Termix VX - T24 snjóbræðslugrind
Tengigrind fyrir lokuð snjóbræðslukerfi
Notkun
Margir íslendingar hafa komið fyrir snjóbræðslukerfi við íbúðarhús sín, og einnig eru víða snjóbræðslukerfi í stærri bílastæðum. Oftast eru snjóbræðslukerfin sett þannig upp að þau nýta síðustu hitaeiningarnar úr bakrás húshitakerfisins.
Þessi opnu kerfi geta verið viðkvæm gagnvart frostskemmdum, sérstaklega þau kerfi þar sem reiknað er með því að húseigandinn skjóti heitara vatni inn á kerfið þegar skyndilega kólnar í veðri. Frostskemmdir í snjóbræðslukerfum geta valdið miklum skemmdum sem kostnaðarsamt er að bæta.
Með VX-T24 tengigrindinni býður Danfoss nú fullkominn stjórnbúnað sem er hannaður sérstaklega fyrir íslensk lokuð snjóbræðslukerfi. Grindin nýtir bakrásina úr húsinu, en er jafnframt búin AVTB blæðingarloka sem blæðir heitara vatni inn á kerfið þegar kólnar í veðri.
Valmöguleikar
VX T-24 tengigrindin er til í tveim mismunandi útfærslum. Önnur gerðin (sjá mynd hér að ofan) er með hefðbundnum AV TB hitast ýrðum stjórnloka.
Hin gerðin er með ECL stjórnstöð og mótorloka. Þessi út- f æ r s l a e r h e l d u r dýrari, en með henni fæst mun nákvæm- a r i h i t a s t ý r i n g í kerfinu vegna þess að ECL stjórnstöðin stýrir með tilliti til útihitastigs.
Sérstök athygli er vakin á því að Danfoss framleiðir margar aðrar gerðir af tengigrindum, t.d. grindur sem aðeins eru fyrir heitt neysluvatn, og grindur sem eru bæði fyrir húshitun og neysluvatn.
Efni
Öll rör í VX T-24 tengigrindinni eru úr ryðfríu stáli. Allar röratengingar eru skrúfaðar og með völdum gæðaþéttingum.
Þá er einnig hægt að fá snyrtilegan skáp úr hvítlökkuðu blikki til þess að hylja grindina á veggnum (sjá mynd að ofan).
VX T-24 tengigrindin er, eins og allar tengigrindur frá Danfoss, afar auðveld í uppsetningu og notkun.
Helstu eiginleikar
Minni hætta á frosttjónum
Fæst með ECL stjórnstöð
Góð nýtni á bakrásarvatni
Vönduð vara úr ryðfríu efni
Sérhönnuð fyrir íslenskar aðstæður
VX - T24 Danfoss NOV05
VX - T24 snjóbræðslugrind
Tengimynd - dæmi
5
2 |
3 |
1 |
4 |
Tæknilýsing: |
|
Mál (mm): |
|
Vinnuþrýstingur: |
PN 10 |
||
Án hlífar: |
|||
Hitastig veituvatns: |
Tmax = 120 °C |
||
H 750 x B 500 x D 360 |
|||
Lóðefni í varmaskipti: |
Kopar |
||
Með hlíf: |
|||
|
|
||
|
|
H 800 x B 540 x D 430 |
|
Hlíf: |
Hvítlakkað |
|
|
|
blikk |
|
Þyngd með hlíf: |
30 kg |
|
(með umb.) |
Tengingar:
1.Affallsvatn (framrás)
2.Affallsvatn (bakrás)
3.Frostlagarkerfi (framrás)
4.Frotslagarkerfi (bakrás)
5.Hitaveitukerfi innspýting
Tengirörastærðir:
Öll tengirör með 3/4" ró
Valmöguleikar:
*Þrýstiaukadæla
*Öryggisloki og einstefnuloki (6 bar)
*Hitastillt hringrásarkerfi
*Einstefnuloki og þrýstijafnari
Veggur
Málsetning á tengingum séð að ofan
Afkastatafla
Afköst |
Hlið 1 |
Hlið 2 |
Þrýst. |
|
kW |
°C |
°C |
kPa |
|
|
|
|
|
Danfoss hf |
10 |
35 / 20 |
30 / 15 |
10 |
|
|
|
|
|
|
20 |
35 / 20 |
30 / 15 |
10 |
Skútuvogi 6, 104 Reykjavík |
30 |
35 / 20 |
30 / 15 |
10 |
Sími 510 4100 |
|
|
|
|
e-mail: danfoss@danfoss.is |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
www.danfoss.is |
Danfoss hf tekur ekki ábyrgð á hugsanlegum villum í bæklingum eða öðru prentuðu máli. Danfoss áskilur sér allan rétt til breytinga á framleiðslu sinni, án undangenginnar viðvörunar, þar á meðal á vörum sem eru í pöntun, svo framarlega sem það veldur ekki breytingum á umsömdum gildum. Öll vörumerki í tæknilýsingunum tilheyra viðkomandi fyrirtækjum. Danfoss nafnið og Danfoss vörumerkið eru eign Danfoss A/S. Öll réttindi áskilin.