Lenovo TAB4 8 Plus User Guide [is]

Page 1
Lenovo TAB4 8 Plus
Notendahandbók
Lenovo TB-8704F Lenovo TB-8704X
Allar upplýsingar merktar með * í þessum leiðarvísi eiga aðeins við um WLAN+LTE gerðina (Lenovo TB-8704X).
Page 2

Grunnatriði

Gætið þess að lesa eftirfarandi áður en þessar upplýsingar og varan sem þær eiga við um eru notaðar:
Öryggi, ábyrgð og stutt notendahandbók Tilkynning varðandi regluverk
„Mikilvægar upplýsingar varðandi öryggi og meðhöndlun“ í „Viðauka“. Öryggi, ábyrgð og stuttri notendahandbók og Tilkynningu varðandi regluverk hefur verið hlaðið upp á vefsíðu á http://support.lenovo.com.
Athugaðu: Allar myndir og teikningar í þessu skjali eru eingöngu til viðmiðunar og geta verið frábrugðnar endanlegri útgáfu vörunnar.
Lenovo Help
Ertu að leita að aðstoð? Forritið Lenovo Help er þér innan handar til að aðstoða við að fá beinan aðgang að stoðþjónustu Lenovo á netinu og að spjallsvæðum*, algengum spurningum og svörum*, kerfisuppfærslum*, aðgerðarprófum vélbúnaðar, könnun á stöðu ábyrgðar*, þjónustubeiðnum** og stöðu viðgerða**.
Athugaðu: * krefst aðgangs að gagnaneti. ** er ekki í boði í öllum löndum.
Þetta forrit er hægt að nálgast með tvennum hætti:
Leitaðu að forritinu í Google Play og sæktu það þangað.
Skannaðu eftirfarandi QR-kóða með Lenovo Android-tæki.
Tæknilýsingar
Gerð Lenovo TB-8704F Lenovo TB-8704X
Örgjörvi Qualcomm®Snapdragon™625 Qualcomm®Snapdragon™625
Rafhlaða 4850 mAh 4850 mAh
Þráðlaus
Bluetooth 4.2; WLAN 802.11 a/b/g/n/ac;
samskipti
GPS/GLONASS
Athugaðu: Lenovo TB-8704X styður LTE-svið 1,2,3,4,5,7,8,20,38,40, en í sumum löndum er LTE þó ekki stutt. Hafðu samband við þjónustuaðila þinn til að kanna hvort tækið
Bluetooth 4.2; WLAN 802.11 a/b/g/n/ac; GPS/A-GPS/GLONASS; FDD-LTE/TDD-LTE/UMTS/GSM
Page 3
virkar með LTE-netkerfi í þínu landi.
Heimaskjár
Heimaskjárinn er upphafsstaðurinn við notkun á tækinu þínu. Þér til þæginda hefur heimaskjárinn þegar verið settur upp með nokkrum notadrjúgum forritum og græjum.
Athugaðu: Atriði tækisins þíns og heimaskjár geta verið mismunandi eftir staðsetningu, tungumáli, símafélagi og gerð búnaðar.
Þú getur sérsniðið þinn eigin heimaskjá hvenær sem er.
Heimaskjár
Á fyrsta heimaskjánum er leitarstika Google og nokkur gagnleg forrit.
Forskoðunarskjár
Haltu fingri einhvers staðar á heimaskjánum nema á táknunum.
Neðst á skjánum eru VEGGFÓÐUR og GRÆJUR.
Bæta græju við heimaskjá
Pikkaðu á
færðu hana síðan þangað sem þú vilt hafa hana og slepptu.
Skipt um veggfóður
Haltu fingri einhvers staðar á heimaskjánum nema á táknunum, veldu VEGGFÓÐUR neðst á
skjánum og veldu síðan æskilegt veggfóður.
Farðu í
Forrit fært yfir á annan skjá
Haltu fingri á forritinu sem þú vilt færa, dragðu það þangað sem þú vilt setja það og slepptu
svo.
Forrit fjarlægt
neðst á forskoðunarskjánum, haltu fingri á þeirri græju sem þú vilt bæta við,
> Stillingar > Skjár > Veggfóður og veldu veggfóður.
1. Pikkaðu á
2. Dragðu að
Athugaðu: Ekki er hægt að fjarlægja sum kerfisforrit.
og haltu inni forritinu sem þú vilt fjarlægja.
, slepptu síðan og pikkaðu á Í lagi.
Skjáhnappar
Það eru þrír hnappar neðst á skjánum.
Bakkhnappur: Pikkaðu á til að fara til baka í fyrri síðu.
Page 4
Heimahnappur: Pikkaðu á til að fara til baka í sjálfvalinn heimaskjá.
Hnappur fyrir nýlegt: Pikkaðu á til að skoða nýleg forrit. Því næst geturðu gert
eftirfarandi:
Pikkaðu á forrit til að opna það.
Pikkaðu á til að læsa eða pikkaðu á til að opna það. Renndu forritsglugga til hægri eða vinstri til að loka honum.
Pikkaðu á til að stöðva keyrslu á forritinu.
Pikkaðu á til að stöðva keyrslu á öllum forritum.
Tilkynningar og flýtistillingar
Tilkynningarspjaldið upplýsir þig um ný skilaboð, USB-tengingu og starfsemi í gangi, eins og að sækja skrá. Hraðvirka stillingarspjaldið leyfir þér að opna mikið notaðar stillingar eins og WLAN-rofa.
Þú getur gert eitthvað af eftirfarandi:
Strjúktu yfir skjáinn ofan frá til að sjá tilkynningar.
Strjúktu neðan frá og upp skjáinn til að loka tilkynningarspjaldinu.
Strjúktu frá vinstri eða hægri yfir tilkynningu til að hunsa hana.
Pikkaðu á HREINSA ALLT neðst á tilkynningaskjánum til að hafna öllum tilkynningum.
Strjúktu tvisvar ofan frá og niður skjáinn til að opna flýtistillingaskjáinn.
Strjúktu neðan frá og upp til að loka flýtistillingaskjánum.
Þvinguð lokun/endurræsing
Haltu hnappinum til að kveikja/slökkva inni í um það bil 8 sekúndur þar til tækið slekkur á sér og haltu hnappinum til að kveikja/slökkva inni í um það bil 10 sekúndur til að endurræsa.
Page 5

Stilling fyrir skiptan skjá

Stilling fyrir skiptan skjá notuð
Aðferð 1
1. Opnaðu forrit og pikkaðu svo á
2. Haltu fingri á fyrra forritinu, dragðu það á „Dragðu hingað til að skipta skjánum“ og
slepptu svo. Þetta forrit verður fest á sínum stað.
3. Pikkaðu á
fyrir skiptan skjá.
Aðferð 2
1. Opnaðu forrit og haltu svo fingri á
2. Pikkaðu á
fyrir skiptan skjá.
Athugaðu: Ekki er hægt að nota öll forrit í stillingu fyrir skiptan skjá.
> , veldu hitt forritið sem þú vilt opna og þá birtast forritin tvö í stillingu
> og veldu hitt forritið sem þú vilt opna. Forritin tvö birtast þá í stillingu
.
. Þetta forrit verður fest á sínum stað.
Stillingar fyrir skiptan skjá
Í stillingu fyrir skiptan skjá geturðu gert eftirfarandi:
Síðara forriti skipt út
Pikkaðu á
Stærð skipta skjásins stillt
Renndu „
til að velja annað forrit.
“ á milli skjáanna tveggja til að stilla stærð skipta skjásins.
Hætt í stillingu fyrir skiptan skjá
Þú getur hætt í stillingu fyrir skiptan skjá með því að:
Velja forrit sem styður ekki stillingu fyrir skiptan skjá.
Halda fingri á til að fara í stillingu fyrir allan skjáinn.
Page 6

Margir notendur

Margir notendur
Þrjár gerðir notenda eru til:
Eigandi:Eigandi hefur fulla stjórn á öllum notendaheimildum og stjórnar öllum
notendareikningum.
Gestur: Það er aðeins einn gestareikningur. Gestur hefur takmarkaðan aðgang að tækinu.
Til dæmis getur gestur ekki opnað óþekktan uppruna.
Nýr notandi: Hægt er að vera með marga notendareikninga, þ.m.t. reikninga fyrir venjulega
notendur og notendur á barnsaldri. Venjulegur notandi getur stjórnað reikningum notenda á
barnsaldri. Á reikningum notenda á barnsaldri eru mörg barnvæn forrit í boði, þ.m.t.
myndskeið, leikir og tónlist, auk þess sem hægt er að hafa umsjón með öðru efni gegnum
Parental Control.
Nýir notendareikningar stofnaðir
Pikkaðu á > Stillingar > Users > ADD USER til að stofna notendareikninga.
Pikkaðu á > CONTINUE til að stofna venjulegan notandareikning.
Pikkaðu á > CONTINUE til að stofna notanda á barnsaldri. Þú getur líka pikkað á á
fyrsta heimaskjánum til að stofna notanda á barnsaldri.
Athugaðu Áður en þú bætir við reikningi fyrir notanda á barnsaldri þarftu að setja
upp skjálás til að verja forritin þín og persónugögn.
Skipt á milli notendareikninga
Strjúktu yfir heimaskjáinn ofan frá og pikkaðu svo á notendamyndir til að skipta á milli
mismunandi notendareikninga.
Page 7
Á viðmóti lásskjásins geturðu valið notendamyndir reikninga sem þú vilt skipta í og rennt
svo upp til að skipta yfir í viðkomandi notandareikning.
Notandareikningi eytt
Pikkaðu á > Stillingar > Users, pikkaðu á táknið við hliðina á reikningnum sem þú vilt eyða og pikkaðu svo á DELETE USER > DELETE.
Page 8

Fingrafar

Mismunandi notendur geta stillt fingraför þannig að þau opni spjaldtölvuna eða skipti snögglega yfir á þeirra eigið notendaviðmót.
Fingrafari bætt við
Þú getur bætt við fleiri en einu fingrafari.
Farðu í
Athugaðu: Til að nota aðgerðir tengdar fingrafari þarf að setja upp mynstur fyrir lásskjá, PIN-númer eða aðgangsorð. Aðrir notendur geta einnig stillt sín eigin fingraför með aðgerðinni að ofan. Skjálás er stilltur í Stillingar > Öryggi > Skjálás.
> Stillingar > Öryggi > Fingrafar og fylgdu leiðbeiningunum á skjánum.
Fingrafari bætt við fyrir barn
Skiptu yfir á notandareikning barnsins. Strjúktu niður heimaskjáinn ofan frá.
Page 9
Pikkaðu á fingrafari við.
> Öryggi > Fingrafar og fylgdu leiðbeiningunum á skjánum til að bæta
Eyða fingrafari
Opnaðu > Stillingar > Öryggi > Fingrafar.
Staðfestu skjálássmynstrið eða sláðu inn PIN-númer eða aðgangsorð.
Pikkaðu á fingrafarið sem þú vilt eyða, pikkaðu á EYÐA og pikkaðu síðan á JÁ,
FJARLÆGJA.
Athugaðu: Aðrir notendur geta eytt fingraförum með aðgerðinni að ofan.
Page 10

Myndavél

Til að opna myndavélarforritið ferðu í Myndavél.
Taka myndir og myndskeið
Þú getur tekið myndir og myndskeið með innbyggðri myndavél í tækinu.
Pikkaðu á til að taka mynd.
Pikkaðu á til að taka upp myndskeið.
Pikkaðu á til að breyta yfir í víðmyndastillingu.
Pikkaðu á / til að skipta á milli fremri og aftari myndavélar.
Pikkaðu á / til að opna eða loka HDR.
Pikkaðu á til að skipta á milli flassstillinga.
Pikkaðu á til að grunnstilla aðrar myndavélastillingar.
Taka skjámyndir
Page 11
Haltu samtímis inni aflhnappi og takkanum lækkun hljóðstyrks.
Skoða myndir og myndskeið
Myndir og myndskeið eru vistuð í innri geymslu tækisins. Hægt er að skoða myndir og myndskeið með því að nota eftirfarandi aðferðir:
Pikkaðu á smámyndina þegar þú notar forritið fyrir myndavél.
Farðu í Myndir.
Farðu í Skráastjórnun.
Skjámyndir eru vistaðar í innri geymslu tækisins. Þú getur skoðað skjámyndirnar með því að nota eftirfarandi aðferðir:
Farðu í Myndir.
Farðu í Skráastjórnun.
Page 12

Netkerfi

Þú verður að setja upp þráðlaust netkerfi áður en þú tengist internetinu.
Uppsetning á WLAN-netkerfi.
*Uppsetning á farsímakerfi.
Uppsetning á VPN-neti.
Þú getur einnig samnýtt farsímanetkerfið þitt með öðrum.
*Uppsetning á heitum reit.
Uppsetning á WLAN-netkerfi
Farðu í > Stillingar > WLAN. Kveiktu á WLAN-rofanum og pikkaðu á heitan WLAN-reit á listanum til að tengjast internetinu. Þegar þú ert að tengjast öruggu netkerfi þarft þú að skrá notandanafn og lykilorð til að tengjast.
Setja upp farsímanetkerfi
Farðu í > Stillingar > Gagnanotkun.
Athugaðu: Þú þarft að hafa gilt SIM-kort með gagnaþjónustu. Ef þú ert ekki með SIM-kort hefurðu samband við þjónustuaðila þinn.
Uppsetning á VPN-neti
VPN-net eru notuð innan fyrirtækja og stofnana til að hægt sé að senda trúnaðarupplýsingar á öruggan hátt gegnum opin net. Þú gætir þurft að setja upp VPN-net til dæmis til að komast í tölvupóstinn þinn í vinnunni. Spyrðu stjórnanda netkerfisins um stillingar sem eru nauðsynlegar til að stilla VPN-net fyrir þitt netkerfi.
Farðu í > Stillingar > Meira > VPN-net.
Pikkaðu á til að breyta VPN-uppsetningu, þar á meðal heiti, tegund og vistfangi þjóns,
og pikkaðu síðan á VISTA.
Pikkaðu á heiti VPN-netþjóns, sláðu inn notandanafn og aðgangsorð og pikkaðu síðan á
TENGJAST til að tengjast VPN-netinu.
Pikkaðu á til að breyta eða eyða VPN-neti.
Athugaðu: Þú þarft að stilla mynstur, PIN-númer eða aðgangsorð fyrir lásskjáinn áður en þú notar VPN-net. Farðu í Stillingar > Öryggi > Skjálás til að velja valkost skjáláss og setja upp skjálásinn.
*Uppsetning á heitum reit
Þú getur notað persónulegan heitan reit til að deila internettengingu með tölvu eða öðru tæki.
Farðu í
Kveiktu á Færanlegur heitur WLAN-reitur.
> Stillingar > Meira > Tjóðrun og færanlegur heitur reitur og gerðu eftirfarandi:
Page 13
Pikkaðu á Setja upp heitan WLAN-reit til að stilla heita reitinn. Þú getur einnig notað Bluetooth-tjóðrun eða USB-tjóðrun.
Athugaðu: Segðu vinum þínum frá heiti netkerfisins og aðgangsorði og þeir geta samnýtt þitt farsímanet.
Page 14

Internet

Þú getur flett upp á vefnum ef tækið er tengt þráðlausu neti eða farsímaneti. Til að opna vafraforrit skaltu fara í Chrome.
Vefsvæði heimsótt
Þú getur notað Chrome-forritið til að heimsækja vefsíður.
Sláðu inn veffang
Þú þarft ekki að slá inn fullt veffang á „http://“-vefsvæði til að opna það.
Til að fara á „http://www.lenovo.com“ slærðu einfaldlega „www.lenovo.com“ inn í
veffangastikuna og pikkar á Opna.
Leitarorð
Þú getur einnig slegið leitarorð inn í veffangastikuna til að leita að vefsíðum.
Þú getur stillt leitarvél í > Stillingar > Leitarvél.
Bæta við nýrri vefsíðu
Pikkaðu á
Pikkaðu á
Loka vefsíðu
Pikkaðu á
Endurnýja vefsíðu
Pikkaðu á
Pikkaðu á
Pikkaðu á
> Nýr flipi til að bæta við nýjum vefsíðuflipa.
> Nýr huliðsflipi til að heimsækja vefsíðu án þess að skilja eftir slóð.
til að loka vefsíðuflipa.
til að endurnýja vefsíðu. til að fara aftur á fyrri vefsíðu. til að fara áfram á nýlega vefsíðu.
Vista vefsíður
Page 15
Þú getur vistað myndir og vefsíður í innra minni tækisins þíns.
Vista myndir
Haltu fingri á myndinni og pikkaðu síðan á Download image.
Bókarmerkja vefsíður
Pikkaðu á
Pikkaðu á
til að bæta vefsíðu í Bókamerki.
> Bókamerki til að skoða bókamerki.
Stilla aðgengisvalkosti
Pikkaðu á > Stillingar > Aðgengi til að stilla textastærð og stækka/minnka vefsíðu.
Page 16

Gmail

Hægt er að senda og taka við tölvupósti ef tækið þitt er tengt við þráðlaust net. Til að opna forritið Gmail skaltu fara í Gmail.
Setja upp Gmail-reikning
Þú getur skráð þig inn í Gmail ef þú ert með Gmail-reikning. Ef ekki þarftu að stofna Gmail­reikning. Þú getur líka skráð þig inn á tölvupóstreikninga frá öðrum fyrirtækjum.
Notkun á Gmail
Eftir að Gmail-reikningur er settur upp geturðu notað Gmail-forritið til að senda og taka á móti tölvupósti.
Page 17

Kort

Þú þarft að velja eftirfarandi stillingar áður en þú notar Kort.
Farðu í
> Stillingar > Staðsetning og gerðu staðsetningaraðgengi virkt fyrir Google-forrit.
Finna staðsetningu
Sláðu inn heimilisfangið sem þú vilt finna og ýttu síðan á Leita hér.
Þú getur einnig pikkað á og sagt síðan heimilisfangið.
Núverandi staðsetning
Pikkaðu á til að sjá núverandi staðsetningu þína. Pikkaðu síðan á Kanna nágrennið til að athuga hvað er nálægt.
Skipuleggja leið
Pikkaðu á og sláðu inn í „Staðsetningin þín“ og „Veldu áfangastað“ eða veldu einfaldlega upphafspunkt sem „Staðsetningin þín“. Veldu ferðamáta, með bíl, í strætó eða gangandi.
Page 18
Page 19

Samstilling

Hægt er að flytja gögn á milli tækisins og tölvunnar svo sem tónlist, myndir, myndskeið, skjöl, Android-forritapakka (APK) skrár, o.s.frv.
Tengja tækið við tölvuna
Tengdu tækið og tölvuna með USB-snúru. Strjúktu niður skjáinn ofan frá. Þá sérðu „USB-tölvutenging“ á tilkynningastikunni. Pikkaðu á USB-tölvutenging til að sjá aðra valkosti.
Val á tölvutengistillingu
Þú getur valið eitt af eftirfarandi valkostum
Margmiðlunartæki (MTP): Veldu þessa stillingu ef þú vilt flytja efnisskrár eins og myndir,
myndskeið og hringitóna milli spjaldtölvunnar og tölvunnar.
Myndavél (PTP): Veldu þessa stillingu ef þú vilt aðeins flytja myndir og myndskeið milli
spjaldtölvunnar og tölvunnar.
Only charge: Veldu þessa stillingu ef þú aðeins vilt hlaða símann þinn.
MIDI: Veldu þessa stillingu ef þú vilt að MIDI-virk forrit í tækinu vinni með MIDI-hugbúnað í
tölvunni.
Uppsetning APK
Fylgdu þessum skrefum:
Stilltu tækið á að leyfa uppsetningu forrita frá óþekktum aðilum.
Farðu í > Stillingar > Öryggi, pikkaðu á Óþekktur uppruni og pikkaðu á Í lagi.
Afritaðu APK-skrána úr tölvunni í tækið með stillingunni „Margmiðlunartæki (MTP)“.
Opnaðu forritaflokk í skráasafninu.
Page 20

Stillingar

Heimaskjár stillinga
Pikkaðu á > Stillingar til að komast á heimaskjá stillinga.
Þegar þú stillir einhverja aðra eiginleika (fyrir utan Google, tímasetta ræsingu og
slokknun og svo framvegis) fyrir tækið skaltu strjúka yfir skjáinn til hægri eða pikka á
til að opna flýtileiðaskjáinn fyrir stillingar.
Tungumál stillt
Farðu í > Stillingar > Tungumál og inntak > Tungumál > Bæta við tungumáli.
Veldu tungumálið sem þú vilt bæta við.
Haltu inni til að draga tungumálið sem bætt var við í fyrstu línuna.
Page 21

Viðauki

Mikilvægar upplýsingar um öryggi og meðhöndlun
Til að forðast slys á fólki, eignatjón eða skemmdir á vörunni af slysni skaltu lesa allar upplýsingarnar í þessum kafla áður en varan er notuð. Til að fá fleiri ábendingar til að hjálpa þér að nota tækið á öruggan hátt skaltu fara á http://www.lenovo.com/safety.
Sýndu aðgát við meðhöndlun á tækinu
Ekki láta tækið falla, sveigja það eða gera göt á það, né heldur stinga aðskotahlutum inn í það eða leggja þunga hluti á það. Viðkvæmir íhlutir inni í tækinu geta orðið fyrir skemmdum. Skjárinn á tækinu þínu er úr gleri. Glerið getur brotnað ef tækið er látið falla niður á hart yfirborð, ef það verður fyrir þungu höggi eða ef það verður undir þungum hlut. Ef brotnar upp úr glerinu eða sprunga kemur á það skaltu ekki snerta brotna glerið eða reyna að fjarlægja það úr tækinu. Hættu þegar í stað notkun tækisins og hafðu samband við tæknistoðþjónustu Lenovo til að fá ráðgjöf um viðgerðir, endurnýjun eða förgun. Við notkun tækisins skal gæta þess að halda því fjarri umhverfi þar sem er mikill hiti eða háspenna, svo sem raftækjum, rafknúnum upphitunarbúnaði eða rafknúnum eldunartækjum. Til að koma í veg fyrir skemmdir á tækinu skal aðeins nota það við hitastig frá 0 °C til 40 °C (við geymslu -20 °C til 60 °C). Haldið tækinu frá vatni, regni, miklum raka, svita eða öðrum vökvum.
Ekki taka tækið í sundur eða breyta því
Tækið er lokuð eining. Inni í tækinu eru engir íhlutir sem notandi getur gert við eða sinnt viðhaldi á. Allt viðhald innri íhluta verður að fara fram hjá viðgerðaraðila sem er vottaður af Lenovo eða tæknimanni með heimild frá Lenovo. Allar tilraunir til að opna tækið eða breyta því gera ábyrgðina ógilda.
Tilkynning varðandi innbyggðu hleðslurafhlöðuna
Ekki reyna að skipta um innbyggðu litíum-ion hleðslurafhlöðuna. Hætta er á sprengingu ef sett er í ný rafhlaða af rangri tegund. Hafið samráð við hjálparmiðstöð Lenovo til að fá varahluti frá verksmiðju.
Viðvörun vegna plastpoka
HÆTTA: Plastpokar geta verið hættulegir. Haldið plastpokum fjarri ungbörnum og yngri börnum til að komast hjá hættu á köfnun.
Upplýsingar um hleðslutæki
Komið í veg fyrir að tækið og straumbreytirinn blotni.
Ekki sökkva tækinu í vatn eða skilja það eftir á stað þar sem það getur komist í snertingu
við vatn eða aðra vökva.
Notið aðeins viðurkenndar aðferðir við hleðslu.
Page 22
Athugaðu: Notið aðeins staðlaða spennubreyta frá Lenovo.Notkun spennubreyta frá þriðju
aðilum hefur áhrif á hleðsluhraða, sem skilar sér í óeðlilegri hleðslu og getur hugsanlega
skemmt búnaðinn.
Tengið staðlaðan spennubreyti við viðeigandi rafmagnsinnstungu. Notið staðlaða gagnasnúru til að tengja tækið við tölvu eða tæki sem samræmist USB 2.0 eða nýrri útgáfu.
Hleðslutæki geta hitnað við venjulega notkun. Tryggðu að fullnægjandi loftræsting sé til staðar umhverfis hleðslutækið. Taktu hleðslutækið úr sambandi ef eitthvað af eftirfarandi gerist:
Hleðslutækið hefur fengið á sig regnvatn, vökva eða mikinn raka.
Hleðslutækið ber merki um skemmdir.
Þú þarft að hreinsa hleðslutækið.
Viðvörun: Lenovo ber ekki ábyrgð á afköstum eða öryggi vara sem ekki eru framleiddar eða samþykktar af Lenovo. Notið aðeins straumbreyta og rafhlöður sem eru samþykkt af Lenovo.
Viðvörun vegna mikils hljóðstyrks
Viðvörun: Að vera í miklum hávaða, frá hvaða hljóðgjafa sem er, í lengri tíma kann að skaða heyrnina. Því hærra sem hljóðið er því minni tíma þarf áður en það gæti haft áhrif á heyrnina. Til að vernda heyrn þína:
Stilltu í hóf þeim tíma sem þú notar höfuðtól eða heyrnartól við háan hljóðstyrk.
Forðist að hækka hljóðstyrkinn til að loka á hávaða úr umhverfinu.
Ef þú heyrir ekki hvað fólkið næst þér segir ættirðu að minnka hljóðstyrkinn. Ef þú finnur fyrir óþægindum í eyrunum, þar með talið þrýstingi, stíflu í eyrunum eða suði, eða átt erfitt með að heyra tal, ættir þú að hætta að hlusta á tækið gegnum heyrnartólin og láta mæla heyrnina.
Öryggisleiðbeiningar fyrir foreldra og fullorðna umsjónarmenn
Fartækið er ekki leikfang. Ekki er mælt með að fyrir börn yngri en 3 ára leiki sér með tækið. Eins og gildir um öll rafmagnstæki skal sýna aðgát þegar rafmagnstæki eru notuð og meðhöndluð til að draga úr líkum á raflosti. Ef foreldrar leyfa börnum yngri en 3 ára að nota tækið skal vara barnið við mögulegri hættu sem fylgir notkun og meðhöndlun fartækisins. Foreldrar ættu að athuga reglulega hvort skemmdir séu á fartækinu (þar á meðal hleðslutæki og smáum hlutum þess, eins og á við). Skoðið fartækið reglulega til að ganga úr skugga um að það virki sem skyldi og öruggt sé fyrir börn að nota það.
Sýndu fyllstu aðgát þegar tækið er notað í vélknúnu ökutæki eða á reiðhjóli
Settu þitt eigið öryggi og öryggi annarra ævinlega í forgang. Fylgdu gildandi lögum. Lög og reglugerðir kunna að gilda um það hvernig þú mátt nota fartæki, eins og tækið þitt, á meðan þú ekur vélknúnu ökutæki eða hjólar á reiðhjóli.
Farga skal tækinu í samræmi við staðbundin lög og reglugerðir
Þegar endingartími tækisins er liðinn skal ekki brjóta það, brenna, sökkva í vatn eða farga því með neinum þeim hætti sem stangast á við gildandi lög og reglugerðir á hverjum stað. Sumir innri hlutar innihalda efni sem geta sprungið, lekið eða haft neikvæð umhverfisáhrif ef þeim er fargað á rangan hátt. Sjá viðbótarupplýsingar í „Endurnýting og umhverfisupplýsingar“.
Page 23
Haldið tækinu og fylgihlutum þess fjarri litlum börnum
Tækið þitt inniheldur litla hluti sem geta valdið köfnunarhættu hjá litlum börnum. Auk þess getur glerskjárinn brotnað eða sprungið ef tækið dettur á eða því er kastað á hart yfirborð.
Verndaðu gögnin þín og hugbúnað
Ekki eyða óþekktum skrám eða breyta heiti skráa eða skráasafna sem þú bjóst ekki til; að öðrum kosti gæti hugbúnaður tækisins hætt að virka. Hafðu í huga að aðgangur að netkerfum getur gert tækið þitt berskjaldað gegn tölvuvírusum, tölvuþrjótum, njósnabúnaði og annarri spillistarfsemi sem geta skemmt tækið, hugbúnaðinn þinn eða gögnin þín. Það er á þína ábyrgð að tryggja að þú njótir fullnægjandi verndar, með notkun eldveggja, vírusvarnar og varnarhugbúnaðar gegn njósnabúnaði, og halda slíkum hugbúnaði uppfærðum. Haltu raftækjum fjarri tækinu þínu. Þetta á við um rafmagnsviftur, útvarpstæki, háspennuhátalara, loftræstibúnað og örbylgjuofna. Raftæki mynda sterkt segulsvið sem getur skemmt skjáinn og gögnin í tækinu.
Sýndu aðgát gagnvart hita sem tækið getur myndað
Þegar kveikt er á tækinu eða rafhlaðan er í hleðslu geta sumir hlutar tækisins orðið heitir. Hitastigið sem þeir ná getur farið eftir virkni kerfisins og hleðslu rafhlöðunnar. Löng snerting við líkamann, jafnvel gegnum fatnað, getur valdið óþægindum og jafnvel bruna á húð. Forðastu að hafa tækið í langvarandi snertingu við hendur, kjöltu eða aðra hluta líkamans.
Tilkynning um rafmagnsbylgjur
FCC-samræmisyfirlýsing
Þessi búnaður hefur verið prófaður og reynst fylgja takmörkum fyrir B-flokk stafrænna tækja, í samræmi við 15. hluta reglna FCC. Þessum takmörkum er ætlað að veita hæfilega vörn gegn skaðlegum truflunum á uppsetningu í íbúabyggð. Þessi búnaður myndar, notar og getur sent frá sér útvarpsbylgjur og ef hann er ekki settur upp og notaður í samræmi við leiðbeiningarnar getur hann valdið skaðlegum truflunum á fjarskiptabúnaði. Við getum hins vegar ekki ábyrgst að slíkar truflanir muni aldrei eiga sér stað. Ef þessi búnaður veldur skaðlegum truflunum á útvarps- eða sjónvarpsmóttöku, sem hægt er að ákvarða með því að kveikja og slökkva á búnaðinum, eru notendur hvattir til að beita einni eða fleiri eftirfarandi ráðstafana til að koma í veg fyrir truflanirnar:
Endurstilla eða flytja móttökuloftnetið.
Auka bilið á milli búnaðarins og móttakarans.
Tengja búnaðinn við innstungu á annarri rafrás en þeirri sem móttökutækið er tengt við.
Leita aðstoðar hjá viðurkenndum söluaðila eða þjónustufulltrúa. Lenovo ber ekki ábyrgð á truflunum í útvarps- eða sjónvarpstækjum sem rekja má til óheimilla breytinga á þessum búnaði. Óheimilar breytingar geta gert heimild notandans til notkunar þess ógilda. Þetta tæki er í samræmi við 15. hluta reglna FCC. Notkun þess er háð eftirfarandi tveimur skilyrðum: (1) Tækið má ekki valda truflunum, og (2) tækið verður að taka við öllum truflunum, þ.m.t. truflunum sem geta valdið óæskilegri virkni þess. Ábyrgðaraðili: Lenovo (Bandaríkin) Incorporated 1009 Think Place - Building One Morrisville, NC 27560
Page 24
Sími: 1-919-294-5900
IC varúðartilkynning
Þetta tæki samræmist iðnaðarleyfi Kanada hvað varðar undanþágu fyrir RSS-staðli/stöðlum. Notkun þess er háð eftirfarandi tveimur skilyrðum: (1) Þetta tæki má ekki valda truflunum, og (2) þetta tæki verður að taka við öllum truflunum, þ.m.t. truflunum sem geta valdið óæskilegri virkni þess. Le présent appareil est conforme aux CNR d'Industrie Canada applicables aux appareils radio exempts de licence. L'exploitation est autorisée aux deux conditions suivantes: (1) l'appareil ne doit pas produire de brouillage, et (2) l'utilisateur de l'appareil doit accepter tout brouillage radioélectrique subi, même si le brouillage est susceptible d'en compromettre le fonctionnement.
Japönsk VCCI-yfirlýsing fyrir B-flokk
この装置は、クラスB情報術装置です。この装置は、家庭環で使用することを目的としています が、この装置がラジオやテレビジョン受信に近接して使用されると、受信障害を引きこすことが あります。 取扱説明書に従って正しい取り扱いをして下さい。VCCI-B
Japönsk yfirlýsing um samræmi fyrir vörur sem tengdar eru við rafleiðslur með uppgefinn straum sem jafngildir eða er minni en 20A á fasa
日本の定格電流が 20A/相 以下の器に対する調波電流調波電流 JIS C 61000-3-2 適合品
Upplýsingar varðandi umhverfi, endurvinnslu og förgun
Almenn endurvinnsluyfirlýsing
Lenovo hvetur eigendur upplýsingatæknibúnaðar (IT) til ábyrgrar endurvinnslu á búnaði þegar hans er ekki lengur þörf. Lenovo býður upp á margs konar kerfi og þjónustu til að aðstoða eigendur búnaðar við endurvinnslu á upplýsingatæknibúnaði sínum. Frekari upplýsingar um endurvinnslu á vörum frá Lenovo er að finna á: http://www.lenovo.com/recycling.
Mikilvægar upplýsingar um rafhlöður, raftæki og rafeindabúnað (WEEE)
Rafhlöðum, rafbúnaði og rafeindabúnaði sem merkt eru með tákni sem sýnir yfirstrikaða ruslafötu er óheimilt að farga sem óflokkuðu almennu sorpi. Rafhlöður og úrgang frá rafbúnaði og rafeindabúnaði (WEEE) skal meðhöndla sérstaklega í samræmi við þau söfnunarúrræði sem viðskiptavinum standa til boða fyrir skil, endurvinnslu og endurnýtingu á rafbúnaði, rafeindabúnaði og rafhlöðum. Þegar þess er kostur skal fjarlægja og einangra rafhlöður úr rafbúnaði og rafeindabúnaði áður en slíkur búnaður er settur í söfnunarferli fyrir sorp. Rafhlöðum skal safna saman aðskildum með því að nota þau söfnunarúrræði sem viðskiptavinum standa til boða fyrir skil, endurvinnslu og endurnýtingu á rafhlöðum og rafgeymum. Upplýsingar fyrir tilgreind lönd eru fáanlegar á http://www.lenovo.com/recycling.
Endurvinnsluupplýsingar rafhlöðu fyrir Brasilíu
Declarações de Reciclagem no Brasil
Descarte de um Produto Lenovo Fora de Uso Equipamentos elétricos e eletrônicos não devem
Page 25
ser descartados em lixo comum, mas enviados à pontos de coleta, autorizados pelo fabricante do produto para que sejam encaminhados e processados por empresas especializadas no manuseio de resíduos industriais, devidamente certificadas pelos orgãos ambientais, de acordo com a legislação local. A Lenovo possui um canal específico para auxiliá-lo no descarte desses produtos. Caso você possua um produto Lenovo em situação de descarte, ligue para o nosso SAC ou encaminhe um e-mail para: reciclar@lenovo.com, informando o modelo, número de série e cidade, a fim de enviarmos as instruções para o correto descarte do seu produto Lenovo.
Endurvinnsluupplýsingar fyrir Japan
Endurvinnsluupplýsingar fyrir Japan eru fáanlegar á http://www.lenovo.com/recycling/japan.
Endurvinnsluupplýsingar fyrir Indland
Upplýsingar varðandi endurvinnslu og förgun fyrir Indland eru fáanlegar á: http://www.lenovo.com/social_responsibility/us/en/sustainability/ptb_india.html.
Endurvinnslumerkingar á rafhlöðu
Endurvinnsluupplýsingar rafhlöðu fyrir Taívan
Endurvinnsluupplýsingar rafhlöðu fyrir Bandaríkin og Kanada
Endurvinnsluupplýsingar rafhlöðu fyrir Evrópusambandið
ENERGY STAR-gerðarupplýsingar
ENERGY STAR® er sameiginlegt verkefni bandarísku umhverfisstofnunarinnar og bandaríska orkumálaráðuneytisins sem miðar að því að spara fé og vernda umhverfið með orkusparandi vörum og aðferðum. Lenovo eru stoltir af því að bjóða viðskiptavinum okkar vörur með viðurkenndri ENERGY STAR tilnefningu. Þú kannt að finna merki ENERGY STAR á tölvunni eða í viðmótinu fyrir orkustillingarnar. Lenovo-spjaldtölvur með eftirfarandi gerðarheiti, sem eru með ENERGY
Page 26
STAR-merki, hafa verið hannaðar og prófaðar til að samræmast kröfum ENERGY STAR­áætlunarinnar fyrir spjaldtölvur. Lenovo TB-8704F Með því að nota ENERGY STAR-vottaðar vörur og nýta orkustjórnunareiginleika spjaldtölvunnar getur þú hjálpað til við að draga úr raforkunotkun. Minni raforkunotkun getur stuðlað að mögulegum fjárhagslegum sparnaði, hreinna umhverfi, og minni losun gróðurhúsalofttegunda. Varðandi frekari upplýsingar um ENERGY STAR farðu á: http://www.energystar.gov.
Tilkynning vegna útflutningsflokkunar
Þessi vara er háð reglugerðum bandarískra útflutningsyfirvalda (EAR) og er með útflutningsflokkunarnúmer (ECCN) á 5A992.c. Vöruna má flytja út aftur, þó ekki til neinna þeirra landa sem eru á bannlista EAR E1.
Úrræðaleit
Áminning um of lítið minni birtist við uppsetningu á forriti
Losaðu pláss í minninu og reyndu að setja forritið upp aftur.
Snertiskjárinn virkar ekki eða er ekki næmur
Haltu aflhnappinum inni í meira en 8 sekúndur þar til tækið slekkur á sér. Kveiktu síðan aftur á því á venjulegan hátt.
Kerfið kveikir ekki á sér eða kerfið hrynur
Hladdu rafhlöðuna í hálftíma og haltu svo aflhnappinum inni í meira en 8 sekúndur þar til tækið slekkur á sér. Kveiktu síðan aftur á því á venjulegan hátt.
Tækið nær ekki sambandi við internetið í gegnum þráðlaust net
Endurræstu beini fyrir þráðlaust net eða farðu í stillingar og endurræstu þráðlaust staðarnet (WLAN).
Tækið vaknar ekki úr svefnstillingu
Haltu aflhnappinum inni í meira en 8 sekúndur þar til tækið slekkur á sér. Kveiktu síðan aftur á því á venjulegan hátt.
Loading...