Hringt úr tækinu17
Texti og skilaboð19
Tölvupóstur22
Myndir og myndskeið23
Myndataka23
Upptaka myndskeiða24
Valkostir myndavélar og
myndupptöku24
Gallerí24
Afþreying 25
Hlustað á tónlist25
Vefur 28
Leikir og forrit29
Kort30
Kortum hlaðið niður30
Kort og GPS31
Viðbótarþjónusta31
Skipuleggja31
Skipuleggja tengiliði32
Nafnspjöld32
Dagsetning og tími33
Vekjaraklukka33
Dagbók33
Verkefnalisti33
Minnismiðar34
Nokia PC Suite34
Reiknivél34
Niðurteljari34
Skeiðklukka34
Stuðningur og uppfærslur34
Þjónusta35
My Nokia (Nokia tækið mitt)35
Niðurhal efnis35
Uppfærsla hugbúnaðar með tölvu35
Hugbúnaðaruppfærsla með
ljósvakaboðum36
Upprunalegar stillingar36
Aukabúnaður37
Rafhlaða37
Upplýsingar um rafhlöðu og
hleðslutæki37
Leiðbeiningar um sannprófun á
rafhlöðum frá Nokia37
Umhirða og viðhald38
Endurvinnsla38
Viðbótaröryggisupplýsingar39
Lítil börn39
Vinnuumhverfi39
Lækningatæki39
Ökutæki39
Sprengifimt umhverfi39
Neyðarhringingar40
Upplýsingar um vottun (SAR)40
Atriðaskrá41
Efnisyfirlit3
4Öryggi
Öryggi
Lesið þessar einföldu leiðbeiningar. Sé
þeim ekki fylgt getur það verið hættulegt
eða varðað við lög. Lesa skal alla
notendahandbókina til að fá nánari
upplýsingar.
ÖRYGGI ÞEGAR KVEIKT ER Á TÆKINU
Ekki má kveikja á tækinu þar
sem notkun þráðlausra síma er
bönnuð eða þar sem hún kann
að valda truflunum eða hættu.
UMFERÐARÖRYGGI GENGUR FYRIR
Fara skal að öllum
staðbundnum lögum. Ætíð skal
hafa hendur frjálsar til að stýra
ökutækinu við akstur.
Umferðaröryggi skal ganga
fyrir í akstri.
TRUFLUN
Öll þráðlaus tæki geta verið
næm fyrir truflunum, sem getur
haft áhrif á virkni þeirra.
SLÖKKT Á TÆKINU Á AFMÖRKUÐUM
SVÆÐUM
Virða skal allar takmarkanir.
Slökkva skal á tækinu um borð
í flugvélum, nærri
lækningatækjum,
eldsneytisstöðvum,
efnaverksmiðjum eða svæðum
þar sem verið er að sprengja.
AUKABÚNAÐUR OG RAFHLÖÐUR
Aðeins má nota samþykktan
aukabúnað og rafhlöður. Ekki
má tengja saman ósamhæf
tæki.
VATNSHELDNI
Tækið er ekki vatnshelt. Halda
skal því þurru.
VIÐURKENND ÞJÓNUSTA
Aðeins viðurkennt starfsfólk
má setja upp eða gera við þessa
vöru.
Síminn tekinn í notkun
Lærðu á símann þinn, komdu rafhlöðunni,
SIM-kortinu og minniskortinu fyrir og
lestu mikilvægar upplýsingar um símann.
14 Takki til að lækka hljóð
15 Takki til að hækka hljóð
16 Hátalari
17 Rofi
18 Myndavélarflass
19 Myndavélarlinsa
SIM-korti og rafhlöðu komið fyrir
Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja
hleðslutækið áður en rafhlaðan er
fjarlægð.
Þessi sími er ætlað til notkunar með SIMkorti BL-5CT rafhlöðu. Notaðu alltaf
viðurkenndar rafhlöður frá Nokia.
„Leiðbeiningar um sannprófun á
rafhlöðum frá Nokia“, bls. 37.
SIM-kortið og snertur þess geta hæglega
skemmst ef kortið rispast eða bognar. Því
þarf að fara varlega með kortið þegar það
er sett í eða tekið úr.
1 Renndu hliðinni til (1) og fjarlægðu
hana. Fjarlægðu rafhlöðuna (2).
Sjá
6Síminn tekinn í notkun
2 Opnaðu (3) SIM-kortahölduna (3).
Settu SIM-kortið í hölduna þannig að
snertiflöturinn snúi niður (4). Lokaðu
SIM-kortahöldunni (5).
3 Gættu að á snertum rafhlöðunnar (6)
og settu rafhlöðuna á sinn stað (7).
Settu bakhlið símans aftur á sinn stað
(8).
Minniskorti komið fyrir eða fjarlægt
Aðeins skal nota samhæft microSD-kort
sem Nokia samþykkir til notkunar með
þessu tæki. Nokia styðst við viðurkennda
staðla fyrir minniskort. Þó getur verið að
sum kort sé ekki hægt að nota að fullu
með þessu tæki. Ósamhæf kort geta
skaðað kortið og tækið og skemmt gögn
sem vistuð eru á kortinu.
Síminn þinn styður microSD-kort sem eru
allt að 4 GB að stærð.
Minniskorti komið fyrir
1 Fjarlægðu bakhliðina.
2 Settu kortið í raufina þannig að
snertiflötur þess snúi niður og ýttu á
það þar til það smellur á sinn stað.
3 Settu bakhliðina aftur á sinn stað.
Minniskort fjarlægt
Mikilvægt: Ekki fjarlægja minniskortið í
miðri aðgerð þegar verið er að nota það.
Ef kortið er fjarlægt í miðri aðgerð getur
það valdið skemmdum á minniskortinu og
tækinu sjálfu og gögn sem geymd eru á
kortinu geta skemmst.
Hægt er að fjarlæga eða skipta um
minniskort á meðan síminn er í notkun án
þess að slökkva á tækinu.
1 Gættu þess að ekkert forrit sé að nota
minniskortið.
2 Fjarlægðu bakhliðina.
3 Þrýstu minniskortinu aðeins inn til að
opna læsinguna og fjarlægja það.
4 Settu bakhliðina aftur á sinn stað.
Rafhlaðan hlaðin
Rafhlaðan hefur þegar verið forhlaðin en
ekki er víst að hún sé fullhlaðin.
1 Stingdu hleðslutækinu í samband við
innstungu.
2 Tengdu hleðslutækið við tækið.
3 Þegar rafhlaðan er fullhlaðin skaltu
fyrst taka hleðslutækið úr sambandi
við tækið og síðan úr innstungunni.
Ef rafhlaðan er alveg tóm geta liðið
nokkrar mínútur þar til hleðsluvísirinn
birtist á skjánum eða þar til hægt er að
hringja.
Hleðslutíminn fer eftir því hvaða
hleðslutæki er notað. Hleðsla á BL-5CT
rafhlöðu með AC-8 e a AC-15
hleðslutæki tekur um það bil 1
klukkustund og 30 mínútur þegarstillt er á
heimaskjá símans.
Loftnet
ð
Síminn tekinn í notkun7
nauðsynlegt og getur minnkað líftíma
rafhlöðu þess.
Myndin sýnir loftnetssvæðið merkt með
gráu.
Aukabúnaður
USB-snúra tengd
Opnaðu lokið á USB-tenginu og tengdu
USB-snúruna við tækið.
Höfuðtól
Viðvörun:
Hlusta skal á tónlist með hæfilegum
hljóðstyrk. Stöðug áraun af háum
hljóðstyrk getur skaðað heyrn. Ekki skal
halda tækinu nálægt eyranu þegar
hátalarinn er notaður því hljóðstyrkur
getur verið mjög mikill.
Í tækinu kunna að vera innri og ytri
loftnet. Líkt og gildir um öll önnur tæki
sem senda eða taka við útvarpsbylgjum
ætti að forðast að snerta loftnetið að
óþörfu við móttöku eða sendingu
útvarpsbylgna. Snerting við slíkt loftnet
hefur áhrif á sendigæði og getur valdið því
að tækið noti meiri orku en annars er
Viðvörun:
Þegar höfuðtólið er notað getur það skert
heyrn á umhverfishljóðum. Ekki skal nota
höfuðtólið þar sem hætta getur stafað af.
Þegar ytri tengi eða höfuðtól önnur en þau
sem Nokia samþykkir til notkunar með
þessu tæki eru tengd við Nokia hljóð- og
myndtengið skal gæta sérstaklega að
hljóðstyrknum.
Ekki skal tengja vörur sem senda frá sér
merki þar sem slíkt getur skemmt símann.
8Kveikt á símanum
Ekki skal stinga spennugjafa í samband
við Nokia AV-tengið.
Band
1 Fjarlægðu bakhliðina.
2 Festu bandið og hertu á því.
3 Settu bakhlið símans aftur á sinn stað.
Kveikt á símanum
Lærðu hvernig kveikt er á símanum og
hvernig nota skal grunnaðgerðir hans.
Um tækið
Þráðlausa tækið sem lýst er í þessari
handbók er samþykkt til notkunar í GSM
900, 1800 og 1900 MHz símkerfi.
Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar
um símkerfi.
Við notkun þessa tækis skal hlíta öllum
lögum og virða staðbundnar venjur,
einkalíf og lögmæt réttindi annarra, þ.m.t.
höfundarrétt.
Varnir vegna höfundarréttar geta hindrað
afritun, breytingu eða flutning sumra
mynda, tónlistar og annars efnis.
Tækið getur innihaldið bókamerki og
tengla fyrir vefsíður þriðju aðila. Einnig er
hægt að skoða vefsíður þriðju aðila í
tækinu. Vefsíður þriðju aðila tengjast ekki
Nokia og Nokia hvorki hvetur til né tekur
ábyrgð á þeim. Ef þú vilt heimsækja slíkar
síður skaltu beita öryggisráðstöfunum.
Viðvörun:
Við notkun allra aðgerða í þessu tæki,
annarra en vekjara, þarf að vera kveikt á
tækinu. Ekki skal kveikja á tækinu þegar
notkun þráðlausra tækja getur valdið
truflun eða hættu.
Muna skal að taka öryggisafrit eða halda
skrá yfir allar mikilvægar upplýsingar sem
geymdar eru í tækinu.
Þegar tækið er tengt öðru tæki skal lesa
notendahandbók þess vandlega, einkum
upplýsingar um öryggi. Ekki má tengja
saman ósamhæf tæki.
Muna skal að taka öryggisafrit eða halda
skrá yfir allar mikilvægar upplýsingar sem
geymdar eru í tækinu.
Aðrar mikilvægar upplýsingar um tækið er
að finna í notendahandbókinni.
Sérþjónusta
Til að hægt sé að nota tækið verða
notendur að vera áskrifendur þjónustu
fyrir þráðlausa síma. Margir af valkostum
símans flokkast undir sérþjónustu. Ekki er
hægt að nota þessa valkosti í öllum
símkerfum. Í öðrum símkerfum kann
jafnframt að vera farið fram á sérstaka
skráningu fyrir þessari þjónustu. Notkun
netþjónustu felur í sér sendingu gagna.
Fáðu upplýsingar hjá þjónustuveitu þinni
um gjöld á heimaneti þínu og þegar reiki
er notað á öðrum netum. Leiðbeiningar
ásamt upplýsingum um gjald fyrir
þjónustuna fást hjá þjónustuveitu. Sum
símkerfi kunna að hafa takmarkanir sem
hafa áhrif á hvernig hægt er að nota
sérþjónustu. Sum símkerfi styðja t.d. ekki
alla séríslenska bókstafi og þjónustu.
Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að
tilteknar aðgerðir væru hafðar óvirkar eða
ekki gerðar virkar í tækinu. Ef svo er birtast
þær ekki í valmynd tækisins. Tækið kann
Kveikt á símanum9
einnig að hafa verið sérstillt, t.d. kann
heitum, röð og táknum valmynda að hafa
verið breytt. Þjónustuveitan gefur nánari
upplýsingar.
Lykilorð
Veldu Valmynd > Stillingar > Öryggi >
Aðgangslyklar til að stilla hvernig síminn
notar aðgangslyklana og
öryggisstillingarnar.
•Öryggisnúmerið hindrar að síminn sé
notaður í leyfisleysi. Forstillta
númerið er 12345. Hægt er að breyta
númerinu og láta símann biðja um
númerið. Beðið er um
öryggisnúmerið í sumum aðgerðum,
burtséð frá stillingum, t.d. ef setja á
aftur upp upphaflegar stillingar
framleiðanda. Haltu númerinu leyndu
og á öruggum stað fjarri símanum. Ef
þú gleymir númerinu og síminn er
læstur mun síminn þarfnast viðgerðar
og því getur fylgt aukakostnaður.
Nánari upplýsingar fást hjá Nokia Care
þjónustuveri eða seljanda símans.
•PIN-númerið (UPIN) sem fylgir með
SIM-kortinu (USIM) kemur í veg fyrir að
SIM-kortið sé notað í leyfisleysi.
•PIN2-númerið (UPIN2-númerið), sem
fylgir sumum SIM-kortum (USIMkortum), er nauðsynlegt til að hafa
aðgang að tiltekinni þjónustu.
•PUK- (UPUK-) og PUK2-númer (UPUK2númer) kunna að fylgja SIM-kortinu
(USIM-kortinu). Ef þú slærð inn rangt
PIN-númer þrisvar sinnum í röð ertu
beðinn um PUK-númerið. Hafa skal
samband við þjónustuveituna ef þessi
númer fylgja ekki með símanum.
•Þegar útilokunarþjónusta er notuð til
að takmarka símtöl í og úr símanum
(sérþjónusta) er lykilorðs útilokunar
krafist.
•Til að skoða eða breyta stillingum
öryggiseiningar fyrir vafrann velurðu
Sláðu inn PIN-númerið, ef um það er beðið
(birtist sem ****).
Tími og dagsetning stillt
Sláðu inn dagsetningu, staðartíma og
tímabelti, og sumartíma þar sem þú ert
staddur, ef um það er beðið.
Þegar kveikt er á tækinu í fyrsta skipti
verður e.t.v. beðið um að hlaðið sé inn
stillingum frá símafyrirtækinu eða
þjónustuveitunni (sérþjónusta).
Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
Biðstaða
Síminn er í biðstöðu þegar hann er
tilbúinn til notkunar en engir stafir eða
tölur hafa verið slegnar inn.
Skjár
1 Sýnir sendistyrk farsímakerfisins
2 Hleðslustaða rafhlöðu
10Kveikt á símanum
3 Vísar
4 Klukka
5 Heiti farsímakerfisins eða skjátákn
símafyrirtækisins
6 Dagsetning
7 Skjár
8 Valkostur vinstri valtakka
9 Hlutverk Navi-takkans; kallast hér
eftir skruntakki
10 Valkostur hægri valtakka
Hægt er að breyta valkostum vinstri og
hægri valtakkanna.
valtakkar “, bls. 14.
Orkusparnaður
Síminn inniheldur valkostina
Rafhlöðusparnaður og Svefnstilling til
að spara rafhlöðuna þegar tækið er í
biðstöðu og ekki er ýtt á neina takka. Hægt
er að velja hvort þessir valkostir eru
Sjá „Skjár“, bls. 13.
notaðir.
Heimaskjár
Heimaskjárinn birtir lista yfir tilteknar
símaaðgerðir og upplýsingar sem hægt er
að fara í.
Veldu Valmynd > Stillingar >
Skjástillingar > Heimaskjár.
Til að gera heimaskjáinn virkan velurðu
Heimaskjár.
Til að skipuleggja og breyta
heimaskjánum velurðu Sérsníða.
Til að velja takkann sem er notaður til að
gera heimaskjáinn virkan skaltu velurðu
Takki heimaskjás.
Flettu upp eða niður á heimaskjánum,
samkvæmt stillingum hans, til að skoða
listann og veldu Velja, Skoða eða
Breyta. Örvarnar gefa til kynna að nánari
upplýsingar séu í boði. Leiðsögn er
stöðvuð með því að velja Hætta.
Sjá „ Vinstri og hægri
Flýtivísar
Þegar tækið er í biðstöðu eða heimaskjár
þess er virkur er hægt að nota eftirfarandi
flýtivísa.
Hringingar sem ekki er svarað,
móttekin símtöl og númer sem hringt
er í
Ýttu á hringitakkann. Veldu númer eða
nafn og ýttu á hringitakkann til að hringja.
Ræstu vafrann
Haltu 0 inni.
Hringt í talhólf
Haltu 1 inni.
Aðrir takkar notaðir sem flýtivísar
Sjá „Flýtivísar símtala“, bls. 18.
Vísar
Þú átt ólesin skilaboð.
Þú átt ósend skilaboð, skilaboð
sem hefur verið hætt við eða sem
hafa mistekist.
Takkar símans eru læstir.
Síminn gefur ekki frá sér hljóð ef
hringt er í hann eða hann tekur
við textaskilaboðum.
Áminning er stillt.
GPRS- eða EGPRS-tenging er virk.
/
Það er opin GPRS- eða EGPRS-
/
tenging í símanum.
GPRS- eða EGPRS-tenging er í bið.
/
Kveikt er á Bluetooth.
Ef þú notar tvær símalínur er
símalína 2 valin.
Öllum símtölum er beint í annað
númer.
Aðeins er hægt að hringja í
lokaðan notendahóp.
Sniðið sem er í notkun hefur verið
tímastillt.
Kveikt á símanum11
Notkun valmyndarinnar
Í símanum er fjöldi aðgerða sem eru
flokkaðar í valmyndir.
1Veldu Valmynd til að opna
valmyndina.
2 Flettu í gegnum valmyndina og veldu
valkost (t.d Stillingar).
3 Ef sú valmynd inniheldur fleiri
undirvalmyndir skaltu velja eina (t.d.
Símtals-stillingar).
4 Veldu stillinguna.
5Veldu Til baka til að fara aftur í fyrra
valmyndarþrep.
Veldu Hætta til að loka valmyndinni.
Útliti valmyndarinnar er breytt með því að
velja Valkostir > Aðalskjár valmynd..
Flettu til hægri og veldu úr valkostum sem
eru í boði.
Veldu Valkostir > Skipuleggja til að
endurskipuleggja valmyndina. Flettu að
efninu sem þú ætlar að flytja og veldu
Færa. Flettu að staðnum sem þú vilt færa
efnið á og veldu Í lagi. Til að vista
breytinguna velurðu Lokið > Já.
Takkalás
Til að koma í veg fyrir að ýtt sé á takkana
í ógáti velurðu Valmynd og ýtir síðan á *
innan 3,5 sekúndna til að læsa tökkum
símans (takkaborðinu).
Takkaborðið er opnað aftur með því að
velja Úr lás og ýta á * innan 1,5 sekúndna.
Sláðu inn lykilnúmerið ef beðið er um það.
Þegar takkarnir eru læstir er símtali
svarað með því að ýta á hringitakkann.
Takkarnir læsast sjálfkrafa þegar lagt er á
eða símtali er hafnað.
Frekari eiginleikar eru sjálfvirkur
takkavari og öryggistakkavari.
„Sími“, bls. 12.
Sjá
Þegar tækið eða takkaborðið er læst kann
að vera hægt að hringja í opinbera
neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.
Aðgerðir án SIM-korts
Hægt er að nota suma valkosti í símanum
án þess að SIM-kort sé í honum, eins og
valkosti skipuleggjara og leiki. Sumir
valkostir eru dekktir í valmyndunum og þá
er ekki hægt að nota.
Flugsnið
Notaðu flugstillinguna á stöðum sem eru
viðkvæmir fyrir útvarpsbylgjum, t.d. um
borð í flugvélum eða á sjúkrahúsum, til að
loka fyrir útvarpsbylgjur frá símanum. Þú
hefur samt sem áður möguleika á því að
spila leiki og opna dagbókina og
símaskrána. Þegar flugstillingin er virk,
birtist
Veldu Valmynd > Stillingar > Snið >
Flug > Virkja eða Eigið val til að virkja
eða setja upp flugstillingu.
Slökkt er á flugstillingu með því að velja
aðra stillingu.
Viðvörun:
Í flugsniðinu er ekki hægt að hringja eða
svara símtölum, þar á meðal
neyðarsímtölum, eða nota aðra valkosti
þar sem þörf er á tengingu við símkerfi.
Eigi að hringja verður fyrst að virkja
símaaðgerðina með því að skipta u m snið.
Ef tækinu hefur verið læst skal slá inn
lykilnúmerið.
Ef hringja þarf neyðarsímtal meðan tækið
er læst og flugsniðið er virkt kann einnig
að vera hægt að slá inn neyðarnúmerið
sem er forritað í tækið í reitinn fyrir
lykilnúmerið og velja 'Hringja'. Tækið
staðfestir að verið sé að gera
flugstillinguna óvirka til að hefja
neyðarsímtal.
á skjánum.
12Gerðu símann að þínum
Gerðu símann að þínum
Settu upp stillingar í símanum, hafðu
hann eftir þínu höfði og tengdu hann á
ýmsa vegu.
Grunnstillingar
Sími
Veldu Valmynd > Stillingar >
Símastillingar og úr eftirfarandi:
Stillingar tungumáls — til að velja
tungumál símans skaltu velja Tungumál
síma og tungumál. Til að velja tungumál
símans í samræmi við upplýsingar á SIMkortinu skaltu velja Tungumál síma >
Sjálfgefið val.
Staða minnis — til að skoða upplýsingar
um hversu mikið minni er í notkun
Sjálfvirkur takkavari — til að læsa
takkaborðinu sjálfvirkt eftir tiltekinn tíma
þegar síminn er í heimaskjánum og engin
aðgerð hefur verið valin.
Öryggistakkavari — til að beðið sé um
öryggisnúmerið þegar slökkt er á
takkavaranum
Raddkennsl —
„Raddskipanir“, bls. 14.
Flugkvaðning — til að vera beðin(n) um
staðfestingu á að nota flugsniðið þegar
kveikt er á símanum. Slökkt er á öllum
þráðlausum sendingum símans þegar
flugsniðið er valið.
Uppfærslur — til að fá
hugbúnaðaruppfærslur frá
þjónustuveitunni þinni (sérþjónusta).
Mismunandi getur verið hvaða valkostir
eru í boði.
með ljósvakaboðum“, bls. 36.
Val símafyrirtækis — til að velja
farsímakerfi í boði
Kveikt á hjálp.textum — til að birta
hjálpartexta símans
Opnunartónn — til að spila tón þegar þú
kveikir á símanum
Sjá
Sjá „Hugbúnaðaruppfærsla
Staðf. SIM-aðgerðir — (sérþjónusta)
„SIM-þjónusta“, bls. 16.
Öryggi
Þegar öryggisaðgerðir sem takmarka
símtöl eru í notkun (svo sem útilokun,
lokaður notendahópur og fast númeraval)
kann að vera hægt að hringja í opinbera
neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.
Veldu Valmynd > Stillingar > Öryggi og
úr eftirfarandi:
Krefjast PIN-númers eða Krefjast UPINnúmers — Til að spurt sé um PIN- eða
UPIN-númer í hvert skipti sem kveikt er á
símanum. Á sumum SIM-kortum er ekki
hægt að gera þessa beiðni óvirka.
Útilokunarþjónusta — Til að loka fyrir
símtöl í og úr símanum (sérþjónusta).
Krafist er lykilorðs útilokunar.
Fast númeraval — Til að takmarka
úthringingar í valin símanúmer ef SIMkortið styður aðgerðina. Þegar fast
númeraval er á, eru GPRS-tengingar ekki
mögulegar nema þegar textaboð eru send
um GPRS-tengingu. Í því tilviki verða
símanúmer viðtakandans og
skilaboðamiðstöðvarinnar að vera á
númeralistanum í föstu númeravali.
Lokaður not.hópur — Til að tilgreina
hóp fólks sem þú getur hringt í og sem
getur hringt í þig (sérþjónusta).
Öryggisstig — til að beðið sé um
öryggisnúmer í hvert skipti sem nýtt SIMkort er sett í símann velurðu Sími.
Aðgangslyklar — Til að breyta
öryggisnúmerinu, PIN-, UPIN- eða PIN2númerinu, eða lykilorði útilokunar.
PIN2-beiðni — til að velja hvort beðið sé
um PIN2-númerið þegar tiltekinn
valkostur símans sem er varinn með PIN2númerinu er notaður. Á sumum SIMkortum er ekki hægt að slökkva á beiðni
um númerið. Það fer eftir símanum hvort
hægt sé að velja þennan valkost. Hafa skal
Sjá
Gerðu símann að þínum13
samband við símafyrirtækið til að fá
nánari upplýsingar.
Númer í notkun — Til að velja gerð PINnúmers.
Heimildavottorð eða
Notandavottorð — Til að skoða lista yfir
heimildar- eða notandavottorð sem hefur
verið hlaðið niður í símann.
vafra“, bls. 29.
Still. öryggiseiningar — Til að skoða Um
öryggiseiningu, virkja PIN
öryggiseiningar eða breyta PIN-númeri
öryggiseiningar og PIN-númeri fyrir
undirskrift.
Stillingum símans breytt
Gefðu símanum persónulegan blæ með
hringitónum, bakgrunni og þemum.
Bættu við flýtivísum fyrir tilteknar
aðgerðir og bættu við aukahlutum.
Snið
Í símanum eru nokkrir stillingahópar sem
kallaðir eru notandasnið. Með þeim er
hægt að velja hringitóna fyrir
mismunandi tilvik og aðstæður.
Veldu Valmynd > Stillingar > Snið,
sniðið sem þú vilt og svo einhvern af
eftirtöldum valkostum:
Virkja — til að virkja valið snið
Eigið val — til að breyta stillingum
sniðsins
Tímastillt — til að stilla sniðið þannig að
það sé virkt í tiltekinn tíma. Þegar tíminn
er liðinn verður fyrra notandasniðið, sem
ekki var tímastillt, virkt.
Þemu
Þemu innihalda sérstillingar fyrir símann.
Veldu Valmynd > Stillingar > Þemu og
svo einhvern af eftirtöldum valkostum:
Velja þema — Opnaðu Þemu-möppuna
og veldu þema.
Sjá „Lykilorð“, bls. 9.
Sjá „Öryggi
Hlaða niður þema — Opnar lista yfir
tengla þar sem hægt er að hlaða niður
fleiri þemum.
Tónar
Hægt er að breyta tóni þess sniðs sem er í
notkun:
Veldu Valmynd > Stillingar >
Tónastillingar. Sömu stillingar er að
finna í valmyndinni Snið.
Ef þú velur hæsta styrk fyrir hringitóninn
tekur það hann nokkrar sekúndur að ná
þeim styrk.
Ljós
Til að virkja eða óvirkja ljósáhrif sem
tengd eru mismunandi símaaðgerðum
velurðu Valmynd > Stillingar > Ljós.
Skjár
Veldu Valmynd > Stillingar >
Skjástillingar og úr eftirfarandi:
Veggfóður — til að bæta við
bakgrunnsmynd sem birtist á
heimaskjánum
Heimaskjár — Til að virkja, skipuleggja
og sérsníða stillingar á heimaskjánum.
Leturlitur heimaskjás — Til að velja lit á
letursins á heimaskjánum.
Tákn fyrir stýrihnapp — til að tákn fyrir
skruntakka birtist í stillingu heimaskjás
Upplýs. í tilkynningu — Til að birta
símtöl og skilaboð sem ekki hefur verið
svarað.
Rafhlöðusparnaður — til að minnka
sjálfkrafa lýsingu skjásins og birta klukku
þegar síminn er ekki notaður í tiltekinn
tíma
Svefnstilling — að slökkva sjálfkrafa á
skjánum þegar síminn er ekki notaður í
tiltekinn tíma
Loading...
+ 30 hidden pages
You need points to download manuals.
1 point = 1 manual.
You can buy points or you can get point for every manual you upload.