafa ef engar póststillingar hafa verið settar upp í
tækinu. Til að bæta við annarri póstáskrift velurðu Valmynd > Skilaboð > Fleira >
Tölvupóstur eða Nýtt pósthólf. Fylgdu leiðbeiningunum.
Að skrifa skilaboð og senda póst
Hægt er að skrifa skilaboðin áður en tengingu er komið á við þjónustuveituna.
1Veldu Valmynd > Skilaboð > Fleira > Tölvupóstur og Búa til tölvup..
2 Sláðu inn netfang viðtakandans, efni skilaboðanna og svo skilaboðin. Veldu
3 Ef fleiri en eitt pósthólf er tilgreint velurðu það hólf sem þú vilt senda póstinn úr.
4Veldu Senda.
til að taka upp skilaboðin.
.
Valkostir > Setja inn til að setja skrá í viðhengi.
Lesa og svara pósti
Mikilvægt: Fara skal með gát þegar skilaboð eru opnuð. Skilaboð geta innihaldið
skaðlegan hugbúnað eða skaðað tölvuna eða tækið á einhvern annan hátt.
Veldu Valmynd > Skilaboð > Fleira > Tölvupóstur.
Fyrirsögnum hlaðið niður
Veldu tölvupósthólfið.
Page 17
Skilaboð 17
Pósti og viðhengjum hlaðið niður
Veldu póst og Opna eða Sækja.
Svara pósti eða áframsenda hann
Veldu Valkostir > Svara eða Framsenda.
Tölvupósthólfið aftengt
Veldu Valkostir > Aftengjast. Tengingin við tölvupósthólfið rofnar sjálfkrafa þegar hún
hefur ekki verið notuð í smátíma.
Tilkynningar um nýjan tölvupóst
Tækið getur athugað pósthólfið sjálfvirkt með ákveðnu millibili og sent tilkynningu um
nýjan tölvupóst.
Uppfærslutími — Stilla hve oft tækið athugar hvort nýr póstur hefur borist.
Sjálfvirk móttaka — Sækja nýjan póst sjálfvirkt í pósthólfið.
3Veldu Still. tölvupósts > Ný tölvup.tilkynning til að fá tilkynningu um nýjan póst.
Spjall
Með spjallskilaboðum (spjall, sérþjónusta) geturðu sent stutt og einföld textaskeyti til
nettengdra notenda. Þú þarft að gerast áskrifandi að þjónustu og skrá þig hjá
spjallþjónustunni sem þú vilt nota. Upplýsingar um þessa þjónustu, verð og
leiðbeiningar fást hjá þjónustuveitunni. Valmyndirnar geta verið misjafnar, allt eftir
spjallveitunni.
Til að tengjast við þjónustuna velurðu Valmynd > Skilaboð > Spjallboð og fylgir
leiðbeiningunum á skjánum.
Talskilaboð
Talhólfið er sérþjónusta sem e.t.v. þarf að gerast áskrifandi að. Þjónustuveitan gefur
nánari upplýsingar.
Veldu Valmynd > Skilaboð og Fleira > Skilaboðastill..
Veldu úr eftirfarandi:
Almennar stillingar — Stilltu leturstærð fyrir skilaboð og gerðu grafíska broskarla og
skilatilkynningar virkar.
Textaboð — Settu upp skilaboðamiðstöðvar fyrir textaskilaboð og SMS-póst.
Margmiðlunarskilab. — Leyfðu skilatilkynningar og móttöku margmiðlunarskilaboða
og auglýsinga og settu upp aðra valkosti fyrir margmiðlunarskilaboð.
Þjónustuskilaboð — Virkja þjónustuboð og setja upp valkosti fyrir þjónustuboð.
Tengiliðir
Veldu Valmynd > Tengiliðir.
Hægt er að vista nöfn og símanúmer í minni tækisins eða á SIM-kortinu. Í minni tækisins
getur þú vistað tengiliði með númerum og texta. Nöfn og númer sem eru vistuð á SIMkortinu eru auðkennd með
Bæta við tengilið
Veldu Bæta við nýjum.
Bæta við upplýsingum um tengilið
Gakktu úr skugga um að minnið í notkun sé annaðhvort Sími eða Sími og SIM-kort.
Veldu Nöfn, flettu að nafni og veldu Upplýs. > Valkostir > Bæta við upplýs..
Leit að tengilið
Veldu Nöfn og flettu í gegnum tengiliðalistann eða sláðu inn fyrstu stafina í nafni
tengiliðarins.
Tengiliður afritaður yfir í annað minni
Veldu Nöfn, flettu að tengiliðnum og veldu Valkostir > Fleira > Afrita tengilið. Aðeins
er hægt að vista eitt símanúmer með hverju nafni á SIM-kortinu.
Veldu hvar vista á tengiliði, hvernig tengiliðir birtast og hversu mikið minni þeir
taka
Veldu Fleira > Stillingar.
Nafnspjald sent
Á tengiliðalistanum flettirðu að tengilið og velur Valkostir > Fleira > Nafnspjald.
Hægt er að senda og taka á móti nafnspjöldum frá tækjum sem styðja vCard-staðalinn.
.
Page 19
Símtalaskrá19
Símtalaskrá
Til að skoða upplýsingar um símtöl, skilaboð, gögn og samstillingu skaltu velja
Valmynd > Notkunarskrá og svo hlut.
Til athugunar: Reikningar þjónustuveitunnar fyrir símtöl og þjónustu kunna að vera
breytilegir eftir eiginleikum símkerfisins, sléttun fjárhæða við gerð reikninga, sköttum
og öðru slíku.
Stillingar
Snið
Bíðurðu eftir símtali en getur ekki leyft símanum að hringja? Til eru ýmsar gerðir stillinga
sem kallast snið og hægt er að sérsníða þau með hringitónum fyrir tiltekin tilefni og
aðstæður.
Veldu Valmynd > Stillingar > Snið.
Veldu tiltekið snið og svo úr eftirfarandi valkostum:
Virkja — Virkja sniðið.
Eigið val — Breyta stillingum sniðsins.
Tímastillt — Hafa sniðið virkt í tiltekinn tíma. Þegar tímastilling sniðsins rennur út
verður fyrra sniðið sem ekki var tímastillt virkt á ný.
Tónar
Hægt er að breyta tóni þess sniðs sem er í notkun:
Veldu Valmynd > Stillingar > Tónastillingar. Sömu stillingar er að finna í valmyndinni
Snið.
Skjár
Til að skoða eða stilla veggfóður, leturstærð, eða önnur atriði sem snúa að skjá tækisins
velurðu Valmynd > Stillingar > Skjástillingar.
Dagsetning og tími
Veldu Valmynd > Stillingar > Dagur og tími.
Veldu Dags- og tímastill. til að stilla tímann og dagsetninguna.
Til að breyta tíma- og dagsetningarsniðinu velurðu Snið dags og tíma.
Ef síminn á að uppfæra tímann og dagsetninguna sjálfkrafa í samræmi við tímabelti
velurðu Sjálfvirk tímauppf. (sérþjónusta).
Page 20
20 Stillingar
Flýtivísar
Með þínum eigin flýtivísum getur þú opnað algengar valmyndir símans á fljótlegan hátt.
Veldu Valmynd > Stillingar > Eigin flýtivísar.
Símaaðgerðum úthlutað til valtakka
Veldu Hægri valtakkiVinstri valtakki og veldu aðgerð af listanum.
Flýtivísir valinn fyrir skruntakkann
Veldu Stýrihnappur. Flettu að takka, veldu Breyta eða Velja og svo virkni af listanum.
Samstilling og öryggisafrit
Veldu Valmynd > Stillingar > Samstill. & afrit.
Veldu úr eftirfarandi:
Símaflutningur — Samstilltu eða afritaðu valin gögn milli þíns tækis og annars tækis.
Búa til ör.afrit — Taktu afrit af völdum gögnum.
Setja upp afrit — Endurheimtu gögn frá afriti. Til að skoða upplýsingar um afritaða
skrá velurðu Valkostir > Upplýsingar.Gagnaflutn. — Samstilltu eða afritaðu valin gögn milli tækisins og kerfisþjóns
(sérþjónusta).
Tengimöguleikar
Í símanum eru nokkrir valkostir til að tengjast við önnur tæki og flytja gögn.
Þráðlaus Bluetooth-tækni
Með þráðlausri Bluetooth-tækni er hægt að tengja tækið, með útvarpsbylgjum, við
samhæft Bluetooth-tæki sem er í innan við 10 metra fjarlægð (32 fet).
Þetta tæki er samhæft við Bluetooth Specification 2,1 + EDR sem styður eftirfarandi snið:
Dial-up Networking Profile (DUN) FileTransfer Profile (FTP) General Access Profile (GAP)
Generic Object Exchange Profile (GOEP) Handsfree Profile (HFP) Headset Profile (HSP)
Object Push Profile (OPP) Phonebook Access Profile (PBAP) Serial Port Profile (SPP)
Service Discovery Application Profile (SDAP) SIM Access Profile (SAP). Til að tryggja
samvirkni milli annarra tækja sem styðja Bluetooth-tækni skal nota aukabúnað sem eru
viðurkenndir af Nokia fyrir þessa tegund. Leita skal upplýsinga hjá framleiðendum
annarra tækja um samhæfi þeirra við þetta tæki.
Þau forrit sem notast við Bluetooth ganga á rafhlöðu símans og draga úr endingu
hennar.
Þegar ytri SIM-stilling er virk í þráðlausa tækinu er aðeins hægt að hringja og svara
símtölum með samhæfum aukabúnaði sem er tengdur við það (t.d. bílbúnaði).
Page 21
Stillingar21
Ekki er hægt að hringja úr þráðlausa tækinu þegar stillingin er virk, nema í
neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.
Eigi að hringja úr tækinu þarf fyrst að slökkva á ytri SIM-stillingu. Ef tækinu hefur verið
læst skal fyrst slá inn lykilnúmerið til að opna það.
Bluetooth-tengingu komið á
1Veldu Valmynd > Stillingar > Tengingar > Bluetooth.
2Veldu Nafn símans míns og sláðu inn nafnið á tækinu.
3 Til að koma á Bluetooth-tengingu skaltu velja Bluetooth > Kveikja.
Bluetooth-tenging er virk.
4 Til að tengja tækið við aukabúnað fyrir hljóð velurðu Tengja hljóðaukab. og
aukabúnaðinn.
5 Til að para tækið við öll Bluetooth-tæki á svæðinu skaltu velja Pöruð tæki > Nýtt
tæki.
6 Veldu tækið og svo Bæta við.
7 Sláðu inn lykilorð (allt að 16 stafir) í tækið til að heimila tengingu við annað
Bluetooth-tæki.
Notkun tækisins í falinni stillingu er öruggari leið til að forðast hættulegan hugbúnað.
Ekki skal samþykkja Bluetooth-tengingar frá aðilum sem ekki er treyst. Einnig er hægt
að slökkva á Bluetooth. Þetta hefur ekki áhrif á aðrar aðgerðir símans.
Tölva tengd við internetið
Hægt er að nota Bluetooth-tækni til að tengja tölvuna þína við internetið. Tækið verður
að geta tengst internetinu (sérþjónusta) og tölvan verður að styðja Bluetooth-tækni.
Eftir tengingu við aðgangsstað tækisins og pörun við tölvuna opnar tækið sjálfkrafa
pakkagagnatengingu við internetið.
sýnir að
Pakkagögn
GPRS-tækni (General Packet Radio Service) er sérþjónusta sem gerir farsímanotendum
það kleift að senda og taka á móti gögnum um net sem byggir á
Internetsamskiptareglum (Internet Protocol, IP).
Tilgreint er hvernig þjónustan er notuð með því að velja Valmynd > Stillingar >
Tengingar > Pakkagögn > Pakkagagnatenging og svo úr eftirfarandi valkostum:
Þegar þörf er — til að koma á tengingu þegar forrit þarf á henni að halda. Tengingunni
er lokað um leið og forritinu.
Sítenging — til að tengjast sjálfkrafa við pakkagagnakerfi þegar kveikt er á símanum
Hægt er að nota símann sem mótald með því að tengja hann við tölvu með Bluetooth.
Nánari upplýsingar er að finna í þeim gögnum sem fylgdu með Nokia PC Suite.
Page 22
22 Stillingar
Símtal og síminn
Veldu Valmynd > Stillingar > Símtalsstillingar.
Móttekin símtöl flutt
Veldu Símtalsflutningur (sérþjónusta). Nánari upplýsingar má fá hjá þjónustuveitunni.
Hringt aftur sjálfkrafa tíu sinnum ef það tekst ekki í fyrstu tilraun
Veldu Sjálfvirkt endurval > Virkt.
Fá tilkynningu um símtöl sem berast meðan á öðru símtali stendur
Veldu Biðþjónusta símtala > Virkja (sérþjónusta).
Birta eða fela símanúmerið þitt fyrir þeim sem þú hringir í
Veldu Birta mínar upplýs. (sérþjónusta).
Til að svara eða slíta símtali með því að opna eða loka símanum
Veldu Við opnun/lokun.
Veldu Valmynd > Stillingar > Símastillingar.
Tungumál tækisins stillt
Veldu Stillingar tungumáls > Tungumál síma.
Aukabúnaður
Þessi valmynd, og ýmsir valkostir henni tengdir, sést aðeins ef síminn er eða hefur verið
tengdur við samhæfan þráðlausan aukahlut.
Veldu Valmynd > Stillingar > Aukabúnaður. Veldu aukahlut og valkost í samræmi
við hann.
Stillingar
Hægt er að stilla mismunandi valkosti tæksins. Þjónustuveitan kann einnig að senda
þér þessar stillingar.
Veldu Valmynd > Stillingar og Stilling.
Veldu úr eftirfarandi:
Sjálfgefnar stillingar — Skoða hvaða þjónustuveitur eru vistaðar í tækinu og velja
eina þeirra sem sjálfgefna.
Sjálfg. í öllum forr. — Virkja sjálfgefna stillingu fyrir studd forrit.
Kjöraðgangsstaður — Skoða vistaða aðgangsstaði.
Eigin stillingar — Bæta við nýjum einkaáskriftum fyrir ýmsar þjónustur, og virkja þær
eða eyða þeim. Til að bæta við nýrri áskrift velurðu Bæta við eða Valkostir > Bæta við
Page 23
Gallerí23
nýjum. Veldu þjónustugerðina og færðu inn nauðsynlegar upplýsingar. Til að virkja
einkaáskrift velurðu hana og svo Valkostir > Virkja.
Upprunalegar stillingar
Til að endurheimta upprunalegar stillingar símans velurðu Valmynd > Stillingar >
Still. framleið. og úr eftirfarandi:
Eingöngu stillingar — Til að núllstilla símann án þess að eyða persónulegum gögnum.
Allt — Núllstilla símann og eyða öllum persónulegum gögnum (t.d. tengiliðum,
skilaboðum og hljóð- og myndskrám).
Gallerí
Í Gallerí er haldið utan um myndir, myndskeið og tónlistarskrár.
Innihald Gallerís skoðað
Veldu Valmynd > Gallerí.
Mynd eða myndskeið sent til vefþjónustu þegar skráin er skoðuð
Veldu Valkostir > Senda > Hlaða upp á vef og viðeigandi þjónustu.
Forrit
Vekjaraklukka
Hægt er að stilla vekjara þannig að hann hringi á tilteknum tíma.
Stilltu klukkuna
1Veldu Valmynd > Forrit > Vekjaraklukka.
2 Stilltu vekjaranum og sláðu inn tímann.
3 Ef stilla á vekjarann þannig að hann hringi á völdum dögum vikunnar skaltu velja
Endurtaka: > Kveikt og dagana.
4 Veldu vekjaratóninn. Ef þú hefur valið útvarpið sem vekjaratón skaltu tengja
höfuðtólið við símann.
5 Stilltu lengd blunds og veldu Vista.
Slökkt á vekjaraklukkunni
Veldu Stöðva. Ef vekjarinn er látinn hringja í eina mínútu valið er Blunda slokknar á
vekjaraklukkunni í þann tíma sem hefur verið valinn og síðan hringir hún aftur.
Dagbók og verkefni
Veldu Valmynd > Dagbók. Núverandi dagur er með ramma. Ef færslur eru við daginn
er hann feitletraður.
Page 24
24 Forrit
Bætt við dagbókaratriði
Flettu að dagsetningunni og veldu Valkostir > Skrifa minnismiða.
Upplýsingar um minnismiða skoðaðar
Flettu að atriðinu og veldu Skoða.
Öllum atriðum eytt úr dagbók
Veldu Valkostir > Eyða atriðum > Öllum atriðum.
Skoða verkefnalistann
Veldu Valmynd > Forrit > Verkefnalisti.
Verkefnalistinn birtist og er flokkaður eftir forgangi. Til að bæta við, eyða eða senda
verkefni, merkja það sem lokið eða flokka verkefni eftir skilafresti velurðu Valkostir.
Aðrar aðgerðir
Í tækinu kunna að vera einhverjir leikir og Java™-forrit sem eru sérstaklega gerð fyrir
tækið.
Veldu Valmynd > Forrit > Önnur forrit.
Leikur eða forrit opnað
Veldu Leikir, Safn eða Minniskort, og leik eða forrit.
Birta upplýsingar um hversu mikið minni er laust til að setja upp leiki og forrit.
Veldu Valkostir > Staða minnis.
Leik eða forriti hlaðið niður
Veldu Valkostir > Hlaða niður > Hlaða niður leikjum eða Hlaða niður forritum.
Tækið styður J2ME™ Java-forrit. Gakktu úr skugga um að forritið sé samhæft tækinnu
áður en því er hlaðið niður.
Mikilvægt: Aðeins skal setja upp og nota forrit og annan hugbúnað frá traustum
aðilum, t.d. forrit með Symbian Signed eða forrit sem hafa verið prófuð með Java
Verified™.
Vista má forritin í Gallerí í stað Forrit.
Myndavél & myndupptaka
Þetta tæki styður 2048x1536 punktar myndupplausn.
Page 25
Forrit 25
Myndavél
Myndavélin opnuð
Haltu myndatökutakkanum inni á heimaskjánum.
Aðdráttur aukinn eða minnkaður
Flettu upp eða niður.
Myndataka
Ýttu á myndatökutakkann.
Forskoðun og tími stilltur
Veldu Valkostir > Stillingar > Tími forskoðunar.
Veldu Valkostir og viðkomandi valkost til að kveikja á sjálfvirku myndatökunni.
Myndupptaka
Myndupptökuvélin opnuð
Haltu myndatökutakkanum inni og flettu til hægri.
Myndupptaka hafin
Ýttu á myndatökutakkann.
Skipt á milli myndatökustillingar og myndupptöku
Flettu til hægri eða vinstri í myndavélarstillingu eða myndupptöku.
FM útvarp
FM-útvarpið þarf annað loftnet en það sem er í þráðlausa tækinu. Samhæft höfuðtól eða
aukabúnaður þarf að vera tengdur tækinu ef FM-útvarpið á að virka rétt.
Viðvörun:
Stöðug áraun af háum hljóðstyrk getur skaðað heyrn. Hlusta skal á tónlist á hóflegum
hljóðstyrk og ekki halda tækinu nærri eyranu þegar kveikt er á hátölurunum.
Veldu Valmynd > Forrit > Útvarp.
Leitað að stöð í nágrenninu
Haltu skruntakkanum inni til vinstri eða hægri.
Vista stöð
Stilltu á stöð sem við á og veldu Valkostir > Vista stöð
Page 26
26 Forrit
Skipta á milli vistaðra stöðva.
Flettu til hægri eða vinstri til að skipta á milli stöðva eða veldu tiltekna stöð með því að
ýta á minnistakka hennar.
Stilling hljóðstyrks
Skruna upp-niður.
Haft kveikt á útvarpinu í bakgrunni
Ýttu á hætta-takkann.
Útvarpinu lokað
Haltu inni endatakkanum.
Raddupptaka
Veldu Valmynd > Forrit > Upptökutæki.
Hefja upptöku
Veldu upptökutáknið.
Hefja upptöku í símtali
Veldu Valkostir > Fleira > Taka upp. Á meðan símtal er tekið upp skal halda símanum
í venjulegri stöðu við eyrað. Upptakan er vistuð í möppunni Upptökur í Gallerí.
Hlustað á nýjustu upptökuna
Veldu Valkostir > Spila síð. upptöku.
Síðasta raddupptaka send sem margmiðlunarboð
Veldu Valkostir > Senda síð. upptöku.
Margmiðlunarspilari
Í tækinu er margmiðlunarspilari svo að hægt er að spila tónlist eða aðrar MP3 eða AAC
hljóðskrár.
Viðvörun:
Stöðug áraun af háum hljóðstyrk getur skaðað heyrn. Hlusta skal á tónlist á hóflegum
hljóðstyrk og ekki halda tækinu nærri eyranu þegar kveikt er á hátölurunum.
Veldu Valmynd > Forrit > Spilari.
Spilun stöðvuð eða sett í bið
Ýttu á skruntakkann.
Page 27
Forrit 27
Farið aftur í byrjun lagsins sem er í spilun
Flettu til vinstri.
Farið í lagið á undan
Flettu tvisvar til vinstri.
Farið í næsta lag
Flettu til hægri.
Spólað til baka í lagi í spilun
Haltu skruntakkanum inni til vinstri.
Spólað áfram í lagi í spilun
Haltu skruntakkanum inni til hægri.
Stilling hljóðstyrks
Skruna upp-niður.
Kveikt eða slökkt á hljóði margmiðlunarspilarans
Ýttu á #.
Kveikt á margmiðlunarspilaranum í bakgrunni
Ýttu á hætta-takkann.
Margmiðlunarspilaranum lokað
Haltu inni endatakkanum.
Kort
Með kortaforritinu geturðu skoðað kort fyrir ýmsar borgir og lönd, leitað að
heimilisföngum og áhugaverðum stöðum, gert leiðaráætlanir milli staða, vistað
núverandi staðsetningu þína á kortinu ef þú ert með GPS-tengingu og vistað
staðsetningar og sent þær í samhæf tæki. Einnig er hægt að kaupa leyfi fyrir
leiðsöguþjónustu með raddleiðsögn. Þjónustan er ekki í boði í öllum löndum eða
svæðum.
Um Kort
Ef kort eru tiltæk í tækinu eða á minniskorti geturðu flett í þeim án nettengingar. Þegar
þú flettir að svæði sem ekki er á kortum sem hlaðið hefur verið niður í tækið er korti af
svæðinu sjálfkrafa hlaðið niður um internetið. Hugsanlega er farið fram á að þú veljir
aðgangsstað sem nota á til að tengjast.
Niðurhal á kortum getur falið í sér stórar gagnasendingar um símkerfi
þjónustuveitunnar. Upplýsingar um gagnaflutningsgjöld fást hjá þjónustuveitum.
Einnig er hægt að nota Nokia Map Loader hugbúnaðinn til að hlaða niður kortum í tækið.
Til að setja Nokia Map Loader upp á samhæfri tölvu, sjá www.nokia.com/maps.
Page 28
28 Forrit
Veldu Valmynd > Forrit > Kort og svo úr eftirfarandi:
Síðasta kort — Birtir það kort sem síðast var opið.
Finna heimilisf. — Leita að tilteknu heimilisfangi.
Vistaðar staðs. — Leitaðu að stað sem þú hefur vistað í tækinu.
Nýleg. staðsetn. — Birtu staðsetningar sem þú hefur flett í gegnum.
Núv. staðsetn. — Skoðaðu núverandi staðsetningu þína, ef GPS-tenging er til staðar.
Skipuleggja leið — Leiðaráætlun.
Viðbótarþjón. — Kauptu leyfi fyrir leiðsögn
Stillingar — Tilgreindu stillingarnar.
Nánast öll stafræn kort eru ónákvæm og ófullnægjandi að einhverju leyti. Aldrei skal
treysta eingöngu á kort sem hlaðið hefur verið niður til notkunar með þessu tæki.
Nokia Map Loader
Með Nokia Map Loader forritinu í tölvunni er hægt að hlaða kortum og
raddleiðsagnarskrám niður af netinu. Minniskort með nægu plássi verður að vera í
tækinu. Nota skal Kortaforritið og skoða kort a.m.k. einu sinni áður en Nokia Map Loader
forritið er tekið í notkun því að Nokia Map Loader notar upplýsingar úr Kortaforritinu til
að kanna hvaða kortaútgáfum á að hlaða niður.
Farðu á www.nokia.com/maps og fylgdu leiðbeiningunum til að setja upp Nokia Map
Loader.
Kortum hlaðið niður með Nokia Map Loader
1 Tengdu tækið við tölvu með samhæfðri USB-snúru eða Bluetooth-tengingu. Ef þú
notar gagnasnúru skaltu velja PC Suite sem USB-tengiaðferðina.
2 Opnaðu Nokia Map Loader í tölvunni.
3 Veldu heimsálfu og land eða svæði.
4 Veldu kort eða þjónustu og hladdu þeim niður og settu þau upp í tækinu.
Þú getur keypt leyfi fyrir leiðsögn og umferðarupplýsingar, ferðahandbækur og hlaðið
niður kortum á þjónustuflipanum í Nokia Map Loader.
Um GPS
GPS-móttakari
Tækið er ekki með innbyggt GPS-loftnet. Til að hægt sé að nota forrit sem krefjast GPStengingar þar samhæfan ytri GPS-móttakara (aukabúnaður seldur sér).
Ytri GPS-móttakari notaður
1 Hladdu samhæfa GPS-móttakarann að fullu og kveiktu á honum.
2 Komdu á Bluetooth-tengingu á milli tækisins og GPS-móttakarans.
3 Stilltu GPS-móttakaranum þannig upp að ekki skyggi á hann frá himni.
4 Opnaðu forritið Kort og veldu ytri GPS-móttakara.
Page 29
Forrit 29
Eftir að tækið er parað við ytri GPS-móttakara geta liðið nokkrar mínútur þar til
staðsetningarupplýsingar að birtast í tækinu.
Hægt er að nota GPS-kerfið til að styðja kortaforritið. Finndu staðsetningu þína eða
mældu fjarlægðir.
Einnig er hægt að nota Kort án GPS-móttakara til að fletta í kortum, leita að
heimilisföngum og stöðum og skipuleggja leiðir.
Leiðsögn til áfangastaðar
Nú er hægt að uppfæra K ort í leiðsagnarke rfi fyrir akstur og göngu. Þú þarft staðbundið
leyfi til að njóta leiðsagnarkerfisins og samhæfan GPS-móttakara. Akstursleiðsögnin er
með raddleiðsögn og kortum í tví- og þrívídd. Gönguleiðsögnin er takmörkuð við 30
km/klst. og með henni fylgir ekki raddleiðsögn. Leiðsagnarþjónustan er ekki í boði í
öllum löndum/svæðum. Frekari upplýsingar má fá á vefsvæði Nokia fyrir þitt svæði.
Leyfi keypt fyrir leiðsögn
Veldu Viðbótarþjón.. Leyfið gildir fyrir tiltekið svæði og aðeins er hægt að nota það
þar.
Leiðsögn til áfangastaðar
1Veldu Skipuleggja leið og búðu svo til leið.
2Veldu Valkostir > Sýna leið > Valkostir > Hefja leiðsögn.
3 Samþykkja afsal ábyrgðar.
4 Veldu tungumál raddleiðsagnar, ef þess er krafist.
Ef þú ferð af valinni leið skipuleggur tækið sjálfkrafa nýja leið.
Raddleiðsögn endurtekin
Veldu Endurt..
Page 30
30 Vefur eða Internet
Hljóð slökkt á raddleiðsögn
Veldu Valkostir > Slökkva á hljóði.
Leiðsögn stöðvuð
Veldu Stöðva.
Leiðsögn við göngu
Veldu Stillingar > Leiðarstillingar > Leiðarval > Fótgangandi. Þetta lagar leiðirnar
sem þú býrð til að leiðsögn við göngu.
Vefur eða Internet
Þú getur fengið aðgang að ýmiss konar netþjónustu í vafra símans. Útlit vefsíðna getur
verið breytilegt eftir skjástærðinni. Hugsanlega er ekki hægt að skoða allt efni vefsíðna.
Vefskoðunaraðgerðin, sem hér eftir verður nefnd Vefur, birtist hugsanlega sem Vefur
eða Internet í valmyndinni, en það fer eftir símanum þínum.
Mikilvægt: Aðeins skal nota þjónustu sem er treyst og sem veitir nægilegt öryggi og
vörn gegn skaðlegum hugbúnaði.
Upplýsingar um mismunandi þjónustu, verð og leiðbeiningar fást hjá þjónustuveitunni.
Þú getur fengið nauðsynlegar stillingarnar fyrir vefskoðun í stillingaboðum frá
þjónustuveitunni.
Tengjast vefþjónustu
Veldu Valmynd > Vefur > Heim. Eða haltu inni 0 í biðstöðu.
Eftir að þú hefur tengst þjónustu geturðu hafið skoðun á síðum hennar. Virkni takkanna
á símanum er mismunandi eftir þjónustuveitum. Fylgdu textaleiðbeiningunum á
símaskjánum. Nánari upplýsingar fást hjá þjónustuveitu.
SIM-þjónusta
SIM-kortið kann að bjóða upp á meiri þjónustu. Einungis er hægt að opna þe ssa valmynd
ef SIM-kortið styður hana. Heiti og efni valmyndarinnar fer eftir þjónustunni sem er í
boði.
Græn ráð
Page 31
Vöru- og öryggisupplýsingar31
Hér eru ábendingar sem hjálpa þér að stuðla að verndun umhverfisins.
Orkusparnaður
Þegar rafhlaðan er fullhlaðin og hleðslutækið tekið úr sambandi við tækið skaltu taka
hleðslutækið úr sambandi við innstunguna.
Þú þarft ekki að hlaða rafhlöðuna eins oft ef þú gerir eftirfarandi:
•Lokaðu og gerðu óvirk forrit, þjónustu og tengingar þegar þær eru ekki í notkun.
•Minnkaðu birtustig skjásins.
•Stilltu tækið þannig að það fari í orkusparnaðarstillingu eftir lágmarkstíma af
aðgerðaleysi, ef tækið bíður upp á það.
•Slökktu á ónauðsynlegum hljóðum, eins og takkatónum og hringitónum.
Endurvinnsla
Hægt er að endurvinna megnið af efnum í Nokia-farsímum. Kannaðu hvernig þú getur
endurunnið vörur frá Nokia á www.nokia.com/werecycle, eða á www.nokia.mobi/
werecycle, ef þú skoðar síðuna í farsíma.
Endurvinna skal pakkningar og notandahandbækur á næstu endurvinnslustöð.
Lærðu meira
Frekari upplýsingar um umhverfislega eiginleika tækisins er að finna á www.nokia.com/
ecodeclaration.
Vöru- og öryggisupplýsingar
Aukabúnaður
Viðvörun:
Aðeins skal nota rafhlöður, hleðslutæki og aukabúnað sem Nokia hefur samþykkt til nota með þessari tilteknu tegund. Ef notaðar
eru aðrar gerðir gæti öll ábyrgð og samþykki fallið niður og slíkri notkun getur fylgt hætta. Sérstaklega getur notkun
ósamþykktra rafhlaða eða hleðslutækja valdið eldhættu, sprengingu, leka eða haft aðra áhættu í för með sér.
Seljandi símans veitir upplýsingar um fáanlegan aukabúnað sem samþykktir eru til notkunar. Þegar aukabúnaður er tekinn úr
sambandi skal taka í klóna, ekki leiðsluna.
Rafhlaða
Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki
Tækið gengur fyrir endurhlaðanlegri rafhlöðu. Þetta tæki er ætlað til notkunar með BL-4CT rafhlöðu. Hugsanlega verða hægt
að fá aðrar gerðir rafhlaðna frá Nokia fyrir þetta tæki. Tækið er ætlað til notkunar þegar það er hlaðið með eftirfarandi
hleðslutækjum: AC-3. Númer hleðslutækisins getur verið mismunandi eftir klónni sem er notuð. Gerð klóarinnar er auðkennd
með einu af eftirfarandi: E, EB, X, AR, U, A, C, K eða UB.
Hægt er að hlaða og afhlaða rafhlöðu nokkur hundruð sinnum en að því kemur að hún gengur úr sér. Þegar tal- og biðtími er
orðinn mun styttri en eðlilegt er skal skipta um rafhlöðu. Aðeins skal nota rafhlöður sem samþykktar eru af Nokia og aðeins
skal endurhlaða rafhlöðu með hleðslutækjum sem Nokia hefur samþykkt til notkunar með þessu tæki.
Page 32
32 Vöru- og öryggisupplýsingar
Ef verið er að nota rafhlöðu í fyrsta skipti, eða ef rafhlaðan hefur ekki verið notuð í langan tíma, kann að vera nauðsynlegt að
tengja hleðslutækið, aftengja það síðan og tengja það aftur til að hefja hleðsluna. Ef rafhlaðan er alveg tóm geta liðið nokkrar
mínútur þar til hleðsluvísirinn birtist á skjánum eða þar til hægt er að hringja.
Örugg fjarlæging. Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður en rafhlaðan er fjarlægð.
Rétt hleðsla. Taka skal hleðslutækið úr sambandi við rafmagnsinnstungu og tækið þegar það er ekki í notkun. Ekki má hafa
fullhlaðna rafhlöðnu í sambandi við hleðslutæki þar sem ofhleðsla getur stytt líftíma hennar. Fullhlaðin rafhlaða tapar
hleðslunni smátt og smátt ef hún er ekki í notkun.
Forðist mikið frost eða mikinn hita. Æskilegast er að rafhlaðan sé alltaf höfð í hita á bilinu frá 15°C að 25°C (frá 59°F að 77°F).
Of mikill hiti eða kuldi draga úr endingu og líftíma rafhlöðu. Tæki með heitri eða kaldri rafhlöðu kann að hætta að starfa
tímabundið. Einkum hefur mikið frost takmarkandi áhrif á rafhlöður.
Ekki tengja framhjá. Skammhlaup getur orðið fyrir slysni þegar málmhlutur, svo sem mynt, bréfaklemma eða penni veldur
beinni tengingu milli + og - skautanna á rafhlöðunni. (Þau líta út eins og málmrendur á rafhlöðunni.) Til dæmis getur þetta
gerst þegar vararafhlaða er höfð í vasa eða tösku. Skammhlaup milli skautanna getur valdið skemmdum á rafhlöðunni eða
hlutnum sem veldur tengingunni.
Losun. Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar sem þær geta sprungið. Farga skal rafhlöðum í samræmi við staðbundin lög og
reglugerðir. Skila skal þeim í endurvinnslu þegar mögulegt er. Ekki skal fleygja þeim með heimilisúrgangi.
Leki. Ekki skal taka sundur, skera, opna, merja, beygja, gata eða tæta rafhlöður. Fari rafhlaðan að leka skaltu forðast að hún
komist í snertingu húð eða augu. Gerist það skal hreinsa svæði sem komast í snertingu við rafhlöðuna með vatni eða leita
læknisaðstoðar.
Skemmdir. Ekki skal breyta, endurhanna, reyna að setja hluti í rafhlöðuna sem ekki eiga að vera þar, dýfa rafhlöðunni í vatn
eða aðra vökva, eða bleyta hana. Rafhlöður geta sprungið ef þær skemmast.
Rétt notkun. Aðeins skal nota rafhlöðuna til þess sem hún er ætluð. Röng notkun rafhlöðunnar hefur í för með sér eld- eða
sprengihættu, eða aðra hættu. Ef þú missir tækið eða rafhlöðuna, og þá sérstaklega á hart yfirborð, og telur að rafhlaðan hafi
skemmst, skaltu fara með hana til þjónustuvers til skoðunar áður en þú heldur áfram að nota hana. Aldrei skal nota skemmt
hleðslutæki eða rafhlöðu. Geyma skal rafhlöðuna þar sem lítil börn ná ekki til.
Leiðbeiningar um sannprófun á rafhlöðum frá Nokia
Notaðu alltaf rafhlöður frá Nokia til að tryggja öryggi þitt. Til að ganga úr skugga um að þú notir ósvikna Nokia rafhlöðu skaltu
kaupa hana af viðurkenndri þjónustumiðstöð eða söluaðila Nokia og skoða heilmyndarmiðann líkt og lýst er í eftirfarandi
skrefum:
Sannvottun heilmyndar
1Þegar þú horfir á heilmyndina á miðanum ættirðu að sjá Nokia-handabandstáknið frá einu sjónarhorni og „Nokia Original
Enhancements“ táknið frá öðru.
Page 33
Vöru- og öryggisupplýsingar33
2Þegar þú snýrð heilmyndinni til vinstri, hægri, upp eða niður ættirðu að sjá 1, 2, 3 eða 4 punkta, allt eftir staðsetningu
hennar.
Þó svo að þessum skrefum sé fylgt nákvæmlega er það ekki fullkomin trygging fyrir því að rafhlaðan sé ósvikin. Ef þú getur ekki
staðfest að svo sé eða hafir þú minnstu ástæðu til að ætla að rafhlaðan með heilmyndinni sé ekki ósvikin Nokia rafhlaða skaltu
ekki nota hana heldur fara með hana til viðurkenndrar þjónustumiðstöðvar eða söluaðila Nokia.
Nánari upplýsingar um ósviknar Nokia rafhlöður er að finna á www.nokia.com/battery.
Meðferð tækisins
Í tækinu fer saman frábær hönnun og flókin tækni sem fara þarf gætilega með. Eftirfarandi leiðbeiningar hjálpa til við að halda
tækinu í ábyrgð.
•Halda skal tækinu þurru. Úrkoma, raki og hvers kyns vökvar geta innihaldið steinefni sem tæra rafrásirnar. Ef tækið blotnar
skal fjarlægja rafhlöðuna og leyfa því að þorna alveg áður en rafhlaðan er sett í það aftur.
•Ekki skal nota tækið á rykugum og óhreinum stöðum né geyma það þar. Hreyfanlegir hlutir og rafrænir hlutar þess geta
skemmst.
•Ekki skal geyma tækið á köldum eða heitum stað. Hátt hitastig getur dregið úr endingu rafeindatækja, skemmt rafhlöður
og undið eða brætt sum plastefni. Þegar tækið hitnar upp að eðlilegu hitastigi getur raki myndast innan í því og hann
getur skemmt rafrásaspjöld.
•Ekki skal reyna að opna símann öðruvísi en tilgreint er í þessari handbók.
•Tækinu skal ekki henda, ekki skal banka í það eða hrista það. Óvarleg meðferð getur skemmt innri rafrásaspjöld og
fíngerðan búnað.
•Ekki skal nota sterk efni, leysiefni til hreingerninga eða sterk hreinsiefni til þess að þrífa tækið. Aðeins skal nota mjúkan,
hreinan og þurran klút til að hreinsa yfirborð tækisins.
•Ekki skal mála tækið. Málningin getur fest hreyfanlega hluti tækisins og komið í veg fyrir að þeir vinni rétt.
•Aðeins skal nota loftnetið sem fylgir með símanum eða samþykkt varaloftnet. Ósamþykkt loftnet, breytingar á þeim eða
viðbætur, gætu skemmt tækið og kunna að brjóta í bága við ákvæði laga um senditæki.
•Nota skal hleðslutæki innandyra.
•Taktu öryggisafrit af gögnum sem þú vilt geyma, t.d. tengiliðum og dagbókaratriðum.
•Hægt er að endurstilla tækið af og til og tryggja þannig hámarksafköst með því að slökkva á tækinu og fjarlægja rafhlöðu
þess.
Þessar ábendingar eiga jafnt við um tækið, rafhlöðuna, hleðslutækið eða annan aukabúnað.
Endurvinnsla
Skilaðu alltaf notuðum raftækjum, rafhlöðum og umbúðum á viðeigandi sorp- og endurvinnslustöð. Þannig geturðu dregið úr
óflokkaðri sorplosun og stuðlað að endurvinnslu. Skoðaðu upplýsingar um umhverfisatriði og endurvinnslu á Nokia-vörum á
www.nokia.com/werecycle eða www.nokia.mobi/werecycle.
Page 34
34 Vöru- og öryggisupplýsingar
Merkið sem sýnir yfirstrikaða ruslafötu og er á vörunni, rafhlöðunni, bæklingnum eða umbúðunum táknar að fara verður með
allan rafbúnað og rafeindabúnað, rafhlöður og rafgeyma á sérstaka staði til förgunar að líftíma vörunnar liðnum. Þessi krafa á
við innan Evrópusambandsins. Hendið þessum vörum ekki með heimilisúrgangi. Nánari upplýsingar um umhverfismál er að
finna í Eco-yfirlýsingum fyrir vörur á www.nokia.com/environment.
Viðbótaröryggisupplýsingar
Til athugunar: Yfirborð platna þessa tæki felur ekki í sér nikkel. Yfirborð þessa tækis felur í sér ryðfrítt stál.
Lítil börn
Tækið og aukabúnaður þess eru ekki leikföng. Í þeim geta verið litlir hlutir. Þá skal geyma þar sem lítil börn ná ekki til.
Vinnuumhverfi
Þetta tæki uppfyllir skilyrði um leyfileg mörk útvarpsbylgna (RF) við notkun í hefðbundinni stöðu við eyrað eða þegar það er
haft að minnsta kosti 1,5 sentimetra (5/8 úr tommu) frá líkamanum. Ef taska, beltisklemma eða hald er notað þegar tækið er
borið á líkamanum við notkun ætti slíkur búnaður ekki að innihalda málm og halda ætti tækinu að minnsta kosti í þeirri fjarlægð
frá líkamanum sem nefnd var hér á undan.
Til að hægt sé að senda gagnaskrár eða skilaboð þarf góða tengingu við símkerfið. Sending gagnaskráa eða skilaboða getur
tafist þar til slík tenging er tiltæk. Fylgið ofangreindum fjarlægðarfyrirmælum þar til sendingu er lokið.
Hlutar tækisins eru segulmagnaðir. Málmefni gætu dregist að tækinu. Ekki má geyma kreditkort eða aðra segulmagnaða hluti
með geymsluminni nálægt tækinu því upplýsingar sem þar eru geymdar gætu þurrkast út.
Lækningatæki
Notkun búnaðar sem sendir frá sér útvarpsbylgjur, þar með talin notkun þráðlausra síma, kann að trufla virkni lækningatækja
sem ekki eru nægilega vel varin. Hafið samband við lækni eða framleiðanda lækningatækisins til að fá upplýsingar um hvort
það sé nægilega varið fyrir útvarpsbylgjum. Slökktu á tækinu þar sem reglur kveða á um slíkt. Sjúkrastofnanir eða
heilsugæslustöðvar kunna að nota búnað sem er næmur fyrir utanaðkomandi útvarpsbylgjum.
Ígrædd lækningatæki
Framleiðendur lækningatækja mæla með því að 15,3 sentímetra (6 tommu) lágmarksbil sé haft á milli þráðlauss tækis og
ígrædds lækningabúnaðar, eins og gangráðs eða ígrædds hjartarafstuðstækis til þess að komist sé hjá hugsanlegri truflun í
lækningabúnaðinum. Einstaklingar með slíkan búnað ættu:
•Alltaf að halda tækinu í meira en 15,3 sentímetra (6 tommu) fjarlægð frá lækningatækinu.
•Ekki að ganga með þráðlausa tækið í brjóstvasa
•Halda þráðlausa tækinu að eyranu sem er fjær lækningatækinu.
•Ef grunur leikur á að truflun sé að verða skal slökkva á þráðlausa tækinu.
•Fylgja skal leiðbeiningum framleiðanda lækningatækisins.
Ef þú hefur spurningar um notkun þráðlausa tækisins með ígræddum lækningabúnaði skaltu hafa samband við
heilbrigðisstarf sfólk.
Heyrnartæki
Tiltekin stafræn þráðlaus tæki geta truflað sum heyrnartæki.
Ökutæki
Útvarpsbylgjur kunna að hafa áhrif á rafeindakerfi í vélknúnum ökutækjum, séu þau ekki rétt upp sett eða ekki nægilega varin,
svo sem rafeindastýrða eldsneytisgjöf, rafeindastýrð hemlakerfi (með læsivörn), rafeindastýrða hraðastýringu og loftpúðakerfi.
Frekari upplýsingar er að finna hjá framleiðanda bílsins eða tækjabúnaðarins.
Page 35
Vöru- og öryggisupplýsingar35
Aðeins á að fela fagmönnum að gera við tækið eða setja tækið upp í ökutæki. Röng uppsetning eða viðgerð kann að valda
hættu og ógilda ábyrgðina. Ganga skal reglulega úr skugga um að allur þráðlaus tækjabúnaður í ökutækinu sé rétt uppsettur
og vinni rétt. Ekki má geyma eða flytja eldfima vökva, lofttegundir eða sprengifim efni í sama rými og tækið, hluta úr því eða
aukabúnað með því. Hafa skal í huga að loftpúðar blásast upp af miklu afli. Ekki koma tækinu eða fylgihlutum fyrir á
loftpúðasvæðinu.
Slökkva skal á tækinu áður en gengið er um borð í flugvél. Notkun þráðlausra fjarskiptatækja í flugvél getur skapað hættu við
stjórn flugvélarinnar og kann að vera ólögleg.
Sprengifimt umhverf i
Slökkva skal á tækinu á svæðum þar sem kann að vera sprengihætta. Farðu eftir leiðbeiningum sem gilda hverju sinni. Neistaflug
á slíkum svæðum getur valdið sprengingu eða eldi og haft í för með sér slys og jafnvel dauðsföll. Slö kkva skal á tækinu á
eldsneytisstöðvum, svo sem við eldsneytisdælur á bensínstöðvum. Virða skal takmarkanir í eldsneytisgeymslum, svæðum þar
sem geymsla og dreifing eldsneytis fer fram, efnaverksmiðjum eða þar sem verið er að sprengja. Svæði þar sem kann að vera
sprengihætta eru oftast auðkennd en þó ekki alltaf. Þar á meðal eru svæði þar sem ráð gæti verið að slökkva á vél bifreiðar, í
farrýmum skipa, í efnageymslum eða við efnaflutninga og þar sem efni eða agnir, s.s. ryk, sót eða málmduft gæti verið í lofti.
Þú ættir að leita upplýsinga hjá framleiðendum farartækja sem nota jarðgas (líkt og própan eða bútan) til að ákvarða hvort
hægt sé að nota þetta tæki á öruggan hátt nálægt þeim.
Neyðarhringingar
Mikilvægt: Þetta tæki notar útvarpsmerki, þráðlaus staðarnet, kapalkerfi og notendaforritaðar aðgerðir. Ef tækið styður símtöl
á internetinu (netsímtöl) skaltu bæði kveikja á farsímanum og á netsímtölum. Tækið getur reynt að koma á neyðarsímtölum í
farsímakerfinu og um þjónustuveitu netsímtala ef bæði eru virk. Ekki er hægt að tryggja tengingu við allar aðstæður. Því skyldi
aldrei treysta eingöngu á þráðlaust tæki ef um er að ræða bráðnauðsynleg fjarskipti, t.d. í bráðatilvikum.
Neyðarsímtal:
1Ef slökkt er á tækinu skal kveikja á því. Athuga skal hvort nægilegur sendistyrkur sé fyrir hendi. Þú gætir einnig þurft að
ljúka eftirfarandi, allt eftir tækinu þínu:
•Settu SIM-kort í tækið þitt ef það notar slíkt kort.
•Eyddu öllum takmörkunum sem þú hefur valið í tækinu þínu.
•Breyttu sniðinu þínu úr sniði án tengingar eða flugsniði í virkt snið.
2Ýttu eins oft á endatakkann og þarf til að hreinsa skjáinn og gera tækið reiðubúið fyrir símtöl.
3Veldu opinbera neyðarnúmerið fyrir viðkomandi svæði. Neyðarnúmer eru breytileg eftir stöðum.
4Styddu á hringitakkann.
Í neyðarsímtali þarf að gefa upp allar nauðsynlegar upplýsingar eins nákvæmlega og kostur er. Þráðlausa tækið getur verið
eina samskiptatækið á slysstað. Ekki má slíta símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.
Upplýsingar um vottun (SAR)
Þetta farsímatæki uppfyllir viðmiðunarreglur um áhrif af útvarpsbylgjum.
Þráðlausa tækið er útvarpssendir og móttökutæki. Það er hannað með tilliti til leyfilegra marka um áhrif af útvarpsbylgjum
sem alþjóðlegar viðmiðunarreglur mæla með. Þessar viðmiðunarreglur voru þróaðar af óháðu vísindastofnuninni ICNIRP og
innihalda öryggismörk sem ætlað er að tryggja öryggi allra, óháð aldri og heilsufari.
Í viðmiðunarreglum um útvarpsbylgjur þráðlausra tækja er notuð mælieiningin SAR (Sp ecific Absorption Rate). Efri mörk SAR,
samkvæmt viðmiðunarreglum ICNIRP, eru 2,0 vött/kílógramm (W/kg) að meðaltali á hver 10 grömm af líkamsvef. Mælingar á
SAR eru gerðar í hefðbundnum notkunarstöðum þegar tækið sendir af mesta leyfða styrk á öllum mældum tíðnisviðum.
Raunverulegur SAR-styrkur tækis í notkun getur verið lægri en hámarksgildið, þar sem tækið er hannað til að nota aðeins þann
styrk sem þarf til að ná sambandi við símkerfið. Fjöldi þátta hafa áhrif á styrkinn, t.d. hversu langt notandinn er frá grunnstöð.
Samkvæmt viðmiðunarreglum ICNIRP er hæsta SAR-gildi fyrir notkun tækisins við eyra 0,97 W/kg.
Page 36
36 Vöru- og öryggisupplýsingar
Notkun aukahluta og aukabúnaðar getur valdið því að SAR-gildið sé annað. SAR-gildi kunna að vera breytileg milli landa sökum
mismunandi upplýsingaskyldu, krafna og tíðnisviðs. Viðbótarupplýsingar um SAR má finna í upplýsingum um vörur á
www.nokia.com.
Page 37
37
YFIRLÝSING UM SAMKVÆMNI
Hér með lýsir NOKIA CORPORATION því yfir að varan RM-604 er
í samræmi við grunnkröfur og aðrar kröfur sem gerðar eru í
tilskipun 1999/5/EB. Eintak af yfirlýsingu um samkvæmni er
að finna á slóðinni http://www.nokia.com/phones/
declaration_of_conformity/.
Nokia, Nokia Connecting People og Navi eru vörumerk i og
skrásett vörumerki Nokia Corporation. Nokia tune er
vörumerki Nokia Corporation. Önnur vöruheiti eða heiti
fyrirtækja sem nefnd eru hér geta verið vörumerk i eða
vöruheiti viðkomandi eigenda.
Hvers konar afritun, yfirfærsla, dreifing eða varðveisla á hluta
skjals þessa eða skjalinu öllu er óheimil nema að fyrirfram
fengnu skriflegu samþykki Nokia. Nokia framfylgir stefnu sem
felur í sér stöðuga þróun. Nokia áskilur sér rétt til að gera
breytingar og úrbætur á hvers konar vöru sem getið er í þessu
skjali án undangenginnar tilkynningar.
Includes RSA BSAFE cryptographic or security protocol
software from RSA Security.
Java is a trademark of S un Microsystems, Inc.
Þessi vara hefur leyfið MPEG-4 Visual Patent Portfolio License
(i) til einkanotkunar og án viðskiptatilgangs í tengslum við
upplýsingar sem hafa verið kóðaðar samkvæmt staðlinum
MPEG-4 Visual Standard af neytanda í persónulegum tilgangi
og án viðskiptatilgangs og (ii) til notkunar í tengslum við
MPEG-4 hreyfimynd sem fengin er hjá hreyfimyndaveitu með
leyfi. Ekkert leyfi er veitt eða undirskilið til neinnar annarrar
notkunar. Viðbótarupplýsingar, sem varða til dæmis notkun
í auglýsingum, innan fyrirtækis og í viðskiptum, má fá hjá
MPEG LA, LLC. Sjá http://www.mpegla.com.
AÐ ÞVÍ MARKI SEM VIÐEIGANDI LÖG LEYFA SKAL NOKIA EÐA
EINHVERJIR AF LEYFISVEITENDUM ÞESS UNDIR ENGUM
KRINGUMSTÆÐUM BERA SKAÐABÓTAÁBYRGÐ VEGNA TAPS Á
GÖGNUM, TEKJUTJÓNI EÐA Á NEINU SÉRSTÖKU,
TILVILJANAKENNDU, AFLEIDDU EÐA ÓBEINU TJÓNI HVERNIG SEM
ÞAÐ VILL TIL.
INNTAK ÞESSA SKJALS ER AFHENT „EINS OG ÞAÐ KEMUR FYRIR“.
UMFRAM ÞAÐ, ER LÖG ÁSKILJA, ER ENGIN ÁBYRGÐ VEITT, HVORKI
BERUM ORÐUM NÉ UNDIRSKILIN, Á NÁKVÆMNI, ÁREIÐANLEIKA
EÐA INNTAKI ÞESSA SKJALS. Á ÞAÐ MEÐAL ANNARS, EN EKKI
EINGÖNGU, VIÐ UM SÖLUHÆFNI EÐA ÁBYRGÐ Á AÐ VARAN HENTI
TILTEKINNI NOTKUN. NOKIA ÁSKILUR SÉR RÉTT TIL AÐ
ENDURSKOÐA SKJALIÐ EÐA DRAGA ÞAÐ TIL BAKA HVENÆR SEM
ER ÁN UNDANGENGINNAR TILKYNNINGAR.
Framboð á tilteknum vörum, forritum og þj ónustu fyrir
þessar vörur getur verið breytilegt eftir svæðum. Kannaðu
það, ásamt tungumálavalkostum, hjá Nokia söluaðila. Tæki
þetta kann að innihalda vörur, tækni eða hugbúnað sem lýtur
útflutningslögum og reglugerðum í Bandaríkjunum og
öðrum löndum. Breytingar á flutningsleiðum sem ekki
samræmast lögum eru óheimilar.
Þau forrit frá þriðju aðilum sem finna má í tækinu kunna að
hafa verið búin til og vera í eigu aðila eða fyrirtækja sem ekki
tengjast Nokia. Nokia á ekki höfundarréttindi eða
hugverkaréttindi að þessum forritum þriðju aðila. Nokia
tekur því hvorki ábyrgð á aðstoð við notendur, virkni þessara
forrita eða þeim upplýsingum sem fylgja forritunum eða
efninu. Nokia veitir enga ábyrgð á þessum forritum þriðju
aðila. MEÐ NOTKUN SINNI VIÐURKENNIR NOTANDINN AÐ
FORRITIN ERU AFHENT EINS OG ÞAU KOMA FYRIR ÁN ÞESS AÐ
NOKKUR ÁBYRGÐ SÉ VEITT, BERUM ORÐUM EÐA ÓBEINT, AÐ ÞVÍ
MARKI SEM HEIMILT ER Í VIÐKOMANDI LÖGUM. NOTANDINN
VIÐURKENNIR JAFNFRAMT AÐ HVORKI NOKIA NÉ TENGD FÉLÖG
VEITA NOKKURS KONAR FYRIRSVAR EÐA ÁBYRGÐ, BERUM ORÐUM
EÐA ÓBEINT, ÞAR Á MEÐAL EN EKKI EINGÖNGU ÁBYRGÐ Á
EIGNARRÉTTI, SÖLUHÆFNI EÐA HÆFNI TIL TILT EKINNAR
NOTKUNAR, EÐA ÞVÍ AÐ FORRITIN BRJÓTI EKKI GEGN
EINKARÉTTI, HÖFUNDARRÉTTI, VÖRUMERKJARÉTTI EÐA ÖÐRUM
RÉTTINDUM ÞRIÐJA AÐILA.