WHIRLPOOL FSCR 90414 Use & Care [is]

Heilsa og öryggi, notkun og meðferð
og uppsetningarleiðbeiningar
www.whirlpool.eu/register
ÍSLENSKA .................................. 3
2
IS
ÍSLENSKA
HEILSA OG ÖRYGGI, NOTKUN OG MEÐFERÐ og UPPSETNINGARLEIÐBEININGAR
TAKK FYRIR AÐ KAUPA WHIRLPOOL ÞVOTTAVÉL.
Til að fá heildarþjónustu og stuðning skal skrá þvottavélina á vefslóðinni www.whirlpool.eu/register
Efnisyfirlit
Leiðbeiningar um heilsu og öryggi
ÖRYGGISLEIÐBEININGAR ............................................................................5
VERNDUN UMHVERFISINS ...........................................................................7
SAMRÆMIS-YFIRLÝSING .............................................................................7
Notkunar- og viðhaldsleiðbeiningar
ÞVOTTAVÉLARLÝSING ...............................................................................8
RAFTÆKI ..............................................................................................8
ÞVOTTAEFNISSKAMMTARI. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 8
STJÓRNBORÐ .........................................................................................9
TÆKNIUPPLÝSINGAR UM VATNSTENGINGU ...........................................................10
LÚGA ................................................................................................11
LÉTT TROMLA (ef við á) ..............................................................................11
AUKABÚNAÐUR .....................................................................................11
NOTKUN RAFTÆKISINS .............................................................................12
FYRSTA NOTKUN .....................................................................................12
DAGLEG NOTKUN ....................................................................................13
3
PRÓGRÖMM OG VALMÖGULEIKAR ...................................................................17
AÐGERÐIR ...........................................................................................25
GAUMLJÓS ..........................................................................................27
SKÖMMTUN OG FYRSTA SINN ........................................................................28
SKÖMMTUN OG DAGLEG NOTKUN ...................................................................30
SPARNAÐARRÁÐ .....................................................................................31
HREINSUN OG VIÐHALD ............................................................................32
ÞRIF Á ÞVOTTAVÉL AÐ UTAN .........................................................................32
KANNA VATNSSLÖNGUNA ...........................................................................33
HREINSA NETSÍU Á VATNSSLÖNGU ...................................................................34
HREINSA ÞVOTTAEFNISSKAMMTARA .................................................................35
HREINSA VATNSSÍU / LOSA AFGANGSVATN ...........................................................36
FLUTNINGUR OG AFGREIÐSLA .......................................................................38
BILANALEIT .........................................................................................39
LÚGA – HVERNIG OPNA Á HANA VIÐ BILUN TIL AÐ NÁ ÚT ÞVOTTINUM .................................43
ÞJÓNUSTA ...........................................................................................44
Uppsetningarleiðbeiningar ..........................................................................45
4
Leiðbeiningar um heilsu og öryggi
ÖRYGGISLEIЭBEININGAR
IS
MIKILVÆGT AÐ LESA OG FARA EFTIR
Áður en þvottavélin er tekin í notkun skal lesa öryggisleiðbeiningarnar. Hafið leiðbeiningarnar tiltækar ef leita þarf í þær í framtíðinni. Þessi handbók og þvottavélin eru með mikilvægar öryggisaðvaranir sem þarf að lesa og fara eftir í hvívetna. Framleiðandi hafnar allri ábyrgð ef ekki er farið eftir þessum leiðbeiningum, þvottavélin er ekki rétt notuð eða stilling á stýringum er röng. Fjarlægið flutningsfestingar. Þvottavélin er búin þeim til að forðast hugsanlegar skemmdir á innvolsinu við flutninga. Afar brýnt er að fjarlægja þessar festingar áður en þvottavélin er tekin í notkun. Þegar það hefur verið gert skal loka götunum með plasttöppum. Aldrei skal þvinga lúguna til að opnast né heldur nota sem tröppu.
ÖRYGGISVIÐVARANIR
Ungabörnum (0-3 ára) og litlum börnum (3-8 ára) skal haldið í burtu frá þvottavélinni nema þau séu undir stöðugu eftirliti. Notkun þvottavélarinnar er ekki leyfð fyrir börn sem eru 8 ára og eldri eða fólk með takmarkaða líkamlega eða andlega getu eða takmarkaða reynslu og þekkingu nema undir umsjá eða það hafi fengið fyrirmæli um hvernig nota eigi þvottavélina örugglega og skilji hvaða
hættur sé um að ræða. Ekki má leyfa börnum að leika sér að þvottavélinni. Börn skulu ekki hreinsa eða framkvæma viðhald nema undir eftirliti.
LEYFILEG NOTKUN VIÐVÖRUN: Þvottavélin er
ekki ætluð til notkunar með utanáliggjandi tímastillingu eða sérstakri fjarstýringu. Þvottavélin er eingöngu til heimilisnota, ekki til iðnaðarnota. Ekki skal nota þvottavélina utandyra. Ekki skal geyma eldfim efni, s.s. úðabrúsa og hvorki skal nota bensín né önnur eldfim efni í eða nálægt þvottavélinni: Eldur getur brotist út ef óvart er kveikt á raftækinu. Þvottavélin er eingöngu ætluð til að þvo þvott sem þolir vélarþvott í magni sem eðlilegt er á heimili.
UPPSETNING
Tvær persónur þarf til að handleika og setja upp þvottavélina. Notaðu hlífðarhanska við að fjarlægja umbúðir utan af og setja upp þvottavélina. Allar raftengingar og viðhald skulu framkvæmd af löggiltum rafvirkja í samræmi við fyrirmæli framleiðanda og gildandi reglugerðir um öryggi. Gerið ekki við eða skiptið um neinn hlut í þessari þvottavél nema það sé sérstaklega tilgreint í notendahandbókinni. Börn skulu ekki koma að uppsetningu vélarinnar.
Haldið börnum frá við uppsetningu. Geyma skal umbúðaefnin (plastpoka, pólýstýren-brot o.s.frv.) þar sem börn ná ekki til fyrir og eftir uppsetningu. Þegar umbúðir hafa verið teknar utan af þvottavélinni skal ganga úr skugga um að hún hafi ekki skemmst við flutningana. Ef vandamál koma upp, hafið samband við næsta þjónustuaðila. Fyrir uppsetningu verður að taka þvottavélina úr sambandi. Við uppsetningu skal sjá til þess að þvottavélin skemmi ekki rafmagnssnúruna. Ekki gangsetja þvottavélina fyrr en uppsetningu er lokið. Eftir uppsetningu þvottavélarinnar skal bíða í fáeinar klukkustundir áður en hún er gangsett til að hún nái að aðlagast umhverfisaðstæðum í herberginu. Ekki skal setja þvottavélina upp þar sem eru slæm skilyrði svo sem: Léleg loftræsting, hitastig undir 5 °C eða yfir 35 °C. Við uppsetningu á þvottavélinni skal tryggja að fæturnir fjórir séu stöðugir á gólfinu og stilla þá eftir þörfum auk þess að kanna hvort vélin er á láréttum fleti með því að nota hallamál. Ef um er að ræða trégólf eða „fljótandi parket þvottavélina á krossviðsplötu sem er a.m.k. 60 x 60 cm breið/ löng og 3 cm þykk og festa við gólfið.
skal staðsetja
5
Notið nýjar slöngur til að tengja þvottavélinna við vatn. Ekki má endurnot gamlar slöngur, heldur farga þeim. Hreyfa skal þvottavélinga með því að halda utan um toppinn án þess að lyfta henni. Tengið vatnsslöngurnar við vatn í samræmi við gildandi reglugerðir. Vélar fyrir áfyllingu með köldu vatni: Ekki tengja við heitt vatn Vélar fyrir áfyllingu með heitu vatni: hitastig vatnsins má ekki fara upp fyrir 60 °C. Gangið úr skugga um að ekkert sé fyrir loftopi undir þvottavélinni (ef við á) t.d. teppi eða annað efni. Vatnsþrýstingur inn á vélina skal vera á bilinu 0,1-1 MPa. Ef óskað er eftir að setja þurrkara ofan á þvottavélina skal hafa áður samband við þjónustverkstæði eða söluaðila til að fá staðfestingu á hvort það er hægt. Þetta er aðeins leyfilegt ef þurrkarinn er festur ofan á þvottavélina með viðeigandi stöflunarbúnaði sem fæst hjá þjónustuverkstæði eða söluaðila.
RAFMAGNSVIÐVARANIR
Við uppsetningu skal fylgja gildandi öryggisreglugerðum. Fjölpóla rofi með 3 mm lágmarkssnertibili er nauðsynlegur og þvottavélin verður að vera jarðtengd. Ef rafsnúran er skemmd skal skipta henni út fyrir aðra eins snúru. Rafsnúruskipti skulu framkvæmd af löggiltum rafvirkja í samræmi við fyrirmæli framleiðanda og gildandi reglugerðir um öryggi. Hafið samband við viðurkennt þjónustuverkstæði. Ef klóin, sem fylgir, passar ekki í innstunguna skal kalla til rafvirkja.
Rafmagnssnúran þarf að vera nægilega löng til að tengja þvottavélina við innstungu þegar hún er komin á sinn stað í innréttingunni. Ekki má toga í rafmagnssnúruna. Ekki skal nota fjöltengi, millistykki eða framlengingarsnúrur. Ekki skal nota þvottavélina ef rafsnúran eða klóin eru skemmd, ef þvottavélin starfar ekki rétt eða ef er skemmd eða hefur fallið. Halda skal rafsnúrunni frá heitu yfirborði. Rafbúnaður þvottavélar skal ekki vera aðgengilegur fyrir notandann eftir uppsetningu hennar. Snertið ekki þvottavélina með rökum líkamshluta og notið hana ekki þegar þið eruð berfætt.
RÉTT NOTKUN
Ekki má fara yfir leyfilega hámarksþyngd. Kanna skal hámarksþyngd sem leyfð er á viðkomandi prógrammi. Lokið fyrir vatnskranann þegar vélin er ekki í notkun. Ekki má nota leysiefni (t.d. terpentínu eða benzen), þvottaefni sem innihalda leysiefni, skúripúlver, gler, alhliða hreinsiefni eða eldfima vökva; Ekki má þvo í þvottavél fataefni sem meðhöndlað hefur verið með leysiefnum eða eldfimum vökvum.
HREINSUN OG VIÐHALD
Notið aldrei gufuhreinsitæki. Nota skal hlífðarhanska við þrif og viðhald. Fyrir viðhaldsaðgerð verður að taka þvottavélina úr sambandi.
6
VERNDUN UMHVERFISINS
IS
FÖRGUN UMBÚÐA
Umbúðir eru 100% endurnýtanlegar og merktar með merkinu þarf að farga hinum ýmsu hlutum umbúðanna á ábyrgan hátt og í fullu samræmi við gildandi reglugerðir um förgun úrgangs.
. Þess vegna
FÖRGUN NOTAÐRA RAFTÆKJA
Þegar raftækinu er fargað skal gera það ónothæft með því að skera af rafmagnssnúruna og fjarlægja hurð og hillur (þar sem við á) svo börn eigi ekki auðvelt með að klifra inn í raftækið og lokast inni.
Þvottavélin er framleidd úr endurvinnanlegum endurnýtanlegum efnum. Fargið henni í samræmi við gildandi reglugerðir um förgun úrgangs. Nánari upplýsingar um meðferð, endurheimtur og endurvinnslu á heimilistækjum fást hjá viðkomandi stjórnvöldum, söfnunarþjónustu fyrir heimilisúrgang eða versluninni þar sem raftækið var keypt. Þetta raftæki er merkt í samræmi við tilskipun Evrópuráðsins 2012/19/ EC, Úrgangur frá raftækjum og rafeindabúnaði (WEEE).
eða
Með því að tryggja að þessum hlut sé fargað á réttan hátt takið þið þátt í að koma í veg fyrir neikvæð áhrif á umhverfið og heilsu manna sem annars gætu orðið vegna rangrar förgunar á hlutnum. Táknið meðfylgjandi gögnum gefur til kynna að ekki skuli meðhöndla hana eins og heimilisúrgang heldur þarf að fara með hann á viðeigandi móttökustöð til endurvinnslu á raftækjum og rafeindabúnaði.
á vélinni eða
SAMRÆMISYFIRLÝSING
Þvottavélin hefur verið hönnuð, smíðuð og flutningi þess hagað samkvæmt öryggiskröfum EB-tilskipana: LVD 2014/35/ EU, EMC 2014/30/EU og RoHS 2011/65/ EU.
7
Notkunar- og viðhaldsleiðbeiningar
ÞVOTTAVÉLAR­LÝSING
RAFTÆKI
1.
1. Plata ofan á
2.
2. Þvottaefnisskammtari
3.
3. Stjórnborð
4. Lúguhandfang
5. Lúga
6. Vatnssía/aftöppunarslanga (ef við á)
7. Sökkulhlíf (laus)
4.
8. Stillanlegir fætur (4)
5.
- bak við sökkulhlíf -
6.
7.
8.
ÞVOTTAEFNISSKAMMTARI
1. Aðalþvottahólf
• Þvottaefni f. aðalþvott
• Blettaeyðir
• Vatnsmýkingarefni
2. Forþvottahólf
• Þvottaefni f. forþvott
3. Hólf f. mýkingarefni
• Mýkingarefni
• Sterkjulögur Helltu mýkingarefni í upp að „max“ merkinu.
4. Losunarhnappur (Ýttu á til að fjarlægja þvottaefnisskammtarann og hreinsa hann)
8
Þvottaefnisleiðbeiningar fyrir ýmsar gerðir Þvotts
Hvítur slitþolinn þvottur kalt-95 °C Öflug þvottaefni Hvítur viðkvæmur þvottur kalt-40 °C Mild þvottaefni með hvíttara og/eða lýsandi efni Ljósir/pastel-litir kalt-60 °C Þvottaefni með hvíttara og/eða lýsandi efni Sterkir litir kalt-60 °C Þvottaefni fyrir litað án hvíttara/lýsandi efnis Svartir/dökkir litir kalt-60 °C Sérþvottaefni fyrir svartan/dökkan þvott
STJÓRNBORÐ
IS
13
1. 7.2.
12
MAX
60°
40°
30’
6. 8.4. 10.3. 9.5. 11.
1. Rofi
(Endurstilling/aftöppun ef ýtt er og haldið inni)
2. Prógrammhnappur
3. Litir 15
4. Oppfriskning
5. Skömmtun
6. Hnappur (Snúa til að velja/ýta til að staðfesta)
7. Avslutning i
8. Hitastig
9. Vinding
10. Valmöguleikar
(Barnalæsing ef ýtt og haldið niðri)
11. Ræsa / bið
12. Skjár
13. Prógramval
9
TÆKNIUPPLÝSINGAR
UM VATNSTENGINGU
VATNSTENGING
VATN Kalt
VATNSKRANI 3/4” skrúftengi fyrir slöngu
LÁGMARKSÞRÝSTINGUR INNTAKSVATNS 100 kPa (1 bar)
HÁMARKSÞRÝSTINGUR INNTAKSVATNS 1.000 kPa (10 bör)
10
LÚGA
IS
Togaðu í handfangið til að opna lúguna
TROMLULJÓS (ef við á)
• Við val á prógrammi: Ljósið logar við ísetningu á þvotti
• Eftir að prógrammið byrjar dofnar ljósið og slokknar þvotturinn kemur í.
Lokaðu lúguopinu, haltu við handfangið og ýttu þannig að smellur heyrist.
• Þegar lúgan er opnuð eftir að prógrammi lýkur, logar ljósið á meðan verið er að taka þvottinn út. Síðan slokknar það til að spara orku. Snertu hvaða hnapp sem er til að kveikja það aftur.
AUKABÚNAÐUR
Hafðu samband við þjónustumiðstöð til að kanna hvort eftirfarandi aukabúnaður er fáanlegur á þína gerð af þvottavél (og þurrkara)
SÖKKULL
Hægt er að setja hann undir þvottavélina til að hækka hana og auka þægindi þegar þvottur er tekinn úr og settur í.
HLEÐSLUHILLA
til að koma fyrir þurrkara ofan á þvottavélinni til að spara pláss og til að auðveldara sé að taka úr vélinni og setja í hana úr hærri stöðu.
11
NOTKUN RAFTÆKISINS
FYRSTA NOTKUN
Þegar þvottavélinni er stungið í samband kviknar sjálfkrafa á henni. Beðið verður um að velja tungumál fyrir skjáinn. Snúðu hnappnum til að velja tungumál og ýttu á hann til að staðfesta.
Eftir á er hægt að laga vatnshörku þvottavélarinnar að hörku vatnsins á staðnum. Það er ráðlegt til að ná hagstæðustu skömmtun. Snúðu hnappnum til að velja á milli mjúkt / meðalhart / hart og staðfestu með að ýta á hnappinn.
Til að hreinsa leifar óhreininda frá framleiðslu.
1. Veldu „Bómull“ prógrammið með hitastiginu
95 °C.
2.
Bættu litlu magni af þvottaefni í aðalþvot­taefnishólfið í þvottaefnisskammtaranum (hámark 1/3 af því magni sem þvottaefnisframleiðandi mælir með fyrir lítið óhreinan þvott).
3. Settu prógrammið af stað án þvotts.
Sjá kaflann „DAGLEG NOTKUN“ um hvernig eigi að velja og byrja prógramm.
12
DAGLEG NOTKUN
FLOKKUN Á ÞVOTTI
IS
1. FJARLÆGÐU ALLT ÚR VÖSUNUM
• Mynt, naglar o.s.frv. geta skemmt þvottinn sem og hluta í þvottavélinni.
• Pappírsservíettur og þess háttar tætist í smátt og þarf að fjarlægja með höndunum eftir þvott.
2. LOKA SKAL RENNILÁSUM,
HNÖPPUM OG KRÓKUM. BINDA SKAL BELTI OG BORÐA SAMAN.
• Þvoðu smáhluti (t.d. nælonsokka, belti o.s.frv.) og hluti með krókum (t.d. brjóstahöld) í þvottapoka eða koddaveri með rennilás. Alltaf skal fjarlægja hringi af gluggatjöldum eða þvo þau með hringina tryggilega bundna í bómullarpoka.
3. GERÐ EFNIS OG ÞVOTTAMERKING
Bómullarefni, blandaðir þræðir, straufrítt / gerviefni, ull, handþvottaefni.
• Litur skilja skal að litaðan og hvítan þvott. Þvoðu nýlitaðan þvott sér.
• Stærð Þvo skal saman þvott af mismunandi stærð til að bæta þvottanýtni og dreifingu þvottsins í tromlunni.
• Viðkvæmur þvottur Þvoðu viðkvæman þvott sér. Hann þarf góða meðferð.
13
NOTKUN ÞVOTTAVÉLAR
1. SETTUR ÞVOTTUR Í VÉLINA
• Opnaðu lúguna og láttu inn þvottinn. Settu eina flík í senn í tromluna án þess að troða í hana. Fylgdu fyrirmælum um hámarksþyngd í prógrammvalinu. Ef þvottavélin er yfirfyllt verður þvotturinn ekki vel þveginn og krumpaður.
2.LOKA HURÐ
• Gættu þess að ekki klemmist þvottur á milli lúgu og gúmmíþéttingar.
• Lokaðu lúguopinu þannig að smellur heyrist.
3. OPIN VATNSKRANI
• Gakktu úr skugga um að þvottavélin sé tengd við vatn.
• Opnaðu fyrir vatnið.
4.KVEIKT Á ÞVOTTAVÉLINNI
• Ýttu á On/Off hnappinn þar til prógramvalhnappurinn lýsir. Hreyfimynd birtist og hljóð heyrist. Þá er þvottavélin tilbúin til gangsetningar.
• Prógrammstillingar sem síðast voru notaðar birtast í stjórnborði.
5. VALIÐ PRÓGRAMM
LEIÐSÖGN
Hnappaljósið leiðir þig í gegnum stillingar prógrammsins á eftirfarandi hátt: Val á prógrammi / hitastigi / vinduhraða / valkostum. Þegar valið hefur verið staðfest með því að ýta á hnappinn færist hnappaljósið á næsta þrep.
Veldu prógramm Gakktu úr skugga um að prógrammhnappurinn logi. Snúðu hnappnum og veldu prógramm. Ljósið á prógramminu, sem var valið, kviknar en prógrammið og sjálfvalinn tími birtast á skjánum. Staðfestu valið með því að ýta á hnappinn. Hámarksþyngd á þvotti fyrir valið prógramm er sýnd á skjánum.
Nánari upplýsingar um prógrömmin í kafla PRÓGRÖMM, VALMÖGULEIKAR OG AÐGERÐIR og í Daglegum leiðbeiningum.
Breyttu hitastigi eftir þörfum
Ef þú vilt breyta hitastiginu sem birtist á skjánum skaltu ganga úr skugga um að hitastigsljósið kvikni. Snúðu hnappnum og veldu hitastig. Ýttu síðan á hnappinn til staðfestingar
Breyttu vinduhraða eftir þörfum
Ef þú vilt breyta vinduhraða sem sést á skjánum skaltu ganga úr skugga um að kvikni á vinduhnappnum. Snúðu hnappnum til að velja vinduhraða eða skolunarbið , ýttu síðan á hann til staðfestingar.
Ef valinn er vinduhraði „0“, endar prógrammið á að losa burt skolvatnið. Engin lokavinding fer fram. Ef valið er „Stoppa skolun“, stöðvast prógrammið eftir skolun. Þvotturinn liggur áfram blautur í síðasta skolvatninu. Sjá nánari upplýsingar í kaflanum PRÓGRÖMM, VALMÖGULEIKAR OG
AÐGERÐIR / Stoppa skolun.
14
IS
Veldu valmöguleika eftir þörfum
Ef óskað er eftir frekari valmöguleikum skal ganga úr skugga um að kvikni í valmöguleikahnappnum. Valmöguleikarnir fyrir viðkomandi prógramm eru sýndir með ljósaörvum. Snúðu hnappnum og veldu möguleika. Táknið fyrir valmöguleikann blikkar. Ýttu á hnappinn til að staðfesta. Táknið fyrir valmöguleikann logar stöðugt.
Suma möguleika / aðgerðir má velja með því að ýta beint á hnappinn:
Sjá nánar kaflana PRÓGRÖMM, VALMÖGULEIKAR OG AÐGERÐIR.
SÉRSNIÐ
Þegar kveikt hefur verið á þvottavélinni þarf ekki að fylgja LEIÐSÖGN. Það er undir þér komið í hvaða röð þú stillir prógrammið. Við stillingu skal ýta á viðkomandi hnapp, snúa honum til að velja og ýta síðan til að staðfesta. Það fer eftir prógramminu hvaða hitastig, vinduhraðar eða valmöguleikar eru í boði. Þess vegna er mælt með því að byrja stillingu með því að velja prógrammið.
6. BÆTA VIÐ ÞVOTTAEFNI
• Ef ekki er notuð skömmtunaraðgerðin, skal draga út þvottaefnisskammtarann og bæta þvottaefni í hann (og viðbótarefni/ mýkingarefni) eins og sýnt er í kaflanum ÞVOTTAEFNISSKAMMTARI. Fylgdu skömmtunarleiðbeiningum á þvottaefnispakkanum. Ef valinn var FORÞVOTTUR eða RÆSISEINKUN, skal fylgja fyrirmælum í kafla PRÓGRÖMM, VALMÖGULEIKAR OG AÐGERÐIR. Síðan skal loka þvottaefnisskammtaranum.
• Ef notuð er „Skömmtunar“aðgerðin, skal bæta við þvottaefni síðar eftir að prógrammið er byrjað. Sjá kafla SKÖMMTUN/DAGLEG NOTKUN.
Mikilvægt er að skammta rétt þvottaefni / viðbótarefni því að
• þannig fæst bestur þvottur
• þannig má komast hjá ertandi leifum af þvottaefni í þvottinum
• þannig má spara peninga með því að forðast að sóa þvottaefni
• þannig er þvottavélin varin fyrir kalkmyndun
• þannig er tekið tillit umhverfisins með því að forðast óþarfa álag á það
7. BYRJA Á PRÓGRAMMI
• Ýttu á og haltu „Start/Pause“ þar til hnappurinn lýsir stöðugt Prógrammið byrjar.
• Eftir að valin hefur verið „Skömmtun“, sýnir þvottavélin ráðlagt magn fyrir viðkomandi þvottamagn stuttu eftir að prógrammið byrjar. – Bættu þvottaefni í aðalþvottahólfið á skammtaranum eða í hylki beint í tromluna.
• Ef valin hefur verið „Skömmtun“ og líka „Forþvottur“, sýnir þvottavélin á víxl ráðlagðan þvottaefnisskammt fyrir forþvott (I) og aðalþvott (II).
Settu ráðlagt magn af þvottaefni í hólfin og ýttu á „Start/Pause“ til að halda áfram með prógrammið.
• Ekki opna aftur þvottaefnisskammtarann á meðan prógrammið er í gangi.
• Prógrammtíminn er sýndur á skjánum en hann getur verið breytilegur. Misvægi í þvotti eða löðurmyndun geta haft áhrif á lengd prógrammsins. Í hvert skipti sem eftirlifandi prógrammtími er reiknaður birtist hann á skjánum.
15
8. BREYTING Á STILLINGUM PRÓGRAMMS
SEM ER Í GANGI, EFTIR ÞÖRFUM
Það er enn hægt að breyta stillingum á meðan prógramm er í gangi. Breytingarnar taka gildi að því tilskildu að prógrammið sé ekki búið.
• Ýttu á viðeigandi hnapp (t.d. „vinduhnappinn“ til að breyta vinduhraðanum). Tölugildið blikkar í fáeinar sekúndur.
• Á meðan blikkar er hægt að stilla með því að snúa hnappnum. Ef tölugildið hættir að blikka og enn er ekki búið að breyta stillingunni skal ýta á hnappinn aftur.
• Ýttu á hnappinn til að staðfesta breytinguna. Ef þú staðfestir ekki staðfestist breytingin sjálfkrafa - breytt stilling hættir að blikka.
9. SETJA Á BIÐ PRÓGRAMM SEM ER Í GANGI
OG OPNA LÚGUNA EFTIR ÞÖRFUM
Eftir að prógramm byrjar sýnir skjárinn að enn sé hægt að gera hlé á því og bæta við flíkum.
• Ýttu og haltu „Start/Pause“ til að setja prógramm á bið
• Ef vatnsyfirborð eða hitastig er ekki of hátt kviknar gaumljósið „door open“. Hægt er að opna lúguna, t.d. til að bæta við þvotti eða fjarlægja þvott sem fór inn fyrir mistök.
• Ýttu á „Start/Pause“ aftur til að halda áfram með prógrammið
10. ENDURSTILLING Á PRÓGRAMMI, SEM ER
Í GANGI, EFTIR ÞÖRFUM
• Ýttu og haltu inni „On/Off“ hnappnum uns skjárinn sýnir að hætt er við prógrammið. Vatninu er tappað af. Prógrammi lýkur og lúgan aflæsist.
Prógrammið heldur sjálfkrafa áfram eftir að stillingum hefur verið breytt. Notaðu „Key lock“ til að hindra að skipt sé um prógramm fyrir slysni (t.d. af börnum),
VALMÖGULEIKAR OG AÐGERÐIR).
Til að breyta stillingum á meðan prógramm er í gangi er einnig hægt að
• Ýta á „Start/Pause“ til setja prógramm, sem er í gangi, á bið
• Breyta stillingum
• Ýta á „Start/Pause“ aftur til að halda áfram með prógrammið.
Ef búið er að skipta um prógramm skal ekki bæta við þvottaefni fyrir nýja prógrammið.
(sjá grein PRÓGRÖMM,
11. SLÖKKT Á ÞVOTTAVÉL EFTIR AÐ
PRÓGRAMMI LÝKUR
• Skjárinn sýnir að þvottalotunni er lokið og það kviknar á ljósinu „Door open“ – þá má taka út þvottinn.
• Ýttu á „On/Off“ til að slökkva á þvottavélinni. Ef ekki er slökkt á þvottavélinni slekkur hún sjálfkrafa á sér u.þ.b. kortéri eftir að prógrammi lýkur.
• Skildu lúguna eftir hálfopna til að þvottavélin geti þornað að innan.
16
Loading...
+ 36 hidden pages