Nokia 1112 User's Guide [is]

Notendahandbók fyrir Nokia 1110i/1112
9247856
2. útgáfa IS
LEYFISYFIRLÝSING NOKIA CORPORATION lýsir því hér með yfir að varan RH-93 er
í samræmi við nauðsynleg skilyrði og önnur ákvæði tilskipunar 1999/5/EC.
0434
Merkið sem sýnir yfirstrikaða ruslafötu, merkir að innan Evrópusambandsins verði að fara með vöruna á sérstaka staði til förgunar að líftíma hennar liðnum. Þetta á við um tækið þitt en einnig um þá aukahluti sem merktir eru með þessu merki. Hendið þessum vörum ekki með heimilisúrgangi.
Copyright © 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin. Hvers konar afritun, yfirfærsla, dreifing eða varðveisla á hluta skjals
þessa eða skjalsins alls er óheimil nema að fyrir fram fengnu skriflegu samþykki Nokia.
US Patent No 5818437 and other pending patents. T9 text input software Copyright © 1997-2007. Tegic Communications, Inc. All rights reserved.
Nokia og Nokia Connecting People eru vörumerki eða skrásett vörumerki Nokia Corporation. Önnur vöruheiti eða heiti fyrirtækja sem nefnd eru hér geta verið vörumerki eða vöruheiti viðkomandi eigenda.
Nokia tune er vörumerki Nokia Corporation. Nokia framfylgir stefnu sem felur í sér stöðuga þróun. Nokia áskilur
sér rétt til að gera breytingar og úrbætur á hvers konar vöru sem getið er í þessu skjali án undangenginnar tilkynningar.
Nokia ber undir engum kringumstæðum ábyrgð á tapi gagna eða tekjutapi og ekki á beinu eða óbeinu tjóni, þar á meðal útlögðum kostnaði, tekjutapi eða missi ágóða, af hvaða orsökum sem tjón kann að vera.
Inntak þessa skjals er afhent „eins og það kemur fyrir“. Umfram það, er lög áskilja, er engin ábyrgð veitt, hvorki berum orðum eða undirskilin, á nákvæmni, áreiðanleika eða inntaki þessa skjals, á það meðal annars, en ekki eingöngu, við um söluhæfni eða ábyrgð á að varan hentl tiltekinni notkun. Nokia áskilur sér rétt til að endurskoða skjalið eða draga það tilbaka hvenær sem er án undangenginnar tilkynningar.
Birgðir á tilteknum vörum geta verið breytilegar eftir svæðum. Vinsamlegast kannaðu málið hjá næsta söluaðila Nokia.
Tæki þetta kann að innihalda vörur, tækni eða hugbúnað sem lýtur útflutningslögum og reglugerðum í Bandaríkjunum og öðrum löndum. Breytingar á flutningsleiðum sem ekki samræmast lögum eru óheimilar.
9247856 / 2. útgáfa IS
Atriðaskrá
Atriðaskrá
Öryggisatriði .................................................................. 6
Almennar upplýsingar................................................. 12
Aðgangslyklar........................................................................................... 12
Samnýtt minni ......................................................................................... 13
1. Tækið tekið í notkun .............................................. 14
Takkar og hlutar....................................................................................... 14
SIM-kort og rafhlaða sett í símann................................................... 15
Rafhlaðan hlaðin..................................................................................... 16
Kveikt og slökkt á símanum ................................................................. 17
Sýnikennsla............................................................................................... 18
Flýtivísar í biðstöðu................................................................................ 18
Takkaborðinu læst................................................................................... 19
2. Símtöl ...................................................................... 20
Símtöl – hringt og svarað..................................................................... 20
Hátalari ...................................................................................................... 21
3. Textaritun ................................................................ 22
4. Valmyndir símans.................................................... 24
Skilaboð ..................................................................................................... 24
Tengiliðir.................................................................................................... 28
Símtalaskrá ............................................................................................... 29
4
Atriðaskrá
Stillingar .................................................................................................... 30
Klukka......................................................................................................... 35
Áminningar ............................................................................................... 36
Aukakostir ................................................................................................. 37
SIM-þjónusta............................................................................................ 39
5. Upplýsingar um rafhlöðu........................................ 40
Hleðsla og afhleðsla............................................................................... 40
Leiðbeiningar um sannprófun á rafhlöðum frá Nokia.................. 42
6. Aukahlutir................................................................ 46
Umhirða og viðhald..................................................... 47
Viðbótaröryggisupplýsingar ........................................ 49
5
Öryggisatriði
Öryggisatriði
Lesið þessar einföldu leiðbeiningar. Sé þeim ekki fylgt getur það verið hættulegt eða varðað við lög. Lesa skal alla notendahandbókina til að fá nánari upplýsingar.
ÖRYGGI ÞEGAR KVEIKT ER Á TÆKINU
Ekki kveikja á símanum þar sem notkun þráðlausra síma er bönnuð eða þar sem hún kann að valda truflunum eða hættu.
UMFERÐARÖRYGGI GENGUR FYRIR
Fara skal að öllum staðbundnum lögum. Ætíð skal hafa hendur frjálsar til að stýra ökutækinu við akstur. Umferðaröryggi skal ganga fyrir í akstri.
TRUFLUN
Allir þráðlausir símar geta verið næmir fyrir truflunum, sem getur haft áhrif á virkni þeirra.
SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM Á SJÚKRASTOFNUNUM
Virða skal allar takmarkanir. Slökkva skal á símanum nálægt lækningabúnaði.
6
Öryggisatriði
HAFA SKAL SLÖKKT Á SÍMANUM Í FLUGVÉLUM
Virða skal allar takmarkanir. Þráðlaus tæki geta valdið truflunum í flugvélum.
SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM ÁÐUR EN ELDSNEYTI ER TEKIÐ
Ekki nota símann nærri eldsneytisdælu. Notist ekki í námunda við eldsneyti eða sterk efni.
SLÖKKVA SKAL Á SÍMANUM ÞAR SEM VERIÐ ER AÐ SPRENGJA
Virða skal allar takmarkanir. Ekki nota símann þar sem verið er að sprengja.
NOTIST AF SKYNSEMI
Notist aðeins í hefðbundinni stöðu eins og lýst er í leiðbeiningum með vörunni. Forðast skal óþarfa snertingu við loftnetið.
VIÐURKENND ÞJÓNUSTA
Aðeins viðurkennt starfsfólk má setja upp eða gera við þessa vöru.
AUKAHLUTIR OG RAFHLÖÐUR
Aðeins má nota samþykkta aukahluti og rafhlöður. Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.
7
Öryggisatriði
VATNSHELDNI
Síminn er ekki vatnsheldur. Halda skal honum þurrum.
ÖRYGGISAFRIT
Muna skal að taka öryggisafrit eða halda skrá yfir allar mikilvægar upplýsingar sem geymdar eru í símanum.
TENGING VIÐ ÖNNUR TÆKI
Þegar tækið er tengt öðru tæki skal lesa notendahandbók með því vandlega, einkum upplýsingar um öryggi. Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.
NEYÐARSÍMTÖL
Tryggja skal að kveikt sé á símanum og hann sé virkur. Styðja skal á hætta-takkann eins oft og þarf til að hreinsa skjáinn og hverfa aftur að upphafsskjánum. Sláðu inn neyðarnúmerið og ýttu á hringitakkann. Gefa skal upp staðarákvörðun. Ekki má slíta símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.
8
Öryggisatriði
Um tækið
Þráðlausa tækið sem lýst er í handbókinni er samþykkt til notkunar í EGSM 900 og GSM 1800 símkerfunum. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar um símkerfi.
Hlíta skal öllum lögum og virða einkalíf og lögbundin réttindi annarra við alla notkun þessa tækis.
Viðvörun: Við notkun allra aðgerða í þessu tæki, annarra en vekjara, þarf að vera kveikt á tækinu. Ekki skal kveikja á tækinu þegar notkun þráðlausra tækja getur valdið truflun eða hættu.
Sérþjónusta
Ef nota á símann verður áskrift að þjónustuveitu fyrir þráðlausa síma að vera fyrir hendi. Margar aðgerðir í þessu tæki eru háðar því að aðgerðir í þráðlausa símkerfinu virki. Þessi sérþjónusta er hugsanlega ekki fyrir hendi í öllum símkerfum eða þörf getur verið á sérstökum ráðstöfunum hjá þjónustuveitunni áður en hægt er að nota sérþjónustu. Þjónustuveitan getur þurft að gefa viðbótarfyrirmæli um notkun og útskýra hvaða gjöld eiga við. Sum símkerfi geta
9
Öryggisatriði
verið með takmörkunum sem hafa áhrif á hvernig hægt er að nota sérþjónustu. Sum símkerfi styðja t.d. ekki alla séríslenska bókstafi og þjónustu.
Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að tilteknar aðgerðir væru hafðar óvirkar eða ekki gerðar virkar í tækinu. Ef svo er birtast þær ekki í valmynd tækisins. Tækinu kann einnig að hafa verið sérstaklega samskipað. Þessar stillingar gætu falið í sér breytingar á nöfnum valmynda, röð þeirra og táknum. Nánari upplýsingar fást hjá þjónustuveitunni.
Hleðslutæki og aukahlutir
Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður en rafhlaðan er fjarlægð.
Athuga ber tegundarnúmer hleðslutækja áður en þau eru notuð með þessu tæki. Þetta tæki er ætlað til notkunar með AC-2, ACP-7 eða ACP-12 hleðslutæki.
10
Öryggisatriði
Viðvörun: Að e in s s ka l no ta ra fhlöður, hleðslutæki
og aukahluti sem Nokia hefur samþykkt til nota með þessari tilteknu tegund. Ef notaðar eru aðrar gerðir gæti öll ábyrgð og samþykki fallið niður og slíkri notkun getur fylgt hætta.
Seljandi símans veitir upplýsingar um fáanlega aukahluti sem samþykktir eru til notkunar.
11
Almennar upplýsingar
Almennar upplýsingar
Aðgangslyklar
• Öryggisnúmerinu, sem fylgir með símanum, er ætlað að hindra að síminn sé notaður í leyfisleysi. Forstillta númerið er 12345.
• PIN-númerinu, sem fylgir með símanum, er ætlað að hindra að kort símans sé notað í leyfisleysi.
• PIN2-númer fylgir sumum SIM-kortum og er nauðsynlegt til að komast í ýmsa þjónustu.
• PUK- og PUK2-númer kunna að fylgja SIM-kortinu. Ef þú slærð inn rangt PIN- eða PIN2-númer þrisvar sinnum í röð verður þú spurður um PUK- eða PUK2-númerið. Ef þau fylgja ekki SIM-kortinu skaltu hafa samband við þjónustuveituna.
Hægt er að velja hvernig síminn notar aðgangsnúmer og öryggisstillingar í Valm. > Stillingar > Öryggisstillingar.
12
Almennar upplýsingar
Samnýtt minni
Eftirfarandi aðgerðir í þessu tæki geta samnýtt minni:
Skilaboð, Tengiliðir og Tónsmiður. Notkun einnar eða fleiri
þessara aðgerða getur minnkað tiltækt minni fyrir aðrar aðgerðir sem samnýta minni. Til dæmis getur vistun margra textaskilaboða notað allt tiltækt minni. Tækið getur birt boð um að minnið sé fullt þegar reynt er að nota aðgerð sem notar samnýtt minni. Þá skal eyða einhverjum upplýsingum eða færslum sem eru geymdar í aðgerðunum sem samnýta minni áður en haldið er áfram. Sumar aðgerðirnar, svo sem
Tengiliðir, geta fengið tiltekið magn af minni úthlutað til
viðbótar við það minni sem er samnýtt með öðrum aðgerðum.
13
Tækið tekið í notkun
1. Tækið tekið í notkun
Takkar og hlutar
Síminn er í biðstöðu þegar hann er tilbúinn til notkunar og engir stafir hafa verið slegnir inn.
•Sendistyrkur símkerfisins (1)
• Hleðsla rafhlöðunnar (2)
•Virknivaltakka(3)
• Valtakkar (4)
• Skruntakkar (5)
• Hringitakki (6)
• Hætta-takki og rofi (7)
• Takkaborð (8)
14
Tækið tekið í notkun
SIM-kort og rafhlaða sett í símann
Öll SIM-kort skal geyma þar sem lítil börn ná ekki til. Upplýsingar um framboð og notkun SIM-korta má fá hjá
seljanda SIM-kortsins. Þetta getur verið þjónustuveitan, símafyrirtækið eða annar söluaðili.
Þessi sími er ætlaður til notkunar með BL-5CA rafhlöðu.
1. Ýttu á takkann sem opnar bakhliðina (1), opnaðu
bakhliðina og fjarlægðu hana (2, 3). Lyftu rafhlöðunni og fjarlægðu hana (4).
2. Lyftu SIM-kortsfestingunni varlega úr stöðu sinni (5).
Settu SIM-kortið í símann. Gakktu úr skugga um að skáhorn þess snúi upp og til hægri og að gyllti flötur þess snúi niður (6). Lokaðu SIM-kortsfestingunni (7) og
15
Tækið tekið í notkun
ýttu á hana til að læsa henni. Settu rafhlöðuna í símann (8, 9).
Rafhlaðan hlaðin
1. Stingdu hleðslutækinu í samband í innstungu.
2. Tengdu hleðslutækið við símann. Hleðsluvísirinn byrjar að hreyfast.
Ef textinn Hleður sig ekki birtist skaltu bíða í stutta stund, aftengja hleðslutækið og stinga því svo aftur í samband. Ef síminn byrjar ekki að hlaða sig í það skiptið skaltu hafa samband við söluaðilann.
3. Vísirinn hættir að hreyfast þegar rafhlaðan er fullhlaðin. Taktu þá hleðslutækið úr sambandi við símann og innstunguna.
16
Tækið tekið í notkun
Kveikt og slökkt á símanum
Haltu hætta-takkanum inni í nokkrar sekúndur. Notaðu aðeins símann í
hefðbundinni stöðu. Í tækinu er innbyggt loftnet.
Til athugunar: Forðast skal óþarfa snertingu við loftnetið þegar kveikt er á tækinu eins og gildir um öll önnur tæki sem senda frá sér útvarpsbylgjur. Snerting við loftnetið hefur áhrif á móttökuskilyrði og getur valdið því að tækið noti meiri sendiorku en nauðsynlegt er. Ef forðast er að snerta loftnetssvæðið þegar tækið er notað verður virkni loftnetsins og líftími rafhlöðunnar líkt og best verður á kosið.
Til athugunar: Forðast skal að snerta tengið þar sem það er viðkvæmt fyrir afhleðslu á stöðurafmagni.
17
Tækið tekið í notkun
Sýnikennsla
Hægt er að skoða sýnidæmi um notkun ákveðinna hluta símans. Ef ekkert SIM-kort er í símanum velurðu Sýning >
Grunnaðgerðir, Meira eða Leikir.
Ef SIM-kort er í símanum velurðu Valm. > Aukakostir >
Sýnikennsla > Grunnaðgerðir eða Meira.
Flýtivísar í biðstöðu
Flettu upp til að opna Símtalaskrá. Flettu niður til að birta nöfn og númer sem vistuð eru í
Tengiliðir.
Flettu til vinstri til að skrifa skilaboð. Flettu til hægri til að opna sýnikennsluna. Haltu * inni til að kveikja á talandi klukku. Ýttu einu sinni á hringitakkann til að birta lista yfir númer
sem hringt hefur verið í. Flettu að nafni eða númeri sem þú vilt hringja í og ýttu á hringitakkann.
18
Tækið tekið í notkun
Takkaborðinu læst
Til að læsa takkaborðinu, og hindra þannig að eitthvað gerist þegar ýtt er óvart á takkana í biðstöðu, velurðu Valm. og ýtir á
*. Takkarnir eru opnaðir með því að velja Úr
lás og ýta á *.
Þegar takkarnir eru læstir getur samt verið hægt að hringja í opinbera neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.
Sláðu inn neyðarnúmerið og ýttu svo á hringitakkann. Ekki er víst að neyðarnúmerið sem var slegið inn birtist á skjánum.
19
Símtöl
2. Símtöl
Símtöl – hringt og svarað
Hringt er á eftirfarandi hátt:
1. Sláðu inn símanúmerið ásamt svæðisnúmerinu ef það er nauðsynlegt. Einnig skal slá inn landsnúmer ef nauðsynlegt er.
2. Ýttu á hringitakkann til að hringja í númerið. Skrunaðu til hægri til að auka hljóðstyrk heyrnar- eða höfuðtólsins meðan á símtali stendur eða til vinstri til að minnka hann.
Stutt er á hringitakkann til að svara símtali. Styðja skal á hætta-takkann til að hafna símtali án þess að svara.
20
Símtöl
Hátalari
Hægt er að velja Hátalari eða Símtól til að nota hátalara eða heyrnartól símans meðan talað er í hann, sé um slíkt að ræða.
Viðvörun: Ekki skal halda tækinu nálægt eyranu þegar hátalarinn er notaður því hljóðstyrkur getur verið mjög mikill.
21
Textaritun
3. Textaritun
Hægt er að slá inn texta á tvo vegu: Með hefðbundinni textaritun sem táknuð er með eða með flýtiritun (innbyggðri orðabók) sem táknuð er með .
Með hefðbundinni textaritun skaltu styðja endurtekið á takkann sem er merktur með þeim staf sem þú vilt fá fram þar til stafurinn birtist.
Kveikt er á flýtiritun við innslátt með því að velja Valkost. >
Orðabók og svo tungumálið. Slökkt er á henni með því að
velja Valkost. > Orðabók óvirk. Notkun flýtiritunar:
1. Sláðu inn orð með því að styðja aðeins einu sinni á hvern takka fyrir hvern staf.
2. Ef orðið sem birtist er það orð sem þú ætlaðir að skrifa skaltu styðja á 0 og byrja að skrifa næsta orð.
Til að velja annað orð skaltu styðja endurtekið á * þar til orðið sem þú vilt fá fram birtist.
22
Textaritun
Ef "?" birtist fyrir aftan orðið er það ekki að finna í orðabókinni. Orðinu er bætt inn í orðabókina með því að velja Stafa, slá inn orðið (með hefðbundinni textaritun) og velja Í lagi.
Ábendingar um ritun texta með hefðbundinni ritun og með flýtiritun:
•Ýttu á0 til að setja inn bil.
• Hægt er að skipta á fljótlegan hátt á milli
textaritunaraðferðanna með því að ýta endurtekið á # og fylgjast með vísinum efst á skjánum.
• Til að setja inn tölustaf skaltu styðja á viðeigandi
tölutakka og halda honum inni.
•Ýttu á* til að fá upp lista yfir sértákn þegar hefðbundin
ritun er notuð; haltu inni * þegar flýtiritun er notuð.
23
Valmyndir símans
4. Valmyndir símans
Veldu Valm. í biðstöðu og síðan viðkomandi valmynd og undirvalmynd. Farið er úr valmynd með því að velja
Hætta eða Til baka. Styddu á hætta-takkann til að fara
beint í biðstöðu. Ekki er öllum aðgerðum eða valkostum lýst hér.
Skilaboð
Skilaboðastillingar
Til að breyta stillingum fyrir textaskilaboð velurðu Valm. >
Skilaboð > Skilaboðastillingar.
Veldu Sendisnið > Númer skilaboða-miðstöðvar til að vista nauðsynleg símanúmer fyrir sendingu texta- og myndskilaboða. Númerið fæst hjá þjónustuveitunni.
Til að velja fulla eða takmarkaða kóðun við sendingu textaskilaboða velurðu Letur-stuðningur (sérþjónusta) >
Fullur stuðn. eða Minni stuðn..
24
Valmyndir símans
Veldu Skimuð númer til að skoða eða breyta lista yfir síuð númer.
Skrifa skilaboð
Tækið styður sendingu á textaboðum sem eru lengri en sem nemur lengdartakmörkunum á stökum skilaboðum. Lengri skilaboð verða send sem tvö eða fleiri skilaboð. Þjónustuveitan tekur hugsanlega gjald í samræmi við það. Stafir sem nota kommur eða önnur tákn og stafir úr sumum tungumálakostum, eins og kínversku, taka meira pláss sem takmarkar þann fjölda stafa sem hægt er að senda í einum skilaboðum.
Fjöldi tiltækra stafa og númer boða í samsettum skilaboðum sést efst til hægri á skjánum, t.d. 917/1.
1. Veldu Valm. > Skilaboð > Skrifa skilaboð.
2. Skrifaðu skilaboðin.
3. Til að senda skilaboðin velurðu Valkost. > Senda, slærð
inn símanúmer viðtakanda og velur Í lagi.
25
Valmyndir símans
Til athugunar: Þegar skilaboð eru send getur
tækið birt orðin Skilaboð send. Þetta er merki um að skilaboðin hafi verið send úr tækinu í þjónustuversnúmerið sem forritað er í tækið. Þetta er ekki sönnun þess að skilaboðin hafi komist á áfangastað. Þjónustuveitan veitir nánari upplýsingar um skilaboðaþjónustu.
Textaskilaboð lesin
Þegar þú móttekur textaboð sést fjöldi nýrra skilaboða ásamt teikninu á skjánum í biðstöðu.
Veldu Sýna til að skoða skilaboðin strax eða Hætta til að skoða skilaboðin síðar í Valm. > Skilaboð > Innhólf.
Drög og Sendir hlutir
Í valmyndinni Drög getur þú skoðað þau skilaboð sem þú vistaðir með valmyndinni Vista skilaboð. Í valmyndinni
Sendir hlutir getur þú skoðað afrit af þeim skilaboðum sem
þú hefur sent.
26
Valmyndir símans
Myndskilaboð
Þú getur móttekið og sent skilaboð sem innihalda myndir (símkerfisþjónusta). Móttekin myndboð eru vistuð í Innhólf. Athugaðu að hver myndboð eru samsett úr nokkrum textaboðum. Þess vegna kann að vera dýrara að senda ein myndboð en ein textaskilaboð.
Til athugunar: Myndboð er eingöngu hægt að nota ef símafyrirtæki eða þjónustuveita styðja aðgerðina. Aðeins samhæf tæki með möguleika á myndboðum geta tekið á móti og birt myndboð. Útlit skilaboða getur verið breytilegt eftir móttökutækinu.
Eyða skilaboðum
Til að eyða öllum lesnum skilaboðum eða öllum skilaboðum í möppu velurðu Valm. > Skilaboð > Eyða skilaboðum >
Öllum lesnum eða möppuna.
27
Valmyndir símans
Tengiliðir
Hægt er að vista nöfn og símanúmer í minni símans og í minni SIM-kortsins. Í innbyggðu símaskránni er hægt að vista allt að 200 nöfn.
Leitað að nafni og símanúmeri
Skrunaðu niður í biðstöðu og sláðu inn fyrstu stafina í nafninu. Skrunaðu að nafninu sem þú vilt velja.
Þú getur einnig notað eftirfarandi valkosti í valmyndinni
Tengiliðir. Bæta við tengilið—til að vista nöfn og símanúmer í
símaskránni
Eyða—til að eyða nöfnum og símanúmerum úr símaskránni,
annað hvort öllum í einu eða einu í einu
Afrita—til að afrita nöfn og símanúmer, annað hvort öll í
einu eða eitt í einu, úr innbyggðu símaskránni yfir í símaskrá SIM-kortsins, eða öfugt.
28
Valmyndir símans
Stillingar fyrir tengiliði
Veldu Valm. > Tengiliðir > Stillingar og úr tiltækum valkostum:
Minni í notkun—Til að velja hvort nöfn og númer eru
vistuð í Sími eða SIM-kort. Þegar þú skiptir um SIM-kort er
SIM-kort minnið valið sjálfkrafa. Sýna tengiliði—Til að velja hvernig nöfn og símanúmer
birtast. Þegar þú skoðar Upplýs. um tengilið með Sýna
tengiliði stillt á Nafnalisti eða Eitt nafn í einu, er nafnið eða
símanúmerið sem vistað er í minni SIM-kortsins táknað með og nafn eða símanúmer sem vistað er í minni símans táknað með .
Staða minnis—Til að sjá hversu mörg nöfn og símanúmer
eru vistuð í símaskránum og hvað hægt er að vista mörg nöfn og símanúmer til viðbótar
Símtalaskrá
Síminn þinn skráir símanúmer ósvaraðra, móttekinna og hringdra símtala, áætlaða lengd þeirra og fjölda sendra og móttekinna skilaboða.
29
Valmyndir símans
Síminn skráir aðeins ósvöruð og móttekin símtöl ef kveikt er á honum, ef hann er innan þjónustusvæðis og ef símkerfið styður þessar aðgerðir.
Teljarar símtala
Til að skoða áætlaða lengd síðasta símtals, allra móttekinna símtala, allra hringdra símtala, eða áætlaða lengd allra símtala, velurðu Valm. > Símtalaskrá > Lengd símtals.
Til að núllstilla teljarana velurðu Núllstilla teljara, slærð inn öryggisnúmerið og velur Í lagi.
Til athugunar: Reikningar þjónustuveitunnar fyrir símtöl og þjónustu kunna að vera breytilegir eftir eiginleikum símkerfisins, sléttun fjárhæða við gerð reikninga, sköttum og öðru slíku.
Stillingar
Í þessari valmynd geturðu breytt ýmsum stillingum í símanum. Ef endurstilla á einhverjar af valmyndastillingunum á sjálfgefin gildi skaltu velja Velja upp-hafsstillingar
30
Valmyndir símans
Tónastillingar
Veldu Valm. > Stillingar > Tónastillingar og úr tiltækum valkostum:
Hringitónn—til að velja tón fyrir móttekin símtöl. Hringistyrkur—til að stilla hljóðstyrk hringitóna og
skilaboðatóna. Ef Hringistyrkur er stilltur á stig 2 eða hærra, þá hringir síminn með hljóðstyrk sem hækkar frá stigi 1 upp í það stig sem valið var fyrir innhringingar.
Titringur—til að láta símann titra þegar einhver hringir í þig
eða sendir þér textaboð
Skilaboðatónn—til að stilla tóninn sem hljómar þegar
textaskilaboð berast
Aðvörunar-tónar—til að velja ýmsa tóna, t.d. til að láta
símann gefa frá sér tón þegar rafhlaðan er að tæmast.
Skjástillingar
Veldu Valm. > Stillingar > Skjástillingar. Til að birta stafrænu klukkuna eða klukkuna með vísum og
öll helstu skjátákn í skjávaranum velurðu Sparnaðar-klukka.
31
Valmyndir símans
Snið
Þú getur breytt sniðum, t.d. látið snið innihalda hringitóna og skjávara.
Veldu Valm. > Stillingar > Snið, þá sniðið sem þú vilt breyta og Sérsníða.
Tímastillingar
Til að fela eða sýna klukkuna, stilla tímann eða breyta tímasniðinu velurðu Valm. > Stillingar > Tímastillingar >
Klukka.
Ef rafhlaðan er fjarlægð úr símanum þarftu ef til vill að slá inn tímann og dagsetninguna aftur.
Símtalsstillingar
Veldu Valm. > Stillingar > Símtalsstillingar. Til að beina mótteknum símtölum í talhólfið eða annað
símanúmer velurðu Símtalsflutningur (sérþjónusta) og svo flutningsvalkostinn. Veldu Virkja til að nota valda flutningsvalkostinn og Hætta við til að slökkva á honum.
32
Valmyndir símans
Veldu Ath. stillingar til að sjá hvort valkosturinn er virkur. Til að velja biðtíma fyrir tiltekna flutningsvalkosti velurðu
Velja biðtíma (þessi valkostur er ekki í boði fyrir alla
flutningsvalkosti). Fleiri en ein flutningsleið getur verið virk á sama tíma. Þegar flutningurinn Flytja öll símtöl er virkur birtist á skjánum í biðstöðu. Til að slökkva á öllum símtalaflutningi skaltu velja H ætta við alla
símtalsflutninga.
Til að birta eða fela símanúmerið fyrir þeim sem þú hringir í velurðu Birta uppl. um mig (sérþjónusta).
Til að láta símann gera allt að 10 tilraunir til að hringja í númer þegar ekki er svarað velurðu Sjálfvirkt endurval.
Til að símkerfið láti þig vita ef reynt er að hringja í þig þegar þú ert að tala í símann velurðu Biðþjónusta símtala (sérþjónusta).
Tungumálastillingar
Tungumál fyrir skjátexta er valið í Valm. > Stillingar >
Símastillingar > Tungumál.
33
Valmyndir símans
Stillingar kostnaðar
Til athugunar: Reikningar þjónustuveitunnar
fyrir símtöl og þjónustu kunna að vera breytilegir eftir eiginleikum símkerfisins, sléttun fjárhæða við gerð reikninga, sköttum og öðru slíku.
Veldu Valm. > Stillingar > Stillingar kostnaðar og svo úr eftirfarandi stillingum:
Fyrirfram greidd inneign (sérþjónusta)—til að skoða
upplýsingar um fyrirfram greidda inneign
Lengd símtals—til að kveikja eða slökkva á skjánum sem
sýnir upplýsingar um tíma símtala
Samantekt símtals—til að kveikja eða slökkva á
tilkynningum um áætlaða lengd símtala
Til athugunar: Þegar inneign á hleðslukorti eða öðru sambærilegu er búin gæti aðeins verið hægt að hringja í opinbera neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.
34
Valmyndir símans
Stillingar fyrir aukahluti
Veldu Valm. > Stillingar > Stillingar fyrir aukahluti >
Höfuðtól eða Hljóðmöskvi.
Til að láta símann svara símtali sjálfkrafa eftir 5 sekúndur velurðu Sjálfvirkt svar.
Táknið fyrir aukahluti verður aðeins sýnilegt eftir að aukahlutur hefur verið tengdur við símann.
Stillingar hægri stýrihnapps
Í biðstöðu er hægt að velja Opna til að fá upp lista yfir flýtivísa. Til að velja eða raða flýtivísa velurðu Valm. >
Stillingar > Stillingar hægri valtakka. Veldu Valmöguleikar
til að velja hvaða aðgerðir fá flýtivísa; veldu Skipuleggja til að raða upp aðgerðum á flýtivísalistanum.
Klukka
Til að stilla tíma vekjarans velurðu Valm. >
Klukka > Stilla klukku. Flettu að Hringing klukku
til að velja tón vekjarans, Endurtekin hrin. til að
35
Valmyndir símans
láta vekjarann aðeins hringja einu sinni, eða að láta hann hringja á tilteknum dögum vikunnar, og Talandi klukka til að láta símann lesa tímann. Þegar vekjarinn hringir skaltu velja
Stöðva til að stöðva hann, eða Blunda til að stöðva hann og
láta hringja aftur eftir tíu mínútur. Ef vekjaraklukkan hefur verið stillt og tíminn rennur upp
á meðan slökkt er á tækinu kveikir það á sér og hringir. Ef valið er Stöðva er spurt hvort opna eigi tækið fyrir símtölum. Veldu Nei til að slökkva á tækinu eða til að hringja og svara símtölum. Ekki velja þegar notkun þráðlausra síma getur valdið truflun eða hættu.
Áminningar
Til að vista stuttar textafærslur með áminningum velurðu Valm. > Áminningar >
Bæta við nýrri. Þegar tími áminningar rennur
upp skaltu velja Hætta til að stöðva áminningartóninn eða
Fresta til að hringt sé aftur eftir tíu mínútur.
36
Valmyndir símans
Aukakostir
Reiknivél
Til athugunar: Nákvæmni reiknivélarinnar er
takmörkuð og hún er ætluð til einfaldra útreikninga.
Veldu Valm. > Aukakostir > Reiknivél.
1. Styddu á takka 0 til 9 til að setja inn tölur og # til
að setja inn tugabrotskommu. Til að breyta tákni innsleginnar tölu skaltu styðja á *.
2. Flettu upp eða niður til að auðkenna +, -, x eða /.
3. Endurtaktu lið 1 og 2 ef þarf.
4. Til að fá fram niðurstöðuna skaltu velja Samtals.
Umreiknari
Þú getur umreiknað mismunandi mælieiningar. Veldu Valm. > Aukakostir > Umreiknari. Til að opna síðustu
fimm umreikninga skaltu velja Síð. 5 umreik. Þú getur einnig notað þær fimm einingar sem er að finna í símanum.
37
Valmyndir símans
Þú getur bætt við þínum eigin umreikningi með Mínir
umreikn..
Hægt er að skruna upp og niður til að skipta um einingar við umreikning.
Tónskáld
Veldu Valm. > Aukakostir > Tónsmiður og tón. Til að búa til þína eigin hringitóna skaltu slá inn nótur. Þú getur t.d stutt á 4 fyrir nótu f. Ýttu á 8 til að stytta (-) og 9 til að lengja (+) nótuna eða hléið. Styddu á 0 til að setja inn hlé, * tilgreindu áttund og # til að gera nótuna skarpa (ekki til staðar fyrir nóturnar e og b).
Þegar tóninn er tilbúinn velurðu Valkost. > Spila, Vista,
Taktu r, Senda, Hreinsa skjá eða Hætta.
Keyrsla forrita í bakgrunni krefst aukinnar rafhlöðuorku og minnkar líftíma rafhlöðunnar.
38
Valmyndir símans
SIM-þjónusta
Vera kann að SIM-kortið bjóði upp á annars konar þjónustu sem þú getur notað. Þessi valmynd birtist eingöngu ef SIM-kortið styður hana. Heiti og efni valmyndarinnar fer eftir SIM-kortinu.
Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
39
Upplýsingar um rafhlöðu
5. Upplýsingar um rafhlöðu
Hleðsla og afhleðsla
Tækið gengur fyrir endurhlaðanlegri rafhlöðu. Ný rafhlaða nær ekki fullum afköstum fyrr en hún hefur verið hlaðin og afhlaðin tvisvar til þrisvar sinnum. Hægt er að hlaða og afhlaða rafhlöðu nokkur hundruð sinnum en að því kemur að hún gengur úr sér. Þegar tal- og biðtími er orðinn mun styttri en eðlilegt er skal skipta um rafhlöðu. Aðeins skal nota rafhlöður sem samþykktar eru af Nokia og aðeins skal endurhlaða rafhlöðu með hleðslutækjum sem Nokia hefur samþykkt til notkunar með þessu tæki.
Ef verið er að nota vararafhlöðu í fyrsta skipti eða ef rafhlaðan hefur ekki verið notuð í langan tíma kann að vera nauðsynlegt að tengja hleðslutækið og aftengja það síðan og tengja aftur til að hefja hleðsluna.
Taka skal hleðslutækið úr sambandi við rafmagnsinnstungu og tækið þegar það er ekki í notkun. Ekki má hafa fullhlaðna rafhlöðnu í sambandi við hleðslutæki þar sem ofhleðsla
40
Upplýsingar um rafhlöðu
getur stytt líftíma hennar. Fullhlaðin rafhlaða tapar hleðslunni smátt og smátt ef hún er ekki í notkun.
Ef rafhlaða er alveg tæmd geta liðið nokkrar mínútur þar til hleðsluvísirinn birtist á skjánum eða þar til hægt er að hringja.
Aðeins skal nota rafhlöðuna til þess sem hún er ætluð. Aldrei skal nota skemmt hleðslutæki eða rafhlöðu.
Gæta skal þess að valda ekki skammhlaupi í rafhlöðunni. Skammhlaup getur orðið fyrir slysni þegar málmhlutur, svo sem mynt, bréfaklemma eða penni veldur beinni tengingu milli plús (+) og mínus (-) skautanna á rafhlöðunni. (Þau líta út eins og málmrendur á rafhlöðunni.) Til dæmis getur þetta gerst þegar vararafhlaða er höfð í vasa eða tösku. Skammhlaup milli skautanna getur valdið skemmdum á rafhlöðunni eða hlutnum sem veldur tengingunni.
Ef rafhlaðan er skilin eftir í miklum hitum eða kuldum, til dæmis í lokuðum bíl að sumar- eða vetrarlagi, dregur það úr afkastagetu hennar og endingu. Æskilegast er að rafhlaðan sé alltaf höfð í hita á bilinu frá 15°C að 25°C (frá 59°F að 77°F). Tæki með of heitri eða of kaldri rafhlöðu
41
Upplýsingar um rafhlöðu
getur orðið óvirkt um tíma, þó svo að rafhlaðan sé fullhlaðin. Einkum hefur mikið frost takmarkandi áhrif á rafhlöður.
Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar sem þær geta sprungið. Rafhlöður geta einnig sprungið ef þær skemmast. Farga skal rafhlöðum í samræmi við staðbundin lög og reglugerðir. Skila skal þeim í endurvinnslu þegar mögulegt er. Ekki skal fleygja þeim með heimilisúrgangi.
Leiðbeiningar um sannprófun á rafhlöðum frá Nokia
Notaðu alltaf rafhlöður frá Nokia til að tryggja öryggi þitt. Til að tryggja að þú fáir rafhlöður frá Nokia skaltu kaupa þær hjá viðurkenndum söluaðila Nokia, ganga úr skugga um að 'Nokia Original Enhancements' táknið sé á umbúðunum og skoða heilmyndarmiðann á eftirfarandi hátt:
Þó svo að þessum fjórum skrefum sé fylgt nákvæmlega er það ekki fullkomin trygging fyrir því að rafhlaðan sé sannvottuð. Ef þú hefur minnstu ástæðu til að ætla að rafhlaðan þín sé ekki ósvikin Nokia rafhlaða skaltu ekki nota
42
Upplýsingar um rafhlöðu
hana heldur fara með hana til viðurkennds þjónustu- eða söluaðila Nokia. Viðurkenndir þjónustu- og söluaðilar Nokia kanna sannvottun rafhlöðunnar. Ef ekki er hægt að staðfesta sannvottunina skaltu skila rafhlöðunni til verslunarinnar þar sem þú keyptir hana.
Sannvottun heilmyndar
1. Þegar þú horfir á heilmyndina á miðanum ættirðu að sjá Nokia-handabandstáknið frá einu sjónarhorni og 'Nokia Original Enhancements' táknið frá öðru.
2. Þegar þú snýrð heilmyndinni til vinstri, hægri, upp eða niður ættirðu að sjá 1, 2, 3, eða 4 punkta, allt eftir staðsetningu hennar.
43
Upplýsingar um rafhlöðu
3. Skafðu hliðina á miðanum og þá á að koma í ljós 20-stafa tala, t.d. 12345678919876543210. Snúðu rafhlöðunni þannig að tölurnar vísi upp. 20 stafa talan byrjar í efri röðinni og heldur áfram í neðri röðinni.
4. Fáðu staðfestingu á því að 20 stafa talan sé gild með því að fylgja leiðbeiningunum á www.nokia.com/batterycheck.
Hægt er að senda staðfestingarbeiðni í textaboðum með því að slá inn 20-stafa töluna, t.d 12345678919876543210, og senda á númerið +44 7786 200276.
Gjaldskrá innlendra og erlendra símafyrirtækja gildir. Þá áttu að fá skilaboð sem segja til um hvort hægt er að
sannvotta töluna eða ekki.
44
Upplýsingar um rafhlöðu
Hvað ef rafhlaðan er ekki ósvikin?
Ef þú getur ekki staðfest að Nokia-rafhlaðan með heilmyndinni á miðanum sé ósvikin Nokia-rafhlaða skaltu ekki nota rafhlöðuna. Farðu með hana til næsta viðurkennda þjónustuaðila eða sölustaðar Nokia til að fá aðstoð. Notkun rafhlaða sem eru ekki samþykktar af framleiðanda getur verið hættuleg. Hún getur jafnframt leitt til þess að tækið og aukahlutir þess virki ekki sem skyldi eða skemmist. Notkun þeirra kann jafnframt að ógilda allar þær samþykktir eða ábyrgðir sem eiga við tækið.
Nánari upplýsingar um ósviknar Nokia rafhlöður er að finna á www.nokia.com/battery.
45
Aukahlutir
6. Aukahlutir
Nokkur holl ráð varðandi fylgibúnað og aukahluti:
• Alla aukahluti og fylgibúnað skal geyma þar sem lítil börn ná ekki til.
• Þegar aukahlutur eða fylgibúnaður er tekinn úr sambandi skal taka í klóna, ekki leiðsluna.
• Athuga skal reglulega hvort aukahlutir fyrir bíla séu vel festir og vinni rétt.
• Uppsetningu flókinna aukahluta í bíla skal fela fagmönnum.
46
Umhirða og viðhald
Umhirða og viðhald
Í tækinu fer saman frábær hönnun og flókin tækni sem fara þarf gætilega með. Eftirfarandi leiðbeiningar hjálpa til við að halda tækinu í ábyrgð.
• Halda skal tækinu þurru. Úrkoma, raki og hvers kyns
vökvar geta innihaldið steinefni sem tæra rafrásirnar. Ef tækið blotnar skal fjarlægja rafhlöðuna og leyfa því að þorna alveg áður en rafhlaða er sett í aftur.
• Ekki skal nota tækið á rykugum og óhreinum stöðum né
geyma það þar. Færanlegu hlutirnir og rafrænir hlutar þess geta skemmst.
• Ekki skal geyma tækið á heitum stað. Hátt hitastig getur
dregið úr endingu rafeindatækja, skemmt rafhlöður og undið eða brætt sum plastefni.
• Ekki skal geyma tækið á köldum stað. Þegar tækið hitnar
upp að eðlilegu hitastigi getur raki myndast innan í því og hann getur skemmt rafrásaspjöld.
• Ekki skal reyna að opna símann öðruvísi en tilgreint er í
þessari handbók.
47
Umhirða og viðhald
• Tækinu skal ekki henda, ekki skal banka í það eða hrista það. Óvarleg meðferð getur skemmt innri rafrásarspjöld og fíngerðan búnað.
• Ekki skal nota sterk efni, leysiefni til hreingerninga eða sterk hreinsiefni til þess að þrífa tækið.
• Ekki skal mála tækið. Málningin getur fest hreyfanlega hluti tækisins og komið í veg fyrir að þeir vinni rétt.
• Aðeins skal nota loftnetið sem fylgir með símanum eða samþykkt varaloftnet. Ósamþykkt loftnet, breytingar á þeim eða viðbætur, gætu skemmt tækið og kunna að brjóta í bága við ákvæði laga og reglugerða um senditæki.
• Nota skal hleðslutæki innandyra.
• Alltaf skal taka öryggisafrit af gögnum sem á að geyma (eins og tengiliðum og dagbókaratriðum) áður en tækið er sent til þjónustuaðila.
Allar ofangreindar ábendingar eiga jafnt við tækið, rafhlöðuna, hleðslutækið eða aðra aukahluti. Ef tæki vinnur ekki rétt skal fara með það til næsta viðurkennda þjónustuaðila til lagfæringar.
48
Viðbótaröryggisupplýsingar
Viðbótaröryggisupplýsingar
Í tækinu og aukahlutum þess geta verið litlir hlutir. Þá skal geyma þar sem lítil börn ná ekki til.
Vinnuumhverfi
Hafa ber í huga að farið sé að öllum sérstökum reglugerðum sem gilda á hverju svæði og að slökkva alltaf á tækinu þar sem notkun þess er bönnuð, eða þar sem hún kann að valda truflun eða hættu. Tækið notist aðeins í hefðbundinni stöðu. Þetta tæki uppfyllir skilyrði um leyfileg mörk útvarpsbylgna (RF) við notkun annaðhvort í hefðbundinni stöðu við eyrað eða þegar það er haft að minnsta kosti 1,5 sentímetra (0,6 tommur) frá líkamanum. Ef taska, beltisklemma eða hald er notað þegar tækið er borið á líkamanum við notkun ætti slíkur búnaður ekki að innihalda málm og halda ætti tækinu að minnsta kosti í þeirri fjarlægð frá líkamanum sem nefnd var hér á undan.
Svo að hægt sé að senda gagnaskrár eða boð þarf þetta tæki góða tengingu við símkerfið. Í sumum tilvikum getur
49
Viðbótaröryggisupplýsingar
sending gagna eða boða tafist þar til slík tenging er tiltæk. Tryggja skal að ofangreindum fjarlægðarfyrirmælum sé fylgt þar til sendingu er lokið.
Hlutar tækisins eru segulmagnaðir. Málmefni gætu dregist að tækinu. Ekki má geyma kreditkort eða aðra segulmagnaða hluti með geymsluminni nálægt tækinu því upplýsingar sem þar eru geymdar gætu þurrkast út.
Lækningatæki
Notkun búnaðar sem sendir frá sér útvarpsbylgjur, þar með talin notkun þráðlausra síma, kann að trufla virkni lækningatækja sem ekki eru nægilega vel varin. Hafa skal samband við lækni eða framleiðanda lækningatækisins til þess að komast að því hvort það sé nægilega vel varið fyrir utanaðkomandi útvarpsbylgjum eða til að afla nánari upplýsinga. Slökkva skal á tækinu í námunda við heilsugæslustöðvar ef auglýstar reglur þess efnis kveða á um að það sé gert. Sjúkrastofnanir eða heilsugæslustöðvar kunna að nota búnað sem getur verið næmur fyrir utanaðkomandi útvarpsbylgjum.
50
Viðbótaröryggisupplýsingar
Gangráðar
Framleiðendur gangráða mæla með því að 15,3 sm (6 tommu) lágmarksbil sé haft á milli þráðlauss síma og gangráðs til þess að komist sé hjá hugsanlegri truflun í gangráðinum. Þessi tilmæli eru í samræmi við sjálfstæða rannsókn og tilmæli frá Wireless Technology Research. Notendur gangráða ættu:
• halda alltaf tækinu í meira en 15,3 sm (6 tommu)
fjarlægð frá gangráðinum;
• ganga ekki með tækið í brjóstvasa;
• hafa tækið við eyrað sem er fjær gangráðinum til að
draga úr líkum á truflunum.
Ef grunur leikur á að tækið trufli gangráðinn skal slökkva á því og færa það í burtu.
Heyrnartæki
Tiltekin stafræn þráðlaus tæki geta truflað sum heyrnartæki. Ef truflun verður skal leita til þjónustuaðila.
51
Viðbótaröryggisupplýsingar
Ökutæki
Útvarpsbylgjur kunna að hafa áhrif á rafeindakerfi í vélknúnum ökutækjum, séu þau ekki rétt upp sett eða ekki nægilega varin, svo sem rafeindastýrða eldsneytisgjöf, rafeindastýrð hemlakerfi (með læsivörn), rafeindastýrð hraðakerfi og loftpúðakerfi. Nánari upplýsingar má fá hjá framleiðanda bílsins eða búnaðarins sem bætt hefur verið við eða fulltrúa hans.
Aðeins á að fela fagmönnum að gera við tækið eða setja tækið upp í ökutæki. Gölluð uppsetning eða viðgerð kann að valda hættu og ógilda hvers kyns ábyrgð sem kann að vera á tækinu. Ganga skal reglulega úr skugga um að allur þráðlaus tækjabúnaður í ökutækinu sé rétt uppsettur og vinni rétt. Ekki má geyma eða flytja eldfima vökva, lofttegundir eða sprengifim efni í sama rými og tækið, hluta úr því eða aukahluti með því. Ef ökutæki er búið loftpúða skal hafa hugfast að loftpúðar blásast út af miklum krafti. Ekki má setja hluti, þar með talinn uppsettan eða færanlegan þráðlausan búnað, á svæðið yfir loftpúðanum eða á útþenslusvið loftpúðans. Ef -þráðlaus búnaður í bíl er illa settur upp og loftpúðinn þenst út getur slíkt orsakað alvarleg meiðsl.
52
Viðbótaröryggisupplýsingar
Notkun tækisins meðan á flugi stendur er bönnuð. Slökkva skal á tækinu áður en gengið er um borð í flugvél. Notkun þráðlausra fjarskiptatækja í flugvél getur skapað hættu við stjórn flugvélarinnar, rofið þráðlaust símasamband og verið ólöglegt.
Sprengifimt umhverfi
Slökkva skal á tækinu á svæðum þar sem hætta er á sprengingum og fara að öllum tilmælum sem sjást á skiltum og leiðbeiningum. Sprengifimt andrúmsloft telst vera á svæðum þar sem yfirleitt er beðið um að drepið sé á vél bifreiðar. Neistaflug á slíkum svæðum getur valdið sprengingu eða eldi og haft í för með sér slys og jafnvel dauðsföll. Slökkva skal á símanum á eldsneytisstöðvum, svo sem við eldsneytisdælur á bensínstöðvum. Virða skal takmarkanir á notkun útvarpsbúnaðar í eldsneytisgeymslum, svæðum þar sem geymsla og dreifing eldsneytis fer fram, efnaverksmiðjum eða þar sem verið er að sprengja. Svæði þar sem sprengihætta er mikil eru oftast auðkennd en þó ekki alltaf. Þar á meðal eru svæði undir þilfari á bátum; svæði þar sem sterk efni eru geymd eða búin
53
Viðbótaröryggisupplýsingar
til flutnings; ökutæki sem nýta fljótandi svartolíugas (própan eða bútan) og svæði þar sem í lofti eru efni eða agnir, til dæmis korn, ryk eða málmduft.
Neyðarhringingar
Mikilvægt: Þráðlausir símar, þar á meðal þetta tæki, nota útvarpsmerki, þráðlaus kerfi, kapalkerfi og notendaforritaðar aðgerðir. Því er ekki hægt að tryggja tengingar við hvaða skilyrði sem er. Því skyldi aldrei treysta eingöngu á þráðlaust tæki ef um er að ræða bráðnauðsynleg fjarskipti, t.d. í bráðatilvikum.
Neyðarsímtal:
1. Ef slökkt er á tækinu skal kveikja á því. Athuga skal hvort nægilegur sendistyrkur sé fyrir hendi.
Í tilteknum símkerfum kann að vera farið fram á að gilt SIM-kort sé rétt sett í tækið.
2. Ýttu eins oft á endatakkann til að hreinsa skjáinn og gera tækið reiðubúið fyrir símtöl.
54
Viðbótaröryggisupplýsingar
3. Opinbera neyðarnúmerið fyrir viðkomandi svæði er
valið. Neyðarnúmer eru breytileg eftir stöðum.
4. Styddu á hringitakkann. Ef ákveðnar aðgerðir eru í notkun þarf ef til vill að gera þær
óvirkar áður en neyðarsímtal er mögulegt. Nánari upplýsingar má fá í þessari handbók eða hjá þjónustuveitunni.
Í neyðarsímtali þarf að gefa upp allar nauðsynlegar upplýsingar eins nákvæmlega og kostur er. Þráðlausa tækið getur verið eina samskiptatækið á slysstað. Ekki má slíta símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.
Upplýsingar um vottun (SAR)
ÞETTA ÞRÁÐLAUSA TÆKI UPPFYLLIR LEIÐBEININGAR UM ÁHRIF AF ÚTVARPSBYLGJUM.
Þráðlausa tækið er útvarpssendir og móttökutæki. Það er hannað með tilliti til leyfilegra marka um áhrif af útvarpsbylgjum sem alþjóðlegar viðmiðunarreglur mæla með. Þessar viðmiðunarreglur voru þróaðar af óháðu vísindastofnuninni ICNIRP og innihalda öryggismörk sem ætlað er að tryggja öryggi allra, óháð aldri og heilsufari.
55
Viðbótaröryggisupplýsingar
Í viðmiðunarreglum um útvarpsbylgjur úr þráðlausum tækjum er notuð mælieiningin SAR (Specific Absorption Rate). Efri mörk SAR, samkvæmt leiðbeiningum ICNIRP, eru 2,0 vött/kílógramm (W/kg) á hver 10 grömm af líkamsvef. Mælingar á SAR eru gerðar í hefðbundnum stöðum þegar tækið sendir af mesta leyfða styrk á öllum mældum tíðnisviðum. Raunverulegur SAR-styrkur tækis í notkun getur verið lægri en hámarksgildið, þar sem tækið er hannað til að nota aðeins þann styrk sem þarf til að ná sambandi við símkerfið. Fjöldi þátta hafa áhrif á styrkinn, t.d. hversu langt notandinn er frá grunnstöð. Samkvæmt viðmiðunarreglum ICNIRP er hæsta SAR-gildi fyrir notkun tækisins við eyra 0,78 W/kg.
Notkun aukabúnaðar getur valdið því að SAR-gildið verði annað. SAR-gildi kunna að vera breytileg milli landa sökum mismunandi upplýsingaskyldu, krafna og tíðnisviðs. Viðbótarupplýsingar um SAR má finna í upplýsingum um vörur á www.nokia.com
56
Loading...