Sony Ericsson Mobile Communications AB eða
dótturfyrirtæki þess í viðkomandi landi gefur út
þessa handbók án nokkurrar ábyrgðar.
Sony Ericsson Mobile Communications AB er heimilt
hvenær sem er og án fyrirvara að gera endurbætur
og breytingar á handbók þessari sem nauðsynlegar
kunna að vera vegna prentvillna, ónákvæmni
núverandi upplýsinga eða endurbóta á forritum og/
eða búnaði. Slíkar breytingar verða þá gerðar á
seinni útgáfum handbókarinnar.
Athugið: Sum þjónusta eða aðgerðir sem lýst er í
þessari notendahandbók eru ekki studd af öllum
símkerfum og/eða þjónustuveitum á öllum
svæðum. Án þess að um neinar takmarkanir sé að
ræða, gildir þetta einnig um alþjóðlega GSM
neyðarnúmerið 112. Vinsamlegast hafðu samband
við símafyrirtækið þitt eða þjónustuveituna til að fá
upplýsingar um hvort tiltekin þjónusta eða aðgerð
er í boði og hvort henni fylgi aukinn aðgangur eða
notkunargjöld.
Vinsamlegast lestu Áríðandi upplýsingarnar áður en
þú notar farsímann.
Með símanum er hægt að hlaða niður, vista og
framsenda viðbótarefni svo sem hringitóna. Notkun
slíks efnis kann að vera takmörkuð eða bönnuð
vegna réttar þriðja aðila, þar með talið, en ekki
eingöngu, takmarkanir viðeigandi laga um
höfundarrétt. Þú, en ekki Sony Ericsson, berð algera
ábyrgð á því efni sem þú hleður niður í farsímann eða
framsendir úr honum. Áður en þú notar
utanaðkomandi efni, vinsamlegast sannvottaðu að
viðeigandi leyfi séu til fyrir ætlaðri notkun þinni eða
hún sé samþykkt á annan hátt. Sony Ericsson
ábyrgist ekki nákvæmni, samkvæmni eða gæði
utanaðkomandi efnis né annars efnis frá þriðja aðila.
Undir engum kringumstæðum er Sony Ericsson
ábyrgt á nokkurn hátt vegna misnotkunar þinnar á
utanaðkomandi efni eða efni frá þriðja aðila.
Smart-Fit Rendering er vörumerki eða skrásett
vörumerki ACCESS Co., Ltd.
Bluetooth er vörumerki eða skráð vörumerki
Bluetooth SIG Inc. og sérhver notkun
Sony Ericsson á því er samkvæmt leyfi.
TrackID™ er keyrt á Gracenote Mobile MusicID™.
Gracenote og Gracenote Mobile MusicID eru
vörumerki eða skráð vörumerki Gracenote, Inc.
Sony, Memory Stick Micro™, M2™ og Media Go eru
vörumerki eða skráð vörumerki Sony Corporation.
PictBridge eru vörumerki eða skráð vörumerki
Canon Kabushiki Kaisha Corporation.
Google™, Google Maps™, YouTube og merki
YouTube eru vörumerki eða skráð vörumerki
Google, Inc.
SyncML er vörumerki eða skráð vörumerki Open
Mobile Alliance LTD.
Ericsson er vörumerki eða skráð vörumerki
Telefonaktiebolaget LM Ericsson.
Adobe Photoshop Album Starter Edition er
vörumerki eða skráð vörumerki Adobe Systems
Incorporated í Bandaríkjunum og/eða öðrum
löndum.
Microsoft, ActiveSync, Windows, Outlook Windows
Media og Vista eru skráð vörumerki eða vörumerki
Microsoft Corporation í Bandaríkjunum og/eða
öðrum löndum/svæðum.
T9™ Text Input er skráð vörumerki Tegic
Communications. T9™ Text Input nýtur
einkaleyfisverndar skv. eftirfarandi: U.S. Pat. nr.
5.818.437, 5.953.541, 5.187.480, 5.945.928 og
6.011.554; Canadian Pat. nr. 1.331.057, United
Kingdom Pat. nr. 2238414B; Hong Kong Standard
Pat. nr. HK0940329; Republic of Singapore Pat. nr.
51383; Euro.Pat. nr. 0 842 463(96927260.8) DE/DK,
FI, FR, IT, NL, PT, ES, SE, GB; og viðbótarleyfi bíða
afgreiðslu.
Vara þessi nýtur verndar tiltekinna hugverkaréttinda
Microsoft. Notkun eða dreifing slíkrar tækni án
tengsla við þessa vöru er bönnuð ef ekki er fyrir hendi
leyfi frá Microsoft.
Eigendur efnis nota stjórnkerfi stafrænna réttinda í
Windows Media (WMDRM) til að vernda
hugverkarétt sinn, þ. á m. höfundarréttindi. Þetta
tæki notar WMDRM hugbúnað frá Windows Media
til að fá aðgang að WMDRM-vörðu efni. Geti
WMDRM hugbúnaðurinn ekki varið efnið, kunna
eigendur efnis að biðja Microsoft um að fella niður
eiginleika hugbúnaðarins til að nota WMDRM til að
leika eða afrita varið efni. Niðurfelling hefur ekki áhrif
á óvarið efni. Þegar þú hleður niður notkunarleyfi fyrir
varið efni samþykkir þú að Microsoft megi láta lista
yfir niðurfellingar fylgja með leyfunum. Eigendur
efnis kunna að krefjast þess að þú uppfærir WMDRM
til að geta fengið aðgang að efni þeirra. Hafnir þú því
að fá uppfærslu munt þú ekki eiga kost á að fá
aðgang að efni sem þarfnast uppfærslu.
Þessi vara er með leyfi á grundvelli MPEG-4 og AVC
notkunarleyfa fyrir skráð sjónræn einkaleyfi til
persónulegrar notkunar og neytendanotkunar sem
ekki er í viðskiptaskyni til að (i) afkóða myndskeið í
samræmi við sjónræna staðalinn MPEG-4 („MPEG-4
myndskeið“) eða AVC staðalinn („AVC myndskeið“)
og/eða (ii) til afkóðunar MPEG-4 eða AVC
myndskeiðs sem hafði verið afkóðað af neytanda
sem gerði það vegna persónulegra nota og notkunar
sem var ekki í viðskiptaskyni og/eða var fengin frá
söluaðila myndskeiða sem er með leyfi frá MPEG LA
til að útvega MPEF-4 og/eða AVC myndskeið. Ekkert
leyfi er veitt eða undirskilið til neinnar annarrar
notkunar. Viðbótarupplýsingar, þ.m.t. sem tengjast
auglýsingum, notkun innanhúss og notkun í
viðskiptaskyni og leyfisveitingu, er hægt að fá frá
MPEG LA, L.L.C. Sjá http://www.mpegla.com.
MPEG Layer-3 hljóðafkóðunartækni með leyfi frá
Fraunhofer IIS and Thomson.
Java, JavaScript og öll vörumerki og fyrirtækismerki
sem byggjast á Java eru vörumerki eða skráð
vörumerki Sun Microsystems Inc. í Bandaríkjunum
og öðrum löndum.
Notandaleyfi fyrir Sun™ Java™ Platform, Micro
Edition.
1. Takmarkanir: Hugbúnaðurinn felur í sér
trúnaðarupplýsingar sem njóta einkaleyfisverndar
og öll afrit hans haldast í eigu Sun og/eða
leyfisveitanda. Viðskiptavininum er óheimilt að
breyta, bakþýða, baksmala, ráða dulritun á, stunda
gagnadrátt úr eða á annan hátt vendismíða
hugbúnaðinn. Óheimilt er að leigja út hugbúnaðinn
eða framselja eignarrétt eða notandaleyfi fyrir honum
í heild eða að hluta.
2. Útflutningsreglur: Hugbúnaður sem inniheldur
tæknileg gögn kann að lúta bandarískri
útflutningslöggjöf, þ.m.t. U.S. Export Administration
Act (lögum um útflutningseftirlit Bandaríkjanna) og
tilheyrandi reglugerðum og kann að lúta útflutningseða innflutningsreglum í öðrum löndum. Notandinn
samþykkir að fara í einu og öllu að slíkum reglum og
viðurkennir að hann beri ábyrgð á því að verða sér
úti um nauðsynleg leyfi fyrir útflutningi,
endurútflutningi eða innflutningi á hugbúnaðinum.
Óheimilt að hlaða niður eða flytja út, eða
endurútflytja á annan hátt, hugbúnaðinn, (i) til Kúbu,
Íraks, Írans, Norður-Kóreu, Líbýu, Súdans, Sýrlands
(skv. uppfærðum lista hverju sinni), þegna eða íbúa
þeirra landa, eða nokkurs lands sem Bandaríkin hafa
lagt viðskiptabann á, eða (ii) til einstaklings eða
lögaðila á lista fjármálaráðuneytis Bandaríkjanna um
sérskráða ríkisborgara eða á töflu bandaríska
viðskiptaráðuneytis yfir opinberar synjanir. 3.
Takmarkaður réttur: Notkun, fjölföldun og birting
bandarískra stjórnvalda á upplýsingum er háð þeim
takmörkunum sem greinir í ákvæðum um réttindi
varðandi tækniupplýsingar og tölvuhugbúnað í
DFARS 252.227-7013(c) (1) og FAR 52.227-19(c) (2),
eftir því sem við á.
Takmarkaður réttur: Notkun, fjölföldun og birting
bandarískra stjórnvalda á upplýsingum er háð þeim
takmörkunum sem greinir í ákvæðum um réttindi
Settu rafhlöðuna í símann þannig að
merkimiðinn snúi upp og tengin snúi
hvort að öðru.
2
Festu bakhliðina á.
Kveikt á símanum
Til að kveikja á símanum
1
Haltu inni.
2
Sláðu inn PIN númer SIM kortsins, ef
beðið er um það og veldu Í lagi.
3
Veldu tungumál.
4
Fylgdu leiðbeiningunum til að nota
uppsetningarhjálpina til að stilla
grunnstillingar og fá hjálplegar
ábendingar.
Ef þú vilt leiðrétta mistök þegar þú slærð
inn PIN númerið skaltu ýta á .
SIM kort
SIM kortið (Subscriber Identity
Module), sem farsímafyrirtækið lætur
þér í té, inniheldur upplýsingar um
áskriftina þína. Slökktu alltaf á
símanum og taktu hleðslutækið úr
sambandi áður en þú setur SIM kort í
hann eða tekur SIM kort úr honum.
Hægt er að vista tengiliði á SIM kortinu
áður en það er tekið úr símanum. Sjá Til
að afrita nöfn og númer á SIM kortið á
bls. 20.
PIN númer
Þú gætir þurft PIN númer (Personal
Identity Number) til að geta notað
þjónustu og eiginleika í símanum. PIN
númerið fæst hjá símafyrirtækinu. Hver
tölustafur PIN númersins birtist sem *,
nema það byrji á tölustöfum
neyðarnúmers, t.d. 112 eða 911. Þetta
er gert til þess að hægt sé að sjá og
hringja í neyðarnúmerið án þess að slá
inn PIN númer.
SIM kortinu er læst ef rangt PIN númer er
slegið inn þrisvar sinnum í röð. Sjá Læsing
SIM-korts á bls. 58.
Biðstaða
Heiti símafyrirtækisins birtist þegar
kveikt hefur verið á símanum og PIN
númerið slegið inn. Þessi staða kallast
biðstaða. Nú geturðu byrjað að nota
símann.
Notkun annarra símkerfa
Þegar þú hringir eða tekur við
símtölum, notar skilaboð og
gagnaflutning, til dæmis
internetþjónustu, utan
heimasímkerfisins (reiki) getur
aukalegur kostnaður bæst við. Frekari
upplýsingar fást hjá símafyrirtækinu.
Hjálp
Auk þessarar notendahandbókar er
hægt að fá leiðbeiningar um eiginleikar
og frekari upplýsingar á
www.sonyericsson.com/support.
Einnig er hægt er að fá leiðbeiningar og
upplýsingar í símanum.
Til að opna notendahandbókina
•
Veldu Valmynd > Stillingar >
Notendahjálp > Notendahandbók.
Til að skoða gagnlegar ábendingar
•
Veldu Valmynd > Stillingar >
Notendahjálp > Snjallræði.
Til að skoða upplýsingar um aðgerðir
•
Flettu að valkosti og veldu Upplýs., ef
það er í boði. Í sumum tilvikum birtast
Upplýs. í Valkost..
Til að skoða kynningu símans
•
Veldu Valmynd > Afþreying >
Sýnikennsla.
Til að skoða stöðu símans
•
Ýttu á
hljóðstyrkstakkann. Upplýsingar um
símann, minnið og rafhlöðuna birtast.
og ýttu svo á
Rafhlaðan hlaðin
Rafhlaða símans hefur þegar verið
hlaðin að hluta þegar síminn er keyptur.
Tengdu hleðslutækið við símann. Það
tekur u.þ.b. 2,5 klukkustundir að hlaða
rafhlöðuna að fullu. Ýttu á einhvern
takka til að kveikja á skjánum.
2
Fjarlægðu hleðslutengið með því að
tylla því upp á við.
Hægt er að nota símann meðan rafhlaðan
er í hleðslu. Hægt er að hlaða rafhlöðuna
hvenær sem er og í styttri eða lengri tíma
en 2,5 klukkustundir. Hægt er að hætta
hleðslunni án þess að skemma
rafhlöðuna.
1Hlust
2Myndavél fyrir myndsímtöl*
3Skjárinn
4Valtakkar
5Hringitakki
6Takki fyrir yfirlitsskjá
7Stýrihnappur
8Tengi fyrir hleðslutæki, handfrjálsan búnað og USB snúru
9Takki til að ljúka símtölum, takki til að slökkva/kveikja á
Hraðval
Snjallleit
Flytja símtöl
Skipta yfir á línu 2
Vinna með símtöl
Tími & kostnaður
Númerabirting
Handfrjáls búnaður
Opna til að svara
Tengingar
Bluetooth
USB
Nafn símans
Samstilling
Símastjórnun
Farsímakerfi
Gagnasamskipti
Internetstillingar
Streymisstillingar
Skilaboðastillingar
SIP-stillingar
Aukabúnaður
Númer valmynda hefjast í vinstra
horninu og færast svo yfir og niður, röð
fyrir röð.
Til að fara beint í aðalvalmyndaratriði
•
Veldu Valmynd og ýttu á
– ,
, or .
Útlit aðalvalmynd. verður að vera stillt á
Tafla. Sjá Útliti aðalvalmyndar breytt á
bls. 56.
Yfirlitsskjár
Yfirlitskjárinn veitir skjótan aðgang að:
•
Nýir atburðir – ósvöruð símtöl og ný
skeyti.
•
Opin forrit – forrit sem eru keyrð í
bakgrunni.
•
Flýtileiðir mínar – bættu við
uppáhaldsaðgerðum þínum til að
fljótlegt sé að nálgast þær.
•
Internet – skjótur aðgangur að
internetinu.
Til að opna upplýsingaskjáinn
•
Ýttu á .
Minni
Hægt er að vista efni á minniskortinu, í
minni símans og á SIM kortinu. Myndir
og tónlist er vistuð á minniskortinu, ef
minniskort er í símanum. Ef ekki, eða ef
minniskortið er fullt, eru myndir og
tónlist vistuð í minni símans. Skilaboð
og tengiliðir eru vistaðir í minni símans
en þú getur valið að vista þá á SIM
kortinu.
Minniskort
Hugsanlega þarftu að kaupa minniskort
sérstaklega.
Síminn þinn styður Memory Stick
Micro™ (M2™) minniskort sem eykur
geymslupláss símans. Einnig er hægt
að nota það sem færanlegt minniskort
með öðrum samhæfum tækjum.
Hægt er að færa efni milli minniskorts
og minni símans. Sjá Efni meðhöndlaðí símanum á bls. 35.
Opnaðu rafhlöðuhlífina og settu
minniskortið í símann þannig að gylltu
snerturnar snúi niður.
Tungumál símans
Þú getur valið hvaða tungumál þú notar
í símanum.
Tungumáli símans breytt
1
Veldu Valmynd > Stillingar > Almennt >
Tungumál > Tungumál símans.
2
Veldu einhvern valkost.
Texti sleginn inn
Þú getur notað beinritun eða T9™
flýtiritun til að slá inn texta. Í T9™
innsláttaraðferðinni er notast við
innbyggða orðabók.
Til að breyta innsláttaraðferðinni
•
Þegar þú slærð inn texta heldurðu inni
.
Til að skipta á milli há- og lágstafa
•
Þegar þú slærð inn texta ýtirðu á .
Til að slá inn tölustafi
•
Þegar þú slærð inn texta heldurðu inni
– .
Til að setja inn punkta og kommur
•
Þegar þú slærð inn texta ýtirðu á
Til að slá inn tákn
1
Þegar þú slærð inn texta skaltu velja
Valkost. > Setja inn tákn.
2
Flettu að tákni og veldu Setja inn.
Til að nota T9™ flýtiritun við
textainnslátt
1
Veldu til dæmis Valmynd > Skilaboð >
Skrifa nýtt > Skilaboð.
2
Ef birtist ekki heldurðu inni til að
skipta yfir í T9 flýtiritun.
3
Í flýtiritun er aðeins ýtt einu sinni á hvern
takka, jafnvel þó að stafurinn sé ekki
fyrsti stafurinn á takkanum.
Orðið ‘Jane’ er til dæmis skrifað með
því að ýta á , , , . Skrifaðu
allt orðið áður en þú skoðar tillögur um
orð.
Til að breyta hljóðstyrknum meðan á
símtali stendur
•
Ýttu hljóðstyrkstakkanum upp eða
niður.
Til að taka hljóðið af hljóðnemanum
meðan á símtali stendur
1
2
Haltu
Haltu
inni.
aftur inni til að halda áfram
(setja hljóðið á).
Til að kveikja á hátalaranum meðan á
símtali stendur
•
Ýttu á Hátalari.
Ekki halda símanum að eyranu þegar þú
notar hátalarann. Það gæti valdið
heyrnarskaða.
Til að skoða ósvöruð símtöl
•
Ýttu á til að opna símtalalistann.
Símkerfi
Síminn skiptir sjálfkrafa á milli GSM og
3G (UMTS) símkerfanna, eftir því hvort
er í boði. Í sumum símkerfum geta
notendur breytt handvirkt um símkerfi.
Til að skipta handvirkt um símkerfi
1
Veldu Valmynd > Stillingar > Tengingar >
Farsímakerfi > GSM/3G símkerfi.
2
Veldu einhvern valkost.
Neyðarsímtöl
Síminn styður alþjóðleg neyðarnúmer
líkt og 112 eða 911. Vanalega er hægt
að nota þessi númer til að hringja
neyðarsímtöl í hvaða landi sem er, og
burtséð frá því hvort SIM kort sé í
viðkomandi síma, ef síminn er innan
þjónustusvæðis símkerfis.
Í sumum löndum kann einnig að vera
hægt að hringja í önnur neyðarnúmer. Því
getur verið að símafyrirtækið þitt hafi
vistað önnur neyðarnúmer á SIM kortinu.
Til að hringja í neyðarnúmer
•
Sláðu inn 112 (alþjóðlega
neyðarnúmerið) og ýttu á .
Til að skoða landsbundin
neyðarnúmer
1
Veldu Valmynd > Símaskrá.
2
Flettu að Nýr tengiliður og veldu
Valkost. > Sérstök númer >
Neyðarnúmer.
Myndsímtal
Þú getur deilt stundum með vinum og
fjölskyldu þegar þær gerast eða vistað
þær til að deila þeim síðar. Þú sérð
viðmælanda þinn á skjá símans.
Viðmælandinn sér það sem er í
myndavélinni þinni.
Áður en myndsímtöl eru hringd
3G (UMTS) þjónusta er í boði þegar
merkið birtist. Til að hringja myndsímtal
þurfa báðir aðilar að hafa áskrift að 3G
(UMTS) sem styður 3G (UMTS)
þjónustu og þurfa þeir að vera innan
þjónustusvæðis 3G (UMTS).
Til að hringja myndsímtal
1
Sláðu inn símanúmer (með lands- og
svæðisnúmerinu þegar það á við).
2
Veldu Valkost. > Hringja myndsímt..
Til að nota aðdrátt í myndsímtölum
•
Ýttu á eða .
Til að samnýta myndir og hreyfimyndir
í myndsímtali
1
Ýttu á meðan á myndsímtali stendur
til að skipta yfir á flipann fyrir
samnýtingu hreyfimynda.
2
Flettu að myndskeiði eða mynd og
veldu Samnýta.
Til að skoða valkosti myndsímtala
•
Meðan á símtalinu stendur velurðu
Valkost..
Símtalalisti
Hægt er að skoða upplýsingar um
síðustu símtöl.
Til að hringja í númer úr
símatalalistanum
1
Ýttu á og flettu að flipa.
2
Flettu að nafni eða númeri og ýttu á
.
Símaskrá
Hægt er að vista nöfn, símanúmer og
persónulegar upplýsingar í Símaskrá.
Hægt er að vista upplýsingar í minni
símans eða á SIM kortinu.
Þú getur samstillt tengiliðina þína með
Sony Ericsson PC Suite.
Sjálfgefin símaskrá/tengiliðir
Hægt er að velja hvaða upplýsingar
sjást sjálfkrafa. Ef Símaskrá er valin sem
sjálfgefin símaskrá, eru allar
upplýsingar sýndar sem vistaðar eru
um tengiliðinn í Símaskrá. Ef þú velur
Flettu á milli flipanna og bættu
upplýsingum í reitina.
5
Sláðu inn upplýsingarnar og veldu
Vista.
Hópar
Þú getur búið til hóp með
símanúmerum og netföngum úr
Símaskrá og sent skeyti á hópinn. Sjá
Skilaboð á bls. 40. Þú getur líka notað
hópa (með símanúmerum) þegar þú
býrð til lista yfir þau númer sem þú vilt
svara símtölum úr. Sjá Samþykkjasímtöl á bls. 24.
Til að búa til hóp með símanúmerum
og netföngum
1
Veldu Valmynd > Símaskrá.
2
Flettu að Nýr tengiliður og veldu
Valkost. > Hópar.
3
Flettu að Nýr hópur og veldu Bæta við.
4
Sláðu inn heiti fyrir hópinn og veldu
Áfram.
5
Flettu að Nýtt og veldu Bæta við.
6
Flettu að öllum þeim símanúmerum og
netföngum sem þú vilt merkja og veldu
Merkja.
7
Veldu Áfram > Lokið.
Hraðval
Með hraðvalsnúmerum geturðu valið
níu tengiliði sem þú vilt geta hringt í á
fljótlegan hátt úr biðstöðu. Hægt er að
vista tengiliði á tökkum
(sætisnúmerum) 1 til 9.
Til að bæta tengiliðum við
hraðvalsnúmer
1
Veldu Valmynd > Símaskrá.
2
Flettu að Nýr tengiliður og veldu
Valkost. > Hraðval.
3
Flettu að sætisnúmeri og veldu Bæta
við.
4
Veldu tengilið.
Til að hringja með hraðvali
•
Sláðu inn sætisnúmerið og veldu .
Fleiri hringieiginleikar
Talhólf
Ef talhólfsþjónusta er innifalin í
áskriftinni þinni geta þeir sem hringja í
þig skilið eftir skilaboð í talhólfinu þínu
þegar þú svarar ekki símtali frá þeim.