Nokia 1208, 1200 User's Guide [is]

Nokia 1200/1208 notendahandbók
9202403
3. útgáfa IS
LEYFISYFIRLÝSING NOKIA CORPORATION lýsir því hér með yfir að vara RH-99/RH-105 er í samræmi við nauðsynleg skilyrði og önnur ákvæði tilskipunar 1999/5/EC. Afrit af Samræmisyfirlýsingunni má finna á http://www.nokia.com/ phones/declaration_of_conformity/.
0434
© 2007 Nokia. Allur réttur áskilinn.
Nokia, Nokia Connecting People, og Navi eru vörumerki eða skrásett vörumerki Nokia Corporation. Nokia tune er vörumerki Nokia Corporation. Önnur vöruheiti eða heiti fyrirtækja sem nefnd eru hér geta verið vörumerki eða vöruheiti viðkomandi eigenda.
Hvers konar afritun, yfirfærsla, dreifing eða varðveisla á hluta skjals þessa eða skjalsins alls er óheimil nema að fyrir fram fengnu skriflegu samþykki Nokia.
US Patent No 5818437 and other pending patents. T9 text input software Copyright © 1997-2007. Tegic Communications, Inc. All rights reserved.
Nokia framfylgir stefnu sem felur í sér stöðuga þróun. Nokia áskilur sér rétt til að gera breytingar og úrbætur á hvers konar vöru sem getið er í þessu skjali án undangenginnar tilkynningar.
AÐ ÞVÍ MARKI SEM VIÐEIGANDI LÖG LEYFA SKAL NOKIA, STARFSMENN ÞESS EÐA SAMSTARFSAÐILAR UNDIR ENGUM KRINGUMSTÆÐUM BERA SKAÐABÓTAÁBYRGÐ VEGNA TAPS Á GÖGNUM, TEKJUTJÓNI EÐA Á NEINU SÉRSTÖKU, TILVILJANAKENNDU, AFLEIDDU EÐA ÓBEINU TJÓNI HVERNIG SEM ÞAÐ VILL TIL.
INNTAK ÞESSA SKJALS ER AFHENT „EINS OG ÞAÐ KEMUR FYRIR“. UM FRA M ÞA Ð, ER L ÖG Á SKILJ A, E R EN GIN Á BYR GÐ V EIT T, H VOR KI BE RUM ORÐUM EÐA UNDIRSKILIN, Á NÁKVÆMNI, ÁREIÐANLEIKA EÐA INNTAKI ÞESSA SKJALS, Á ÞAÐ MEÐAL ANNARS, EN EKKI EINGÖNGU, VIÐ UM SÖLUHÆFNI EÐA ÁBYRGÐ Á AÐ VARAN HENTL TILTEKINNI NOTKUN. NOKIA ÁSKILUR SÉR RÉTT TIL AÐ ENDURSKOÐA SKJALIÐ EÐA DRAGA ÞAÐ TILBAKA HVENÆR SEM ER ÁN UNDANGENGINNAR TILKYNNINGAR.
Framboð á tilteknum vörum, forritum og þjónustu fyrir þessar vörur getur verið breytilegt eftir svæðum. Kannaðu það, ásamt tungumálavalkostum, hjá Nokia söluaðila þínum.
Útflutningstakmarkanir Tæki þetta kann að innihalda vörur, tækni eða hugbúnað sem lýtur útflutningslögum og reglugerðum í Bandaríkjunum og öðrum löndum. Breytingar á flutningsleiðum sem ekki samræmast lögum eru óheimilar.
9202403/3. útgáfa IS
Efnisyfirlit
Öryggisatriði............................................................................. 5
1. Tækið tekið í notkun........................................................... 9
SIM-kortið og rafhlaðan sett í símann.............................................................. 9
Rafhlaðan hlaðin................................................................................................... 11
Kveikt og slökkt ..................................................................................................... 12
2. Síminn................................................................................ 13
Takkar og hlutar..................................................................................................... 13
Helstu valkostir...................................................................................................... 14
Símtöl – hringt og svarað................................................................................... 15
Hátalari .................................................................................................................... 15
Textaritun................................................................................................................ 15
Skilaboð ................................................................................................................... 17
Tengiliðir.................................................................................................................. 18
Vasaljós.................................................................................................................... 18
Skipt símaskrá........................................................................................................ 19
3. Upplýsingar um rafhlöðu.................................................. 20
Hleðsla og afhleðsla............................................................................................. 20
Leiðbeiningar um sannprófun á rafhlöðum frá Nokia................................ 22
Umhirða og viðhald ............................................................... 25
Viðbótaröryggisupplýsingar .................................................. 28
4
Öryggisatriði
Lesið þessar einföldu leiðbeiningar. Sé þeim ekki fylgt getur það verið hættulegt eða varðað við lög. Lesa skal alla notendahandbókina til að fá nánari upplýsingar.
ÖRYGGI ÞEGAR KVEIKT ER Á TÆKINU
Ekki má kveikja á tækinu þar sem notkun þráðlausra síma er bönnuð eða þar sem hún kann að valda truflunum eða hættu.
UMFERÐARÖRYGGI GENGUR FYRIR
Fara skal að öllum staðbundnum lögum. Ætíð skal hafa hendur frjálsar til að stýra ökutækinu við akstur. Umferðaröryggi skal ganga fyrir í akstri.
TRUFLUN
Öll þráðlaus tæki geta verið næm fyrir truflunum, sem getur haft áhrif á virkni þeirra.
SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM Á SJÚKRASTOFNUNUM
Virða skal allar takmarkanir. Slökkva skal á tækinu nálægt lækningabúnaði.
HAFA SKAL SLÖKKT Á SÍMANUM Í FLUGVÉLUM
Virða skal allar takmarkanir. Þráðlaus tæki geta valdið truflunum í flugvélum.
5
SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM ÁÐUR EN ELDSNEYTI ER TEKIÐ
Ekki nota tækið nærri eldsneytisdælu. Notist ekki í námunda við eldsneyti eða sterk efni.
SLÖKKVA SKAL Á SÍMANUM ÞAR SEM VERIÐ ER AÐ SPRENGJA
Virða skal allar takmarkanir. Ekki nota tækið þar sem verið er að sprengja.
NOTIST AF SKYNSEMI
Notist aðeins í þeirri stöðu sem lýst er í handbókinni sem fylgdi með vörunni. Forðast skal óþarfa snertingu við loftnetssvæðið.
VIÐURKENND ÞJÓNUSTA
Aðeins viðurkennt starfsfólk má setja upp eða gera við þessa vöru.
AUKAHLUTIR OG RAFHLÖÐUR
Aðeins má nota samþykkta aukahluti og rafhlöður. Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.
VATNSHELDNI
Tækið er ekki vatnshelt. Halda skal því þurru.
ÖRYGGISAFRIT
Muna skal að taka öryggisafrit eða halda skrá yfir allar mikilvægar upplýsingar sem geymdar eru í tækinu.
6
TENGING VIÐ ÖNNUR TÆKI
Þegar tækið er tengt öðru tæki skal lesa notendahandbók með því vandlega, einkum upplýsingar um öryggi. Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.
NEYÐARSÍMTÖL
Tryggja skal að kveikt sé á símaaðgerðum tækisins og þær séu virkar. Ýta skal á endatakkann eins oft og þarf til að hreinsa skjáinn og fara aftur í biðstöðu. Sláðu inn neyðarnúmerið og ýttu á hringitakkann. Gefa skal upp staðarákvörðun. Ekki má slíta símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.
Um tækið
Þráðlausa tækið sem lýst er í handbókinni er samþykkt til notkunar í GSM 900 og GSM 1800 símkerfunum. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar um símkerfi.
Við notkun þessa tækis skal hlíta öllum lögum og virða staðbundnar venjur, einkalíf og lögmæt réttindi annarra, þ.m.t. höfundarrétt.
Viðvörun: Við notkun allra aðgerða í þessu tæki, annarra en vekjara, þarf að vera kveikt á tækinu. Ekki skal kveikja á tækinu þegar notkun þráðlausra tækja getur valdið truflun eða hættu.
7
Sérþjónusta
Til að hægt sé að nota símann verður áskrift að þjónustuveitu fyrir þráðlausa síma að vera fyrir hendi. Margir af valkostum símans flokkast undir sérþjónustu. Ekki er hæg t að no ta þes sa valkosti í öllum símkerfum. Í öðrum símkerfum kann jafnframt að vera farið fram á sérstaka skráningu fyrir þessari þjónustu. Leiðbeiningar ásamt upplýsingum um gjald fyrir þjónustuna fást hjá þjónustuveitu. Sum símkerfi kunna að hafa takmarkanir sem hafa áhrif á hvernig hægt er að nota sérþjónustu. Sum símkerfi styðja t.d. ekki alla séríslenska bókstafi og þjónustu.
Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að tilteknar aðgerðir væru hafðar óvirkar eða ekki gerðar virkar í tækinu. Ef svo er birtast þær ekki í valmynd tækisins. Tækið kann einnig að hafa verið sérstillt, t.d. kann heitum, röð og táknum valmynda að hafa verið breytt. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
Þjónusta Nokia á internetinu
Á www.nokia.com/support eða staðbundnu vefsetri Nokia er hægt að finna nýjustu útgáfuna af þessari handbók, viðbótarupplýsingar, efni til niðurhals og þjónustu sem tengist Nokia-vörunni.
8
1. Tækið tekið í notkun
SIM-kortið og rafhlaðan sett í símann
Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður en rafhlaðan er fjarlægð.
Öll SIM-kort skal geyma þar sem lítil börn ná ekki til. Upplýsingar um framboð og notkun SIM-korta má fá hjá seljanda
SIM-kortsins. Þetta getur verið þjónustuveitan, símafyrirtækið eða annar söluaðili.
Þessi sími er ætlaður til notkunar með BL-5CA rafhlöðu.
1. Renndu bakhliðinni til að fjarlægja hana (1). Taktu rafhlöðuna úr (2).
2. Lyftu SIM-kortsfestingunni varlega úr stöðu sinni (3). Settu SIM-kortið í festinguna þannig að skáhornið sé í efra hægra horninu og gylltu tengin snúi niður (4). Lokaðu SIM-kortsfestingunni og ýttu henni á sinn stað (5).
9
3. Settu rafhlöðuna í og hlífina á (6, 7).
Til athugunar: Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið og önnur tæki áður en fram- og bakhlið eru fjarlægðar. Forðast skal að snerta rafræna íhluti þegar verið er að skipta um fram- og bakhliðar. Alltaf skal geyma og nota tækið með áföstum fram- og bakhliðum.
10
Rafhlaðan hlaðin
Viðvörun: Aðeins skal nota rafhlöður, hleðslutæki og aukahluti sem Nokia hefur samþykkt til nota með þessari tilteknu tegund. Ef notaðar eru aðrar gerðir gæti öll ábyrgð og samþykki fallið niður og slíkri notkun getur fylgt hætta.
Athuga ber tegundarnúmer hleðslutækja áður en þau eru notuð með þessu tæki. Þetta tæki er ætlað til notkunar þegar það er hlaðið orku frá AC-3 hleðslutækjunum.
Seljandi símans veitir upplýsingar um fáanlega aukahluti sem samþykktir eru til notkunar. Þegar aukahlutur er tekinn úr sambandi skal taka í klóna, ekki leiðsluna.
1. Stingdu hleðslutækinu í samband í innstungu.
2. Tengdu hleðslutækið við símann. Hleðsluvísirinn byrjar að hreyfast. Vísirinn hættir að hreyfast þegar rafhlaðan er fullhlaðin.
Tip: Aftengdu hleðslutækið þegar rafhlaðan er fullhlaðin til að spara orku.
11
Loading...
+ 23 hidden pages