Nokia, Nokia Connecting People, Nseries, N85, N-Gage, Navi og Visual Radio eru vörumerki eða skrásett vörumerki Nokia Corporation. Nokia tune er tónmerki
Nokia Corporation. Önnur vöruheiti eða heiti fyrirtækja sem nefnd eru hér geta verið vörumerki eða vöruheiti viðkomandi eigenda.
Hér með lýsir NOKIA CORPORATION því yfir að varan RM-333 er í samræmi við grunnkröfur og aðrar kröfur sem gerðar eru í
tilskipun 1999/5/EB. Eintak af yfirlýsingu um samkvæmni er að finna á slóðinni http://www.nokia.com/phones/
declaration_of_conformity/.
Hvers konar afritun, yfirfærsla, dreifing eða varðveisla á hluta skjals þessa eða skjalinu öllu er óheimil nema að fyrirfram fengnu skriflegu samþykki Nokia.
This software is based in part of the work of the FreeType Team. This product is covered by one or more of the following patents: United States Patent 5,155,805,
been encoded in compliance with the MPEG-4 Visual Standard by a consumer engaged in a personal and noncommercial activity and (ii) for use in connection
with MPEG-4 video provided by a licensed video provider. No license is granted or shall be implied for any other use. Additional information, including that
related to promotional, internal, and commercial uses, may be obtained from MPEG LA, LLC. See http://www.mpegla.com
Þessi vara hefur leyfið MPEG-4 Visual Patent Portfolio License (i) til einkanotkunar og án viðskiptatilgangs í tengslum við upplýsingar sem hafa verið kóðaðar
samkvæmt staðlinum MPEG-4 Visual Standard af neytanda í persónulegum tilgangi og án viðskiptatilgangs og (ii) til notkunar í tengslum við MPEG-4 hreyfimynd
sem fengin er hjá hreyfimyndaveitu með leyfi. Ekkert leyfi er veitt eða undirskilið til neinnar annarrar notkunar. Viðbótarupplýsingar, sem varða til dæmis
notkun í auglýsingum, innan fyrirtækis og í viðskiptum, má fá hjá MPEG LA, LLC. Sjá http://www.mpegla.com
Nokia framfylgir stefnu sem felur í sér stöðuga þróun. Nokia áskilur sér rétt til að gera breytingar og úrbætur á hvers konar vöru sem getið er í þessu skjali án
undangenginnar tilkynningar.
AÐ ÞVÍ MARKI SEM VIÐEIGANDI LÖG LEYFA SKAL NOKIA EÐA EINHVERJIR AF LEYFISVEITENDUM ÞESS UNDIR ENGUM KRINGUMSTÆÐUM BERA SKAÐABÓTAÁBYRGÐ VEGNA
TAPS Á GÖGNUM, TEKJUTJÓNI EÐA Á NEINU SÉRSTÖKU, TILVILJANAKENNDU, AFLEIDDU EÐA ÓBEINU TJÓNI HVERNIG SEM ÞAÐ VILL TIL.
INNTAK ÞESSA SKJALS ER AFHENT „EINS OG ÞAÐ KEMUR FYRIR“. UMFRAM ÞAÐ, ER LÖG ÁSKILJA, ER ENGIN ÁBYRGÐ VEITT, HVORKI BERUM ORÐUM NÉ UNDIRSKILIN, Á
NÁKVÆMNI, ÁREIÐANLEIKA EÐA INNTAKI ÞESSA SKJALS. Á ÞAÐ MEÐAL ANNARS, EN EKKI EINGÖNGU, VIÐ UM SÖLUHÆFNI EÐA ÁBYRGÐ Á AÐ VARAN HENTI TILTEKINNI
NOTKUN. NOKIA ÁSKILUR SÉR RÉTT TIL AÐ ENDURSKOÐA SKJALIÐ EÐA DRAGA ÞAÐ TIL BAKA HVENÆR SEM ER ÁN UNDANGENGINNAR TILKYNNINGAR.
Framboð á tilteknum vörum, forritum og þjónustu fyrir þessar vörur getur verið breytilegt eftir svæðum. Kannaðu það, ásamt tungumálavalkostum, hjá Nokia
söluaðila þínum.
Útflutningstakmarkanir
Tæki þetta kann að innihalda vörur, tækni eða hugbúnað sem lýtur útflutningslögum og reglugerðum í Bandaríkjunum og öðrum löndum. Breytingar á
flutningsleiðum sem ekki samræmast lögum eru óheimilar.
TILKYNNING FRÁ FCC/INDUSTRY CANADA
Tækið þitt getur valdið truflunum á sjónvarpi eða útvarpi (til dæmis þegar sími er notaður nálægt viðtökutæki). FCC eða Industry Canada geta krafist þess að
þú hættir að nota símann ef ekki er hægt að koma í veg fyrir slíkar truflanir. Ef þú þarft aðstoð skaltu hafa samband við þjónustuaðila í nágrenni við þig. Þetta
tæki er í samræmi við 15. hluta af reglum FCC. Notkun þess er háð eftirfarandi tveimur skilyrðum: (1) Tækið má ekki valda skaðlegum truflunum; og (2) tækið
verður að taka við öllum truflunum sem það verður fyrir, þ.m.t. truflunum sem geta valdið óæskilegri virkni þess. Sérhverjar breytingar sem Nokia hefur ekki
samþykkt berum orðum geta ógilt heimild notandans til notkunar búnaðarins.
Lesið þessar einföldu leiðbeiningar. Sé þeim ekki fylgt
getur það verið hættulegt eða varðað við lög. Lesa skal
alla notendahandbókina til að fá nánari upplýsingar.
ÖRYGGI ÞEGAR KVEIKT ER Á TÆKINU
Ekki má kveikja á tækinu þar sem notkun
þráðlausra síma er bönnuð eða þar sem hún
kann að valda truflunum eða hættu.
TRUFLUN
Öll þráðlaus tæki geta verið næm fyrir
truflunum, sem getur haft áhrif á virkni þeirra.
SLÖKKT Á TÆKINU Á AFMÖRKUÐUM SVÆÐUM
Virða skal allar takmarkanir. Slökkva skal á
tækinu um borð í flugvélum, nærri
lækningatækjum, eldsneytisstöðvum,
efnaverksmiðjum eða svæðum þar sem verið er
að sprengja.
UMFERÐARÖRYGGI GENGUR FYRIR
Fara skal að öllum staðbundnum lögum. Ætíð
skal hafa hendur frjálsar til að stýra ökutækinu
við akstur. Umferðaröryggi skal ganga fyrir í
akstri.
VIÐURKENND ÞJÓNUSTA
8
Aðeins viðurkennt starfsfólk má setja upp eða
gera við þessa vöru.
AUKAHLUTIR OG RAFHLÖÐUR
Aðeins má nota samþykkta aukahluti og
rafhlöður. Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.
VATNSHELDNI
Tækið er ekki vatnshelt. Halda skal því þurru.
Um tækið
Þráðlausa tækið sem lýst er í þessari handbók er samþykkt
til notkunar í (E)GSM 850, 900, 1800, 1900, og UMTS 900,
1900, 2100 símkerfi. Þjónustuveitan gefur nánari
upplýsingar um símkerfi.
Við notkun þessa tækis skal hlíta öllum lögum og virða
staðbundnar venjur, einkalíf og lögmæt réttindi annarra,
þ.m.t. höfundarrétt.
Varnir vegna höfundarréttar geta hindrað afritun,
breytingu eða flutning sumra mynda, tónlistar og annars
efnis.
Tækið styður nokkrar mismunandi ger ðir tenginga. Líkt og
gildir um tölvur hafa vírusar og annað skaðlegt efni áhrif
á tækið. Fara skal með gát við meðhöndlun skilaboða,
tengibeiðna, við vefskoðun og við niðurhal. Aðeins skal
setja upp og nota þjónustu og hugbúnað frá áreiðanlegum
aðilum sem bjóða upp á nægjanlega vörn gegn skaðlegum
hugbúnaði líkt og Symbian Signed hugbúnað eða
hugbúnað sem hefur staðist Java Verified™ prófun. Þú
ættir að íhuga að setja vírusvarnarhugbúnað og annan
öryggishugbúnað upp í tækinu og tölvum sem tengjast við
það.
Tækið getur innihaldið bókamerki og tengla fyrir vefsíður
þriðju aðila. Einnig er hægt að skoða vefsíður þriðju aðila
í tækinu. Vefsíður þriðju aðila tengjast ekki Nokia og Nokia
hvorki hvetur til né tekur ábyrgð á þeim. Ef þú vilt
heimsækja slíkar síður skaltu beita öryggisráðstöfunum.
Viðvörun: Við notkun allra aðgerða í þessu tæki,
annarra en vekjara, þarf að vera kveikt á tækinu. Ekki skal
kveikja á tækinu þegar notkun þráðlausra tækja getur
valdið truflun eða hættu.
Skrifstofuforritið styður helstu valkosti Microsoft Word,
PowerPoint og Excel (Microsoft Office 2000, XP og 2003).
Ekki er hægt að skoða eða breyta öllum skráargerðum.
Muna skal að taka öryggisafrit eða halda skrá yfir allar
mikilvægar upplýsingar sem geymdar eru í tækinu.
Þegar tækið er tengt öðru tæki skal lesa notendahandbók
þess vandlega, einkum upplýsingar um öryggi. Ekki má
tengja saman ósamhæf tæki.
Myndir í þessum bæklingi kunna að líta öðruvísi út en á
skjá tækisins.
Sérþjónusta
Til að hægt sé að nota símann verður áskrift að
þjónustuveitu fyrir þráðlausa síma að vera fyrir hendi.
Margir af valkostum símans flokkast undir sérþjónustu.
Ekki er hægt að nota þessa valkosti í öllum símkerfum. Í
öðrum símkerfum kann jafnframt að vera farið fram á
sérstaka skráningu fyrir þessari þjónustu. Leiðbeiningar
ásamt upplýsingum um gjald fyrir þjónustuna fást hjá
þjónustuveitu. Sum símkerfi kunna að hafa takmarkanir
sem hafa áhrif á hvernig hægt er að nota sérþjónustu. Sum
símkerfi styðja t.d. ekki alla séríslenska bókstafi og
þjónustu.
Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að tilteknar
aðgerðir væru hafðar óvirkar eða ekki gerðar virkar í
tækinu. Ef svo er birtast þær ekki í valmynd tækisins. Tækið
kann einnig að hafa verið sérstillt, t.d. kann heitum, röð
og táknum valmynda að hafa verið breytt. Þjónustuveitan
gefur nánari upplýsingar.
Þetta tæki styður WAP 2.0 samskiptareglur (HTTP og SSL)
sem keyra á TCP/IP samskiptareglum. Sumar aðgerðr
þessa tækis, líkt og MMS, netvafur og tölvupóstur, krefjast
símkerfisstuðnings við þessa tækni.
Öryggi
9
Tækið tekið í notkun
Takkar og hlutar (framhlið og
ofan á tæki)
Tækið tekið í notkun
1 — Hlust
2 — Valtakkar
10
3 — Hringitakki
4 — Valmyndartakki
5 — Takkaborð
6 — Hljóðnemi
7 — Navi™-hjól; hér eftir kallað skruntakki
8 — Hreinsitakki C
9 — Hætta-takki
10 — Margmiðlunartakki
11 — Ljósnemi
12 — Aukamyndavél
1 — Rofi
2 — Nokia AV-tengi fyrir samhæf höfuðtól, heyrnartæki
og TV-út-tengi
3 — Micro USB-tengi fyrir hleðslutæki og tengingu við
samhæfa tölvu
Takkar og hlutar (á bakhlið og
hliðum)
Skynditakkar
Skynditakkar ræsa fjölvirkni. Ef þú ert t.d. að skoða
myndir og hlusta á tónlistarspilarann í bakgrunninum,
og langar til að hoppa yfir í næsta eða fyrra lag, skaltu
ýta á spila/hlé-takkann til að spóla áfram-og-til bakatakkarnir verði virkir.
Tækið tekið í notkun
1 og 9 — Víðóma hátalarar með þrívíðu hljóði
2 — Hljóðstyrks/aðdráttartakki
3 — Lástakki til að læsa tökkum og taka lás af
4 — 2-stiga myndatökutakki fyrir sjálfvirkan fókus,
kyrrmyndatöku og upptöku hreyfimynda
5 — Aðalmyndavél fyrir myndatöku með hárri
upplausn og upptöku hreyfimynda
6 — Flass og ljós fyrir hreyfimyndatöku
7 — Gat fyrir úlnliðsband
8 — Minniskortarauf fyrir samhæft microSD-kort
1 — Senda áfram
2 — Spila/hlé
3 — Hætta
4 — Spóla til baka
5 og 8 — Aðdráttartakkar (tiltækir þegar þeir lýsa)
6 og 7 — Leikjatakkar (tiltækir í landslagsstöðu)
11
SIM-korti og rafhlöðu komið
fyrir
Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið
áður en rafhlaðan er fjarlægð.
1. Snúðu bakhlið
tækisins að þér, ýttu í
smástund á
sleppitakkann og lyftu
lokinu upp.
Tækið tekið í notkun
2. Settu SIM-kortið í
kortshölduna. Gættu
þess að skáhorn kortsins
snúi til hægri og að
snertiflötur þess snúi
niður.
3. Komdu rafhlöðunni fyrir.
4. Til að setja lokið aftur á
tækið skaltu fyrst beina
efsta lásnum að raufinni
og ýta því svo niður þar
til það smellur á sinn
stað.
Kveikt á tækinu
1. Ýttu á rofann og haltu honum inni.
2. Ef tækið biður um PIN-númer
eða læsingarnúmer skal slá
það inn og ýta á vinstri
valtakkann. Upphaflega
númerið fyrir læsingu er
12345. Ef þú gleymir
númerinu og tækið er læst
þarftu að leita til
þjónustuaðila og e.t.v. greiða
viðbótargjald. Nánari
upplýsingar færðu hjá Nokia
Care þjónustuveri eða söluaðilanum.
12
Rafhlaðan hlaðin
Venjuleg hleðsla
1. Hleðslutækinu er stungið í
samband í innstungu.
2. Snúra hleðslutækisins er tengd
við tækið. Ef rafhlaðan er alveg
tóm gæti liðið einhver tími þar til
hleðsluvísirinn byrjar að hreyfast.
3. Þegar rafhlaðan er fullhlaðin
hættir hleðsluvísirinn að hreyfast.
Fyrst skal taka hleðslutækið úr
sambandi við tækið og síðan úr
innstungunni.
Ábending: Taka skal
hleðslutækið úr sambandi við
rafmagnsinnstungu þegar það er ekki í notkun.
Hleðslutæki sem er í sambandi við innstungu
eyðir rafmagni þótt það sé ekki tengt við tækið.
USB-hleðsla
Hægt er að nota USB-hleðslu ef rafmagnsinnstunga er
ekki til staðar. Með USB-hleðslu er einnig hægt að flytja
gögn á meðan tækið er hlaðið.
1. Tengdu samhæft USB-tæki og tækið þitt með
samhæfri USB-snúru.
Það fer eftir tækinu sem notað er til hleðslu hve
langur tími líður þar til hleðslan hefst.
2. Ef kveikt er á tækinu er hægt að velja úr USB-
stillingum á skjá tækisins.
Staðsetning loftneta
Í tækinu kunna að vera innri og ytri loftnet. Líkt og
gildir um öll önnur tæki sem senda eða taka við
útvarpsbylgjum ætti að forðast að snerta loftnetið að
óþörfu við móttöku eða sendingu útvarpsbylgna.
Snerting við slíkt loftnet hefur áhrif á sendigæði og
getur valdið því að tækið noti meiri orku en annars er
nauðsynlegt og getur minnkað líftíma rafhlöðu þess.
1 — Bluetooth, þráðlaust staðarnet og GPS-móttakari
2 — Loftnet fyrir FM-sendi
3 — Farsímaloftnet
Athuga skal að loftnet fyrir Bluetooth, þráðlaust
staðarnet, GPS og FM-sendi eru á bakhlið tækisins. Ef
skipt er um lok á bakhliðinni skal gæta þess að þessi
loftnet séu á nýja lokinu, annars hætta þessar
tengingar að virka.
Tækið tekið í notkun
13
Tengstu
Tengstu
tengimöguleika:
● 2G og 3G símkerfi
● Bluetooth-tenging — til að flytja skrár og tengjast
14
samhæfum aukahlutum
“, bls. 39.
Sjá „Bluetooth-tengingar
Tækið
styður
eftirfarandi
● Nokia AV-tengi (3,5 mm) — til að tengja við samhæf
höfuðtól, heyrnartól, hljómflutningstæki eða
sjónvörp.
● USB-gagnasnúra — til að tengja við samhæf tæki,
svo sem prentara og tölvur og til að hlaða tækið
„USB“, bls. 42.
● Þráðlaust staðarnet (WLAN) — til að tengjast við
internetið og tæki sem styðja tengingar við þráðlaus
staðarnet
● GPS — til að taka við sendingum frá GPS-
gervihnöttum og reikna út staðsetningu þína
„Staðsetning (GPS)“, bls. 48.
● FM-sendir — til að hlusta á lög í tækinu um samhæfa
FM-móttakara, svo sem bílútvörp eða venjuleg
hljómflutningstæki
sendi“, bls. 65.
Sjá „Þráðlaust staðarnet“, bls. 36.
Sjá „Lag spilað með FM-
Sjá
Sjá
Hjálp
Hjálp
Leiðbeiningar fylgja Hjálpartexti í tæki
Leiðbeiningar í tækinu lýsa hvernig á að nota það.
Þegar forrit er opið skaltu velja Valkostir > Hjálp til
að skoða hjálpartexta sem tengist því sem uppi er á
skjánum. Til að opna hjálpartextann á aðalvalmyndinni
skaltu velja Verkfæri > Hjálparforrit > Hjálp og
viðkomandi forrit.
Í lok hvers hjálpartexta eru tenglar að svipuðu efni.
Hægt er að breyta leturstærðinni til að auðveldara sé
að lesa leiðbeiningarnar. Ef smellt er á undirstrikað orð
birtist stutt útskýring. Í hjálpartextanum eru
eftirfarandi vísar notaðir:
efni.
sýnir tengil að forritinu sem fjallað er um. Hægt
er að skipta á milli opins forrits og hjálpartexta þess
með því að halda inni
að forritinu (
Ábending: Til að setja Hjálpina á
aðalvalmyndina skaltu velja Verkfæri >
Hjálparforrit, auðkenna Hjálp og velja
Valkostir > Færa í möppu og aðalvalmyndina.
).
sýnir tengil að svipuðu
takkanum eða velja tengilinn
Tækið tekið í notkun
Sjá leiðarvísinn um fyrstu skrefin en þar eru
upplýsingar um takka og hluta tækisins og fyrirmæli
um hvernig stilla eigi tækið fyrir notkun auk annarra
mikilvægra upplýsinga.
Upplýsingar um
þjónustustöðvar Nokia
Skoðaðu www.nseries.com/support eða vefsíðu Nokia
í heimalandi þínu til að finna nýjustu handbækurnar,
viðbótarupplýsingar, efni til niðurhals og þjónusta sem
tengist Nokia-vörunni þinni.
Ef þú þarft að hafa samband við þjónustudeild skaltu
skoða listann yfir staðbundna Nokia Care þjónustuaðila
á www.nokia.com/customerservice.
Upplýsingar um viðhaldsþjónustu fást hjá næstu Nokia
Care þjónustuveitu á www.nokia.com/repair.
Önnur forrit
Í tækinu eru forrit frá Nokia, sem og frá öðrum
hugbúnaðarframleiðendum, sem tryggja að þú getir
nýtt þér tækið til fullnustu. Þessum forritum er lýst í
15
leiðarvísum sem finna má á þjónustusíðum Nokia á
www.nseries.com/support eða vefsvæði Nokia í þínu
landi.
Hjálp
Hugbúnaðaruppfærslur
Nokia kann að framleiða hugbúnaðaruppfærslur með
nýjum möguleikum, bættum aðgerðum og aukinni
virkni. Þú getur hugsanlega nálgast þessar uppfærslur
með forritinu Nokia Software Updater PC. Ekki er víst
að hugbúnaðaruppfærslur séu tiltækar fyrir allar vörur
eða mismunandi útgáfur af þeim. Ekki er víst að öll
símafyrirtækin hvetji til notkunar á nýjustu útgáfum
hugbúnaðarins.
Til að uppfæra hugbúnað tækisins þarftu að hafa Nokia
Software Updater forritið og samhæfa tölvu með
Microsoft Windows 2000, XP eða Vista stýrikerfi,
háhraðatengingu og samhæfa gagnasnúru til að
tengja tækið við tölvuna.
Viðvörun: Ekki er hægt að nota tækið, jafnvel
ekki til að hringja neyðarsímtöl, fyrr en uppfærslunni
er lokið og tækið hefur verið endurræst. Taka skal
öryggisafrit af gögnum áður en uppfærsla er samþykkt.
Stærð hugbúnaðaruppfærslu getur verið um 5-10 MB
ef þú notar tækið og 100 MB ef þú notar tölvu.
Niðurhal og uppsetning getur tekið allt að 20 mínútur
með Device manager og allt að 30 mínútur með Nokia
16
Software Updater.
Hægt er að fá nánari upplýsingar og hlaða niður
forritinu Nokia Software Updater á www.nokia.com/
softwareupdate eða á vefsvæði Nokia í heimalandi
þínu.
Ef símkerfið styður hugbúnaðaruppfærslur með
ljósvakaboðum kannt þú einnig að geta beðið um
uppfærslur úr tækinu.
Tækið getur ef til vill leitað að nýjum
hugbúnaðaruppfærslum með forritinu Nokia Software
Checker. Ýttu á
Uppfærsluvakt.
Ábending: Til að skoða hvaða
hugbúnaðarútgáfa er í tækinu slærðu inn
*#0000# í biðstöðu.
og veldu Verkfæri >
Uppfærsla forrita
Ýttu á og veldu Forrit > Uppfærslur.
Með Uppfærslu forrita geturðu kannað hvort einhverjar
uppfærslur fyrir forrit eru tiltækar og hlaðið þeim niður
í tækið.
Þegar þú hefur uppfært hugbúnað tækisins með
Uppfærslu forrita er ekki víst að leiðbeiningarnar í
notendahandbókinni eða hjálpartextinn eigi lengur
við.
Til að hlaða niður tiltækum uppfærslum velurðu
Valkostir > Ræsa uppfærslu.
Til að afmerkja uppfærslur flettirðu að þeim og ýtir á
skruntakkann.
Til að sjá upplýsingar um uppfærslu velurðu
Valkostir > Skoða upplýsingar.
Ef breyta á stillingunum velurðu Valkostir >
Stillingar.
Stillingar
Í tækinu eru stillingar fyrir MMS, GPRS, straumspilun og
internet yfirleitt valdar sjálfkrafa samkvæmt
upplýsingum frá þjónustuveitunni. Verið getur að
þjónustuveitan hafi þegar sett upp stillingarnar í
tækinu, en einnig er hægt að fá þær sendar eða biðja
um þær í sérstökum textaskilaboðum.
Hægt er að breyta almennum stillingum tækisins, svo
sem tungumáli, biðstöðu, skjástillingum og læsingu á
takkaborði.
Sjá „Stillingar“, bls. 150.
Lykilorð
Hafðu samband við þjónustuveituna þína ef þú gleymir
einhverjum af þessum aðgangsnúmerum.
● PIN-númer (Personal identification
number) — Númerið hindrar að SIM-kortið sé notað
í leyfisleysi. PIN-númerið (4 til 8 tölustafir) fylgir
yfirleitt með SIM-kortinu. Þegar PIN-númerið er
slegið rangt inn þrisvar sinnum er númerinu lokað
og þá þarf að slá inn PUK-númerið til að opna það.
● UPIN-númer — Númerið kann að fylgja með USIM-
kortinu. USIM-kortið er endurbætt gerð SIM-korts til
að nota í UMTS-farsímum.
● PIN2-númer — Númerið (4 til 8 tölustafir) fylgir
sumum SIM-kortum og er nauðsynlegt til að geta
notað suma valkosti tækisins.
● Læsingarkóði (einnig kallaður
öryggisnúmer) — Læsingarnúmerið hindrar að
tækið sé notað í leyfisleysi. Hægt er að búa til og
breyta númerinu og láta tækið biðja um númerið.
Haltu nýja númerinu leyndu og á öruggum stað fjarri
tækinu. Ef þú gleymir númerinu og tækið er læst
þarftu að leita til þjónustuaðila og e.t.v. greiða
viðbótargjald. Nánari upplýsingar færðu hjá Nokia
Care þjónustuveitu eða söluaðilanum.
● PUK-númer (personal unblocking key) og PUK2-
númer — Þetta númer (8 tölustafir) er nauðsynlegt
til að breyta PIN-númeri eða PIN2-númeri sem hefur
verið lokað. Ef númerin fylgja ekki með SIM-kortinu
skaltu hafa samband við símafyrirtækið sem lét þig
fá SIM-kortið.
● UPUK-númer — Þetta númer (8 tölustafir) er
nauðsynlegt til að breyta lokuðu UPIN-númeri. Ef
númerið fylgir ekki með USIM-kortinu skaltu hafa
samband við símafyrirtækið sem lét þig fá USIMkortið.
Hjálp
17
Lengri líftími rafhlöðu
Margar aðgerðir tækisins auka orkuþörf og draga úr
Hjálp
líftíma rafhlöðunnar. Til að spara rafhlöðuna skaltu
hafa eftirfarandi í huga:
● Aðgerðir sem nota Bluetooth-tækni eða leyfa slíkum
aðgerðum að keyra í bakgrunni meðan aðrar
aðgerðir eru notaðar krefjast aukinnar
rafhlöðuorku. Slökktu á Bluetooth þegar þú notar
það ekki.
● Aðgerðir sem nota þráðlaust staðarnet (WLAN) eða
leyfa slíkum aðgerðum að keyra í bakgrunni meðan
aðrar aðgerðir eru notaðar krefjast aukinnar
rafhlöðuorku. Slökkt er á þráðlausum staðarnetum
þegar þú ert ekki að reyna að tengjast eða ert ekki
með tengingu við aðgangsstað eða að leita að
tiltæku netkerfi. Til að spara rafhlöðuna getur þú
stillt Nokia-tækið þannig að það leiti sjaldan eða
ekki að tiltækum netkerfum í bakgrunni.
„Þráðlaust staðarnet“, bls. 36. Þegar Leitað að
staðarnetum er stillt á Aldrei birtist táknið fyrir
tiltæk þráðlaus staðarnet ekki í biðstöðu. Þó er hægt
að leita handvirkt að tiltækum þráðlausum
staðarnetum og tengjast þeim eins og vanalega.
● Ef þú hefur stillt Pakkagagnatenging á Ef
samband næst í tengistillingum og ekkert
pakkagagnasamband (GPRS) er til staðar reynir
18
tækið reglulega að koma á pakkagagnatengingu. Til
Sjá
að lengja starfhæfan tíma tækisins velurðu
Pakkagagnatenging > Ef með þarf.
● Kortaforritið hleður niður nýjum kortaupplýsingum
þegar þú flettir á ný svæði á kortinu en það eykur á
orkuþörfina. Hægt er að koma í veg í fyrir sjálfvirkt
niðurhal á nýjum kortum.
● Ef sendistyrkur farsímakerfisins er breytilegur a þínu
svæði verður tækið reglulega að skanna tiltæk
símkerfi. Þetta eykur orkuþörfina.
Ef símkerfið er stillt á tvöfalda stillingu í
símkerfisstillingum leitar tækið að UMTS-kerfinu. Til
að nota aðeins GSM-kerfi skaltu ýta á
skjástillingunum er hægt að stilla eftir hve langan
tíma baklýsingin slekkur á sér og stilla ljósnemann
sem greinir birtuskilyrði og aðlagar skjábirtuna í
samræmi við þau. Ýttu á
Stillingar > Almennar > Sérstillingar > Skjár
og Tímamörk ljósa eða Skjábirta.
● Keyrsla forrita í bakgrunni krefst aukinnar
rafhlöðuorku. Til að loka öllum forritum sem eru
ekki í notkun skaltu halda inni
listanum og ýta á C .
Ekki er slökkt á tónlistarspilaranum þegar ýtt er á
C. Til að loka Tónlistarspilaranum skaltu velja hann
af listanum og Valkostir > Hætta.
Sjá „Kort“, bls. 53.
og velja
og veldu Verkfæri >
, fletta að forriti á
● Til að gera orkusparnaðarstillinguna virka ýtirðu á
rofann og velur Virkja orkusparnað. Til að gera
orkusparnaðarstillinguna óvirka ýtirðu á rofann og
velur Óvirkja orkusparnað. Ekki er víst að hægt sé
að breyta stillingum í tilteknum forritum þegar
orkusparnaðarstillingin er virk.
Laust minni
Til að skoða hversu mikið minni mismunandi gögn
nota ýtirðu á
sem á að nota og Valkostir > Upplýsingar >
Minni.
Notaðu skráastjórann eða farðu í viðeigandi forrit til
að eyða óþörfum gögnum. Hægt er að fjarlægja
eftirfarandi:
● Skilaboð í möppunum í Skilaboð og móttekin
tölvupóstskeyti úr pósthólfinu.
● Vistaðar vefsíður
● Tengiliðaupplýsingar
● Minnismiðar í dagbók
● Forrit sem birtast í stjórnanda forrita og ekki er
lengur þörf fyrir
● Uppsetningarskrár (.sis eða sisx) fyrir forrit sem sett
hafa verið upp í tækinu. Færðu
uppsetningarskrárnar í samhæfa tölvu.
og velur Verkfæri > Skr.stj., minnið
● Myndir og myndskeið í Myndum. Gerðu öryggisafrit
af uppsetningarskrám á samhæfðri tölvu með Nokia
Nseries PC Suite.
Hjálp
19
Tækið
Tækið
Velkomin
Þegar kveikt er á tækinu í fyrsta skipti birtist
opnunarkveðjan.
Veldu úr eftirfarandi:
● Still.hjálp — til að velja mismunandi stillingar, t.d.
fyrir tölvupóst. Nánari upplýsingar um
stillingaforritið er að finna í bæklingum á
þjónustusíðum Nokia eða vefsetri Nokia í
viðkomandi landi.
● Símaflutn. — Til að flytja efni, svo sem tengiliði og
dagbókarfærslur úr samhæfu Nokia-tæki.
„Flutningur efnis“, bls. 20.
Ei nni g kan n að v era hægt að s koða kyn ning u um tæki ð
í forritinu Velkomin.
Til að opna forritið Velkomin síðar ýtirðu á
Verkfæri > Hjálparforrit > Velkomin/n. Einnig er
hægt að opna einstök forrit í valmyndastöðum þeirra.
20
Sjá
og velur
Nokia símaflutningur
Flutningur efnis
Hægt er að nota forritið Símaflutn. til að afrita gögn
eins og símanúmer, heimilisföng, dagbókarfærslur og
myndir úr gamla Nokia-tækinu yfir í Nokia N85 með því
að nota Bluetooth.
Það fer eftir gerð tækisins hvaða efni er hægt að flytja
úr því. Ef tækið styður samstillingu er einnig hægt að
samstilla gögn milli tækja. Nokia N85 lætur þig vita ef
hitt tækið er ekki samhæft.
Ef ekki er hægt að kveikja á hinu tækinu nema SIM-kort
sé í því geturðu sett SIM-kortið þitt í það. Þegar kveikt
er á Nokia N85 án SIM-korts er ótengda sniðið sjálfkrafa
valið og flutningur getur farið fram.
Efni flutt í fyrsta skipti
1. Til að ná í gögn af hinu tækinu í fyrsta skipti skaltu
velja Nokia N85 á þínu tæki og velja Símaflutn. í
opnunarforritinu, eða ýta á
Hjálparforrit > Símaflutn..
2. Veldu tengigerðina sem þú vilt nota til að flytja
gögn. Bæði tækin verða að styðja tengigerðina.
3. Ef þú hefur valið Bluetooth skaltu tengja tækin
saman. Veldu Áfram til að láta tækið leita að
og velja Verkfæri >
Bluetooth-tækjum. Veldu tækið sem þú vilt flytja
efni úr. Tækið biður þig að slá inn kóða í Nokia
N85 Sláðu inn kóða (1-16 tölustafi að lengd) og
veldu Í lagi. Sláðu inn sama kóða í hitt tækið og
veldu Í lagi. Þá eru tækin pöruð.
tækja“, bls. 41.
Ekki er víst að sumar eldri útgáfur Nokia-tækja
styðji Símaflutning. Þá er Símaflutningur sendur í
hitt tækið í skilaboðum. Símaflutningsforritið er
sett upp í hinu tækinu með því að opna skilaboðin
og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.
4. Í Nokia N85 tækinu velurðu efnið sem þú vilt flytja
úr hinu tækinu.
Hægt er að hætta við flutning og ljúka honum síðar.
Efni er flutt úr minni hins tækisins á samsvarandi stað
í Nokia N85. Flutningstíminn veltur á því gagnamagni
sem er afritað.
Sjá „Pörun
Efni samstillt, sótt eða sent
Eftir fyrsta flutninginn skaltu velja úr eftirfarandi til að
hefja nýjan flutning (veltur á gerð tækisins):
til að samstilla innihald milli Nokia N85 og annars
tækis, ef það tæki styður samstillingu. Samstillt er í
báðar áttir. Ef efni er eytt í öðru tækinu eyðist það í
báðum tækjunum. Ekki er hægt að endurheimta eydda
hluti með samstillingu.
til að sækja efni í úr hinu tækinu yfir í þitt Nokia
N85. Með því móti er efni af hinu tækinu flutt yfir í þitt
Nokia N85. Það kann að vera beðið um að upphaflega
efnið verði geymt eða því eytt, allt eftir því af hvaða
gerð hitt tækið er.
til að senda efni frá þínu Nokia N85 yfir í hitt tækið
Ef ekki er hægt að flytja efni með Símaflutn., sem fer
eftir gerð hins tækisins, þá er hægt að setja efnið í
Nokia mappa í C:\Nokia eða E:\Nokia í þinn Nokia
N85. Þegar þú velur möppu til flutnings eru hlutir í
samsvarandi möppu hins tækisins samstilltir og öfugt.
Notkun flýtivísa við að endurtaka flutning
Þegar gagnflutningi er lokið er hægt að vista flýtivísi í
flutningsstillingarnar á aðalskjánum til að endurtaka
sama flutning síðar.
Flýtivísi er breytt með því að fletta að honum og velja
Valkostir > Stillingar flýtivísis. Til dæmis er hægt að
búa til eða breyta heiti flýtivísis.
Flutningsskrá birtist eftir hvern flutning. Hægt er að sjá
notkunarskrá síðasta flutnings með því að fletta að
flýtivísi á aðalskjánum og velja Valkostir > Skoða
notkunarskrá.
Meðhöndlun flutningsárekstra
Ef hlut sem á að flytja hefur verið breytt í báðum
tækjum reynir þetta tæki sjálfkrafa að sameina
breytingarnar. Ef það er ekki hægt kallast það
flutningsárekstur. Veldu Skoða hvern fyrir sig, Forg.
í þennan síma eða Forg. í hinn símann til að leysa
Tækið
21
áreksturinn. Skoða má nánari upplýsingar með því að
velja Valkostir > Hjálp.
Tækið
Vísar á skjá
Verið er að nota tækið á UMTS-símkerfi
(sérþjónusta).
Tækið er notað í UMTS-símkerfi (sérþjónusta).
Mappan Innhólf inniheldur ein eða fleiri ólesin
skilaboð.
Nýr tölvupóstur hefur borist í ytra pósthólfið.
Það eru ósend skilaboð í möppunni Úthólf.
Einhverjum símtölum hefur ekki verið svarað.
Gerð hringingar er stillt á hljótt og slökkt er á
skilaboða- og tölvupósttónum.
Tímasett snið er virkt.
Takkaborðið er læst.
Vekjaraklukkan mun hringja.
Símalína 2 er í notkun (sérþjónusta).
Öll móttekin símtöl eru flutt í annað símanúmer.
Ef notaðar eru tvær símalínur sýnir númer hvaða lína
er í notkun.
Síminn er nettengdur um þráðlaust staðarnet eða
UMTS (sérþjónusta) og tilbúin til að taka á móti
22
netsímtali.
Í tækinu er samhæft microSD-kort.
Samhæft höfuðtól er tengt við tækið.
FM-sendir er virkur en sendir ekki frá sér
útvarpsbylgjur.
sér útvarpsbylgjur.
Samhæf snúra sjónvarpsúttaks er tengd við tækið.
Samhæft höfuðtól er tengt við tækið.
Gagnasímtal er virkt (sérþjónusta).
GPRS-pakkagagnatenging er virk (sérþjónusta).
sýnir að tengingin er í bið og að tengingu sé komið
á.
Pakkagagnatenging er virk í þeim hluta kerfisins
sem styður EDGE-tengingu (sérþjónusta).
tengingin er í bið og
sýnir að boðið er upp á EGPRS-tengingu í kerfinu, en
ekki er víst að tækið noti EGPRS við gagnaflutninginn.
UMTS-pakkagagnatenging er virk (sérþjónusta).
sýnir að tengingin er í bið og að tengingu sé komið
á.
Háhraðatengill fyrir niðurhal (HSDPA) er studdur og
virkur (sérþjónusta).
að tengingin sé virk. Sjá „Flýtiniðurhal“, bls. 27.
Hægt er að tengjast við þráðlaust staðarnet (eftir
að tækið hefur verið stillt á að leita að þráðlausum
staðarnetum).
Tækið er tengt við dulkóðað þráðlaust staðarnet.
FM-sendir er virkur og sendir frá
sýnir að
að tengingu sé komið á. Táknið
táknar að tengingin er í bið og
Sjá „Um þráðlaus staðarnet“, bls. 36.
Tækið er tengt við ódulkóðað þráðlaust staðarnet.
Kveikt er á Bluetooth. Sjá „Bluetooth-tengingar
“, bls. 39.
Verið er að flytja gögn um Bluetooth. Þegar
vísirinn blikkar er tækið að reyna að tengjast við annað
tæki.
USB-tenging er virk.
Samstilling fer fram.
Flýtivísar
Í stað þess að nota skruntakkann í valmyndum er hægt
að nota talnatakkana, # og* til að opna forritin á
fljótlegan hátt. Á aðalvalmyndinni ýtirðu til dæmis á
2 til að opna Skilaboð eða # til að opna forritið eða
möppuna á samsvarandi stað á valmyndinni.
Skipt er milli opinna forrita með því að halda
Keyrsla forrita í bakgrunni krefst aukinnar
rafhlöðuorku og minnkar líftíma rafhlöðunnar.
Til að skoða margmiðlunarefnið ýtirðu á
margmiðlunartakkann.
Til að koma á nettengingu (sérþjónusta) heldurðu 0
inni í biðstöðu.
Í mörgum forritum er ýtt á skruntakkann til að skoða
algengustu valkostina (
).
inni.
Skipt er um snið með því að ýta á rofann og velja nýtt
snið.
Til að skipta á milli almenna og hljóðlausa sniðsins í
biðham, skaltu halda # inni. Ef þú notar tvær símalínur
(sérþjónusta) er skipt á milli þeirra á sama hátt.
Til að hringja í talhólfið (sérþjónusta) heldurðu 1 inni
í biðstöðu.
Ýttu á hringitakkann í biðstöðu til að opna lista yfir
númer sem hringt hefur verið í nýlega.
Haltu inni hægri valtakkanum í biðstöðu til að nota
raddskipanir.
Til að fjarlægja forrit af aðalvalmyndinni velurðu það
og ýtir á C . Ekki er hægt að fjarlægja öll forrit.
Navi™-hjól
Hér eftir kallað skruntakki.
Notaðu Navi-hjólið til að fletta í valmyndum og listum
(upp, niður, vinstri eða hægri). Ýttu á skruntakkann til
að velja aðgerðina sem sýnd er á takkanum eða til að
sjá mest notuðu valkostina
Til að gera stillingar Navi-hjólsins virkar eða óvirkar
skaltu ýta á
Almennar > Navi-hjól > Navi-hjól.
Þegar Navi-hjólið er virkt er hægt að fletta í fljótheitum
í gegnum Myndir, Tónlistarspilara, Nokia-
og velja Verkfæri > Stillingar >
.
Tækið
23
kvikmyndabankann, Tengiliði og Skilaboðaskrá, eða
margmiðlunarvalmyndina. Brúnin á skruntakkanum
lýsist upp þegar eitthvert þessara forrita er í forgrunni.
Tækið
1. Renndu fingrinum varlega eftir
brún skruntakkans, réttsælis eða
rangsælis. Hreyfðu fingurinn þar til
flettingin byrjar.
2. Til að halda áfram að fletta
rennirðu fingrinum eftir brún
skruntakkans, réttsælis eða
rangsælis.
Svefnhamsvísir
Brúnin á Navi-hjólinu lýsist hægt upp
þegar tækið er í svefnham. Ljósið
breytist reglulega líkt og tækið andi.
Til að slökkva á lýsingunni ýtirðu á
Með margmiðlunarvalmyndinni er hægt að opna það
margmiðlunarefni sem er oftast notað. Valið efni
birtist í réttu forriti.
24
1. Til að opna eða loka
margmiðlunarvalmyndinni ýtirðu á
margmiðlunartakkann.
2. Til að fletta í titlunum flettirðu til vinstri eða hægri
eða rennir fingrinum eftir brún skruntakkans ef
stilling Navi hjólsins er virk.
Titlarnir eru eftirfarandi:
● Sjónvarp/mynd — Skoðaðu myndskeiðið sem
síðast var horft á, horfðu á sjónvarp eða
myndskeið sem vistuð eru í tækinu eða opnaðu
kvikmyndaveitu.
● Tónlist — Opnaðu Tónlistarspilarann og skjáinn
'Í spilun', flettu í gegnum lögin þín og
spilunarlistana, eða sæktu og sýslaðu með
netvörp.
● Myndir — Skoðaðu nýjustu myndirnar, opnaðu
skyggnusýningu með myndum eða
myndskeiðum, eða skoðaðu skrár í albúmum.
● Kort — Skoðaðu uppáhalds-staðsetningarnar
þínar í Kortum.
● Vefur — Opnaðu uppáhalds tenglana þína í
vafranum.
● Tengiliðir — Bættu þínum eigin tengiliðum við,
sendu skilaboð eða hringdu símtöl. Nýjum
tengilið er bætt við laust sæti á listanum með því
að ýta á skruntakkann og velja tengilið. Til að
senda skilaboð úr margmiðlunarvalmyndinni
velurðu tengilið og Valkostir > Senda
textaskilaboð eða Senda margmiðl.boð.
3. Titlar eru skoðaðir með því að fletta upp og niður.
Hlutir eru valdir með því að ýta á skruntakkann.
Veldu Valkostir > Raða titlum til að breyta röðinni á
yfirlitunum.
Ýtt er á margmiðlunartakkann til að fara aftur í
margmiðlunarvalmyndina úr opnu forriti.
Farsímaleit
Ýttu á og veldu Leit.
Einnig er hægt að opna Farsímaleit beint úr
biðstöðunni ef sú stilling hefur verið gerð virk.
Nota skal Farsímaleit til að fá aðgang að leitarvélum og
til að finna og tengjast staðbundinni þjónustu,
vefsíðum, myndum og flytjanlegu efni. Einnig er hægt
að leita að efni í tækinu, t.d. dagbókarfærslum,
tölvupósti eða öðrum skilaboðum.
Vefleit (sérþjónusta)
1. Á aðalskjá Leitar velurðu Leita á internetinu
2. Veldu leitarvél.
3. Sláðu inn leitartexta.
4. Ýttu á skruntakkann til að hefja leitina.
Símaleit
Sláðu inn texta í leitarreitinn á aðalskjánum til að leita
að efni í tækinu. Leitarniðurstöðurnar eru birtar á
skjánum, um leið textinn er sleginn inn.
Höfuðtól
Hægt er að tengja samhæft höfuðtól eða samhæf
heyrnartól við tækið. Þú gætir þurft að velja
snúrustillinguna.
Tækið
25
Viðvörun: Þegar
höfuðtólið er notað getur það
Tækið
skert heyrn á umhverfishljóðum.
Ekki skal nota höfuðtólið þar sem
hætta getur stafað af.
Sum höfuðtól hafa tvo hluta;
fjarstýringu og höfuðtól
(heyrnartól). Fjarstýring er með
hljóðnema og takka til að svara
og slíta símtölum, stilla
hljóðstyrk og spila tónlistarskrár
eða myndskeið. Höfuðtólið er
notað með fjarstýringu með því
að tengja fjarstýringuna við
Nokia AV tengi (3,5 mm) í tækinu
og tengja svo höfuðtólin við
fjarstýringu.
Þegar hringt er handfrjálst skal
nota höfuðtól með samhæfri
fjarstýringu eða nota hljóðnema
tækisins.
Til að stilla hljóðstyrkinn meðan
símtal fer fram skal nota
hljóðstyrkstakkann á tækinu eða á höfuðtólinu. Sum
höfuðtól eru með margmiðlunarhljóðstillingu sem
aðeins er hægt að nota til að stilla hljóðstyrk við spilun
tónlistar eða hreyfimynda.
26
Einnig er hægt að tengja samhæfa sjónvarpssnúru við
Nokia hljóð- og myndtengið (3,5 mm) á tækinu.
Ekki skal tengja vörur sem senda frá sér merki þar sem
slíkt getur skemmt símann. Ekki skal stinga
spennugjafa í samband við Nokia AV-tengið.
Þegar ytri tengi eða höfuðtól önnur en þau sem Nokia
samþykkir til notkunar með þessu tæki eru tengd við
Nokia hljóð- og myndtengið skal gæta sérstaklega að
hljóðstyrknum.
Stillingar hljóðstyrks og
hátalara
Viðvörun: Hlusta skal á tónlist með hæfilegum
hljóðstyrk. Stöðug áraun af háum hljóðstyrk getur
skaðað heyrn. Ekki skal halda tækinu nálægt eyranu
þegar hátalarinn er notaður því hljóðstyrkur getur
verið mjög mikill.
Þegar símtal er í gangi eða verið er að hlusta á eitthvað
er hljóðstyrkurinn stilltur með því að ýta á
hljóðstyrkstakkann.
Innbyggði hátalarinn gerir
þér kleift að tala í tækið og
hlusta á það sem
viðmælandinn segir úr lítilli fjarlægð án þess að þurfa
að halda á tækinu við eyrað.
Þegar verið er að tala í símann er kveikt á hátalaranum
með því að ýta á Hátalari.
Ýttu á Símtól til að slökkva á hátalaranum.
Snið án tengingar
Ræstu ótengda sniðið með því að ýta í stutta stund á
rofann og velja Ótengdur. Eða ýttu á
Verkfæri > Snið > Ótengdur.
Með sniðinu án tengingar er hægt að nota símann án
þess að tengjast við símkerfið. Þegar ótengda sniðið er
notað er slökkt á tengingunni við þráðlausa símkerfið
og það gefið til kynna með
sendistyrksvísisins. Lokað er á allar þráðlausar
sendingar til og frá tækinu. Ef þú reynir að senda
skilaboð er þeim komið fyrir í úthólfinu þaðan sem þau
eru send síðar.
Þegar ótengda sniðið er valið er hægt að nota tækið án
SIM-korts.
Mikilvægt: Í ótengdu sniði er ekki hægt að
hringja, svara símtölum eða nota aðra valkosti þar sem
þörf er á tengingu við farsímakerfi. Áfram kann að vera
hægt að hringja í það neyðarnúmer sem er forritað í
tækið. Eigi að hringja verður fyrst að virkja
símaaðgerðina með því að skipta um snið. Ef tækinu
hefur verið læst skal slá inn lykilnúmerið.
í svæði
og veldu
Þegar þú hefur valið ótengda sniðið geturðu áfram
notað þráðlaust staðarnet, t.d. til þess að lesa
tölvupóst eða vafra á internetinu. Mundu að fara að
öllum viðeigandi öryggisreglum þegar þú kemur á og
notar þráðlausa staðarnetstengingu. Einnig er hægt að
nota Bluetooth-tengingu þegar ótengda sniðið hefur
verið valið.
Slökkt er á ótengda sniðinu með því að ýta í stutta
stund á rofann og velja annað snið. Þá verða þráðlaus
samskipti aftur möguleg (ef nægur sendistyrkur er fyrir
hendi).
Flýtiniðurhal
HSDPA (High-speed downlink packet access, en einnig
kallað 3.5G, táknað með
símkerfum þar sem boðið er upp á mjög hratt niðurhal.
Þegar HSDPA-stuðningur er virkur í tækinu og tækið er
tengt UMTS-símkerfi sem styður HSDPA er hægt að
hlaða gögnum, svo sem tölvupósti, og vefsíðum hraðar
niður en ella. Virk HSDPA-tenging er táknuð með
„Vísar á skjá“, bls. 22.
Hægt er að kveikja og slökkva á stuðningi fyrir HSDPA
í stillingum tækisins.
gagna“, bls. 161.
Þjónustuveitan gefur upplýsingar um gagnaþjónustu
og áskrift að henni.
) er sérþjónusta í UMTS-
. Sjá
Sjá „Stillingar pakka-
Tækið
27
HSDPA hefur aðeins áhrif á hraða við niðurhal en ekki
á gagnasendingar til símkerfisins (svo sem sendingar
skilaboða og tölvupósts).
Tækið
28
Netvafri
Með vafranum er hægt að skoða HTML-vefsíður
(hypertext markup language) á netinu í upprunalegri
gerð. Einnig er hægt að vafra um vefsíður sem eru
sérstaklega gerðar fyrir farsíma og nota XHTML
(extensible hypertext markup language) eða WML
(wireless markup language).
Til að vafra verður þú hafa stilltan netaðgangsstað í
símanum.
Vafrað á vefnum
Ýttu á og veldu Vefur.
Flýtivísir: Til að ræsa vafrann heldurðu inni 0
takkanum í biðstöðu.
Mikilvægt: Aðeins skal nota þjónustu sem er
treyst og sem veitir nægilegt öryggi og vörn gegn
skaðlegum hugbúnaði.
Mikilvægt: Aðeins skal setja upp og nota forrit
og annan hugbúnað frá traustum aðilum, t.d. forrit
með Symbian Signed eða forrit sem hafa verið prófuð
með Java Verified™.
Til að skoða vefsíðu skaltu velja bókamerki á
bókamerkjaskjánum eða slá veffang hennar inn í
reitinn (
Sumar vefsíður geta innihalda efni, t.d. myndir og
hljóð, og til að skoða þær þarf mikið minni. Ef minni
tækisins er á þrotum þegar verið er að hlaða slíka síðu
birtast ekki myndirnar á síðunni.
Til að skoða vefsíður án mynda, og spara þannig minni,
skaltu velja Valkostir > Stillingar > Síða > Hlaða
efni > Aðeins texti.
Til að slá inn nýtt veffang sem þú vilt heimsækja skaltu
velja Valkostir > Opna vefsíðu.
Til að sækja nýjasta efni síðunnar til miðlarans skaltu
velja Valkostir > Valm. í leiðarkerfi > Hlaða
aftur.
Til að vista veffang síðunnar sem verið er að skoða sem
bókarmerki skaltu velja Valkostir > Vista í
bókamerkjum.
Til að sjá lista yfir síður sem skoðaðar hafa verið í
þessari törn skaltu velja Til baka (tiltækt ef Listi yfir
fyrri síður er virkt í vafrastillingunum og núverandi
) og ýta á skruntakkann.
Ábending: Til að opna vefsíðu sem er vistuð sem
bókamerki á bókamerkjaskjánum, á meðan þú
ert að vafra, skaltu ýta á 1 og velja bókamerki.
Netvafri
29
síða er ekki sú fyrsta sem hefur verið heimsótt). Veldu
síðuna sem þú vilt heimsækja.
Til að vista síðu á meðan þú vafrar skaltu velja
Valkostir > Verkfæri > Vista síðu.
Netvafri
Hægt er að vista síður og skoða þær síðar án tengingar.
Einnig má flokka síðurnar í möppur. Til að fá aðgang af
síðunum sem hafa verið vistaðar skaltu velja
Valkostir > Bókamerki > Vistaðar síður.
Til að opna undirlista skipana eða aðgerða vegna
þeirrar síðu sem er opin skaltu velja Valkostir >
Þjónustuvalkostir (ef vefsíðan styður það).
Til að leyfa eða hindra sjálfvirka opnun margra glugga
skaltu velja Valkostir > Gluggi > Loka f.
sprettiglugga eða Leyfa sprettiglugga.
Flýtivísar þegar vafrað er
● Ýttu á 1 til að opna bókamerkin þín.
● Ýttu á 2 til að leita að lykilorðum á síðunni.
● Ýttu á 3 til að opna fyrri síðuna sem var skoðuð.
● Ýttu á 5 til að sjá hvaða gluggar eru opnir.
● Ýttu á 8 til að sjá yfirlit síðu sem er opin. Ýttu aftur
á 8 til að auka aðdrátt og skoða tiltekinn hluta
síðunnar.
● Ýttu á 9 til að slá inn nýtt veffang.
● Ýttu á 0 til að opna heimasíðuna (hafi hún verið
30
valin).
● Ýttu á * og # til að auka eða minnka aðdrátt á
síðunni.
Ábending: Til að fara aftur í biðstöðu en hafa
vafrann opinn í bakgrunninum skaltu ýta tvisvar
sinnum á
baka í vafrann heldurðu
vafrann.
eða á hætta takkann. Til að fara til
inni og velur
Tækjastika í vafra
Tækjastika vafrans hjálpar þér að velja algengar
skipanir í vafranum.
Til að opna tækjastikuna skaltu halda inni
skruntakkanum á auðum stað á vefsíðu. Til að færast
til á tímalínunum er fletta til hægri eða vinstri. Atriði
er valið með því að ýta á skruntakkann.
Hægt er að velja úr eftirfarandi atriðum á
tækjastikunni:
● Vinsælir tenglar — Til að skoða lista yfir vefföng
sem oft eru notuð.
● Yfirlit síðu — Til að sjá yfirlit yfir opna síðu.
● Leit — Til að finna leitarorð á opinni síðu.
● Hlaða aftur — Til að uppfæra síðuna.
● Áskrift að vefstraumum (ef það er í boði). — Til að
skoða lista yfir vefstrauma á opinni vefsíðu og gerast
áskrifandi að vefstraumum.
Loading...
+ 152 hidden pages
You need points to download manuals.
1 point = 1 manual.
You can buy points or you can get point for every manual you upload.