Nokia N8-00 User's Guide [is]

Notandahandbók Nokia N8–00
Útgáfa 2.1
2 Efnisyfirlit

Efnisyfirlit

Öryggi 5
Tækið tekið í notkun 6
Takkar og hlutar 6 Breyta hljóðstyrk símtals, lags eða myndskeiðs 8 Tökkum og skjá læst eða þeir opnaðir 8 SIM-kortið sett í eða fjarlægt 9 Minniskorti komið fyrir eða það fjarlægt 10 Hleð 12 Staðsetning loftneta 14 Úlnliðsbandið fest 15 Höfuðtól 15 Kveikt og slökkt á tækinu 15 Taktu tækið í notkun 16 Tengiliðir eða myndir afrituð frá eldra tæki 16 Uppsetning tækis 17 Notkun notendahandbókarinnar í tækinu 17
Settu upp Nokia Ovi Suite á tölvunni þinni 18
Grunnnotkun 19
Aðgerðir á snertiskjá 19 Gagnvirkar heimaskjáseiningar 22 Skipt milli opinna forrita 23 Textaritun 23 Vísar á skjá 26 Tilkynningaljósið stillt svo það blikki þegar þú færð skilaboð eða hefur ekki svarað símtali 27 Leit í tækinu og á internetinu 27 Notkun tækisins án tengingar 28 Lengri líftími rafhlöðu 28
Sérstillingar 30
Snið 30 Skiptu um þema 31 Heimaskjár 32 Skipulag forritanna 34 Hlaða niður leik, forriti eða öðru 34
Sími 35
Hringt í símanúmer 35 Leit að tengilið 35 Hringt í tengilið 36 Myndsímtali komið á 36 Símafundi komið á 38 Notkun hraðvals 38 Notaðu röddina til að hringja í tengilið 39 Hringja símtöl um internetið 40 Hringt í síðasta númerið sem var valið 40 Símtal hljóðritað 41 Hljóð af með snúningi 41 Skoða ósvöruð símtöl 41 Hringdu í talhólfið 42 Innhringingar fluttar í talhólf eða annað símanúmer 42 Lokað fyrir móttekin eða hringd símtöl 43 Símtöl aðeins leyfð í tiltekin númer 43 Samnýting hreyfimynda 44
Tengiliðir 45
Um Tengiliði 45 Vista símanúmer og tölvupóstföng 46 Vista númer frá mótteknu símtali eða skilaboðum 46 Hafðu fljótt samband við fólkið sem er þér mikilvægast 46 Hringitónn valinn fyrir tiltekinn tengilið 47 Sendu upplýsingar um tengiliði þína með Kortinu mínu 47 Tengiliðahópur búinn til 47 Senda hópi fólks skilaboð 48
Efnisyfirlit 3
Afrita tengiliði af SIM-kortinu yfir í tæki 48 Öryggisafrit tekið af tengiliðunum yfir á Ovi by Nokia 48
Skilaboð 49
Um skilaboð 49 Skilaboð send 49 Senda hljóðskilaboð 50 Tekið á móti skilaboðum 50 Samtöl skoðuð 51 Hlustað á textaskilaboð 51 Breyta tungumáli 52
Póstur 52
Um póstforritið 52 Opnaðu ókeypis pósthólf frá Ovi by Nokia 53 Pósthólf sett upp 53 Póstur lesinn 53 Senda tölvupóst 54 Fundarboði svarað 55 Póstur opnaður á heimaskjánum 55
Internet 55
Um vefinn 55 Vafrað á vefnum 55 Bókamerki bætt við 56 Áskrift að vefstraumum 56 Nálægir viðburðir uppgötvaðir 57
Netsamfélög 57
Um Samfélag 57 Skoða stöðuuppfærslur vina á einum skjá 58 Birtu stöðu þína á netsamfélögum 58 Tengja nettengda vini við tengiliðaupplýsingar þeirra 58 Sjá stöðuuppfærslur vina á heimaskjánum 59 Hlaða upp mynd eða myndskeiði á þjónustu 59
Sýndu staðsetningu þína í stöðuuppfærslunni 59 Hafðu samband við vin gegnum netsamfélag 60 Atburði bætt við dagbók tækisins 60
Myndavél 61
Um myndavél 61 Myndataka 61 Vista staðsetningargögn í myndum og myndskeiðum 62 Nærmyndataka 62 Myndataka í myrkri 62 Taka mynd af hlut á hreyfingu 63 Ábendingar um myndir og myndskeið 63 Upptaka myndskeiða 64 Senda mynd eða myndskeið 64
Myndir þínar og myndskeið 65
Um Myndir 65 Skoða myndir og myndskeið 65 Breyta myndum sem þú hefur tekið 66 Klippiforrit 66 Útprentun á mynd sem þú hefur tekið 67 Myndir og myndskeið skoðuð í sjónvarpi 68
Myndskeið og sjónvarp 69
Myndskeið 69 Horft á vefsjónvarp 70
Tónlist og hljóð 71
Tónlistarspilari 71 Um Ovi-tónlist 73 Verndað efni 74 Hljóð tekið upp 74 Tónlist spiluð gegnum útvarp 74 FM-útvarp 75
Kort 77
Leiðsögn til áfangastaðar 77 Staðsetningin mín 78
4 Efnisyfirlit
Leit 82 Uppáhaldsefni 83 Innritun 85 Akstur og ganga 86 Segðu álit þitt á kortaforritinu 91
Tímastjórnun 91
Klukka 91 Dagbók 93
Skrifstofa 97
Quickoffice 97 Lesa PDF-skjöl 97 Útreikningur 98 Ritun minnismiða 98 Orð þýdd milli tungumála 98 Opna eða búa til zip-skrár 99 Fáðu aðgang að innra neti fyrirtækisins 99
Tengimöguleikar 99
Nettengingar 99 Þráðlaust LAN 100 Bluetooth 102 USB-gagnasnúra 104 VPN-tengingar 106 Loka tengingu við símkerfi 106 Skrár vistaðar á ytra drifi 107
Stjórnun tækis 108
Haltu hugbúnaði tækisins og forritum uppfærðum 108 Unnið með skrár 109 Auka laust minni vegna meira efnis 111 Unnið með forrit 111 Samstilling efnis 112 Tengiliðir eða myndir afrituð milli tækja 114 Tækið varið 114
Lykilorð 116
Úrræðaleit 116
Ef tækið hættir að virka 116 Upphaflegar stillingar 117 Hvað á að gera þegar minnið er fullt? 117 Skilaboðavísir blikkar 117 Tengiliður birtist tvisvar á tengiliðalistanum 117 Ólæsileg tákn á meðan vafrað er 117 Undirbúningur tækis fyrir endurvinnslu 118
Verndum umhverfið 118
Orkusparnaður 118 Endurvinnsla 118
Vöru- og öryggisupplýsingar 119
Atriðaskrá 126
Meiri hjálp 115
Þjónusta 115
Öryggi 5

Öryggi

Lesið þessar einföldu leiðbeiningar. Sé þeim ekki fylgt getur það verið hættulegt eða varðað við lög. Lesa skal alla notendahandbókina til að fá nánari upplýsingar.

SLÖKKT Á TÆKINU Á AFMÖRKUÐUM SVÆÐUM

Slökkva skal á tækinu þar sem notkun farsíma er bönnuð eða þar sem hún kann að valda truflunum eða hættu, til dæmis um borð í flugvélum, nærri lækningatækjum, eldsneytisstöðvum, efnaverksmiðjum eða svæðum þar sem verið er að sprengja.

UMFERÐARÖRYGGI GENGUR FYRIR

Fara skal að öllum staðbundnum lögum. Ætíð skal hafa hendur frjálsar til að stýra ökutækinu við akstur. Umferðaröryggi skal ganga fyrir í akstri.

TRUFLUN

Öll þráðlaus tæki geta verið næm fyrir truflunum, sem getur haft áhrif á virkni þeirra.

VIÐURKENND ÞJÓNUSTA

Aðeins viðurkennt starfsfólk má setja upp eða gera við þessa vöru.

HALDA SKAL TÆKINU ÞURRU

Tækið er ekki vatnshelt. Halda skal því þurru.

GLERHLUTAR

Framhlið tækisins er gerð úr gleri. Glerið getur brotnað ef tækið fellur niður á harðan flöt eða verður fyrir miklu höggi. Ef glerið brotnar má ekki koma við glerhluta tækisins eða reyna að fjarlægja brotna glerið af tækinu. Taka skal tækið úr notkun þar til fagmaður hefur skipt um glerið.

VERNDAÐU HEYRN ÞÍNA

Hlusta skal á höfuðtól á hóflegum hljóðstyrk og ekki halda tækinu nærri eyranu þegar kveikt er á hátölurunum.
6 Tækið tekið í notkun

Tækið tekið í notkun

Takkar og hlutar Efst
1 Nokia AV tengi (3,5 mm) 2 HDMI™-tengi 3 Rofi

Framhlið

1 Hlust 2 Valmyndartakki 3 Hljóðnemi 4 Linsa á aukamyndavél

Til baka

1 Myndavélarflass 2 Myndavélarlinsa 3 Hátalari 4 Hljóðnemi

Hliðar

Tækið tekið í notkun 7
1 Minniskortsrauf 2 Rauf fyrir SIM-kort 3 Stöðuljós hleðslutækis 4 Micro-USB-tengi 5 Hljóðstyrks/aðdráttartakki 6 Takkalás 7 Myndavélartakki
8 Tækið tekið í notkun

Neðst

1 Hleðslutengi 2 Festing fyrir úlnliðsband

Snertiskjár

Til að stjórna tækinu skaltu snerta skjáinn létt með fingurgómunum. Skjárinn bregst ekki við ef þú notar neglurnar.
Ef þér er kalt á fingurgómunum getur verið að skjárinn nemi ekki snertinguna.
Mikilvægt: Forðast skal að rispa snertiskjáinn. Aldrei skal nota penna, blýant eða
aðra oddhvassa hluti á snertiskjánum.

Breyta hljóðstyrk símtals, lags eða myndskeiðs

Notaðu hljóðstyrkstakkana.
Þú getur breytt hljóðstyrk á meðan á símtali stendur eða þegar forrit er virkt.
Innbyggði hátalarinn gerir þér kleift að tala í tækið og hlusta á það sem viðmælandinn segir úr lítilli fjarlægð án þess að þurfa að halda tækinu við eyrað.
Kveikt eða slökkt á hátalara í símtali
Veldu
eða .

Tökkum og skjá læst eða þeir opnaðir

Læstu tökkum og skjá tækisins til að forðast að hringja óvart símtal þegar tækið er í vasa þínum eða poka.
Renndu til takkalásnum.
Tækið tekið í notkun 9
Ábending: Ef takkalásinn er ekkki innan seilingar, ýttu þá á valmyndatakkann og veldu
Úr lás til að opna tækið.
Takkar og skjár stilltir á sjálfvirka læsingu
1Veldu Valmynd > Stillingar og Sími > Skjár > Tími skjás/takkaláss. 2 Tilgreindu tímann sem á að líða þar til takkarnir og skjárinn læsast sjálfkrafa.

SIM-kortið sett í eða fjarlægt

Ekki skal festa neina límmiða við SIM-kortið.
Mikilvægt: Ekki skal nota mini-UICC SIM-kort, einnig þekkt sem micro-SIM-kort,
micro-SIM-kort með millistykki eða SIM-kort með mini-UICC straumloka (sjá mynd) í þessu tæki. Micro SIM-kort er minna en venjulegt SIM-kort. Þetta tæki styður ekki notkun micro SIM-korta og ef ósamhæf SIM-kort eru notuð getur það valdið skemmdum á minniskortinu eða tækinu sjálfu og gögn sem geymd eru á kortinu geta skemmst.
1 Hlíf yfir minniskortsrauf 2 Hlíf yfir SIM-kortsrauf
SIM-korti komið fyrir
1 Slökktu á tækinu. 2 Opnaðu minniskortsraufina með nöglinni.
10 Tækið tekið í notkun
3 Opnaðu SIM-kortsraufina.
4 Settu inn SIM-kortið. Ýttu kortinu inn þangað til þú heyrir smell.
Gakktu úr skugga um að snertiflötur kortsins snúi niður.
SIM-kort fjarlægt
1 Slökktu á tækinu. 2 Opnaðu minniskortsraufina með nöglinni. 3 Opnaðu SIM-kortsraufina og ýttu kortinu inn þangað til þú heyrir smell. 4 Dragðu kortið út.

Minniskorti komið fyrir eða það fjarlægt

Minniskort eru seld sér.
Tækið tekið í notkun 11
Ekki skal festa neina límmiða við minniskortið.
Aðeins skal nota samhæf minniskort sem Nokia samþykkir til notkunar með þessu tæki. Ósamhæf minniskort gætu skaðað kortið og tækið og skemmt gögn sem vistuð eru á kortinu.
Þú getur tekið upp myndskeið í háskerpu. Ef myndskeið eru tekin upp á minniskort er best að nota hraðvirkt hágæða microSD-kort frá viðurkenndum framleiðanda. Mælt er með að notuð séu microSD-minniskort í flokki 4 (32Mbit/s (4MB/s)) eða hærri flokki.
Minniskorti komið fyrir
1 Opnaðu minniskortsraufina með nöglinni.
2 Komdu minniskortinu fyrir. Gakktu úr skugga um að snertiflötur minniskortsins snúi
niður. Ýttu kortinu inn þar til það smellur á sinn stað.
12 Tækið tekið í notkun
Minniskort fjarlægt
1 Ef kveikt er á tækinu skaltu ýta á rofann og velja [heiti minniskorts] fjarlægt. 2 Opnaðu minniskortsraufina með nöglinni. 3 Ýttu kortinu inn þar til það losnar. 4 Dragðu kortið út.
Hleð Um rafhlöðuna
Tækið þitt er með innbyggða, fasta, endurhlaðanlega rafhlöðu. Notaðu aðeins hleðslutæki sem Nokia hefur samþykkt til notkunar með þessu tæki. Einnig er hægt að nota samhæfa USB-gagnasnúru til að hlaða tækið.
Ekki skal reyna að fjarlægja rafhlöðuna úr tækinu. Fara skal með tækið til næsta viðurkennda þjónustuaðila til að skipta um rafhlöðuna.
Samþykktir söluaðilar kunna einnig að bjóða að skipta um rafhlöðu.
Mikilvægt: Aðeins á að fela fagmönnum eða viðurkenndum þjónustuaðila að
skipta um rafhlöðu. Ábyrgð getur fallið úr gildi ef skipt er um rafhlöðu af öðrum en viðurkenndum aðilum.
Þegar tækið er orðið afllítið fer það á orkusparnaðarstillingu. Ekki er víst að hægt sé að breyta stillingum tiltekinna forrita. Til að slökkva á orkusparnaðarstillingu skaltu ýta á rofann

Rafhlaðan hlaðin

Rafhlaðan hefur verið hlaðin að hluta í verksmiðjunni en e.t.v. þarftu að endurhlaða hana áður en þú getur kveikt á tækinu í fyrsta sinn.
og velja Óvirkja orkusparnað.
Tækið tekið í notkun 13
Ef tækið sýnir að lítil hleðsla sé eftir skaltu gera eftirfarandi.
1
2
Þú þarft ekki að hlaða rafhlöðuna í tiltekinn tíma og þú getur notað tækið á meðan það er í hleðslu.
Ef rafhlaðan er alveg tóm geta liðið nokkrar mínútur þar til hleðsluvísirinn birtist á skjánum eða þar til hægt er að hringja.
Ef rafhlaðan hefur ekki verið notuð í langan tíma kann að vera nauðsynlegt að tengja hleðslutækið, aftengja það síðan og tengja það aftur til að hægt sé að hefja hleðsluna.
Ábending: Þú getur líka notað samhæft USB-hleðslutæki til að hlaða rafhlöðuna.

Rafhlaðan hlaðin gegnum USB

Er lítil hleðsla á rafhlöðunni en þú ekki með hleðslutækið með þér? Hægt er að nota samhæfa USB-snúru til að tengjast samhæfu tæki, svo sem tölvu.
14 Tækið tekið í notkun
Farðu varlega þegar þú tengir eða aftengir snúru hleðslutækis til að brjóta ekki hleðslutengið.
Ef tækið er tengt við tölvu geturðu samstillt það meðan það hleðst.
Hleðsla gegnum USB getur tekið lengri tíma að byrja og virkar hugsanlega ekki ef þú tengist gegnum USB-deilibox sem fær straum úr tölvu. Tækið hleðst hraðar ef það er tengt við innstungu.
Þegar rafhlaðan er í hleðslu logar á hleðsluljósinu við hliðina á USB-tenginu. Stöðuljós hleðslutækisins blikkar þegar lítil hleðsla er á rafhlöðunni. Nokkur tími getur liðið þar til hleðslan hefst.

Staðsetning loftneta

Forðast skal óþarfa snertingu við loftnetið þegar verið er að senda eða taka á móti. Snerting við loftnet hefur áhrif á sendigæði og getur valdið því að tækið noti meiri orku og getur minnkað líftíma rafhlöðu þess.
Tækið tekið í notkun 15
Loftnetssvæðið er merkt með gráum lit.

Úlnliðsbandið fest

Úlnliðsbandið er þrætt líkt og sýnt er og svo er hert að.

Höfuðtól

Hægt er að tengja samhæft höfuðtól eða samhæf heyrnartól við tækið.

Kveikt og slökkt á tækinu

Kveikt
Haltu rofanum
inni þar til tækið titrar.
Slökkt
Haltu rofanum inni
.
16 Tækið tekið í notkun

Taktu tækið í notkun

Tækið leiðbeinir þér í gegnum einfaldar aðgerðir þegar þú kemur SIM-kortinu fyrir og kveikir á tækinu í fyrsta skipti. Þú verður að stofna Nokia-áskrift til að geta notað alla Ovi-þjónustu Nokia. Þú getur einnig afritað tengiliði og annað efni úr eldra tækinu þínu.
Til að geta stofnað Nokia-áskrift þarftu að vera með nettengingu. Hafðu samband við þjónustuveituna til að fá frekari upplýsingar um gagnaflutningsgjöld. Ef þú getur ekki tengst netinu geturðu stofnað áskrift síðar.
Ábending: Til að stofna og stjórna Nokia-áskriftinni þinni á internetinu ferðu á www.ovi.com.
Ef þú ert með Nokia-áskrift nú þegar skaltu skrá þig inn.
Ábending: Ertu búinn að gleyma lykilorðinu? Þú getur beðið um að fá það sent í tölvupósti eða í textaskilaboðum.
Notaðu Símaflutningur-forritið til að afrita efni, svo sem:
Tengiliðir
Skilaboð
Myndir og myndskeið
Einkastillingar
Þegar þú setur upp pósthólf geturðu látið innhólfið birtast á heimaskjánum svo auðveldara sé fyrir þig að fylgjast með póstinum.
Ef þú þarft að hringja í neyðarnúmer meðan uppsetning fer fram ýtirðu á valmyndartakkann.

Tengiliðir eða myndir afrituð frá eldra tæki

Viltu afrita mikilvægar upplýsingar frá eldra samhæfu Nokia-tæki og byrja að nota nýja tækið þitt fljótt? Notaðu forritið Símaflutningur til að afrita á nýja tækið ókeypis, til dæmis tengiliði, dagbókarfærslur og myndir.
Veldu Valmynd > Forrit > Verkfæri > Upps. síma og Gagnaflutningur.
Tækið tekið í notkun 17
Ef gamla Nokia-tækið þitt er ekki með forritið Símaflutningur sendir nýja tækið þitt það sem skilaboð. Opnaðu skilaboðin í gamla tækinu og fylgdu leiðbeiningunum.
1 Veldu tækið sem þú vilt tengjast við og paraðu tækin. Virkja þarf Bluetooth. 2 Sláðu inn lykilorð ef hitt tækið krefst þess. Lykilorðið, sem þú getur valið sjálf/ur,
þarf að slá inn í bæði tækin. Lykilorð er fyrirfram skilgreint í sumum tækjum. Nánari upplýsingar er að finna í notendahandbók tækisins.
Lykilorðið er aðeins gilt fyrir þá tengingu sem er virk.
3 Veldu efnið og Í lagi.

Uppsetning tækis

Til að tilgreina nokkrar grunnstillingar fyrir tækið velurðu Upps. síma flýtivísinn er á einum af heimaskjáum þínum. Skiptu á milli heimaskjáa með því að strjúka til vinstri eða hægri.
Nota má Upps. síma til að gera eftirfarandi:
Afrita tengiliði, myndir og annað efni úr eldra Nokia-tækinu þínu
Sérstilla tækið með því að breyta um hringitón og sjónrænt þema.
Setja upp póst
Uppfæra hugbúnað tækisins.
Til að tilgreina stillingarnar síðar er einnig hægt að velja Valmynd > Forrit >
Verkfæri > Upps. síma.
sem

Notkun notendahandbókarinnar í tækinu

Veldu Valmynd > Forrit > Handbók.
18 Settu upp Nokia Ovi Suite á tölvunni þinni
Notendahandbókin opnuð í forriti
Veldu Valkostir > Notendahandbók. Þetta er ekki hægt í öllum forritum.
Leit í notendahandbók
Þegar notendahandbókin er opin velurðu Valkostir > Leita og slærð inn bókstaf eða orð í leitarreitinn.
Skipt milli notendahandbókar og forrits
Ýttu á og haltu valmyndartakkanum, strjúktu til vinstri eða hægri og veldu forritið.
tilgreinir tengil á vefsíðu. Tenglar í svipað efni eru mögulega í lokhjálpartextans.

Settu upp Nokia Ovi Suite á tölvunni þinni

Með forritinu Nokia Ovi Suite getur þú skipulagt efni á tækinu þínu og haft það samstillt við tölvuna þína. Þú getur líka uppfært nýjasta hugbúnaðinn á tækinu þínu og hlaðið niður kortum.
Þú getur hlaðið nýjustu útgáfunni af Nokia Ovi Suite á www.ovi.com/suite niður á tölvuna þína.
Ef tölvan þín getur ekki tengst netinu skaltu setja upp Nokia Ovi Suite af minni tækisins:
1 Notaðu samhæfa USB-snúru til að tengja tækið við tölvu.
Ef þú ert að nota Windows XP eða Windows Vista skaltu breyta USB-stillingu tækisins yfir í Gagnaflutningur. Til að kveikja á USB-stillingu í tækinu skaltu velja tilkynningasvæði í hægra horninu efst og velja
Gagnageymsla tækisins og minniskortið birtast sem færanlegir diskar á tölvunni.
> Gagnaflutningur.
2 Á tölvunni þinni skaltu velja setja upp Nokia Ovi Suite.
Grunnnotkun 19
Ef uppsetningarglugginn opnast ekki sjálfkrafa skaltu opna uppsetningarskrána handvirkt. Veldu Open folder to view files (opna möppu til að skoða skrár) og tvísmelltu á Install_Nokia_Ovi_Suite.exe.
3 Fylgdu leiðbeiningunum sem birtast. 4 Ef þú notar Windows XP eða Windows Vista á tölvunni skaltu gæta þess að USB-
stilling tækisins sé stillt á Nokia Ovi Suite þegar uppsetningunni lýkur.
Nánari upplýsingar um Nokia Ovi Suite eru á www.ovi.com/suite.
Til að skoða hvaða stýrikerfi eru studd af Nokia Ovi Suite skaltu fara á www.nokia.com/ support.

Grunnnotkun

Aðgerðir á snertiskjá

Til að nota notendaviðmótið bankarðu á eða pikkar og heldur snertiskjánum.
Opnaðu forrit eða aðra skjáeiningu
Pikkaðu á forritið eða eininguna.
Skjótur aðgangur að aðgerðum
Pikka í og halda atriði. Sprettivalmynd opnast með valkostum sem eru í boði. Til að senda mynd eða eyða vekjara pikkarðu og heldur myndinni eða vekjaranum og velur viðeigandi valkost á sprettivalmyndinni.
20 Grunnnotkun
Ef þú pikkar og heldur heimaskjánum verður ritvinnslustilling virk.
Draga atriði
Haltu inni hlut og renndu fingri yfir skjáinn. Hluturinn eltir fingurinn.
Grunnnotkun 21
Hægt er að draga hluti á heimaskjánum eða aðalvalmyndinni þegar ritvinnslustilling hefur verið virkjuð.
Strjúka
Settu fingur á skjáinn og renndu honum ákveðið í tiltekna átt. Þegar þú skoðar mynd skaltu t.d. strjúka til vinstri til að skoða næstu mynd.
Flett á lista eða valmynd
Settu fingurinn á skjáinn, renndu honum hratt upp eða niður skjáinn og lyftu honum síðan. Flett er áfram í efni skjásins á sama hraða og í sömu átt og áður. Til að velja hlut af flettilistanum og stöðva hreyfinguna smellirðu á hlutinn.
Auka aðdrátt
Settu tvo fingur á hlut, til dæmis mynd, vefsíðu eða kortamynd, og færðu fingurna í sundur.
Minnka aðdrátt
Settu tvo fingur á hlut og renndu fingrunum saman.
22 Grunnnotkun
Ábending: Þú getur einnig bankað tvisvar til að stækka eða minnka aðdrátt.

Gagnvirkar heimaskjáseiningar

Einingar heimaskjásins eru gagnvirkar. Það er t.d. hægt að stilla tíma og dagsetningu, stilla vekjaraklukku, skrifa dagbókarfærslur eða breyta sniðum beint á heimaskjánum.
Vekjaraklukka stillt
Veldu klukkuna (1).
Snið virkjuð eða breytt
Veldu sniðið (2).
Tímaáætlun skoðuð eða breytt
Veldu dagsetninguna (3).
Ósvöruð símtöl eða ólesin skilaboð skoðuð
Veldu tilkynningasvæðið (4).
Tiltæk þráðlaus staðarnet skoðuð eða Bluetooth-tengingu komið á
Veldu tilkynningasvæðið (4).
Tengistillingum breytt
Veldu tilkynningasvæðið (4) og
.
Á flestum öðrum skjáum geturðu valið tilkynningasvæðið (4) og gert eftirfarandi:
Breytt tengistillingum
Opnað klukkuna og stillt á áminningu
Skoðað hleðslu rafhlöðu og virkjað orkusparnað
Skoðað tilkynningar um ósvöruð símtöl eða ólesin skilaboð
Opnað staðarnetshjálpina og tengst þráðlausu staðarneti
Komið á Bluetooth-tengingu
Grunnnotkun 23

Skipt milli opinna forrita

Þú getur séð hvaða forrit og verkefni eru opin í bakgrunni og skipt á milli þeirra.
Ýttu á og haltu valmyndartakkanum, strjúktu til vinstri eða hægri og veldu forritið.
Keyrsla forrita í bakgrunni krefst aukinnar rafhlöðuorku og notar minni. Forriti er lokað með því að velja
.
Ábending: Til að loka öllum opnum forritum skaltu halda verkefnarofanum inni og velja
Loka öllu á sprettivalmyndinni.
Textaritun Texti sleginn inn með sýndarlyklaborðinu Notkun skjályklaborðs
Veldu einhvern innsláttarreit til að birta skjályklaborðið. Hægt er að nota skjályklaborðið bæði í langsniði og skammsniði.
Skjályklaborð í skammsniði er ef til vill ekki í boði fyrir öll innsláttartungumál.
1 Sýndarlyklaborð 2 Takkinn Loka - Loka sýndarlyklaborðinu. 3 Skiptitakki og hástafalás - Til að slá inn hástaf þegar skrifað er með lágstöfum, eða
öfugt, skaltu velja takkann áður en stafurinn er sleginn inn. Til að stilla á hástafalás skaltu velja takkann tvisvar.
4 Stafasvið - Veldu stafasvið, t.d. tölur eða stafi með kommu eða sérstafi.
24 Grunnnotkun
5 Örvatakkar - Til að færa bendilinn til vinstri eða hægri. 6 Bilstika - Til að setja inn bil. 7 Innsláttarvalmynd - Kveikja á flýtiritun eða breyta tungumáli texta. 8 Færslutakki - Til að færa bendilinn yfir í næstu línu eða innsláttarreit.
Viðbótaraðgerðir fara eftir því hvað er verið að gera. Í veffangsreit vafrans er bendillinn til dæmis notaður til að opna.
9 Bakktakki - Eyða staf.
Skiptu milli skjályklaborðsins og takkaborðsins í andlitsstillingu
Veldu
> Bók- og tölustafatakkab. eða QWERTY-lyklaborð.
Settu kommu fyrir ofan staf
Veldu stafinn og haltu honum inni.
Texti sleginn inn með skjátakkaborðinu Notkun skjátakkaborðs
Ef þú vilt heldur nota bók- og tölustafaborð þegar þú skrifar í andlitsstillingu þá geturðu skipt úr skjályklaborði yfir í skjátakkaborð.
1 Veldu textainnsláttarreit. 2Veldu
> Bók- og tölustafatakkab..
1 Talnatakkar
Grunnnotkun 25
2* - Sláðu inn sérstaf, eða rúllaðu í gegnum möguleg orð þegar flýtiritun er virkjuð
og orðið undirstrikað.
3 Skiptitakki - Skipta milli hástafa og lágstafa. Til að kveikja eða slökkva á sjálfvirkri
textainnritun skaltu velja takkann hratt tvisvar. Skipt er á milli tölustafa og bókstafa með því að styðja á takkann og halda honum inni.
4 Takkinn Loka -– Loka skjátakkaborðinu. 5 Örvatakkar - Færa bendilinn til vinstri eða hægri. 6 Innsláttarvalmynd – Til að virkja flýtiritun, breyta tungumáli texta eða skipta yfir í
skjályklaborð.
7 Bakktakki – Eyða staf. 8 Vísir fyrir textainnslátt (ef til staðar) - Gefur til kynna há- eða lágstafi, stafa- eða
tölustafastillingu og hvort kveikt er á flýtiritun.
Virkjaðu venjulegan innslátt með sýndarlyklaborðinu. Veldu # tvisvar.
Sláðu inn staf
1 Ýtt er á tölutakka, 1-9, þar til viðkomandi bókstafur birtist. Hver takki inniheldur
fleiri stafi en þá sem eru prentaðir á hann.
2 Ef næsti stafur er á sama takka skaltu bíða þar til bendillinn birtist eða færðu
bendilinn áfram og veldu síðan takkann aftur.
Bil sett inn Veldu 0.
Færðu bendilinn í næstu línu Veldu 0 þrisvar.
Flýtiritun með skjátakkaborðinu virkjuð
Í flýtiritun er notuð innbyggð orðabók sem hægt er að bæta nýjum orðum inn í. Flýtiritun er ekki í boði fyrir öll tungumál.
1Veldu 2 Notaðu takka 2-9 til að slá inn orðið sem þú vilt. Ýttu einu sinni á takka fyrir hvern
staf. Veldu t.d. 6 fyrir N, 6 fyrir o, 5 fyrir k, 4 fyrir i og 2 fyrir a til að skrifa Nokia þegar enska orðabókin er valin.
Orðið sem stungið er upp á breytist eftir hvern staf sem er valinn.
3 Ef ekki kemur upp rétt orð velurðu * endurtekið þar til rétt niðurstaða birtist. Ef
orðið er ekki í orðabókinni skaltu velja Stafa og slá inn orðið á venjulegan hátt og velja síðan Í lagi.
> Kveikja á flýtiritun.
26 Grunnnotkun
Ef ? birtist fyrir aftan orðið er það ekki að finna í orðabókinni. Orði er bætt inn í orðabókina með því að velja *, slá inn orðið á venjulegan hátt og velja síðan Í
lagi.
4 Til að setja inn bil skaltu velja 0 . Til að setja inn algengt greinarmerki velurðu 1 og
velur síðan * endurtekið þar til rétt greinarmerki birtist.
5 Byrjaðu að skrifa næsta orð.
Slökkt á flýtiritun Veldu # hratt tvisvar.

Ritunartungumál tilgreint

Veldu Valmynd > Stillingar og Sími > Snertiskjár > Tungumál texta.
Skiptu um tungumál á meðan þú ert að skrifa
Veldu táknið
texta.
Mismunandi getur verið hvaða valkostir eru í boði.
Vísar á skjá Almennir vísar
> Valkostir innsláttar > Tungumál texta eða > Tungumál
Snertiskjár og takkar eru læstir. Tækið áminnir án hljóðs vegna símhringinga eða skilaboða. Áminning er stillt. Tímasett snið er virkt. Þú hefur misst af dagbókaratburði.
Símtalsvísar
Einhver reyndi að hringja í þig. Þú ert að nota aðra símalínu (sérþjónusta). Mótteknum símtölum er beint í annað númer (sérþjónusta). Ef notaðar eru tvær
símalínur sýnir númer hvaða lína er í notkun. Tækið þitt er tilbúið fyrir netsímtal.
Gagnasímtal er virkt (sérþjónusta).
Skilaboðavísar
Þú átt ólesin skilaboð. Ef vísirinn blikkar kann innhólfið að vera fullt. Það eru ósend skilaboð í úthólfsmöppunni.
Grunnnotkun 27
Netkerfisvísar
Tækið er tengt við GSM-símkerfi (sérþjónusta). Tækið er tengt við 3G-kerfi (sérþjónusta). GPRS-pakkagagnatenging (sérþjónusta) er opin. sýnir að tengingin sé í bið
að tenging sé að opnast eða lokast.
og EGPRS-pakkagagnatenging (sérþjónusta) er opin. sýnir að tengingin sé í bið
að verið sé að koma á tengingu.
og 3G-pakkagagnatenging (sérþjónusta) er opin. sýnir að tengingin sé í bið og að verið sé að koma á tengingu. HSPA-pakkagagnatenging (sérþjónusta) er opin. sýnir að tengingin sé í bið
að verið sé að koma á tengingu.
og Tenging við þráðlaust staðarnet er tiltæk. sýnir að tengingin sé dulkóðuð og
að tengingin sé ekki dulkóðuð.
Tengingarvísar
Bluetooth er virkt. sýnir að tækið er að senda gögn. Þegar vísirinn blikkar er tækið að reyna að tengjast við annað tæki. USB-snúra er tengd við tækið. HDMI-snúra er tengd við tækið. GPS er virkt. Tækið er að samstillast. FM-sendirinn er virkur en er ekki að senda út. sýnir að FM-sendirinn er að senda út. Samhæft höfuðtól er tengt við tækið. Samhæf snúra sjónvarpsúttaks er tengd við tækið. Samhæfur textasími er tengdur við tækið.

Tilkynningaljósið stillt svo það blikki þegar þú færð skilaboð eða hefur ekki svarað símtali

Tækið þitt er með áminningarljósi í valmyndartakkanum. Þegar ljósið blikkar hefur þú misst af símtali eða fengið skilaboð.
Veldu Valmynd > Stillingar og Sími > Tilkynningaljós > Viðburðaljós.

Leit í tækinu og á internetinu

Hægt er að leita að atriðum eins og skilaboðum, myndum, skrám, tónlist eða
myndskeiðum sem er að finna á tækinu eða netinu.
1Veldu Valmynd > Forrit > Leit.
28 Grunnnotkun
2 Sláðu inn leitarorð og veldu eina leitarniðurstöðu. 3 Til að leita á netinu velurðu leitartengil fyrir netið fyrir aftan leitarniðurstöðurnar.
Nettenging er nauðsynleg.
Ábending: Þú getur bætt leitargræju við heimaskjáinn. Pikkaðu á og haltu heimaskjánum inni og veldu

Notkun tækisins án tengingar

Á stöðum þar sem þú vilt ekki hringja eða svara símtölum er engu að síður hægt að opna dagbókina, tengiliðalistann og leiki án nettengingar ef ótengda sniðið er gert virkt. Slökktu á tækinu þar sem notkun þráðlausra síma er bönnuð eða þar sem hún kann að valda truflunum eða hættu.
Á heimaskjánum velurðu sniðið og Án tengingar.
Þegar ótengda sniðið er virkt er lokað á tengingu þína við farsímakerfið. Lokað er á allar sendingar útvarpsmerkja á milli tækisins og farsímakerfisins. Ef þú reynir að senda skilaboð er það geymt í möppunni úthólf og er einungis sent þegar kveikt er á öðru sniði.
Hægt er að nota tækið án SIM-korts. Slökktu á tækinu og taktu SIM-kortið úr því. Þegar þú kveikir aftur á því verður ótengda sniðið virkt.
Mikilvægt: Í ótengdu sniði er ekki hægt að hringja, svara símtölum eða not a aðra
valkosti þar sem þörf er á tengingu við farsímakerfi. Hugsanlega er hægt að hringja í það neyðarnúmer sem er forritað í tækið. Eigi að hringja úr tækinu þarf fyrst að skipta um snið.
Þegar þú notar ótengda sniðið geturðu áfram tengst þráðlausu staðarneti, t.d. til þess að lesa tölvupóst eða vafra á internetinu. Einnig má nota Bluetooth. Mundu að fara að öllum viðeigandi öryggisreglum þegar þú kemur á þráðlausri staðarnetstengingu eða Bluetooth-tengingu.
leitargræju af listanum.

Lengri líftími rafhlöðu

Ef þér finnst þú alltaf vera að leita að hleðslutæki geturðu gert ráðstafanir til að draga úr orkunotkun tækisins.
Alltaf skal hlaða rafhlöðuna að fullu.
Þegar orkusparnaður er gerður virkur eru stillingar á borð við Símkerfi, sem og
skjávarinn, fínstilltar.
Grunnnotkun 29
Orkusparnaður gerður virkur
Ýttu á rofann ýta á rofann
Lokaðu forritum sem þú ert ekki að nota
Ýttu á og haltu valmyndartakkanum, strjúktu þar til forritið sem þú vilt ná í birtist og veldu
Hljóð, þemu og áhrif
Slökktu á óþörfum tónum eins og takkatónum.
Notaðu tengd heyrnartól frekar en hátalarann.
Breyttu því hve langur tími líður þar til slökkt er á skjá tækisins.
Tímamörk stillt
Veldu Valmynd > Stillingar og Sími > Skjár > Tímamörk ljósa.
Dökkt þema og veggfóður gerð virk
Veldu Valmynd > Stillingar og Þemu > Almennt. Til að skipta um veggfóður velurðu
Valkostir > Breyta veggfóðri á heimaskjánum.
Slökkt á hreyfimyndum í bakgrunni
Veldu Valmynd > Stillingar og Þemu > Almennt > Valkostir > Þemuáhrif >
Slökkt.
Birtustig minnkað á skjánum
Í skjástillingunum velurðu Birtustig.
Slökkt á Stór klukka skjávaranum
Veldu Valmynd > Stillingar og Þemu > Skjávari > Enginn.
og veldu Virkja orkusparnað. Til að gera orkusparnað óvirkan skaltu
og velja Óvirkja orkusparnað.
.
Símkerfisnotkun
Ef þú ert að hlusta á tónlist eða nota tækið á annan hátt, en vilt hvorki hringja né svara símtölum skaltu gera ótengda sniðið virkt.
Stilltu tækið þannig að það sæki póst sjaldnar.
Notaðu þráðlausa staðarnetstengingu til að tengjast internetinu fremur en
pakkagagnatengingu (GPRS eða 3G).
Ef tækið er stillt á að nota bæði GSM og 3G símkerfi (símkerfaskiptingu) notar það meiri orku þegar það leitar að 3G símkerfinu.
30 Sérstillingar
Tækið stillt þannig að það noti einungis GSM-símkerfið
Veldu Valmynd > Stillingar og Tengingar > Símkerfi > Símkerfi > GSM.
Slökkt á Bluetooth-tengingu þegar hennar er ekki þörf
Veldu Valmynd > Stillingar og Tengingar > Bluetooth > Bluetooth > Slökkt.
Leit tækisins að þráðlausu staðarneti stöðvuð
Veldu Valmynd > Stillingar og Tengingar > Þráðl. staðarnet > Valkostir >
Stillingar > Sýna vísi staðarneta > Aldrei.
Pakkagagnatengingu (3G eða GPRS) aðeins komið á þegar þörf krefur
Veldu Valmynd > Stillingar og Tengingar > Stjórnandastill. > Pakkagögn >
Pakkagagnatenging > Ef með þarf.

Sérstillingar

Snið Um snið
Veldu Valmynd > Stillingar og Snið.
Bíðurðu eftir símtali en getur ekki látið símann hringja? Í tækinu eru nokkrir stillingahópar sem kallast snið og hægt er að nota til að sérstilla símann fyrir mismunandi aðstæður. Þú getur einnig búið til þín eigin snið.
Hægt er að sérstilla sniðin á eftirfarandi hátt:
Breyta hringi- og skilaboðatónum.
Stilla hljóðstyrk hringi- og takkatóna.
Slökkva á hljóði takkatóna og viðvörunartóna.
Kveikja á titringi.
Láta símann lesa upp nafn tengiliðar sem hringir.

Tónar sérstilltir

Hægt er að sérstilla tóna símans fyrir hvert snið.
Veldu Valmynd > Stillingar > Snið.
1 Veldu sniðið sem þú vilt nota. 2Veldu Sérstillingar og svo valkost.
Loading...
+ 100 hidden pages